Erlent

Líbanski herinn bætir við herlið

Bandaríkin og Arabaríki hófu að senda hernaðaraðstoð til Líbanon í gær til að styrkja stjórnarherinn í átökunum við herskáu samtökin Fatah íslam sem hafa staðið yfir síðan á sunnudag.

Erlent

Getur valið samstarfsflokk

Samkvæmt fyrstu tölum úr þingkosningunum á Írlandi bendir allt til þess að Fienna Fail, flokkur Bertie Aherns forsætisráðherra, hafi unnið meiri sigur en búist var við og jafnvel bætt við sig þingmönnum frá síðasta þingi.

Erlent

Flutti ræðu í Najaf

Sjíaklerkurinn Muktada al Sadr kom fram opinberlega í Najaf í gær í fyrsta sinn í fjóra mánuði og flutti þar á trúarsamkomu þrumuræðu gegn Bandaríkjunum. Hann krafðist þess að bandarískir hermenn færu frá Írak en fordæmdi jafnframt innbyrðis átök landsmanna.

Erlent

Óeirðaseggir dæmdir í Danmörku

Fimm ungmenni voru í dag dæmd í fangelsi í Danmörku fyrir aðild sína að óeirðunum á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þegar ungdómshúsið var rifið. Um er að ræða einn Dana, þrjá Bandaríkjamenn og Kanadamann.

Erlent

Dæmd fyrir morðið á eðalbornum eiginmanni sínum

Ekkja jarlsins af Shaftesbury var í dag dæmd í 25 ára fangelsi fyrir að myrða hann. Líkið af jarlinum fannst í gljúfri í Ölpunum árið 2005. Eiginkonan, Jamila M’Barek var fundin sek um að leggja á ráðin um morðið en hún fékk bróður sinn til að drýgja ódæðið.

Erlent

Star Wars frumsýnd fyrir 30 árum

25. maí er merkisdagur í augum margra því á þessum degi fyrir sléttum 30 árum var kvikmyndin Star Wars eftir George Lucas frumsýnd. Myndin sló í gegn og hefur haft gríðarleg áhrif á kvikmyndasöguna. Menn deila svo um hvort þau áhrif hafi verið til góðs eða ills.

Erlent

Dýrkeypt verkfall hjá SAS

Talið er að vinnustöðvun vegna verkfalls átta hundruð starfsmanna SAS-flugfélagsins í Svíþjóð kosti félagið jafnvirði hátt í hundrað og níutíu milljóna íslenskra króna hvern dag sem ekki er flogið.

Erlent

Rigning á Spáni

Mörg hundruð manns hafa þurft að hverfa frá heimilum sínum á Mið-Spáni þar sem mikið hefur ringt í vikunni. Vegir hafa farið í sundur í flóðum á svæðinu og vatn flætt yfir lestarteina. 400 íbúar í bænum Alcazar de San Juan urðu að flýja en vatnshæð sumstaðar þar hefur náð einum og hálfum metra að sögn yfirvalda.

Erlent

Forsætisráðherra í þriðja kjörtímabil í röð

Allt útlit er fyrir að Berti Ahern verði forsætisráðherra Íralands þriðja kjörtímabilið í röð. Útgönguspár og fyrstu tölur benda til þess að fylking undir forystu Fianna Fáil, flokks Aherns, hafi fengið tæp 45% atkvæða en bandalag mið og vinstri flokka tæp 37%. Kosið var í gær. Ekki er búist við lokatölum fyrr en í byrjun næstu viku.

Erlent

Þjökuð af sektarkennd

Enn hefur ekkert spurst til hinnar þriggja ára gömlu Madeleine McCann sem hvarf af hótelherbergi á Portúgal fyrir þremur vikum. Foreldrar hennar segjast þjökuð af sektarkennd yfir því að hafa skilið hana eina eftir með yngri systkinum sínum meðan þau snæddu kvöldverð í næsta nágrenni. Margir foreldrar hefðu þó líkast til gert það sama.

Erlent

Sex létust í flugslysi í Perú

Sjö manns komust lífs og sex fórust af þegar perúsk herflugvél hrapaði í skóglendi Amason í norðausturhluta landsins. Flugvélin, sem var nítján sæta De Havilland Twin Otter, fór í loftið í gærkvöld en sambandið rofnaði skömmu síðar við hana.

Erlent

Hið brjálæðislega bensínverð í Bandaríkjunum

Bandaríkjamenn eru farnir að venjast hinu brjálæðislega verði sem er á bensíni þar í landi. Lítrinn er farinn að nálgast heilar fimmtíu krónur. Fyrst þegar bensínið byrjaði að hækka voru viðbrögð neytenda harkaleg.

Erlent

Reggie rúllað upp

Tveggja metra langur krókódíll sem hefur læðupokast um fylkisgarð í úthverfi Los Angeles í Bandaríkjunum var handsamaður í gær. Það voru skriðdýrasérfræðingar og þjóðgarðsverðir sem yfirbuguðu dýrið eftir mikla glímu.

Erlent

Nauðlenti eftir býflugnabardaga

Boeing farþegaþota nauðlenti í Bournemoth Bretlandi í dag eftir að hafa flogið í gegnum mikinn sverm af býflugum. Níutíu farþegar voru um borð í vélinni sem var á leið til Faros í Portúgal. Vélin var frá flugfélaginu Palmair.

