Erlent
Flugmenn strandaglópar á Grænlandsjökli Tveir flugmenn lítillar fis vélar, sem hélt héðan af landi á þriðjudag, bíða björgunar á Grænlandsjökli, eftir að vél þeirra bortlenti þar í fyradag. Erlent 19.7.2007 07:09
Súnní múslimar stofna pólitískt bandalag Sjö helstu uppreisnarhreyfingar Súnni múslima, sem berjast gegn Bandaríkjamönnum í Írak, hafa ákveðið að stofna pólitískt bandalag. Erlent 19.7.2007 06:58
Sprengin veldur ótta í New York Mikill ótti greip um sig meðal íbúa New York borgar þegar rafmagnsspennir sprakk í loft upp á Manhattaneyju í kvöld. Í fyrstu var óttast að um hryðjuverkaárás væri að ræða en seinna kom í ljós að spennirinn sprakk eftir að gufuleiðsla í námunda við hann rofnaði. Erlent 18.7.2007 23:42
Bretar senda orrustuþotur gegn rússneskum sprengjuflugvélum Breski flugherinn þurfti í gær að beita orrustuþotum til að koma í veg fyrir að tvær rússneskar sprengjuflugvélar myndu fljúga inn í breska lofthelgi. Er þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem breski flugherinn þarf að grípa til aðgerða af þessu tagi gegn rússneskum herflugvélum. Erlent 18.7.2007 21:13
Hvetja Rússa til að framselja Lugovoi Evrópusambandið hvetur Rússa til að framselja Andrei Lugovoi, meintan morðingja Alexander Litvinenko, til Bretalands. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem ríkisstjórn Portúgals sendi frá sér í dag en Portúgalar eru nú með forsæti í Evrópusambandinu. Erlent 18.7.2007 20:02
Tvö hundruð manns farast í flugslysi í Brasilíu Björgunarsveitir leituðu í dag í rústum farþegaflugvélar sem hlekktist á við lendingu í Sao Paulo í gærkvöldi. Allt að tvö hundruð manns fórust í slysinu. Erlent 18.7.2007 18:49
Forseti Palestínu boðar til kosninga Mahmoud Abbas, forseti Palestínu tilkynnti í dag að stjórn hans myndi boða til aukakosninga vegna yfirtöku Hamassamtakanna á Gaza svæðinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hittir Abbas í Ramallah á Vesturbakkanum á morgun. Erlent 18.7.2007 18:47
Í eldhúsið með ykkur Eina leiðin til þess að jafna launamun kynjanna er að karlmenn taki meiri þátt í heimilisstörfunum. Þetta segir atvinnumálastjóri Evrópusambandsins í ákalli til allra karlmanna í aðildarríkjunum. Launamunur kynjanna er þar um 15 prósent. Erlent 18.7.2007 16:52
Hamas samtökin í tengslum við al-Kæda Utanríkisráðherra Frakklands segir að Hamas samtökin hafi þegar tengsl við al-Kæda og þau tengsl séu ekki til komin vegna þrýstings vestrænna ríkisstjórna á Hamas. Utanríkisráðherra Ítalíu sagði fyrr í vikunni að vesturlönd hefðu rekið Hamas í fangið á al-Kæda. Erlent 18.7.2007 16:25
Öldungadeildin felldi heimflutning frá Írak Tillaga um að kalla bandaríska hermenn heim frá Írak fyrir apríllok á næsta ári, náði ekki fram að ganga í öldungadeild bandaríska þingsins í dag. Meirihluti þingmanna greiddi að vísu atkvæði með tillögunni en það var ekki nóg. Í öldungadeildinni eru 100 þingsæti og það þurfti 60 atkvæði til að fá tillöguna samþykkta. Erlent 18.7.2007 15:38
Von í Darfur: Risastórt neðanjarðar stöðuvatn Bandarískir jarðfræðingar hafa fundið risastórt neðanjarðar stöðuvatn í Darfur héraði í Súdan. Þessi fundur gæti orðið mikilvægt skref til friðar í héraðinu, þar sem vatnsskortur og hungursneyð er stór þáttur í átökunum. Þegar hefur náðst samkomulag um að grafa eittþúsund brunna á þessu svæði. Erlent 18.7.2007 14:49
