Erlent
Heill loðfílsungi fannst í Síberíu Leifar af ungviði loðfíls sem fundust í sífreri í Síberíu á dögunum eru líklega þær heilustu sem fundist hafa af þessari útdauðu skepnu. Talið er að leifarnar séu um 10,000 ára gamlar. Erlent 10.7.2007 14:24
2 látnir og 4 slasaðir eftir flugslys í Flórída Lítil Cessna 310 flugvél hrapaði á tvö heimili í Sanford, Flórída í morgun. Samkvæmt Cleo Cohen, talsmanni lögreglunnar, eru að minnsta kosti tveir látnir og fjórir alvarlega slasaðir og voru þeir fluttir með tveimur þyrlum á nærliggjandi sjúkrahús. Einnig er einn slökkviliðsmaður til aðhlynningar vegna brjóstverkja. Erlent 10.7.2007 14:18
Íbúafjöldasprengja yfirvofandi í Kaliforníu Íbúafjöldasprengja í Kaliforníu er yfirvofandi samkvæmt spá fjármálastofnunar ríkisins sem birtist á heimasíðu L.A. Times í dag. Á næstu 50 árum mun fólksfjöldinn aukast um 75%, sem þýðir fólksfjöldinn í ríkinu mun nálgast 60 milljóna markið. Erlent 10.7.2007 13:34
Bandaríkin senda þriðja flugmóðurskipið til Persaflóa Bandaríkin hafa sent þriðja flugmóðurskipið, Enterprise, til Persaflóans, á svæði nálægt írönsku hafsvæði. Sjóherinn sagði frá þessu í tilkynningu í morgun. „Enterprise er mótvægi við þær truflandi aðgerðir sem sum lönd á svæðinu standa fyrir. Einnig styður það við bakið á hermönnum okkar í Írak og Afganistan.“ sagði í tilkynningunni. Erlent 10.7.2007 12:08
60 handteknir í aðgerðum gegn mafíunni Lögreglan á suðurhluta Ítalíu handtók í dag fleiri en 60 manns í aðgerðum gegn mafíunni á svæðinu en hún kallast 'Ndrangheta. Meðlimir hennar eru grunaðir um smygl á eiturlyfjum, fólki og tryggingasvindl. 'Ndrangheta er staðsett í Kalabríu, rétt suður af Napólí, og er orðin stærri en Cosa Nostra mafían sem hefur aðsetur á Sikiley. Erlent 10.7.2007 11:51
Þúsundir fluttar á brott vegna goshættu Þúsundir Indónesa hafa þurft að flýja heimili sín vegna goshættu í eldfjallinu Mount Gamkonora. Fjallið spýr þegar út ösku og eldi allt upp í fjögur þúsund metra hæð. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir þaðan. Erlent 10.7.2007 11:01
11 látast í sprengjuárás í Afganistan Sjálfsmorðssprengjumaður gerði í dag árás á hersveitir NATO í suðurhluta Afganistan og varð 11 almennum borgurum að bana. Þó nokkur börn voru á meðal þeirra látnu. Talið er að allt að 30 manns hafi særst í árásinni. Talsmaður NATO í Kabúl sagði að sjö hermenn hefðu særst í henni. Erlent 10.7.2007 10:26
Bretar bregðast ókvæða við neitun á framsali Rússar neituðu því formlega í morgun að framselja Andrei Lugovoy, fyrrum njósnara, og manninn sem er grunaður um að hafa myrt Alexander Litvinenko. Bretar brugðust ókvæða viða og segja svar Rússa við framsalsbeiðninni „óásættanlegt.“ Bretar hafa ávallt haldið því fram að litið sé á morðið á Litvinenko sem mikilvægt mál. Erlent 10.7.2007 10:08
Snjór í fyrsta sinn í 90 ár í Buenos Aires Það eru nærri nítíu ár síðan síðast snjóaði í Bueons Aires, höfuðborg Argentínu, en í gær var komin hvít dula yfir borgina og svæðið í kring. Óvenjukalt er þar miðað við árstíma. Veðurstofa Argentínu sagði þetta í fyrsta sinn síðan 22. júní árið 1918 sem snjó festi. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir þaðan. Erlent 10.7.2007 08:21
