Erlent
Niðurstaða áfrýjunar birt í dag Suður-Ameríkulönd komast að því í dag hvort að FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandið, snúi við úrskurði sínum um að banna fótboltaleiki sem fara fram ofar en 2.500 metra yfir sjávarmáli. Suður-ameríska knattspyrnusambandið áfrýjaði banninu þar sem þau sögðu það ósanngjarnt og ónauðsynlegt. Erlent 27.6.2007 10:47
Fangelsi fyrir að smita börn af HIV 17 starfsmenn í heilbrigðisgeiranum í Kasakstan hlutu fangelsisdóm fyrir að smita tugi barna af HIV veirunni. Alls voru 21 kærðir en fjórir af æðstu mönnum hópsins fengu skilorðsbundna dóma, sem vakti mikla reiði á meðal foreldra barnanna. Erlent 27.6.2007 10:34
Fimmta hver bjór- og gosflaska keypt ólöglega í Danmörku Fimmta hver bjór- og gosflaska í Danmörku er keypt á ólöglegan hátt samkvæmt skýrslu sem skattaráðuneyti Danmerkur kynnir í dag. Fram kemur á viðskiptafréttavefnum Börsen að Danir leggi enn þá mikið á sig til þess að komast hjá því að greiða skatta af þessum drykkjarvörum. Erlent 27.6.2007 10:17
Reiður múgur ræðst á hermenn í Kashmir-héraði Hundruðir reiðra íbúa í Kashmir-héraði neyddu tvo indverska hermenn til að afklæðast, rökuðu svo höfuð þeirra og lömdu þá. Ástæðan er sú að hermennirnir eru taldir hafa ætlað að nauðga 17 ára stúlku úr bænum Kunan. Lögreglan rannsakar málið, sem átti sér stað seint í gærkvöldi. Erlent 27.6.2007 09:45
Flóð í Suður-Svíþjóð Ár hafa flætt yfir bakka sína í Smálöndunum í Suður-Svíþjóð eftir mikla úrkomu þar síðan á þriðjudag. Vatnsleiðslur hafa sprungið og valdið vandræðum. Kjallarar húsa hafa fyllst af vatni og vegir lokast vegna flóða. Erlent 27.6.2007 09:32
Bílsprengja í Írak Bílsprengja í Írak banaði að minnsta kosti þremur í morgun. Árásinni var beint að tveimur lögreglubifreiðum á stóru markaðstorgi í N-Baghdad. Lögreglan sagði að sprengjan hefði sprungið í Suleikh umdæminu og að tíu manns til viðbótar séu slasaðir. Erlent 27.6.2007 09:26
Ísraelar ráðast inn á Gaza Ísraelar drápu að minnsta kosti tíu Palestínumenn í átökum á Gaza svæðinu í morgun. Aðgerðin sem herinn var í er sú stærsta síðan Hamas tók völdin á Gaza. Ekki er ljóst hvert markmið hennar er en ísraelski herinn hefur ekkert sagt um hana ennþá. Hún bendir þó til þess að Ísraelar ætli sér einnig að þjarma að Hamas hernaðarlega en þeir hafa mikið reynt að einangra samtökin bæði fjárhagslega og stjórnmálalega. Erlent 27.6.2007 09:01
Yfirmaður tyrkneska hersins vill aðgerðir í Írak Yfirmaður tyrkneska hersins, Yasar Buyukanit, sagði í sjónvarpsviðtali í morgun að hernaðaraðgerðir gegn aðskilnaðarsinnum Kúrda í norðurhluta Írak gætu haft góðar afleiðingar. Talið er að uppreisnarmenn Kúrda, PPK, hafi aðsetur þar og geri þaðan árásir á tyrknesk landsvæði. Írösk yfirvöld hafa varað Tyrki við því að ráðast inn í Írak. Erlent 27.6.2007 08:42
Áhrifa flóðanna gætir enn Samgöngur eru enn í ólagi í Englandi og Wales eftir flóðin þar í gær og fyrradag. Áfram er spáð rigningu en þó ekki jafn miklu úrhelli og var á mánudag. Fjórir hafa látist í flóðunum og síðast fannst mannslík í bíl í Worcestershire sem hafði færst í kaf í flóðinu. Erlent 27.6.2007 08:42
Múmía Hatshepsut fundin? Búist er við því að fornleifafræðingar í Egyptalandi segi frá einum mikilvægasta fundi þar í landi síðan múmía Tútankamons fannst þar árið 1922. Um múmíu drottningarinnar Hatshepsut er að ræða. Erlent 27.6.2007 07:58
