Erlent

Shimon Peres forseti Ísraels

Shimon Peres var í gær kjörinn forseti Ísraels af þjóðþingi landsins. Stjórnmálaferill Peres, sem er 83 ára gamall, spannar sex áratugi og verður hann níræður þegar kjörtímabili hans lýkur.

Erlent

Líbanskur þingmaður myrtur

Líbanski þingmaðurinn Walid Eido, sem var yfirlýstur andstæðingur sýrlenskra stjórnvalda, fórst ásamt níu öðrum í gær þegar sprengja sprakk í bifreið hans í Beirút. Morðið er það sjöunda á síðustu tveimur árum í röð morða á mönnum sem eru andsnúnir sýrlenskum stjórnvöldum í Líbanon.

Erlent

Segja Írana útvega talibönum vopn

Bandarísk stjórnvöld hafa „óhrekjanlegar“ sannanir fyrir því að Íranar flytja vopn til talibana í Afganistan með vitneskju íranskra stjórnvalda að sögn háttsetts bandarísks erindreka sem segir að Atlantshafsbandalagið (NATÓ) hafi hindrað nokkra slíka flutninga.

Erlent

Engin merki um þíðu

Utanríkisráðherrar Eistlands og Rússlands, Urmas Paet og Sergei Lavrov, hittust á ráðherrafundi Eystrasaltsríkja í Malmö í Svíþjóð í gær. Þetta var fyrsti fundur háttsettra fulltrúa beggja landa síðan samskipti grannríkjanna hrukku í algjöran baklás í vor vegna sovésks minnismerkis sem eistnesk stjórnvöld létu flytja frá miðborg Tallinn inn í hermannakirkjugarð.

Erlent

Abbas segir brjálæði ríkja í Gazaborg

Stríðandi fylkingar Palestínumanna, Hamas og Fatah, berjast hatrammri baráttu á Gazaströndinni. „Þetta er brjálæði, það ríkir brjálæði í Gazaborg,“ sagði forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, við blaðamenn í gær.

Erlent

Fletti ofan af eiturlyfjahring

Lögreglan í Noregi greindi í gær frá því að hún hefði flett ofan af eiturlyfjahring þar sem yfir tuttugu manns voru handteknir og 273 kíló af eiturlyfjum gerð upptæk. „Við teljum okkur hafa flett ofan af víðfeðmum og sérlega vel skipulögðum samtökum,“ sagði Geir Bang Danielsen lögregluvarðstjóri.

Erlent

Bush vill herða efnahagsþvinganir gegn Súdan

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að Bandaríkin myndu herða efnahagsþvinganir gegn Súdan. „Allur heimurinn ber ábyrgð á því að enda þetta ferli og draga þá til ábyrgðar sem standa fyrir ofbeldinu. Bandaríkin hafa tekið forystu í því,“ sagði Bush í ræðu.

Erlent

Varasamt tannkrem

Colgate tannkremstúpur hafa verið afturkallaðar í fjórum fylkjum Bandaríkjanna vegna gruns um að þau innihaldi eitruð efni. Efnið fannst við reglubundna athugun Lyfja- og matvælaeftirlitsins

Erlent

Sjítar mótmæla sprengjuárás í Írak

Sjíar í Manama, höfuðborg Bahrain, mótmæltu í dag sprengjuárás á eina helgustu mosku sjía múslíma, al-Askari í Írak. Þeir beindu mótmælum sínum að Bandaríkjunum og flokkadráttum í íslam.

Erlent

ETA sigldi í öngstræti

Jose Luis Rodriguez Zapatero, forseti Spánar segist taka harða afstöðu gagnvart ETA, aðskilnaðarhreyfingu Baska. Hann segir að samtökin hafi siglt inn í öngstræti þegar þeir sviku vopnahlé í síðustu viku.

