Erlent

Skjálfti skekur Tíbet

Öflugur jarðskjálfti reið yfir Tíbet í dag og er hann talinn hafa mælst 6,4 á Richter-kvarðanum. Engar fregnir hafa borist af tjóni eða mannfalli í skjálftanum enn sem komið er.

Erlent

Klofningur í samsteypustjórn Pakistan

Fyrrum forsætisráðherra Pakistan, Nawaz Sharif hefur dregið flokk sinn Múslimabandalagið úr samsteypstjórn, en flokkurinn er næststærsti stjórnmálaflokkur landsins.

Erlent

Tík tók að sér útburðarbarn

Nýfætt stúlkubarn sem fjórtán ára gömul móðir bar út í Argentínu fannst heilt á húfi í hundakofa á bóndabæ í grennd við borgina La Plata.

Erlent

Enginn samningur á borðinu í Írak

Bandaríkjamenn neituðu því í dag að tekist hefðu samningar á milli þeirra og Íraka um brottflutning bandarískra hermann frá landinu. Fyrr í dag lýsti Nuri al-Maliki því yfir að komist hefði verið að samkomulagi sem gerði ráð fyrir því að erlendir hermenn verði farnir úr landinu í lok árs 2011.

Erlent

Kanadamenn moka upp olíu í Alberta

Nokkur stærstu olíufélög í heiminum eru að vinna olíu úr olíuríkum sandi í Alberta fylki í Kanada. Þar er meiri olía í jörðu en finnst í Venesúela, Rússlandi og Íran.

Erlent

Ísraelar sleppa 200 föngum

Stjórnvöld í Ísrael slepptu í dag tvö hundruð palestínskum föngum úr haldi. Fangarnir fengu frelsi nokkrum klukkustundum áður en Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna lendir í Ísrael í þeim tilgangi að halda friðarferli Ísraela og Palestínumanna gangandi.

Erlent

Hver á tunglið?

Vinnuhópur á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA veltir því nú fyrir sér hver eigi tunglið vegna áætlana nokkurra þjóða um að reisa þar mannvirki.

Erlent

Járnfrúnni hrakar

Járnfrúin Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, er orðin elliær og hrakar stöðugt, að því er dóttir hennar upplýsir í nýrri bók sem kemur út í dag.

Erlent

Tíu er saknað eftir snjóflóð í Ölpunum

Átta eru slasaðir og tíu er saknað eftir að snjóflóð féll úr hlíðum Mont Blanc í dag. Snjóflóðið hreif með sér hóp af fjallgöngumönnum sem voru að klífa fjallið Frakklandsmeginn.

Erlent

Ekkill Bhuttos klár í slaginn

Asif Ali Zardari, ekkill Benazir Bhuttos hefur samþykkt að bjóða sig fram til forseta í Pakistan, eftir því sem BBC hefur eftir forystumönnum úr Pakistanska Þjóðarflokknum.

Erlent

Obama velur Joe Biden sem varaforsetaefni sitt

Demókratinn Barack Obama hefur valið öldunfardeildarþingmanninn Joe Biden sem varaforsetaefni sitt í forsetakosningnum í Bandaríkjunum sem fram fara í nóvember. Þetta kom fram í sms-skilaboði sem hann sendi stuðningsmönnum sínum fyrir skömmu.

Erlent

Áfram í Georgíu

Yfirvöld í Moskvu fullyrtu í dag að hermenn þeirra hafi nú yfirgefið Georgíu og að brottflutningurinn sé í samræmi við friðarsamkomulagið. Þar með hafi Rússar staðið við sínar skuldbindingar. Aftur á móti hafi þeir komið upp sérstöku öryggissvæði.

Erlent

Danir hjóla aftur í múslima

Danskt bókaforlag hefur tekið að sér að prenta og gefa út bók um eiginkonur Múhameðs spámanns múslima, sem hið bandaríska Random house þorði ekki að gefa út.

Erlent

˜Líknarhvaladráp" í Sidney

Ástralir gráta nú hnúfubakskálfinn Colin, sem veittur var líknardauði á grynningum fyrir utan Sidney í gær. Hvalurinn hafði orðið viðskila við móður sína og villst upp á grynningar í grennd við borgina þar sem borgarbúar hafa fylgst með honum síðustu daga.

Erlent

Hvað eru kínversku fimleikastelpurnar gamlar?

Alþjóðlega Ólympíunefndin hefur farið þess á leit við forráðamenn Ólympíska fimleikasambandsins að kannað verði hvort kínversku fimleikastúlkurnar sem hafa verið sérstaklega sigursælar á leikunum í Peking uppfylli aldursskilyrði leikanna.

Erlent