Erlent

Þroskaðri, nútímalegri og jafnari tengsl

Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, hæst setti fulltrúi Bandaríkjastjórnar sem til Íslands kemur síðan árið 2002, segir samband landanna hafa þroskast og orðið nútímalegra eftir lokun Keflavíkurstöðvarinnar. Staðið verði við skuldbindingar.

Erlent

Turnar Gullnu-mosku sprengdir

Tveir bænaturnar við hina fornu Askariya-mosku í bænum Samarra í Írak voru eyðilagðir í sprengjuárás á miðvikudag. Ekkert mannfall varð í árásinni, sem herskáum súnníum var kennt um. Árás var gerð á sömu mosku í fyrra og í kjölfarið fylgdi mikil ofbeldisalda. Askariya-moskan er einn mesti helgidómur sjía sem dregur að fjölda pílagríma árlega.

Erlent

Óttast kjarnorkuöld

Þýskir öryggis- og friðarsérfræðingar eru sannfærðir um að aukin spenna í alþjóðasamfélaginu muni leiða af sér nýja og hættulegri kjarnorkuöld. Átök á Gaza-svæðinu og í Afganistan, hin óleysta kjarnorkudeila í Íran og aukin vopnaframleiðsla eru meðal þess sem þýsku sérfræðingarnir telja að muni auka á spennuna.

Erlent

Ungmenni festust í rússíbana í Stokkhólmi

Þrjú ungmenni festust í rússíbananum Villtu músinni í tívolíinu Gröna Lund í Stokkhólmi í kvöld. Þetta kemur fram á fréttavef síðdeigisblaðsins Aftonbladet. Mjög vindasamt var á svæðinu og varð sterk vindhviða sem kom á móti vagninum til þess að hann stöðvaðist. Aðrir vagnar sem á eftir komu stöðvuðust sjálfkrafa við þetta og komst fólkið úr þeim af eigin rammleik.

Erlent

McCann hjónin gagnrýna De Telegraaf

Foreldrar Madeleine McCann gagnrýna Hollenska dagblaðið De Telegraaf fyrir að birta nafnlaust bréf sem blaðinu barst með upplýsingum um hvar lík stúlkunnar sé grafið.

Erlent

Litla hafmeyjan of lítil

Litla hafmeyjan, þjóðartákn Dana, sem er staðsett við Langelinie, er of lítil, segir Peter Bech, eigandi kaffihúss á Langelinie. Hann hefur þess vegna afhjúpað nýja útgáfu af Litlu Hafmeyjunni á Langeliniekaj. „Aftur og aftur hef ég hitt fyrir ferðamenn sem verða vonsviknir þegar þeir sjá Litlu hafmeyjuna. Ég hugsaði því með mér að ég þyrfti að gera eitthvað í málinu," segir Peter.

Erlent

Libby getur ekki frestað afplánun

Dómari í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að Lewis Libby geti ekki frestað fangelsisafplánun á meðan áfrýjunarferli er í gangi. Úrskurðurinn þýðir að Libby gæti þurft að fara í fangelsi innan fárra vikna.

Erlent

Hálsbrotinn í 10 ár

14 ára drengur í Dorset á suður Englandi var hálsbrotinn í 10 ár. Hann spilaði rúgbý, lék sér á brimbretti og hjólaði um á fjallahjóli án þess að hafa hugmynd um brotið. 14 ára gamall fór hann að finna til og upplifði jafnvægisleysi. Þegar hann missti skyndilega meðvitund komust læknar að því að hann væri hálsbrotinn.

Erlent

Þjóðstjórn leyst upp

Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ætlar að leysa upp þriggja mánaða þjóðstjórn Palestínumanna og lýsa yfir neyðarástandi á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Blóðugir bardagar hafa geisað á Gaza síðustu daga og allt stefnir í að Hamas-samtökin nái þar yfirráðum.