Erlent

Sterkur jarðskjálfti í Guatemala og El Salvador

Jarðskjálfti sem mældist 6.8 á ricter varð í Guatemala og El Salvador í dag. Upptök skjálftans voru í Kyrrahafinu um 70 km sunnan við höfuðborg Guatemala. Byggingar skulfu í um 30 sekúndur og skelfingu lostið fólk hljóp út á götur. Engar fregnir hafa borist af manntjóni.

Erlent

Baráttan harðnar á milli McCain og Romney

John McCain, forsetaframbjóðandi repúblikana, gagnrýnir kosningabaráttu flokksbróðurs síns Mitt Romney. Hann segir afstöðu hans til fóstureyðinga misvísandi. Rommney hefur greint frá því að hann vilji engu breyta um fóstureyðingarlög einstakra fylkja og er hlynntur réttinum til fóstureyðinga.

Erlent

Friðarverðlaunahafi forseti Ísraels, en óöldin heldur áfram

Enginn endir virðist á óöldinni í miðausturlöndum. Sautján létust á Gasa í dag og tíu í Beirút í bardögum og sprengjutilræðum. En maðurinn sem hlaut friðarverðlaun Nóbels fyrir þátt sinn í friðarferli sem kvað á um brotthvarf Ísraelshers frá Gaza, er nú öruggur með að verða næsti forseti Ísraels.

Erlent

Breskir barnaníðingar í lyfjameðferð

Kynferðisafbrotamenn í Bretlandi eiga nú yfir höfði sér að vera settir á lyfjameðferð til að draga úr kynhvöt og hjálpa þeim að hætta að níðast á börnum. Frumvarpið verður lagt fyrir þingið af innanríkisráðherra landsins sem segir að koma verði í veg fyrir síendurtekin brot barnaníðinga.

Erlent

Sexburamóðirin á batavegi

Móðir sexbura sem fæddust á mánudag í Arisona í Bandaríkjunum varð fyrir hjartabilun eftir fæðinguna, en er nú á batavegi. Faðir barnanna segir hamingjuna ólýsanlega, en börnin eru komin úr öndunarvélum.

Erlent

Átta létust í Beirút í dag

Að minnsta kosti átta manns létu lífið í dag þegar sprengja sprakk í Beirút í Líbanon í dag. Níu aðrir særðust. Á meðal fórnarlambanna var Walid Eidom, þingmaður á líbanska þinginu. Auk hans létust elsti sonur hans og tveir af lífverðir, auk fjögurra annarra.

Erlent

Ungabarn fannst látið á árbotni í Óðinsvéum

Ungabarn fannst látið á árbotni í Óðinsvéum í Danmörku í gær. Verið var að hreinsa ána þegar það fannst. Barnið var drengur, 50 cm langur. Hann var í hvítum plastpoka sem hafði verið þyngdur með steini. Á steininum stendur: "Fyrirgefðu. Hvíl í friði. Mamma og pabbi elska þig, litli drengurinn minn".

Erlent

Lögreglan í Tokyo lak rannsóknargögnum

Lögregluþjónn í Tokyo lak níu þúsund skjölum á Internetið fyrir skömmu. Skjölin innihéldu meðal annars þar á meðal gögn úr yfirheyrslum og 1000 ljósmyndir. Einnig voru upplýsingar um staðsetningu á umferðarmyndavélum og nöfn á afbrotaungmennum sem lögreglan var með til rannsóknar.

Erlent

Vísbending í máli Madeleine

Mest selda dagblaði í Hollandi barst nafnlaust bréf með lýsingu um hvar lík hinnar fjögurra ára gömlu Madeleine væri að finna. Í bréfinu stóð að telpuna væri að finna undir grjóthrúgu í 15 kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem henni var rænt. Nú er liðinn 41 dagur síðan stelpunni var rænt í Portúgal.

Erlent

Keyrði fullur niður Spænsku tröppurnar

Ungur maður var handtekinn í Róm fyrir að keyra niður Spænsku tröppurnar. Tröppurnar eru á meðal vinsælustu staða í Róm fyrir ferðamenn að skoða, og þar er meðal annars bannað að drekka og syngja.

