Erlent
Rice: Ekkert kalt stríð í uppsiglingu Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafnar því að nýtt kalt stríð sé í uppsiglingu en hún kom til Rússlands í dag. Rússar eru uggandi yfir uppsetningu bandarísks eldflaugavarnakerfis í Póllandi sem þeir telja að sé beint gegn sér. Erlent 14.5.2007 19:45
Túlkur í yfirheyrslu vegna hvarfs Madeleine Fréttastofa Sky greindi frá því nú rétt í þessu að maður hefði verið færður til yfirheyrslu á lögreglustöð í Portúgal vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Verið er að leita í húsi sem er stutt þaðan sem hin þriggja ára gamla stúlka hvarf. Maðurinn mun vera túlkur og hafði sagt fólki að hann væri að aðstoða lögregluna við rannsóknina. Erlent 14.5.2007 19:35
Þrjú þúsund kengúrum verður lógað Dýraverndunarsinnar eru æfir yfir þeim áformum borgaryfirvalda í Canberra í Ástralíu að fella yfir þrjú þúsund kengúrur á næstunni. Kengúrum hefur fjölgað mikið í námunda við höfuðborgina og því óttast ráðamenn að þær verði í framtíðinni aðgangsharðari í matarleit sinni. Erlent 14.5.2007 19:30
Enn tekist á í Kaupmannahöfn Til harkalegra átaka kom á milli óeirðalögreglu og mótmælenda í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í dag. Tólf voru handteknir í átökunum og nokkrir slösuðust enda var táragasi og kylfum óspart beitt. Erlent 14.5.2007 19:00
Fara ekki heim fyrr en Maddie er fundin Foreldrar Madeleine McCann, litlu telpunnar sem rænt var í Portúgal fyrir tæpum tveimur vikum, eru viss um að dóttir þeirra sé heil á húfi og ætla ekki að snúa aftur til Bretlands fyrr en hún er komin í leitirnar. Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, er á meðal þeirra sem lofað hafa þeim fé sem varpað geta ljósi á hvarf Madeleine. Erlent 14.5.2007 18:00
Skemmtiferðaskip strandar við Alaska Flytja varð vel á þriðja hundrað manns frá borði skemmtiferðaskips þegar það strandaði við suðausturhluta Alaska snemma í morgun. Erlent 14.5.2007 15:55
Réttarhöld vegna árekstrar í lofti Réttarhöld hefjast í Sviss á morgun yfir átta starfsmönnum flugumferðarstjórnar-fyrirtækisins Skyguide vegna árekstrar í lofti árið 2002, sem kostaði 71 mann lífið. Flest fórnarlambanna voru börn. Rússneskur fjölskyldufaðir myrti yfirflugumverðarstjórann síðar með hnífi, en hann missti eiginkonu sína og dóttur í slysinu. Erlent 14.5.2007 15:43
Danskur hermaður féll - fimm særðust Einn danskur hermaður féll og fimm félagar hans særðust í fyrirsát í Írak, í dag. Danirnir voru á eftirlitsferð í brynvörðum bíl sem varð fyrir vegsprengju. Henni var fylgt eftir með skothríð úr öllum áttum. Danirnir svöruðu skothríðinni og kölluðu eftir liðsauka. Erlent 14.5.2007 14:33
Máttur auglýsinganna Fimm hæða íbúðarhús valt framyfir sig í indverska bænum Surat, í gær. Ástæðan var risastór auglýsingaskilti sem höfðu verið sett upp á þaki hússins. Íbúunum tókst að forða sér þegar sást í hvað stefndi. Húsið er gjörónýtt. Erlent 14.5.2007 14:19
