Erlent

Darling: Íslendingar verða að horfast í augu við vandann

Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, segir yfirlýsingar að vænta innan tíðar varðandi aðstoð til breskra sparifjáreigenda sem lögðu fé sitt inn í Landsbankann. Íslendingar verði hins vegar að horfast í augu við vandann sem þeir standa frammi fyrir. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Downing stræti í morgun þar sem Darling og Gordon Brown sátu fyrir svörum. Darling segir að í aðgerðunum felist að fá tryggingar fyrir eignum bankans í Bretlandi.

Erlent

Leiðtog Janjaweed-sveita í Súdan handtekinn

Leiðtogi Janjaweed-hersveitanna í Súdan, Ali Kushayb, hefur verið handtekinn að sögn þarlendra stjórnvalda. Alþjóðaglæpadómstólinn hafði gefið út handtökuskipuna á hendur honum vegna meintra stríðsglæpa í Darfur-héraði á síðustu árum en stjórnvöld í Súdan hafa hingað til neitað að vinna með dómstólnum.

Erlent

Norsk stjórnvöld lána bönkum fimm þúsund milljarða

Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lána bönkum landsins 350 milljarða norskra króna, jafnvirði um 5000 þúsund milljarða íslenskra króna, til þess að bregðast við lausafjárkreppunni sem nú skekur hinn alþjóðlega fjármálaheim.

Erlent

Gordon Brown dregur í land

Forsætisráðuneyti Gordons Brown hefur sent sendiherra Íslands í Bretlandi bréf þar sem dregið er í land frá digrbarkalegum yfirlýsingum ráðherrans í liðinni viku. Vopnuð lögregla sveimar í kringum sendiráðið vegna hótana.

Erlent

Launagreiðslur opinberra starfsmanna í Bretlandi í hættu

Launagreiðslur hundruða þúsunda Breta sem vinna hjá bæjar- og sveitarstjórnum í landinu eru nú í uppnámi vegna falls íslensku bankanna í Bretlandi. Þá er hópur lögfræðinga frá að minnsta kosti 10 breskum og bandarískum lífeyrissjóðum nú á leið til landsins til að reyna að ná út fjármunum sem þeir áttu inni í íslensku bönkunum.

Erlent

Hengdir fyrir að ganga af trúnni

Íranska þingið hefur samþykkt ný lög um að dauðarefsing liggur við því að skipta um trú þar í landi. Umheimurinn hefur að mestu leitt þetta hjá sér.

Erlent

Fyrstu geimfeðgarnir

Bandaríski auðkýfingurinn Richard Garriott borgaði fúlgur fjár í fargjald með rússnesku geimfari sem skotið var á loft í Kasakstan í dag.

Erlent

Sæti í Öryggisráðinu sagt í hættu

Fjölmiðlar á Norðurlöndunum eru farnir að velta því fyrir sér hvort efnahagskreppan á Íslandi verði til þess að landið fái ekki sæti í öryggisráðinu. Kosið verður í ráðið næstkomandi föstudag.

Erlent

Aðgerðir þarf til að koma í veg fyrir hrun fjármálakerfisins

Hið alþjóðlega fjármálakerfi rambar á barmi hruns og því er þörf á sameiginlegu átaki gegn því, sagði Dominique Strauss-Kahn, yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í dag eftir fund með fjármálaráðherrum sjö helstu iðnríkja heims, Bandaríkjaforseta og forsvarsmönnum Alþjóðabankans.

Erlent

Stjórnvöld verða að bregðast við efnahagskreppunni

Forsetaframbjóðandi demókrataflokksins, Barack Obama, segir að bandaríska fjármálaráðuneytið og ríkissjóður búi yfir ráðum til þess að bregðast við þeirri efnahagslegu kreppu sem nú vofir yfir. Nú verði einfaldlega að beita þeim.

Erlent

Loksins fékk Brown sitt Falklandseyjastríð

Ekki eru allir Bretar á bandi Gordons Brown þegar kemur að deilu hans við íslensk stjórnvöld. Blaðamaðurinn Tom Braithwaite hjá Financial Times bloggar á heimasíðu blaðsins þar sem hann segir að upphlaup Brown sé í pólitískum tilgangi og að hann hafi loksins fengið sitt „Falklandseyjastríð“.

Erlent