Kínverjar ráðast á himininn Kínverjar leggja ofuráherslu á að allt fari sem best fram þegar Ólympíuleikarnir verða haldnir þar á næsta ári. Þeir hafa meðal annars áhyggjur af veðrinu því tölur sýna að það eru helmingslíkur á því að það rigni á setningardegi leikanna áttunda ágúst. Erlent 18.7.2007 14:03
Kanntu að reikna eins og 8 ára barn ? Ný könnun í Bretlandi virðist sýna að stærðfræðikunnáttu fólks fari hrakandi. Stærðfræðispurning sem lögð var fyrir átta ára börn var einnig lögð fyrir 2000 fullorðna. Spurningin var: Hvað er einn áttundi af 32. Nokkrir svarmöguleikar voru gefnir. Erlent 18.7.2007 13:39
Greipávöxtur getur valdið brjóstakrabbameini Með því að borða einn greipávöxt á dag aukast líkurnar á brjóstakrabbameini um næstum þriðjung samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin var í Bandaríkjunum við háskólann í Suður-Kaliforníu og Hawaii. Rannsóknin náði til 50 þúsund kvenna á breytingaraldrinum og sýnir að aðeins einn fjórði af greipávextinum jók líkurnar um allt að 30 prósent. Erlent 18.7.2007 13:32
Fullt af leyndarmálum í Washington Meira en tuttugu milljón opinber skjöl voru stimpluð leyndarmál í bandarísku stjórnsýslunni á síðasta ári. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur skoðað vinnubrögðin og segir menn alltof gjarna á að veifa trúnaðarstimplinum. Erlent 18.7.2007 12:53
Grænland var eins og Suður-Svíþjóð Fyrir um hálfri milljón ára ríkti milt veðurfar á Grænlandi og gróður var þar svipaður og í suðurhluta Kanada eða í Smálöndunum í Svíþjóð. Þar voru grænir skógar og býsnin öll af skordýrum og öðru lífi. Þetta kemur fram í grein í vísindaritinu Science sem hefur vakið mikla athygli í allri umræðunni um loftslagsbreytingar. Erlent 18.7.2007 11:05
Boris Berezovsky segir að Rússar hafi reynt að myrða sig Rússneski auðjöfurinn Boris Berezovsky segir að breska lögreglan hafi komið í veg fyrir morðtilræði gegn sér í síðasta mánuði. Hann segir að lögreglan hafi varað hann við því að rússneskur leigumorðingi hafi ætlað að drepa hann á Hilton hótelinu á London Park Lane. Erlent 18.7.2007 09:10
Norður Kóreumenn loka kjarnorkuverum Norður Kórea hefur lokað öllum kjarnorkuverum í Yongbyon, samkvæmt upplýsingum Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar. Þetta er fyrsta skref þeirra til að uppfylla skilyrði samkomulags sem gert var í febrúar síðastliðnum en samkvæmt því fær Norður Kórea umtalsvert orkumagn gefins gegn því að þeir hverfi frá kjarnorkuáætlun sinni. Erlent 18.7.2007 08:59
Dani týndur í Tasmaníu Mikil leit er hafin af 21 árs dönskum manni, Kasper Sörensen, sem hefur verið týndur í Tasmaníu undanfarnar tvær vikur. Hann var þar við klifur en bakpoki hans og klifurgræjur fundust á tindi fjalls á eyjunni þann 10 júlí. Enginn hafði heyrt frá honum í viku fyrir þann tíma. Erlent 18.7.2007 08:57
Um 200 manns fórust í flugslysi Talið er að um 200 manns hafi farist í gærkvöld þegar farþegaflugvél TAM flugfélagsins hafnaði á olíutanki á Congonhas flugvellinum, sem er inni í borginni Sao Paulo í Brasilíu. Hundrað sjötíu og sex voru um borð í vélinni. Auk þeirra fórst fjöldi fólks sem var í nálægð við flugbrautina. Erlent 18.7.2007 07:12
