Erlent
14 láta lífið í sprengjuárás í Pakistan Átök halda áfram að magnast í norðvesturhluta Pakistan en 14 manns létu lífið í fyrirsátri uppreisnarmanna í nótt. 38 hafa því látið lífið í árásum á svæðinu á síðasta sólarhring. Þær virðast vera hluti af hefndaraðgerðum vegna áhlaups hersins á Rauðu moskuna í síðastliðinni viku. Erlent 15.7.2007 10:27
Hæstu skaðabætur sem kaþólska kirkjan hefur greitt Kaþólska kirkjan í Los Angales í Bandaríkjunum hefur samið við yfir fimm hundruð meint fórnarlömb kynferðisofbeldis presta um að greiða þeim bætur. Alls greiðir kirkjan yfir fjörtíu milljarða króna í bætur. Erlent 15.7.2007 10:12
Tesco búðir opnaðar á ný Breska lögreglan hefur opnað fjórtán Tesco verslanir sem lokað var af öryggisástæðum í framhaldi af hótunum sem bárust lögreglu og fyrirtækinu. Erlent 15.7.2007 09:59
Nýtt myndband með Osama Nýtt myndband Osama Bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, var birt á netinu í gær. Ekki er vitað hvenær myndbandið var útbúið en þar upphefur Bin Laden píslarvættisdauða og talar um Múhameð spámann. Erlent 15.7.2007 09:58
Forseti Tanzaníu undirgengst alnæmispróf Forseti Tanzaníu og leiðtogar stjórnarandstöðunnar í landinu fóru í dag í opinbert alnæmispróf. Þjóðaráták gegn HIV/AIDS er nú að hefjast í landinu og með þessu vildu þeir hvetja landsmenn til þess að gangast undir sams konar próf. Erlent 14.7.2007 20:30
Tesco búðum í Bretlandi lokað í varúðarskyni Lögregla í Bretlandi hefur lokað að minnsta kosti 11 Tesco kjörbúðum víðsvegar um landið í dag. Lögregla sagði aðgerðirnar vera gerðar í varúðarskyni. Erlent 14.7.2007 18:17
Norður-Kórea hefur lokað kjarnakljúfi sínum við Yongbyon Bandarísk yfirvöld skýrðu frá því nú rétt fyrir sex í kvöld að Norður-Kórea hefði lokað kjarnakljúfi sínum við Yongbyon í dag. Aðeins er beðið staðfestingar frá eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar. Erlent 14.7.2007 17:53
44 bílar skemmdust í eldsvoða í Sviss 44 bílar skemmdust í gríðarmiklum eldsvoða á einni stærstu tónlistarhátíð Sviss í dag. Lögregla þar í landi skýrði frá þessu. Hún er enn að rannsaka upptök eldsins og íkveikja hefur ekki verið útilokuð. Fimm slökkviliðsmenn slösuðust lítillega í baráttu sinni við logana. Erlent 14.7.2007 17:37
Þriðji maðurinn ákærður vegna sprengjutilræðanna í Lundúnum og Glasgow Breska lögreglan hefur ákært þriðja manninn í tengslum við sprengjutilræðin í Glasgow og Lundúnum. Dr. Sabeel Ahmed, 26 ára, frá Liverpool, hefur verið ákærður fyrir að búa yfir upplýsingum sem hefðu getað komið í veg fyrir hryðjuverk. Erlent 14.7.2007 17:16
Alþjóðasamfélagið harmar ákvörðun Putins Rússar hafa sagt sig úr samkomulagi sem takmarkar fjölda herdeilda og þungavopna á ýmsum stöðum í Evrópu. Vladimir Putin, forseti Rússlands, skrifaði undir lög þess efnis nú í morgun. Evrópusambandið, Bretar og Bandaríkjamenn segjast harma ákvörðun rússneska forsetans. Erlent 14.7.2007 16:51
Karíókí ógnar þjóðaröryggi Norður-Kóreu Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa fyrirskipað lokun karíókístaða sem og internetkaffihúsa þar sem leyniþjónusta landsins telur þetta tvennt ógna þjóðaröryggi. Samkvæmt flóttamönnum frá Norður-Kóreu er almenningur ekki mikið á þannig stöðum, sem flestir eru við landamæri Kína, heldur frekar viðskiptamenn erlendis frá. Erlent 14.7.2007 16:24