CIA ætlaði að ráða Kastró af dögum CIA, leyniþjónusta Bandaríkjanna, létti í gær leynd af gömlum leyniskjölum stofnunarinnar. Í þeim kom meðal annars fram að á sjöunda áratugnum hefði hún unnið með frægum mafíósum í þeim tilgangi að ráða Fídel Kastró, forseta Kúbu, af dögum. Erlent 27.6.2007 07:47
Eldar loga enn í Kaliforníu Skógareldar í Kaliforníu í Bandaríkjunum hafa sótt í sig veðrið undanfarna daga. Slökkviliðsmenn höfðu búið til varnarlínu sem átti að hindra útbreiðslu eldsins en hann komst yfir hana og neyddi hundruð til þess að flýja heimili sín. Erlent 27.6.2007 07:06
Norður-Kórea heimilar eftirlit með afvopnun Yfirvöld í Norður-Kóreu tilkynntu í morgun að þau myndu leyfa eftirlitsaðilum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar að fylgjast með þegar slökkt verður á aðalkjarnaofni þeirra. Nefnd frá stofnuninni er þegar komin til landsins og hefur verið í viðræðum við þarlend stjórnvöld. Stofnuninni var úthýst frá Norður-Kóreu árið 2002 þegar landið hóf vinnu við kjarnorkuáætlun sína. Erlent 27.6.2007 07:03
Allir létust í flugslysi í Kambódíu Flak flugvélarinnar sem leitað var að í Kambódíu er fundið. Það voru flugmenn í leitarþyrlu sem komu auka á flakið á fjallinu Bukor í Kampot héraði. Erlent 27.6.2007 07:03
Brown kominn í Downingstræti Gordon Brown kominn í Downingstræti frá Buckingham höll þar sem hann var skipaður forsætisráðherra. Hann fór á fund Elísabetar annarrar, Englandsdrottningar, núna eftir hádegið og þáði starfið formlega úr hendi hennar. Erlent 27.6.2007 06:55
Mótmæli í Íran vegna eldsneytisskömmtunar Kveikt var í að minnsta kosti einni bensínstöð í höfuðborg Íran, Tehran, eftir að stjórnvöld tilkynntu um eldsneytisskömmtun í landinu. Erlent 27.6.2007 06:54
Bretland tekur nýja stefnu Nýr forsætisráðherra tekur við völdum í Bretlandi í dag: Gordon Brown, sem hefur heitið því að endurheimta traust almennings, endurskoða stefnuna í Íraksmálum og taka á hryðjuverkaógninni með nærgætnari hætti eftir áratugar valdatíð Tonys Blair. Erlent 27.6.2007 05:00
Hulu svipt af leyniskjölum CIA Leyniþjónusta Bandaríkjanna CIA birti í gær 693 blaðsíður af leyniskjölum um misferli hjá CIA sem voru skráð í kjölfar hneykslis á á miðjum áttunda áratugnum eftir að upp komst um innanlandsnjósnir stofnunarinnar. Erlent 27.6.2007 04:45
Þrír menn fórust í flóðunum Íbúar í borgum og bæjum víðs vegar um England voru í gær í óða önn að dæla upp úr kjöllurum og ryðja vatnselgnum af götum og torgum eftir að úrhellisrigningar ollu skaðræðisflóðum sem urðu þremur mönnum að fjörtjóni. Erlent 27.6.2007 02:00
Chirac vitni í sakarannsókn Jacques Chirac, fyrrverandi Frakklandsforseti, mun á næstu mánuðum þurfa að bera vitni í rannsókninni á spillingarhneykslismáli frá þeim árum sem hann var borgarstjóri í París og formaður gaullistaflokksins RPR. Lögmaður Chiracs staðfesti þetta í gær. Erlent 27.6.2007 01:00
Fjórir látnir í flóðum á Bretlandi Tala látinna í flóðum á Bretlandi síðustu daga hefur hækkað og nú er ljóst að fjórir hafa látið lífið. Lögreglan í Worchestershire fann í kvöld lík ökumanns sem saknað hafði verið. Maðurinn hafði horfið stuttu eftir að hann hafði hafði náð sambandi við eiginkonu sína og sagt henni að bíll hans væri umlukinn vatni. Erlent 26.6.2007 23:46
