Erlent
Myndbandsupptökur af gíslum birtar Uppreisnarmenn í Kólumbíu hafa birt myndbandsupptökur af sjö gíslum sem sumir hafa verið í haldi í nærri áratug. Í upptökunum biðja gíslarnir ríkisstjórn Kólumbíu um að ræða við gíslatökumennina en vara við því að hernaðaraðgerðum verði beitt við björgun. Erlent 4.7.2007 16:23
Atlantis komin á endapunkt Atlantis geimferjan er loksins komin heim til sín í Flórída. Hún þurfti að lenda í Kaliforníu eftir fjórtán daga leiðangur til Alþjóðageimstöðvarinnar vegna slæmra veðurskilyrða í heimabæ sínum. Á ferð sinni yfir Bandaríkin var skutlan ferjuð á baki 747 þotu. Erlent 4.7.2007 16:15
Dökkt súkkulaði gegn háum blóðþrýstingi Enn ein rannsókn sem hvetur til súkkulaðineyslu hefur litið dagsins ljós. Vísindamenn við háskólasjúkrahús í Köln halda því fram að munnfylli af dökku súkkulaði á dag lækki blóðþrýsting og dragi úr hættu á hjartaáfalli. Erlent 4.7.2007 15:24
Brown vill aukið eftirlit með nýráðningum lækna Gordon Brown lofaði í fyrsta fyrirspurnartíma sínum í þinginu í dag að leggja sitt af mörkum til að stuðla að auknu öryggi í ljósi sprengjutilræðanna sem urðu einungis tveimur dögum eftir að hann tók við embætti. Erlent 4.7.2007 14:48
Ráðgáta um hvarf jökullóns í Chile leyst Komist hefur verið að orsökum dularfulls hvarfs jökullóns í Chile í maí síðastliðnum. Niðurstaða sérfræðinga sem flugu yfir svæðið er sú að jökulveggur við lónið hafi sprungið undan sívaxandi þunga þess og þannig myndast farvegur með fyrrgreindum afleiðingum. Leið vatnsins lá svo inní nærliggjandi fjörð og þaðan til sjávar. Hið upprunalega lón er tekið að fyllast á ný. Erlent 4.7.2007 14:12
Alan Johnston þakkar vestrænum fjölmiðlum Breska fréttamanninum Alan Johnston var sleppt í morgun en hann hafði verið í haldi mannræningja á Gaza í 114 daga. Hann hélt fréttamannafund í Jerúsalem í dag og sagði það stórkostlega tilfinningu að vera frjáls á ný. Erlent 4.7.2007 13:55
Breska lögreglan finnur sjálfsmorðsbréf Breska lögreglan hefur fundið sjálfsmorðsbréf í tengslum handtöku tveggja manna sem lögðu sprengjuhlöðnum bíl við flugvöllinn í Glasgow síðastliðinn laugardag, að því er CNN fréttastofan greinir frá. Erlent 4.7.2007 13:36
Yfir fimm hundruð stúdentar hafa gefist upp Meira en fimm hundruð róttækir múslímskir stúdentar hafa gefist upp eftir átök við Rauðu moskuna (Lal Masjid) í Islamabad, höfuðborg Pakistans, sem hófust í gær. Á milli 2.000 - 5.000 stúdentar eru þó enn inni í moskunni sem umkringd er af hersveitum og lögreglu í Pakistan. Erlent 4.7.2007 12:16
Yfirvöld í Ástralíu fá 48 klukkustunda frest til að halda indverskum lækni Dómari hefur gefið yfirvöldum í Ástralíu 48 klukkustunda frest til að halda indverskum lækni, sem handtekinn var í gær, án ákæru. Læknirinn Mohammed Haneef var handtekinn í tenglsum við sprengjutilræðin á Bretlandseyjum um síðustu helgi. Erlent 4.7.2007 11:32
Íhuga að draga úr viðbúnaði Öryggissérfræðingar í Bretlandi eru að íhuga að lækka viðbúnaðarstigið í landinu um eitt stig eftir þær fjölmörgu handtökur sem farið hafa fram undanfarna daga. Ef það gerist verður slakað örlítið á öryggi í landinu. Erlent 4.7.2007 08:36
