Erlent

Efnavopna-Ali verður hengdur

Efnavopna-Ali var dæmdur til dauða fyrir þjóðarmorð á kúrdum í Írak í morgun. Ali er best þekktur sem frændi Saddams Hussein. Fimm aðrir háttsettir embættismenn Saddams voru einnig ákærðir vegna morðanna sem áttu sér stað árið 1988. Tveir þeirra voru einnig dæmdir til dauða. Eiturgasi var beitt í fjöldamorðunum þar sem 180 þúsund kúrdar létust.

Erlent

Nýr sáttmáli ríkja Evrópusambandsins

Leiðtogar allra 27 ríkja Evrópusambandsins sættust á nýtt samkomulag eftir maraþonviðræður. Stjórnarskrá ESB ekki lengur á dagskrá. Samningaviðræður stóðu alla nóttina vegna óánægju Póllands með breytingar á kosningakerfi.

Erlent

Verði veitt hæli í Danmörku

Nú þegar Danir eru að undirbúa brottför hermanna sinna frá Suður-Írak sætir ríkisstjórnin sívaxandi þrýstingi að veita íröskum túlkum og öðrum sem aðstoðuðu dönsku hermennina hæli í Danmörku.

Erlent

Sögusagnir um trúskipti Blairs

Fundur Tonys Blair, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, með Benedikt XVI páfa í Róm um helgina, hefur gefið sögusögnum um að hann sé að íhuga að gerast rómversk-kaþólskur byr undir báða vængi.

Erlent

Ákvörðun sögð nærri um lokun

Bandarísk yfirvöld eiga aðild að byggingu nýs fangelsis í Afganistan, þangað sem sumir af föngunum í fangelsinu umdeilda í herstöð Bandaríkjahers við Guantanamo-flóa á Kúbu kunna að verða fluttir. En talsmaður Hvíta hússins sagði í gær að fangelsinu í Afganistan væri ekki ætlað að koma í staðinn fyrir Guantanamo-fangelsið.

Erlent

Heimsins ljótasti hundur

Tveggja ára kínverskur blendingur hlaut þann vafasama heiður í Kaliforníu í gær að vera kosinn heimsins ljótasti hundur. Eigandinn bjargaði honum frá svæfingu fyrir tveimur árum þegar ræktunaraðilinn hélt að enginn myndi vilja kaupa hann, af því hann væri svo ljótur.

Erlent

Meðlimir trúarlögreglu dregnir fyrir rétt

Meðlimir í trúarlögreglu Sádí Arabíu verða dregnir fyrir rétt vegna dauða tveggja manna sem voru í vörslu þeirra. Þetta er í fyrsta sinn sem réttað er yfir trúarlögreglunni í landinu. Dauði mannanna tveggja fyrir nokkrum vikum hafa vakið hörð viðbrögð og mikið fjölmiðlafár fylgdi í kjölfarið.

Erlent

Blair hitti Benedikt páfa

Tony Blair forsætisráðherra Breta hitti Benedikt páfa í Vatikaninu í dag. Fundurinn ýtir undir sögusagnir þess efnis að forsætisráðherrann fyrirhugi að gerast Kaþólikki.

Erlent

Bandaríkjamenn íhuga að loka Guantanamo

Bandaríkjamenn vinna nú að byggingu fangelsis í Afghanistan í samvinnu við yfirvöld þar. Fangelsið mun taka við föngum frá Guantanamo en Bandaríkjamenn segja fangelsið ekki koma í stað fangabúðanna á Kúbu. Hvíta húsið hefur hug á að loka Guantanamo og flytja grunaða hryðjuverkamenn annað.

Erlent

90 hafa látist í Afghanistan síðustu daga

Meira en 90 manns hafa látist í aðgerðum Nató og Bandaríkjamanna í Afghanistan síðustu tíu daga. Forseti landsins fordæmir árásirnar og hvetur til samráðs svo koma megi í veg fyrir að aðgerðirnar kosti almenna borgara lífið.Um 60 talibanskir hermenn létust auk um 30 almennra borgarara í stærstu aðgerðum gegn talíbönum í Pakistan síðustu sex mánuði.

Erlent

Forseti Afghanistan fordæmir árásir Nató og Bandaríkjamanna

Meira en 90 óbreyttir borgarar hafa látist í Afghanistan í aðgerðum Nató og Bandaríkjamanna síðustu daga. Forseti landsins fordæmir aðferðir þeirra og segir þá stuðla að dauða almennings. Fleiri óbreyttir borgarar hafa látist í Afghanistan á þessu ári af völdum bandalagsins, en af völdum uppeisnarmanna.

Erlent

Leiðtogar ESB ánægðir með stjórnarsáttmála

Leiðtogar Evrópusambandsins náðu samkomulagi undir morgun um stjórnarsáttmála fyrir aðildarlöndin 27. Málamiðlun var gerð um að fresta breytingu á kosningavægi landanna miðað við höfðatölu til ársins 2014. Breytingin mun draga töluvert úr vægi Pólverja og það voru þeir afar ósáttir við.

Erlent

Mjakast nær málamiðlun

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sem gegnir formennsku í Evrópusambandinu, eyddi öllum gærdeginum, síðari degi leiðtogafundar sambandsins í Brussel, í að telja Pólverja og aðra sem höfðu fyrirvara gegn áformum um nýja uppfærslu stofnsáttmála ESB á að falla frá þeim.