Bastilludagurinn haldinn hátíðlegur í dag Frakkar halda nú upp á þjóðhátíðardag sinn, Bastilludaginn. Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, breytti út af vananum og leyfði hermönnum frá öllum löndum Evrópusambandsins að taka þátt í skrúðgöngu hersins. Erlent 14.7.2007 16:04
Tveir unglingspiltar ætluðu að myrða hundruð samnemenda sinna Tveir táningar voru í dag ákærðir fyrir að hafa ætlað að ráðast á skóla í úthverfi New York. Táningarnir eru 15 og 17 ára og voru báðir nemendur í skólanum. Sá yngri var sá sem öllu réði og skipulagði. Hann leitaði vel og lengi að vopnum á internetinu til þess að geta notað í árásinni sem átti að fara fram á níu ára afmæli atburðanna í Columbine skólanum, þann 20. apríl 2008. Erlent 14.7.2007 15:46
Maður handtekinn í tengslum við þrefalt morð í Manchester Lögreglan í Manchester á Englandi hefur handtekið 32 ára karlmann í tengslum við morð á þriggja manna fjölskyldu. Pierre Williams er atvinnulaus og verður yfirheyrður af lögreglunni á næstunni. Hann er grunaður um að hafa myrt Kesha Wizzart, 18 ára, móður hennar Beverley Samuels, 36 ára, og bróður hennar Fred, 13 ára. Erlent 14.7.2007 15:30
24 létu lífið og 29 særðust í árás í Pakistan 24 hermenn létu lífið og 29 særðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Árásarmaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefnum inn í bílalest hermanna. Önnur árás var gerð á hermenn í Pakistan í dag og í henni særðust tveir. Erlent 14.7.2007 15:12
Öryggisgæsla hert í Mogadishu Gríðarlega öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, þar sem á að halda sátta- og friðarfund á milli fleiri en eitt þúsund fyrrum stríðsherra, öldunga og stjórnmálamanna. Fleiri hundruð hermenn hafa verið kallaðir til borgarinnar til þess að sinna gæslu. Erlent 14.7.2007 14:32
Vilt þú gista í IKEA? IKEA í Noregi hefur ákveðið að leyfa fólki að gista í búðinni. Frá 23. júlí til 27. júlí fær almenningur tækifæri til þess að gista í öllum sýningarherbergjum í búðinni. Fólk getur valið úr brúðarsvítum eða lúxussvítu en henni fylgir morgunverður í rúmið. Svo geta aðrir gist í kojum nú eða fjölskylduherbergjunum. Erlent 14.7.2007 14:12
Sjö rænt í Nígeríu Vígamenn rændu í morgun sjö starfsmönnum dýpkunarfyrirtækis í suðausturhluta Nígeríu. Fólkinu var rænt í borginni Onitsha, sem er á bökkum Níger. Mannræningjarnir hafa sett fram beiðni um lausnargjald. Erlent 14.7.2007 13:50
Óvenjulegt símtal til Neyðarlínunnar í Kanada Nokkrum kanadískum ungmennum brá heldur betur í brún þegar tveir fílar gerðu sig heimakomna í garðinum við hús þeirra síðastliðinn fimmtudag. Fílarnir Bunny og Suzy búa í sirkus skammt frá heimili ungmennanna í Newmarket í Ontario í Kanada. Erlent 14.7.2007 12:14
Ákærður fyrir þátttöku í sprengjutilræðum í Bretlandi Ástralska lögreglan hefur ákært Muhammad Haneef, indverskan lækni, fyrir þátttöku sína í sprengjutilræðunum í Bretlandi í lok júní. Í ákærunni sem gefin var út á hendur honum kemur fram að hann sé ákærður fyrir stuðning við hryðjuverkasamtök. Erlent 14.7.2007 12:09