Æ, nei -hola í höggi Það er auðvitað draumur allra golfara að fara holu í höggi. En það getur verið dýrt spaug í stórum klúbbi. Það er nefnilega hefð fyrir því að þeir sem fara holu í höggi verða bjóða drykk á línuna. Í mörgum klúbbum er lögð svo mikil áhersla á þetta að þar er neyðarskápur úr gleri sem hægt er að brjóta til að ná þar í viskíflösku, ef svo óheppilega vill til að holan er farin utan opnunartíma. Erlent 14.5.2007 13:30
Bandaríkjamenn og Pólverjar ræða um eldflaugavarnakerfi Formlegar viðræður bandarískra og pólskra stjórnvalda um uppsetningu eldflaugavarnakerfis í Póllandi hefjast í dag. Bandaríkin vilja fá að setja upp 10 eldflaugar í landinu sem eiga að geta grandað langdrægum eldflaugum sem skotið yrði frá Íran yfir Atlantshafið. Erlent 14.5.2007 13:15
Dýr dráttur Kínverskur kaupsýslumaður hefur verið sektaður um fimm milljónir íslenskra króna fyrir að eignast sitt annað barn. Samkvæmt kínverskum lögum má hver fjölskylda aðeins eignast eitt barn. Lögin voru sett árið 1980 til þess að draga úr fjölgun þjóðarinnar. Kínverjar eru nú 1,3 milljarðar talsins. Erlent 14.5.2007 13:12
Frú Sarkozy kaus ekki eiginmanninn Cecilia Sarkozy eiginkona nýkjörins forseta Frakklands greiddi ekki atkvæði í síðari umferð kosninganna, að sögn vefsíðunnar Rue89.com. Þetta er vinstri sinnuð fréttasíða sem fyrrverandi blaðamenn á dagblaðinu Liberation helda úti. Erlent 14.5.2007 12:46
Eldar loga og blóðug slagsmál í Kristjaníu Eldar loga á götum fríríkisins Kristjaníu í Kaupmannahöfn og lögreglan á í blóðugum slagsmálum við íbúana. Átökin hófust þegar lögreglan fór inn í Kristjaníu til þess að rýma hús sem átti að rífia. Skólar í grennd við fríríkið hafa hvatt foreldra til þess að sækja börn sín hið fyrsta. Erlent 14.5.2007 12:26
Eggert styður leitina að Madeleine McCann Eggert Magnússon, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, er í hópi þeirra sem heitið hafa fjármunum fyrir upplýsingar sem leitt geta til þess að breska stúlkan Madeleine McCann finnist. Erlent 14.5.2007 11:22
Óháður ráðherra í þjóðstjórn segir af sér Ráðherra í þjóðstjórn Palestínumanna hefur sagt af sér vegna vaxandi átaka milli fylkinganna sem standa að stjórninni, Fatah og Hamas. Erlent 14.5.2007 10:30
Óðir hundar drápu ær og lömb í Danmörku Æði rann á tvo hunda frá hundabúgarði í grennd við Ringsted í Danmörku og réðust þeir á fjárhóp. Þeir eltu uppi og drápu sextán ær og mörg lömb. Þegar eigandinn ætlaði að hemja þá réðust þeir líka á hann. Erlent 14.5.2007 10:20
Sagðist vera hryðjuverkamaður í flugvél SAS Flugvél SAS-flugfélagsins sem stödd var í Björgvin var rýmd í morgun vegna þess að farþegi um borð lýsti því yfir að hann væri hryðjuverkamaður. Erlent 14.5.2007 10:09
Milljarður flóttamanna árið 2050 Loftslagsbreytingar eiga eftir að gera að minnsta kosti einn milljarð manna að flóttamönnum fyrir árið 2050. Skortur á vatni og uppskerubrestur gæti neytt fólk til þess að yfirgefa heimili sín. Þetta kom fram í skýrslu sem hjálparsamtökin Christian Aid gáfu út í dag. Erlent 14.5.2007 08:13