Erlent

FBI býður hjálp fyrir Ólympíuleikana í Peking

Alríkislögregla Bandaríkjana, FBI, hefur boðið Kínverjum hjálp við öryggismál í kringum ólympíuleikana sem fram fara í Peking á næsta ári. Búist er við hundruðum þúsunda manna sem ferðast til Kína til að fylgjast með leikunum.

Erlent

Tvær systur myrtar á Englandi

Lík tveggja táningssystra fundust í húsi í Cambridgeshire á Englandi í dag. 39 ára gömul kona sem talin er vera móðir þeirra hefur verið handtekin, grunuð um morðin. Lögreglan á Englandi verst allra frétta af málinu að svo stöddu.

Erlent

Fékk hjartaáfall eftir fæðingu sexbura

Móðir sexbura sem fæddust á mánudag í Arisona í Bandaríkjunum fékk hjartaáfall eftir fæðinguna en er nú á batavegi. Sexburarnir voru teknir með keisaraskurði tíu vikum fyrir tímann og vógu frá tæpum fjórum mörkum til rúmlega fimm marka. Fimm þeirra fá hjálp við öndun en allir eru í hitakassa, þar sem þeir eru ekki enn úr hættu.

Erlent

Sakar stuðningsmenn Saddams um árásina

Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, sagði í dag að stuðningsmenn Saddams Hússeins og al-Kaída hefðu staðið á bak við sprengjuárásina á al-Askariya moskuna í Samarra í morgun. Þetta kom fram í sjónvarpsviðtali við hann í morgun. Þá sagðist hann óttast að hryðjuverkamennirnir ætluðu sér að ráðast gegn öðrum moskum í Bagdad og því hefði hann aukið öryggisráðstafanir við þær.

Erlent

Evrópusambandið herðir lög um skráningu glæpamanna

Í dag var samþykkt að aðildaríki Evrópusambandsins myndu framvegis deila upplýsingum um dæmda glæpamenn innan sambandsins. Einnig var samþykkt að lönd innan sambandsins séu nú skyldug til að svara beiðni um sakaskrá einstaklinga innan tíu virkra daga frá beiðni.

Erlent

Shimon Peres verður forseti Ísraels

Shimon Peres verður næsti forseti Ísraels. Tveir aðrir frambjóðendur til embættisins drógu sig í hlé í dag. Það er ísraelska þingið sem velur forseta landsins. Shimon Peres er 84 ára gamall og á að baki langan feril í ísraelskum stjórnmálum. Hann hefur meðal annars verið forsætisráðherra, utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra.

Erlent

Viðurkenndu barnaþrælkun

Kínverskt fyrirtæki játaði í dag að hafa börn í vinnu hjá sér en fyrirtækið framleiðir vörur fyrir Ólympíuleikana á næsta ári. Í upphafi neituðu talsmenn fyrirtækisins ásökunum harkalega.

Erlent

Kennari dæmdur til dauða fyrir að nauðga nemendum

Dómstóll í Kína hefur dæmt kennara til dauða fyrir að nauðga 18 skólabörnum á aldrinum 9 og 10 ára. Fréttastofan Xinuha greinir frá því að maðurinn, sem heitir Cheng Laifu, sé fundinn sekur um að hafa nauðgað börnunum á árunum 2001-2005.

Erlent

Ekki nægar sannanir fyrir leynifangelsum

Orð ónafngreindra heimildarmanna duga ekki til þess að sanna að bandaríska leyniþjónustan, CIA hafi rekið leynifangelsi í Póllandi og Rúmeníu, að mati yfirmanns öryggismála hjá Evrópusambandinu. Franco Frattini segist þó munu leita frekari upplýsinga frá löndunum tveim.

Erlent

Réðust að manni með sverðfiski

Lögreglan í Ástralíu leitar nú tveggja árásarmanna sem réðust að manni á heimili hans og skáru hann með sverðfiski. Maðurinn hlaut skurði á höndum og baki.

Erlent