Sádi-Arabía takmarkar völd trúarbragðalögreglu Innanríkisráðuneytið í Sádi-Arabíu hefur bannað trúarbragðalögreglu landsins að taka fólk í gæsluvarðhald þar sem undanfarið hefur fólk látið lífið í haldi þeirra. Einnig hefur þeim verið bannað að reyna ná fram játningum og framvegis verður trúarbragðalögreglan að afhenda borgaralegri lögreglu landsins fólk sem það telur hafa gerst brotlegt við lögin. Erlent 14.7.2007 11:42
Átta hermenn láta lífið í sjálfsmorðsárás Átta hermenn létu lífið og 15 slösuðust í sjálfsmorðsárás í norðvesturhluta Pakistan í morgun. Þúsundir hermanna hafa verið fluttir á svæðið undanfarna daga til þess að koma í veg fyrir hugsanlegar aðgerðir herskárra múslima gegn stjórnvöldum í landinu. Erlent 14.7.2007 11:28
Starbucks lokar útibúi sínu í Forboðnu borginni Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks hefur lokað kaffihúsi sínu í Forboðnu borginni í Peking. Staðurinn opnaði árið 2000 og varð strax umdeildur. Safnverðir í Forboðnu borginni buðu Starbucks á að vera áfram en aðeins ef að þeir myndu fjarlægja öll merki og seldu einnig aðrar vörur. Því var hafnað og því lokaði kaffihúsið. Erlent 14.7.2007 11:20
Verkfræði, hreyfilist og tækni Hollendingurinn Theo Jansen er hreyfiaflsskúlptúristi. Hann er listamaður sem nýtir sér tækni og verkfræði til að búa til stórkostlegar furðuverur með ótal fætur sem knúnar eru áfram af veðri og vindum. Erlent 14.7.2007 10:00
Þrír milljarðar til höfuðs Osama bin Laden Öldungadeild Bandaríkjaþings ákvað í gær að tvöfalda þá upphæð sem sett hefur verið til höfuðs Osama bin Laden, leiðtoga Al-Kaída samtakanna, og er hún nú rúmir þrír milljarðar íslenskra króna. Þingmenn Demókrataflokksins sögðu Íraksstríðið draga úr getu Bandaríkjamanna til að berjast við Al-Kaída. Mistök Bush væru fyrst og fremst að ná ekki að fanga Osama bin Laden og rétta yfir honum. Erlent 14.7.2007 09:54
Rússar rifta samkomulagi við NATO um takmörkun á herafla í Evrópu Rússar hafa tímabundið sagt sig úr samkomulagi sem takmarkar fjölda herdeilda og þungavopna á ýmsum stöðum í Evrópu. Vladimir Putin, forseti Rússlands, skrifaði undir lög þess efnis nú í morgun. Erlent 14.7.2007 09:43
Karlmaður grunaður um morðið i Manchester í gær Lögreglan í Manchester leitar 32 ára gamals manns í tengslum við morðið á konu og tveimur börnum hennar í Manchester í gær. Beverley Samuels var hjúkrunurfræðingur en best þekkt fyrir þátttöku í hæfileikakeppni á ITV sjónvarpsstöðinni. Erlent 13.7.2007 23:38
Þrír milljarðar króna til höfuðs bin Laden Öldungadeild Bandaríkjaþings heitir þeim sem gómar eða drepur Osama bin Laden, höfuðpaur al-Qaida, þremur milljörðum íslenskra króna. Ákveðið var í dag að tvöfalda upphæðina. Erlent 13.7.2007 23:12
Tveir virtir repúblikanar vilja hermenn heim Tveir öldungadeildarþingmenn repúblikanaflokksins krefjast þess að Bush Bandaríkjaforseti setji fram áætlun um að draga úr herliði í Írak fyrir árslok. Erlent 13.7.2007 22:40
Ætluðu að sprengja upp menntaskóla Lögreglan á Long Island ákærði í dag tvo unglinga, 15 og 17 ára gamla, grunaða um að hafa lagt á ráðin um árásir á starfsfólk og nemendur í menntaskóla í Bohemia, New York. Fyrirætlunum drengjanna var lýst í blaði sem fannst á bílastæði við McDonalds skyndibitastað. Drengirnir unnu á skyndibitastaðnum. Blaðið var afhent skólayfirvöldunum þann 6. júlí. Erlent 13.7.2007 21:11