Svört skýrsla um árangur Íraka Í áfangaskýrslu um Íraksstríðið, sem birt verður síðar í vikunni, er komist að þeirri niðurstöðu að ríkisstjórn Íraks hafi ekki náð neinum þeim áföngum sem henni var gert að ná. Háttsettur bandarískur embættismaður skýrði frá þessu í nótt. Erlent 10.7.2007 07:42
Kínversk yfirvöld taka háttsettan embættismann af lífi Kínversk yfirvöld tóku í nótt af lífi fyrrum yfirmann Lyfja- og matvælaeftirlits landsins vegna spillingar. Hann var dæmdur fyrir að þiggja mútur frá átta fyrirtækjum. Einnig samþykkti hann fjölmörg lyf gegn peningum, þar á meðal sex sem voru algjörlega gagnslaus. Erlent 10.7.2007 07:11
Segja hvern sem er geta verið yfir IMF Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) sagði í gær að hvaða þjóð sem er væri frjálst að tilnefna eftirmann, Rodrigo Rato, sem nú er yfir sjóðnum. Hann sagði nýverið af sér vegna persónulegra ástæðna. Samkvæmt hefð frá upphafi stofnunarinnar hefur Evrópumaður ávallt verið yfir stofnuninni. Erlent 10.7.2007 07:09
Kaczynski rak Lepper úr embætti Forsætisráðherra Póllands, Jaroslaw Kaczynski, rak aðstoðarforsætisráðherra sinn, Andrzej Lepper úr embætti í gær. Lepper er formaður Sjálfsvarnarflokksins sem myndaði stjórn með flokki Kaczynski og gekk flokkurinn úr stjórninni. Erlent 10.7.2007 07:03
Hæstiréttur Taílands tekur fyrir spillingarmál gegn Shinawatra Hæstiréttur í Taílandi hefur ákveðið að taka upp spillingarmál gegn Thaksin Shinawatra, fyrrum forsætisráðherra landsins. Málið snýst um kaup á landi sem var í eigu ríkisins. Erlent 10.7.2007 06:59
Blóðbað í Rauðu moskunni Pakistanski herinn gerði áhlaup á Rauðu moskuna í Islamabad, höfuðborg landsins, á miðnætti í gærkvöldi eftir að samningaviðræður við vígamenn báru ekki árangur. Tæplega 60 vígamenn hafa látið lífið og um átta hermenn. Þá hafa 29 hermenn særst í átökunum. 50 konum og börnum hefur verið bjargað. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir frá Islamabad. Erlent 10.7.2007 06:50
Hefur áhyggjur af fjárdrætti MOSKVA, AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað sérstaka nefnd til að hafa umsjón með eyðslu vegna undirbúnings Vetrar-ólympíuleikanna í Sochi í Suður-Rússlandi árið 2014. Forsetinn segir að þurft hafi að skipa í nefndina til að sjá til þess að opinberu fé sé eytt skynsamlega og til að koma í veg fyrir fjárdrátt. Erlent 10.7.2007 06:00
Umræður en ekki innrás Pervez Musharraf, forseti Pakistans, ákvað í gær að senda hóp manna til að reyna að semja við meinta hryðjuverkamenn sem hafast við í Rauðu moskunni í Íslamabad. Jafnvel var talið að forsetinn myndi gera allsherjarárás á moskuna. Erlent 10.7.2007 05:45
Riftir samningi við Japan Tívolíið í Kaupmannahöfn hefur ákveðið að rifta samningi við skemmtigarð í Japan, þar sem býsna nákvæm eftirlíking af dönsku frummyndinni hefur verið starfrækt í tíu ár. Erlent 10.7.2007 03:45
Kona varð óvart sendiherra Bandarísk kona fékk hátt í hundrað símtöl á dag frá óttaslegnum Víetnömum, þegar farsímanúmerið hennar var óvart skráð sem neyðarsími víetnamska se-ndiráðsins. Erlent 10.7.2007 03:30
