Erlent

Stjórnarherinn á Sri Lanka ræðst gegn tamíltígrum

Stjórnarherinn á Sri Lanka sagði í morgun að hann hefði ráðist gegn bækistöðvum tamíltígra í austurhluta landsins. Fram kom að um 30 uppreisnarmenn hefðu látist í átökunum. Þá sagði sjóher Sri Lanka að hann hefði sökkt fimm bátum uppreisnarmanna og banað 40 liðsmönnum þeirra við norðurhluta landsins seint í gærkvöldi. Engin staðfesting hefur þó fengist á yfirlýsingunum.

Erlent

Bloomberg verður óháður

Borgarstjóri New York, Michael Bloomberg, hefur sagt sig úr repúblikanaflokknum og segist nú vera óháður. Tilkynning þess efnis barst frá skrifstou hans í gærkvöldi. Marga grunar að með þessu sé hann að undirbúa framboð í forsetakosningunum í Bandaríkjunum árið 2008. Hann neitar því þó.

Erlent

Riddaratign Rushdies mótmælt víða um heim

Íranar og Pakistanar hafa formlega mótmælt ákvörðun Breta að aðla rithöfundinn Salman Rushdie. Íranska utanríkisráðuneytið kallaði sendiherra Bretlands í Tehran á sinn fund í gærkvöldi og sagði öðlun Rushdies, sem skrifaði bókina Söngvar Satans, ögrun við Írana.

Erlent

Nýir ráðherrar

Christine Lagarde var í gær skipuð fjármálaráðherra Frakklands fyrst kvenna. Fyrirrennari hennar í embætti tók við sem umhverfis- og orkumálaráðherra af Alain Juppé sem féll af þingi. Michael Barnier verður landbúnaðarráðherra.

Erlent

Áhersla lögð á hnattvæðingu

Nýr áfangi í norrænu samstarfi er hafinn. Ætlunin er að vinna sameiginlega að ýmsum málum til að kynna Norðurlöndin víða um heim. Þetta var ákveðið á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna með Halldóri Ásgrímssyni, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar.

Erlent

Vegur upp í hlíðar Mount Everest

Kínversk stjórnvöld hyggjast leggja veg upp í hlíðar Mount Everest í tilefni af Ólympíuleikunum sem haldnir verða í Kína á næsta ári. Þetta kemur fram í kínverskum ríkisfjölmiðlum. Ætlunin er að hlaupa með Ólympíueldinn þessa leið.

Erlent

Hjálpargögn komin til Gaza

Fyrstu farmar af hjálpargögnum bárust inn á Gaza svæðið í dag frá því Hamas-samtökin tóku þar völdin í síðustu viku. Ísraelar hleyptu að minnsta kosti 12 vöruflutningabílum frá matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna inn á svæðið.

Erlent

Bandaríkin og Ísrael lofa Abbas aðstoð

George Bush, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hjálpa Mahmoud Abbas, ásamt Ísrael, í baráttunni gegn Hamas samtökunum sem nú stjórna Gaza svæðinu. „Við vonumst til að Abbas verði styrktur svo að hann geti leitt Palestínu í aðra átt," sagði Bush í byrjun fundar með forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert.

Erlent

Hæstiréttur í Kúveit breytir dauðadómi

Hæstiréttur í Kúveit hefur breytt dauðadómi, yfir fjórum málaliðum sem tengdir eru Al Quaeda, í lífstíðardóm. Um leið voru staðfestir lífstíðardómar yfir tveimur öðrum mönnum sem tengdir eru Al Qaeda.

Erlent

Aðalstign Salman Rushdies vekur hörð mótmæli

Mikil alda mótmæla hefur riðið yfir Pakistan í kjölfar þess að rithöfundurinn Salman Rushdie var sæmdur aðalsnafnbót. Ráðherra trúmála í ríkisstjórn Pakistans hefur sagt að ákvörðunin auki hættuna á sjálfsvígsárásum þar sem múslimar séu á þeirri skoðun að Rushdie hafi móðgað Íslam.

Erlent

Atlantis yfirgefur geimstöðina

Bein útsendingu var frá brottför Atlantis af Alþjóðlegu geimstöðinni á Vísi.is í dag. Flugstjóri á Atlantis er Rick Sturckow. Áhöfnin fékk nýlega nýjan meðlim, Clayton Anderson, sem er flugvirki og leysir af Suni Williams.

Erlent

Fimm Danir flæktir í barnaklámshring

Fimm Danir eru tengdir barnaklámshringnum sem breska lögreglan upprætti fyrir skömmu. Mennirnir eru ákærðir fyrir vörslu barnakláms og einn af þeim var nýlega dæmdur fyrir misnotkun á tveimur börnum, samkvæmt ríkislögreglunni í Danmörku.