Samvinna Rússa og Breta í hættu Alexander Grushko vara-utanríkisráðherra Rússlands segir að deilur Rússa við Breta kunni að stefna í hættu samvinnu ríkjanna í baráttunni gegn hryðjuverkum. Erlent 18.7.2007 07:06
Lítill vilji fyrir friðarráðstefnu Hugmyndir George Bush Bandaríkjaforseta um fyrirhugaða friðarráðstefnu um málefni Mið-Austurlanda hafa fengið dræmar undirtektir. Talsmaður Olmerts, forsætisráðherra Ísraela sagði í gær að ísraelsk stjórnvöld væru ekki tilbúin í viðræður um mikilvæg málefni, eins og landamæradeilur, Jerúsalem og flóttamenn. Erlent 18.7.2007 06:54
Fimmtán manns létust í Islamabad Fimmtán manns létust og að minnsta kosti 40 særðust þegar sjálfsmorðssprengja sprakk í Íslamabad í Pakistan í gærkvöld. Talið er árásinni hafi verið beint að stuðningsmönnum, Iftikhar Chaudhry fyrrum dómsmálaráðherra landins. Erlent 18.7.2007 06:51
Heilbrigðisstarfsmenn í Líbíu dæmdir í lífstíðarfangelsi Líbísk yfirvöld breyttu í gærkvöld dauðadómi, yfir fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og palestínskum lækni sem voru fundin sek um að smita börn af HIV veirunni, í lífstíðarfangelsi. Erlent 18.7.2007 06:46
Líkt við slysið í Tsjernóbyl Fjórtán þorp í vesturhluta Úkraínu urðu í fyrrakvöld fyrir mengun eftir að eldur kviknaði í flutningalest með gulum fosfór þegar hún fór út af sporinu. Aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu, Oleksandr Kuzmuk, líkti slysinu við kjarnorkuslysið í Tsjernóbyl og sagði ómögulegt að spá fyrir um afleiðingarnar. Erlent 18.7.2007 05:45
Siglir yfir haf á íspinnaskipi Hollenskur skipasmiður hefur smíðað víkingaskip úr endurunnum íspinnum einum saman. Verkið tók fjögur ár. Fimm þúsund skólabörn hjálpuðu til og í haust hyggst hann sigla yfir Atlantshafið á fleyinu. Erlent 18.7.2007 05:00
Umsóknin yrði afgreidd hratt Olli Rehn, sem sér um stækkunarmálin í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, segir að tekið yrði vel á móti aðildarumsókn frá Íslandi. Erlent 18.7.2007 04:45
Segir ákveðin tækifæri í stöðunni Eftir viðræður við Shimon Peres, forseta Ísraels, og Tzipi Livni, utanríkisráðherra og varaforsætisráðherra Ísraels, í Jerúsalem í gær segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra að það séu „ákveðin tækifæri“ í stöðunni í deilu Ísraela og Palestínumanna „þótt það kannski líti ekki þannig út“. Erlent 18.7.2007 04:30
Höfundurinn gagnrýndur Svissneski Evrópuþingmaðurinn Dick Marty, sem hefur rannsakað í hálft annað ár leynileg fangelsi og leynilegt fangaflug á vegum CIA í Evrópulöndum, var í gær gagnrýndur á Evrópuþinginu fyrir að nota nafnlausar heimildir fyrir ásakanir sínar á hendur nafngreindum stjórnmálamönnum í Rúmeníu og Póllandi. Erlent 18.7.2007 04:00
Hugðist selja eitraðan fisk Lögreglan í Taílandi handtók á dögunum mann sem hugðist selja meira en tonn af eitruðum kúlufiski til veitingastaða þar sem gera átti fiskibollur úr kúlufisknum. Árið 2002 létust sex Taílendingar eftir að hafa borðað kúlufisk og var þá sala á honum bönnuð í landinu. Erlent 18.7.2007 03:00