Miklar efasemdir í ráðherraliði Blairs Ráðherrar í ríkisstjórn Tonys Blair höfðu á sínum tíma miklar efasemdir um réttmæti þess að ráðast á Írak. Þetta fullyrðir Alastair Campbell, fyrrverandi blaðafulltrúi Blairs, í dagbókum sínum sem komu út á bók í gær. Erlent 10.7.2007 03:00
Knútur hættir að koma fram Ástsæli ísbjarnarhúnninn Knútur og þjálfari hans, Thomas Doerflein, munu hætta að koma fram saman tvisvar á dag að því er yfirvöld dýragarðsins í Berlín greindu frá í gær. Erlent 10.7.2007 02:30
Herinn ekki kallaður heim George Bush Bandaríkjaforseti ætlar ekki að kalla bandaríska herliðið heim frá Írak. Stuðningur við Íraksstefnu hans hefur minnkað innan Repúblikanaflokksins; þrír öldungadeildarþingmenn flokksins hafa gagnrýnt stefnu hans á síðustu dögum. Erlent 10.7.2007 02:00
Slepptu ensku stúlkunni Nígerískir mannræningjar hafa sleppt þriggja ára gamalli enskri stúlku, Margaret Hill, sem þeir rændu á fimmtudag. Mike Hill, faðir stúlkunnar, sagði að dóttur sinni hefði verið sleppt vegna þrýstings frá nígerískum stjórnvöldum. Erlent 10.7.2007 02:00
Hafnað fyrir að heita „helvíti“ Ástralskir foreldrar eru ævareiðir skólayfirvöldum í kaþólskum skóla sem neituðu fimm ára syni þeirra um inngöngu vegna fjölskyldunafnsins Hell sem þýðir „helvíti“ á íslensku. Erlent 10.7.2007 01:30
Hlustaði á tónlist í dómsal Kona, sem sat í kviðdómi í morðmáli í London, á yfir höfði sér fangelsisdóm eftir að hún varð uppvís að því að hlusta á tónlist á meðan á réttarhöldunum stóð. Erlent 10.7.2007 01:00
Gagnrýnir bresku lögregluna Ronald Noble, yfirmaður alþjóðalögreglunnar Interpol, gagnrýnir harðlega aðgerðir bresku lögreglunnar gegn hryðjuverkamönnum. Hann segir bresku lögregluna hvorki nýta sér sem skyldi upplýsingar frá Interpol, né heldur hafi breska lögreglan viljað veita Interpol upplýsingar um menn sem hafi verið handteknir í Bretlandi grunaðir um hryðjuverk. Erlent 10.7.2007 01:00
Dæmdir fyrir að skipuleggja hryðjuverk Þrír menn voru í gær sakfelldir fyrir að hafa skipulagt hryðjuverk í samgöngukerfi London 21. júlí árið 2005, tveimur vikum eftir að 52 létust í hryðjuverkaárás í borginni. Þrír aðrir bíða dóms. Erlent 10.7.2007 00:30
Dreamliner þotan kynnt Boeing flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum kynntu í gær fyrstu nýju þotuna sína í 12 ár - 787 Dreamliner kallast hún. Vélin er að mestu gerð úr klefnistrefjum og sögð umhverfisvænni en aðrar þotur. Icelandair hefur pantað 4 slíkar. Erlent 9.7.2007 19:15
Fordæma matreiðslumenn Dýravinir hafa fordæmt matreiðslumeistara í Taívan sem hafa tekið upp á því að djúpsteikja vatnakarfa og bera fram lifandi. Gestir gæða sér á honum um leið og hausinn á fisknum kippist til. Herramanns matur segja sumir, villimennska telja aðrir. Erlent 9.7.2007 19:00
Álver fylgi ódýrri orku Forstjóri álfyrirtækisins Alcoa segir nauðsynlegt að byggja áttatíu ný álver víða um heim næstu árin til að svara aukinni eftirspurn eftir áli. Hann spáir því að álverum víða í Evrópu og Norður-Ameríu verði lokað og önnur byggð á Íslandi og annars staðar þar sem ódýra orku sé að fá. Erlent 9.7.2007 18:45