Erlent

Bakslag í WTO-viðræðunum

Alvarlegt bakslag varð í tilraunum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO til að ná samkomulagi um alþjóðlegt viðskiptasamkomulag fyrir lok þessa árs, Doha-lotunni svonefndu, eftir að úrslitafundur fjögurra voldugustu meðlima stofnunarinnar fór út um þúfur í gær.

Erlent

Viðbúnaðarstig stórhækkað

Viðbúnaðarstig vegna yfirvofandi hættu á hryðjuverkum var hækkað í Þýskalandi í gær, á grundvelli leyniþjónustuupplýsinga sem bentu til aukinnar hættu á árás gegn þýskum borgurum í Afganistan eða jafnvel sjálfsmorðssprengjuárásum í Þýskalandi.

Erlent

Slepptu fimmtíu blöðrum

Fimmtíu blöðrum var sleppt út í loftið víða um heim í gær. Það var gert til að minnast þess að fimmtíu dagar eru liðnir síðan fjögurra ára stúlkan Madeleine McCann var numin á brott úr hótelíbúð í Portúgal. Blöðrunum var sleppt til að ítreka að Madeleine væri alls ekki gleymd.

Erlent

Vilja loka Guantanamo

Bandarísk stjórnvöld leita nú leiða til að loka Guantanamo-fangelsinu. Mikill þrýstingur er á stjórnvöld í Washington að loka því en það þykir vera ljótur blettur á mannréttindamálum í Bandaríkjunum.

Erlent

Dökk skjöl CIA opinberuð

Bandaríska leyniþjónustan, CIA, ætlar í næstu viku að birta skjöl um starfsemi stofnunarinnar á árunum 1950-1970. Meðal þess sem kemur fram í skjölunum er að leyniþjónustan lagði á ráðin um morð, njósnir og hleranir innanlands, mannrán og tilraunir með fólk.

Erlent

Pressa sett á Pólverja

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur hótað því að sniðganga Pólland í viðræðum um nýjan ESB-sáttmála. Pólverjar hafa lýst andstöðu sinni við þau drög sem liggja að sáttmálanum en hann á að koma í staðinn fyrir stjórnarskrá sambandsins.

Erlent

Fyrrverandi starfsfólk Eiffel turnsins sektað

Fimmtán fyrrverandi starfsmenn Eiffel turnsins í París hafa verið sektaðir eftir að hafa dregið að sér fé af miðasölu. Tólf konur og þrír karlar drógu að sér hundruð þúsundir evra á árunum 1996 til 2002 eftir að þeir komust að veikleika í tölvukerfi miðasölunnar. Þeim er gert að greiða allt frá 2,000 og upp í 10.000 evrur í sektir.

Erlent

Atlantis lent í Kaliforníu

Geimferjan Atlantis er nú lent heilu á höldnu á Edwards Air Force Base í Kaleforníu. Hún lenti klukkan 15:49 að staðartíma. Hætt var við lendingu í Flórída í dag vegna slæmra veðurskilyrða. Geimferjan hefur verið á ferð um sporbaug jarðar síðan áttunda júní og var með nægar eldsneytisbirgðar fram á sunnudag.

Erlent

50 dagar frá hvarfi Madeleine

Það eru fimmtíu dagar frá því Madeleine McCann var rænt úr íbúð í Praia da Luz í Portúgal. Í tilefni af því var grænum og gulum blöðrum sleppt í fimmtíu löndum til að vekja athygli á leitinni að stúlkunni. Og Íslendingar létu ekki sitt eftir liggja.

Erlent

Óheppilegur dauði 25 óbreyttra borgara í Afghanistan

„Dauði 25 óbreyttra borgara í Afghanistan var óheppilegur og bandalagið er að rannsaka málið," segir Jaap De Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri NATO. Hann kennir Talíbönum um hvernig fór, þar sem þeir hafi notað fólkið sem mannlegan skjöld.

Erlent

Reynt að lenda Atlantis

Geimferðastofnun Bandaríkjanna ætlar að reyna til þrautar að lenda geimferjunni Atlantis í dag, þrátt fyrir slæma veðurspá. Ferjan hefur verið í tvær vikur á sporbaug um jörðu en ferð hennar tafðist vegna bilana um borð í alþjóðlegu geimstöðinni.

Erlent

Barnsfaðirinn grunaður um aðild að hvarfi Davis

Móðir hinnar ófrísku Jessie Davis, sem týnd hefur verið síðan 13 júní, telur að barnsfaðir Davis eigi sök á hvarfi hennar. Hún segir þó að hún vilji ekki fullyrða að barnsfaðirinn, Bobby Cutts, sé viðriðinn málið.

Erlent

Túristum til Sri Lanka fækkar

Túristum sem ferðast til Sri Lanka hefur fækkað um 40% síðan í mái á síðasta ári. Fyrstu fimm mánuði þessa árs eru aðeins 23,4% búnir að ferðast til eyjunnar af þeim fjölda sem hafði ferðast til Sri Lanka fyrstu fimm mánuðina á síðasta ári. Hótel hafa ekki undan því að svara símtölum fólks sem eru að afpanta herbergi.

Erlent