MEND aflýsir vopnahléi Nígeríski uppreisnarhópurinn MEND (Movement for the Emancipation of the Niger Delta) hefur aflýst mánaðarlöngu vopnahléi. Hópurinn ber ábyrgð á flestum þeirra árása sem eru gerðar við ósa Níger-árinnar en þar er gríðarlegt magn af olíu að finna. Erlent 4.7.2007 08:11
Frambjóðendur flykkjast til Iowa Frambjóðendur í forkosningum stjórnmálaflokkanna í Bandaríkjunum flykkjast nú til ríkisins Iowa til þess að vera viðstaddir hátíðahöld vegna þjóðhátíðardags Bandaríkjanna. Hillary og Bill Clinton fóru þangað saman og Barack Obama fór þangað með fjölskyldu sína. Þau sækjast eftir útnefningu demókrata. Erlent 4.7.2007 07:37
Búist við meiri átökum í Islamabad Yfirvöld í Pakistan gáfu nemendum í bænaskólanum Rauðu moskunni í höfuðborginni Islamabad frest til klukkan sex í morgun til þess að gefast upp en átök hafa staðið á milli þeirra síðan í gær. Fresturinn rann út án uppgjafar stúdentanna og samkvæmt arabísku sjónvarpsstöðinni Al-Jazeera eru konur og börn að yfirgefa moskuna. Erlent 4.7.2007 07:14
Víetnam kaupir bóluefni gegn fuglaflensu Stjórnvöld í Víetnam hafa sent fulltrúa sína til Kína til kaupa á 50 milljón skömmtum af bóluefni gegn fuglaflensu eftir að tvennt lést nýverið vegna hennar. Aðeins eru til um 15 milljón skammtar í landinu sem er langt frá því að vera nóg til þess að baráttan gegn fuglaflensu í landinu eigi eftir að skila sér. Fimm manns hafa fengið flensuna síðan í maí á þessu ári og þar af hafa tveir látið lífið. Erlent 4.7.2007 07:12
25 liðsmenn al-Kaída drepnir í Írak Bandaríski herinn drap 25 vígamenn í átökum norður af Bagdad í nótt. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá hernum nú í morgun. Samkvæmt henni voru átökin hluti af þriggja daga aðgerð nærri bænum Mukhisa í Diyaa héraðinu. Þar eru nú rúmlega tíu þúsund bandarískir og írakskir hermenn staddir til þess að berjast gegn liðsmönnum al-Kaída sem þar hafa aðsetur. Erlent 4.7.2007 07:09
Alan Johnston sleppt eftir fjóra mánuði í haldi mannræningja Mannræningjar hafa sleppt breska fréttamanninum Alan Johnston eftir að hafa haldið honum í nærri fjóra mánuði. Erlent 4.7.2007 07:05
Fjórir hinna handteknu eru læknar Samkvæmt upplýsingum breskra fjölmiðla eru flestir ef ekki allir þeirra átta manna, sem eru grunaðir um aðild að misheppnuðu hryðjuverkatilræðunum í London og Glasgow, læknar eða læknanemar og múslimar af erlendum uppruna. Erlent 4.7.2007 06:00
Bush ánægður með ákvörðun Talsmaður Hvíta hússins vildi í gær ekki útiloka að Lewis „Scooter“ Libby, fyrrverandi starfsmannastjóri Dicks Cheney varaforseta, yrði náðaður, en í bili væri George W. Bush forseti ánægður með ákvörðun sína um að Libby skyldi ekki þurfa að afplána tveggja og hálfs árs fangelsisdóm sem hann fékk fyrir aðild sína að því að leka trúnaðarupplýsingum í „CIA-lekamálinu“ svonefnda. Erlent 4.7.2007 05:30
Danir krafnir skýringa Fyrir utan hótel á Ródos, þar sem nú fara fram Eyjaleikarnir svonefndu, var færeyski fáninn dreginn að húni á sömu fánastöng og danski fáninn og hafður undir honum. Erlent 4.7.2007 04:30
Innflytjendastefna Bush felld Öldungadeild Bandaríkjaþings felldi fyrir helgi frumvarp ríkisstjórnar George W. Bush Bandaríkjaforseta að hertri löggjöf um innflytjendur. Fjórtán atkvæði vantaði upp á að frumvarpið yrði að lögum. Erlent 4.7.2007 03:30