Ræningjar Johnstons ítreka hótanir sínar Mannræningjarnir sem haldið hafa breska blaðamanninum Alan Johnston föngnum síðan í mars hafa ítrekað hótanir sínar um að myrða Johnston verði ekki tekið undir kröfur þeirra. Ræningjarnir sem sagðir eru tilheyra samtökunum „Her íslams,“ sendu frá sér tilkynningu í dag, degi eftir að mynband birtist af Johnston þar sem hann var sýndur með sprengjubelti um sig miðjan. Erlent 26.6.2007 23:38
Rússar sagðir tregir til að samþykkja Blair sem sáttasemjara Vesturveldunum gekk illa í dag að komast að samkomulagi um að tilnefna Tony Blair sem sáttasemjara í Mið-Austurlöndum. Búist var við því að „kvartettinn" svokallaði, en hann skipa fulltrúar frá Bandaríkjunum, Evrópusambandinu, Rússlandi og Sameinuðu Þjóðunum, myndi tilkynna um útnefningu Blairs sem aðalsáttasemjara í dag en sú ákvörðun hefur dregist. Erlent 26.6.2007 22:59
Mótmæli í Íran vegna bensínskömmtunar Íranskur almenningur hefur mótnælt fyrirhuguðum skömmtunum á bensíni í höfuðborg landsins, Teheran í dag. Kveikt var í bensínstöð og hrópuðu mótmælendur ókvæðisorð að stjórnvöldum. Fréttastofa Reuters hefur eftir heimildamanni á staðnum að eldar logi glatt á bensínstöð í fátækari hverfum borgarinnar og að kveikt hafi verið í bílum. Erlent 26.6.2007 22:05
Tilkynnt um að Blair leiði friðarviðræður á morgun? Svo gæti farið að Tony Blair, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, verði tilnefndur sem sáttasemjari á milli stríðandi fylkinga í Mið-Austurlöndum strax á morgun. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir háttsettum bandarískum embættismanni. Erlent 26.6.2007 21:02
Búðafell bjargaði ólöglegum innflytjanda úr sjávarháska Ólöglegum innflytjanda var bjargað á dögunum úti fyrir ströndum Möltu. Maðurinn hafði verið í hópi 26 manna sem freistuðu þess að komast til Evrópu á lítilli bátskænu sem hvolfdi með þeim afleiðingum að aðeins fjórir komust lífs af. Manninum var bjargað um borð í togarann Búðafell sem skráð er á Möltu, en gerði áður út frá Fáskrúðsfirði eins og sjá má á myndinni. Erlent 26.6.2007 20:21
Abbas bannar vopnaburð Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, hefur gefið út tilskipun, sem bannar Palestínumönnum að bera vopn og sprengiefni án sérstaks leyfis. Ákvörðunin miðar að því að veikja stöðu Hamasliða á Vesturbakkanum og er ein af mörgum tilskipunum sem forsetinn hefur gefið út í þessum tilgangi síðan hann leysti ríkisstjórn Palestínu frá völdum. Erlent 26.6.2007 19:07
Bensín skammtað í einu stærsta olíuríki heims Annar stærsti olíuframleiðandi innan olíusamtakanna OPEC, Íran, ætlar að skammta bensín til landsmanna frá og með morgundeginum, að því er íranska ríkissjónvarpið greindi frá í kvöld. Tilgangurinn er að hamla gegn eldsneytiseyðslu í landinu. Erlent 26.6.2007 18:21
Hitabylgja í Evrópu kostar 31 mannslíf Að minnsta kosti 31 hefur látið lífið síðustu daga vegna hitabylgju sem gengið hefur yfir í suðausturhluta Evrópu. Hitinn mældist víða 45 gráður í Grikklandi í dag þar sem almenningsþjónustu og fyrirtækjum var víða lokað. Hitinn var það mikill að eldur kviknaði í rafmagnslínum og olli rafmagnsleysi. Erlent 26.6.2007 18:05
Fjórir af Minnesota-sexburunum látnir Einungis tveir af sexburunum sem fæddust í Minnesota 10 júní eru á lífi. Fjórði sexburinn lést á sunnudaginn. Þrír voru látnir þegar vika hafði liðið frá fæðingu. Ástand hinna tveggja eftirlifandi er tvísýnt. Forsvarsmenn sjúkrahússins þar sem fjölskyldan dvelur vildu ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Erlent 26.6.2007 17:16