Erlent

12% af heilbrigðiskostnaði fer í sykursýki

Nýjar rannsóknir sýna að gífurlegur hluti af því sem eytt er í heilbrigðismál í Bandaríkjunum fer í meðferð fyrir sykursjúkt fólk. Rannsóknin er byggð á gagnagrunni yfir lyfjakostnað frá 2005 og var framkvæmd af tölfræðistofnun og sýnir að um 12% af öllum kostnaði til heilbrigðismála fer í aðhlynnun sykursjúkra.

Erlent

Fjórir létust í flóði í Texas

Fjórir létust í Gainesville í Texas í gær þegar flæddi yfir bæinn. Tilkynnt hefur verið um nokkra sem eru týndir. Fjöldi fólks beið á þökum húsa sinna eftir hjálp. Þrjár þyrlur voru notaðar við björgunaraðgerðirnar.

Erlent

Börnum nauðgað í beinni útsendingu

Lögreglan í Kanada, Ástralíu og Bandaríkjunum aðstoðaði lögregluna í Bretlandi við að uppræta umfangsmikill alþjóðlegan barnaklámhring. Hópurinn notaði netið til að dreifa barnaklámi en á síðunni mátti sjá börnum nauðgað í beinni útsendingu.

Erlent

Lögreglan frelsar fólk sem haldið var í bankaráni í Frakklandi

Franska lögreglan hefur frelsað alla gíslana sem teknir voru í bankaráni í Frakklandi fyrr í morgun. Tveir ræningjar fóru inn í bankann klukkan átta í morgun að íslenskum tíma og héldu þar sex manns. Fljótlega létu þeir tvo gísla lausa en lögregla frelsaði síðar þá fjóra sem eftir voru.

Erlent

Evrópuþingið hafnar þröngri skilgreiningu á vodka

Evrópuþingið hefur hafnað tillögu frá þingmönnum landa í vodkabeltinu svokallaða, Póllandi, Finlandi, Eystrasaltsríkjunum, Svíþjóð og Danmörku, um að herða lagalega skilgreiningu á vodka. Löndin vildu að vodka yrði skilgreint sem drykkur sem væri búinn til úr korni eða kartöflum. Meirihluti þingmanna vildi hins vegar opnari skilgreiningu.

Erlent

Skammdræg eldflaug frá Norður Kóreu hafnaði í Japanshafi

Norður Kóreumenn skutu í dag á loft skammdrægri eldflaug sem hafnaði í Japanshafi, að því er japanska fréttastofan NHK hefur eftir þarlendum yfirvöldum. Fréttirnar af eldflaugarskotinu þykja koma á viðkvæmum tíma, því vonir standa til að viðræðum um kjarnorkuafvopnun Norður Kóreu verði haldið áfram í júlí.

Erlent

Þrír vinir taka eigið líf á vikutímabili

Bæjarbúar þorps í N-Írlandi eru í uppnámi eftir að þrír ungir vinir hafi framið sjálfsvíg á aðeins vikutímabili. Lee Walker, Wayne Browne og James Topley eru allir taldnir hafa hengt sig. Síðast var það Walker sem tók líf sitt á föstudaginn. Internetið er talið eiga þátt í atvikunum.

Erlent

Mikið mannfall í Afganistan

Talið er að yfir 100 manns, bæði óbreyttir borgarar og hermenn hafi látist, og nokkrir særst í átökum milli afganskra NATO hersveita og Talíbana í suður Afganistan á þremur dögum.

Erlent

Íslensk flugfélög á flugsýningunni í París

Íslenskir flugrekendur eiga fulltrúa sína á flugsýningunni í París sem hófst í gær og stendur út vikuna. Þar er um að ræða fulltrúa frá Icelandair Group, Avion Aircraft Trading og Air Atlanta Icelandic og eru þeir í hópi um 200 þúsund annarra fulltrúa kaupenda og seljenda.

Erlent

Fyrrverandi nasistaforingi fær ekki að vinna

Ítalskur dómstóll hefur afturkallað vinnuleyfi fyrrverandi SS foringja nasista úr seinni heimstyrjöldinni. Hinn 93 ára gamli Erich Priebke, var dæmdur í ævilangt stofufangelsi eftir að hafa verið fundinn sekur um að eiga aðild að morðum á 335 drengjum og mönnum nálægt Róm í seinni heimstyrjöldinni.

Erlent

Foreldrar biðla til byssumanns

Foreldrar hins 29 ára Christopher Wayne Hudson hafa biðlað til hans um að gefa sig fram friðsamlega á næstu lögreglustöð. Hudson, sem er meðlimur bifhjólasamtökunum Vítis Englar í Ástralíu, er eftirlýstur í heimalandinu fyrir að hafa drepið einn og sært tvo aðra í miðborg Melbourne í gær.

Erlent