Erlent

Fjórir Palestínumenn létust í sprengingu

Fjórir ungir Palestínumenn létust í sprengingu í bænum Rafah á suðurhluta Gasastrandarinnar í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir talsmönnum sjúkrahúss á svæðinu að piltarnir hafi allir verið yngri en 18 ára og að sprengin hafi orðið nærri stöðvum Ísraelshers.

Erlent

Hinn þýski Hrói höttur dæmdur í fangelsi

Dómstóll í Suður-Þýskalandi dæmdi í dag fyrrverandi bankastarfsmann í tveggja ára og tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa í starfi sínu fært fjármuni frá ríkum til fátækra. Maðurinn, sem nefndur hefur verið hinn þýski Hrói höttur, færði jafnvirði rúmlega 170 milljóna króna frá reikningum efnaðri viðskiptavina bankans yfir á reikninga þeirra fátækari.

Erlent

Leggja niður vinnu til að mótmæla uppsögnum

Fréttamenn danska ríkisútvarpsins, Danmarks Radio, lögðu í dag niður vinnu til að sýna félögum sínum sem sagt var upp í dag stuðning. Þetta þýðir samkvæmt dönskum vefmiðlum að hvorki verða kvöldfréttir í útvarpi né sjónvarpi og þá verður lágmarksfréttaflutningur á vef Danmarks Radio.

Erlent

Kurt Waldheim látinn

Austurríkismaðurinn Kurt Waldheim, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og forseti Austurríkis, lést í dag 88 ára að aldri. Að sögn austurrískra fjölmiðla lést hann úr hjartabilun en hann hafði legið á sjúkrahúsi vegna sýkingar frá því í síðasta mánuði.

Erlent

Segir Írana sjá talibönum fyrir vopnum

Bandaríkjamenn hafa óhrekjanlegar sannanir fyrir því að yfirvöld í Íran sjái uppreisnarmönnum talibana í Afganistan fyrir vopnum í baráttu þeirra gegn afgönskum hersveitum og sveitum NATO. Þetta segir Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, í samtali við fréttastöðina CNN.

Erlent

Íhuga að loka alþjóðlegu geimstöðinni tímabundið

Vísindamenn íhuga nú hvort loka eigi alþjóðlegu geimstöðinni tímabundið og flytja þrjá áhafnarmeðlimi hennar til jarðar í kjölfar alvarlegrar tölvubilunar. Tvær rússneskar tölvur sem stjórna súrefnisskömmtun og staðsetningarkerfi stöðvarinnar biluðu í nótt. Náist ekki að laga þær fljótlega mun súrefni geimstöðvarinnar klárast eftir 56 daga.

Erlent

Hamas herðir tökin á Gaza

Harðir bardagar geysa nú á Gaza svæðinu á milli Hamas og Fatah. Fregnir herma að Hamas hafi náð stjórn á nær öllu svæðinu. Átökin eiga sér stað þrátt fyrir að leiðtogar fylkinganna tveggja hafi náð samkomulagi um vopnahlé seint í gærkvöldi.

Erlent

Milljónir dýra lifðu af borgarastríð í Suður-Súdan

Vísindamenn að störfum í Suður-Súdan eru gáttaðir eftir að hafa rannsakað dýralíf á svæðinu. Milljónir villtra dýra sáust í könnunarflugi vísindamannanna, þar á meðal mikill fjöldi antílópa og fíla. Þetta þykir merkilegt fyrir þær sakir að stríð geisaði í héraðinu í yfir tvo áratugi

Erlent

Íslendingar keyptu byggingu í London fyrir 10 milljarða

Íslenskir fjárfestar keyptu nýverið sögufræga byggingu í Belgravia hverfinu í Lundúnum fyrir rúma tíu milljarða íslenskra króna. Húsið var upphaflega byggt sem íbúðarhús en frá lokum seinna stríðs hýsti húsið breska Rauða krossinn. Íslendingarnir hyggjast innrétta þar 14 lúxusíbúðir.