Erlent

Allt um krókódíla

Krókódílar eru stærstu núlifandi skriðdýr heimsins og sennilega einu forsögulegu risarnir sem enn eru hér á jörðinni. Rannsóknir hafa sýnt að krókódílar virðast vera skyldari fuglum en öðrum núlifandi tegundum skriðdýra.

Erlent

Gleymdu því góði

Bandaríkin hafa hafnað tilraunum Þjóðverja til þess að fá átta helstu iðnríki heims til þess að fallast á að draga verulega úr úblæstri kolefna. Bandaríkjamenn gera þetta með nokkru offorsi. Þjóðverjar ætluðu að leggja fram tillögur þess efnis á ráðstefnu iðnríkjanna sem hefst í Þýskalandi 6 júní næstkomandi.

Erlent

Al-Sadr aftur í sviðsljósið í Írak

Róttæki sjíaklerkurinn Moqtada al-Sadr kom í dag í fyrsta sinn fram opinberlega í marga mánuði í Írak. Al-Sadr predikaði við föstudagsbænir í Kufa í austurlhluta Íraks og fordæmdi hersetu Bandaríkjamanna í landinu.

Erlent

Aung San áfram í fangelsi

Herforingjastjórnin í Myanmar hefur framlengt stofufangelsi yfir andófskonunni Aung San Suu Kyi í eitt ár. Aung San er þekktasti pólitíski fangi Myanmars, sem áður hét Burma. Hún hefur hlotið friðarverðlaun Nóbels og flokkur hennar vann yfirburðasigur í kosningum árið 1990. Herforingjastjórnin neitaði að viðurkenna úrslitin og sat sem fastast.

Erlent

Eldur í sjónvarpsturninum í Moskvu

Eldur kom upp á svölum í Ostankino-sjónvarpsturninum í Moskvu í morgun án þess þó að nokkurn sakaði. Eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC kviknaði eldurinn eftir að neisti frá logsuðutæki komst í einangrun.

Erlent

Persson viðurkennir að hafa brotið lög

Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur viðurkennt að hafa brotið lög við byggingu herragarðs í austurhluta Svíþjóðar. Með því viðurkenna brotin sleppur Persson við að vera dreginn fyrir dóm en í staðinn verður hann sektaður um litla fjárhæð.

Erlent

Verkfall á Nyhedsavisen

Blaðamenn á Nyhedsavisen í Danmörku lögðu í dag niður vinnu vegna brottrekstrar átta samstarfsmanna. Það sem helst fer fyrir brjóstið á blaðamönnunum er að útgefendurnir lögðu þagnarskyldu á trúnaðarmenn starfsmanna og neituðu að tjá sig eða semja um uppsagnirnar.

Erlent

Þungir dómar fyrir Kóka Kóla stuld

Þrír fyrrverandi starfsmenn Kóka Kóla verksmiðjanna hafa verið dæmdir í háar fjársektir og til langrar fangelsisvistar fyrir að reyna að selja Pepsí verksmiðjunum uppskriftina af kókinu. Pepsí lét keppinautinn vita af tilboðinu og var alríkislögreglan þá kölluð til.

Erlent

Lögreglustjórinn rændur

Bíræfinn vasaþjófur stal veski lögreglustjórans í Osló síðastliðinn mánudag. Lögreglustjórinn var þá á leið tilm útlanda og var í flugvallarlestinni ásamt eiginkonu sinni. Anstein Gjengedal grunar hóp af fólki sem var um borð í lestinni og virtist vera með farangur út um allt.

Erlent

Sameiginleg sjálfsmorðstilraun

Tvær franskar unglingsstúlkur liggja alvarlega slasaðar á sjúkrahúsi á Korsíku eftir að hafa stokkið út um glugga á heimilum sínum. Stúlkurnar heita Florence og Christina og eru 14 og 15 ára að aldri. Þær stukku nær samtímis út um gluggana, önnur á annari hæð en hin á þriðju.

Erlent

N-Kórea skaut eldflaugum á Japanshaf

Norður-Kóreumenn skutu allmörgum skammdrægum eldflaugum út á Japanshaf í morgun. Japanska Kyodo fréttastofan hefur þetta eftir bandarískum og japönskum embættismönnum. Japönum er mjög illa við eldflaugatilraunir norðanmanna. Enda er Japan það skotmark sem næst er Norður-Kóreu, að Suður-Kóreu frátaldri.

Erlent

Ævisaga Laxness fær góða dóma í Noregi

Ævisaga Halldórs Laxness, eftir Halldór Guðmundsson, fær góða dóma í Aftenposten í Noregi. Í dómnum segir meðal annars að Laxness hafi verið einn mest lesni erlendi höfundurinn í Noregi fyrir 30 til 40 árum síðan en síðan hafi hann horfið í gleymskunnar dá.

Erlent

Fær ekki að vita af andláti föður síns

Forráðamenn áströlsku útgáfu sjónvarpsþáttarins Big Brother sæta mikilli gagnrýni eftir að þeir ákváðu að segja ekki keppanda í þættinum að faðir hennar sé látinn. Keppendur í þættinum eru lokaðir inni í húsi í ákveðinn tíma og mega engin samskipti hafa við umheiminn á meðan dvöl þeirra í húsinu stendur.

Erlent

Abbas krefst vopnahlés

Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, hefur krafist þess að herskáir Palestínumenn hætti eldflaugaárásum sínum á Ísrael. Því hafa þeir neitað. Þá fordæmdi Abbas hefndarloftárásir Ísraela en í gærkvöldi gerðu þeir árás nálægt heimili Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínu og eins helsta leiðtoga Hamas samtakanna.

Erlent