41 lét lífið í átökum í Pakistan um helgina Stuðningsmenn æðsta dómara Pakistans, sem rekinn var úr embætti fyrr á árinu, hafa boðað til verkfalls í landinu eftir að 41 lét lífið í átökum í Karachi um helgina. Erlent 14.5.2007 07:49
Fjögur þúsund leita að þremur Nærri 4.000 bandarískir hermenn í nágrenni Bagdad í Írak leita nú þriggja bandarískra hermanna sem talið er að hafi verið rænt á laugardaginn var. hópur uppreisnarmanna í Írak, sem kallar sig íslamska ríkið í Írak, sagðist halda mönnunum þremur í gíslingu. Erlent 14.5.2007 07:18
Páfi gagnrýnir stjórnvöld í Suður-Ameríku Benedik páfi gagnrýndi í gær stjórnvöld í Suður-Ameríku við upphaf ráðstefnu biskupa í álfunni. Hann fordæmdi einnig hina stækkandi gjá á milli ríkra og fátækra á svæðinu. Páfi kenndi bæði sósíalisma og kapitalisma um vandamál Suður-Ameríku og sagði ríkisstjórnir sumra landa hafa misst sjónar af hinum kristnu gildum. Erlent 14.5.2007 07:13
Átök blossa upp á Gaza Átök blossuðu upp á ný á Gaza svæðinu í nótt aðeins nokkrum klukkustundum eftir stríðandi fylkingar sömdu um vopnahlé. Erlent 14.5.2007 07:08
Rice til Moskvu Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hélt í morgun áleiðis til Moskvu til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Bilið á milli landanna tveggja virðist sífellt stækkandi og eiga viðræðurnar að reyna að bæta ástandið. Erlent 14.5.2007 07:02
Spenna vegna kosninga á Filippseyjum í dag Her og lögregla á Filippseyjum eru í viðbragðsstöðu vegna þing- og sveitastjórnarkosninga sem fram fara þar í landi í dag. Óttast er að uppreisnarmenn kommúnista reyni að koma í veg fyrir að kosningarnar gangi vel fyrir sig. Erlent 14.5.2007 06:56
Upphafsreitur Bandaríkjanna George W. Bush Bandaríkjaforseti fór í gær í pílagrímsför til Jamestown í Virginíu, fyrsta bæjarins sem Englendingar stofnuðu sem nýlendu í Vesturheimi, en þetta upphaf skipulegs landnáms Englendinga er almennt álitið upphafið að því sem síðar átti eftir að verða Bandaríkin. Rétt 400 ár eru í dag frá stofnun Jamestown. Erlent 14.5.2007 05:45
Enn fjöldamótmæli gegn Tyrklandsstjórn Á aðra milljón Tyrkja safnaðist saman í borginni Izmir vestast í Tyrklandi í gær til að lýsa vantrausti á fyrirætlanir ríkisstjórnarflokksins. Átök halda þannig áfram um hlutverk íslamstrúar og arfleifð Atatürks lýðveldisstofnanda í tyrknesku lýðræði. Erlent 14.5.2007 05:15
Einn æðsti talibaninn felldur Hæst setti skæruliðaforingi talibana, Mulla Dadullah, féll um helgina í árás undir forystu bandarískra hermanna í Suður-Afganistan, að því er embættismenn upplýstu í gær. Erlent 14.5.2007 04:30
Brown stígur fram í sviðsljósið Gordon Brown hefur árum saman staðið í skugga Tonys Blair. Í huga flestra Breta hefur hann til þessa verið að mestu óþekkt stærð, en nú virðist hans tími kominn. Erlent 14.5.2007 04:00
Þúsundir hermanna leita að félögum sínum Hópur með tengsl við Al Kaída samtökin hefur í yfirlýsingu sagst vera með þrjá bandaríska hermenn í haldi í Írak. Þúsundir bandarískra og íraskra hermanna leita nú að mönnunum sem hurfu eftir að sveit þeirra lenti í fyrirsát í úthverfi Baghdad á laugardag. Erlent 13.5.2007 20:51