Erlent

Walid Eido grafinn í dag

Jarðarför líbanska þingmannsins Walids Eido fór fram í Líbanon í morgun. Hann var harður andstæðingur Sýrlendinga og stefnu þeirra gagnvart Líbanon. Eido var jafnframt sjötti líbanski þingmaðurinn, sem er á móti Sýrlandi, sem myrtur er á tveimur síðustu árum. Bankar, verslanir og skólar eru lokaðir í dag. Eido var grafinn í Beirút, innan við sólarhring eftir að hann lést en það er samkvæmt múslimskri hefð.

Erlent

300 milljónir með breiðbandstengingar

Nærri 300 milljón jarðarbúar hafa nú aðgang að breiðbandstengingum fyrir internetið. Þær þýða aukinn vöxt á fyrirbærum eins og vefsíðunum MySpace og YouTube. Talið er að um 1,1 milljarður manna hafi aðgang að netinu en það er einn sjötti af jarðarbúum.

Erlent

25 ár síðan Falklandseyjastríðinu lauk

Bretar minnast þess í dag að 25 ár eru liðin frá því Falklandseyjastríðinu lauk. Drottningin og Tony Blair munu þá ganga með þeim sem tóku þátt í stríðinu og minnast þeirra sem létust í því. Argentína gerði innrás á eyjarnar í byrjun apríl árið 1982 og tók þær yfir en eyjarnar liggja fyrir utan strönd Argentínu.

Erlent

Hamas sækir í sig veðrið

Hamas samtökin skýrðu frá því rétt í þessu að þau hefðu náð stjórn á einni af höfuðstöðum Fatah hreyfingarinnar. Byggingin er á Gaza svæðinu. Talsmaður Fatah neitaði því að hafa tapað svæði eða húsnæði til Hamas. Hamas sagðist hafa gefið fólkinu sem var innandyra frest til þess að koma út úr byggingunni áður en á hana var ráðist. Fólkið lét sig fljótt hverfa og Hamas tók þá bygginguna.

Erlent

Ráðist á moskur súnnía í Bagdad

Ráðist var á þrjár moskur súnnía í Bagdad í nótt og þær brenndar verulega. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki en grunur leikur á að sjía múslimar komi þar að. Árásirnar á súnnía moskurnar gerast aðeins degi eftir að bænaturnar al-Askirya moskunnar voru sprengdir upp.

Erlent

Vígamenn beita skæruhernaði í Sómalíu

Vígamenn í Sómalíu réðust að eþíópískum hersveitum í nótt og skutu einn mann til bana aðeins nokkrum klukkustundum eftir að friðarráðstefnu í landinu var frestað. Lítið er um stóra bardaga í Sómalíu lengur. Nú snúast átökin um fámennar skæruárásir vígamanna gegn stjórnarhernum og þeim erlenda herafla sem er í landinu.

Erlent

Fulltrúadeildin samþykkir skotvopnafrumvarp

Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem mun leiða til þess að frekari bakgrunnsupplýsinga verður leitað um þá sem ætla sér að kaupa skotvopn. Ef öldungadeildin samþykkir einnig frumvarpið verður það fyrsta stóra skotvopna-frumvarpið sem samþykkt er í 13 ár.

Erlent

Vatikanið hættir stuðningi við Amnesty International

Vatikanið hefur hvatt alla kaþólikka til þess að hætta að styrkja Amnesty International með fjárgjöfum. Ástæðan er að vatikanið sakar Amnesty um að stuðla að og veita styrki til fóstureyðinga. Amnesty segist ekki hvetja til fóstureyðinga en sagði konur vissulega hafa réttinn til þess að taka eigin ákvörðun og þá sérstaklega þegar um nauðgun eða sifjaspell er að ræða.

Erlent

Norður-Kórea fær aðgang að fjármunum sínum

Millifærsla á fjármunum í eigu ríkisstjórnar Norður-Kóreu frá banka á Macau mun hefjast síðar í dag. Millifærslan var lykilatriði í afvopnunarsamningum landsins við Bandaríkin. Bandaríkjamenn frystu féð seint árið 2005. Norður-Kórea neitaði að loka kjarnorkustöð sinni án þess að fá fyrst aðgang að fénu en um 25 milljónir dollara er að ræða.

Erlent