Floti F-14 orrustuþotna molaður í brotajárn Þegar F-14 Tomcat-orrustuþotan var fyrst tekin í notkun snemma á áttunda áratugnum kostaði stykkið 38 milljónir dollara og var tákn um hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna í lofti. Erlent 4.7.2007 03:30
Kim vill standa við samninginn Kim Jong Il, einræðisherra Norður-Kóreu, sagði í gær að ríkin sem vilja að yfirvöld í landinu hætti við kjarnorkuáætlanir sínar eigi að standa við eigin skuldbindingar í afvopnunarsamningnum sem gerður var í febrúar. Kim sagði þetta á fundi með aðstoðarutanríkisráðherra Kína, Yang Jiechi, í gær, að því er kínverskir fjölmiðlar greindu frá. Erlent 4.7.2007 02:15
Íransstjórn sögð fjarstýra árásum Íranar nota líbönsku Hezbollah-samtökin sem staðgengil til að hervæða sjíamúslima í Írak og íranskar sérsveitir aðstoðuðu við árásirnar í Karbala í janúar. Þetta fullyrðir bandarískur hershöfðingi. Erlent 4.7.2007 02:00
Ummæli um árásir gagnrýnd Varnarmálaráðherra Japans, Fumio Kyuma, sagði af sér í gær vegna ummæla sem hann lét falla um að kjarnorkuárásir Bandaríkjamanna á Hírósíma og Nagasakí árið 1945 hefðu verið óumflýjanleg leið til að binda endi á stríðið. Erlent 4.7.2007 01:45
Sjö Spánverjar létust og sex særðust Sjö Spánverjar og tveir Jemenar dóu í hryðjuverkaárás í Jemen á mánudag. Hryðjuverkamaður keyrði bíl sem var fullur af sprengiefni inn í bílalest. Sex Spánverjar særðust en aðeins einn þeirra var lagður inn á sjúkrahús, að sögn spænska blaðsins El Pais. Auk þess særðust tveir Jemenar. Erlent 4.7.2007 01:30
Sovéthermenn endurgreftraðir Átta sovéskir hermenn, sem jarðsettir höfðu verið á sínum tíma hjá minnismerkinu Bronshermanninum á áberandi stað í miðborg Tallinn, höfuðborg Eistlands, voru í gær endurjarðsettir í hermannakirkjugarðinum þangað sem minnismerkið var flutt fyrir skemmstu. Erlent 4.7.2007 00:30
Fjórar stúlkur brenndust á Hróarskelduhátíðinni Fjórar ungar konur brenndust alvarlega í gassprengingu á Hróarskelduhátíðinni nú í kvöld. Stúlkurnar voru að ljúka við að elda mat þegar gashitari sprakk. Þær voru samstundis færðar á sjúkrahúsið í Hróarskeldu og þaðan voru þær fluttar á brunadeild Ríkisspítalans, að því er fram kemur á vef Danmarks Radio. Erlent 3.7.2007 22:36
Bush útilokar ekki að Libby verði náðaður að fullu George Bush Bandaríkjaforseti útilokar ekki að hann muni náða Lewis Libby algerlega. Ákvörðun forsetans um að aflétta fangelsisdómi yfir Libby hefur vakið mikil viðbrögð meðal demókrata. Erlent 3.7.2007 21:46
Giuliani vel settur fjárhagslega Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, hefur aflað mest fjár allra frambjóðenda í forkosningum repúblikana fyrir bandarísku forsetakosningarnar á næsta ári. Giuliani hefur safnað 17 milljónum dala sem samsvarar ríflega einum milljarði íslenskra króna síðastliðna þrjá mánuði, að sögn talsmanna framboðs hans. Erlent 3.7.2007 21:03
Dautt kameldýr í Svíþjóð Lögreglan í Svíþjóð klórar sér í hausnum og spyr hvaða erindi kameldýr hafI átt til Svíþjóðar. Hræ af kameldýri fannst við vegkantinn á hraðbraut nærri Karlskrona í suðausturhluta Svíþjóðar í gær. Erlent 3.7.2007 19:31