Erlent
Obama staðfestir endurreisnaráætlunina Obama Bandaríkjaforseti staðfesti í gærkvöldi víðtæka endurreisnaráætlun fyrir bandarískt atvinnu- og fjármálalíf. Þrátt fyrir það varð hrun á mörkuðum vestanhafs. Erlent 18.2.2009 12:17
Landamærin að Gaza ekki opnuð að sinni Ísraelar ætla ekki að opna landamærin að Gaza fyrr en Hamas-samtökin hafi tryggt að ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit verði látinn laus úr haldi. Herskáir Palestínumenn tóku Shalit höndum við landamærin að Gaza í júní 2006. Erlent 18.2.2009 12:13
Bandarískur jarðfræðingur segist hafa fundið bin Laden Málið er leyst, bin Laden er í felum í litlu þorpi í Norðvestur-Pakistan. Það er þó hvorki CIA, FBI né bandaríska þjóðaröryggisstofnunin sem slær þessu fram. Það er Thomas Gillespie, prófessor í jarðfræði við Kaliforníuháskólann í Los Angeles, en hann hefur byggt reiknilíkan sem notað er til að kortleggja ferðir dýrategunda í útrýmingarhættu og beitir því hiklaust á feluhegðun al Qaeda-foringjans illræmda. Erlent 18.2.2009 08:11
Spánarkonungur á bandarískri matarhátíð Íbúar Flórída eiga kost á konunglegum máltíðum á matvælahátíð í South Beach og fá meira að segja færi á að borða þær með alvöru konungi. Erlent 18.2.2009 07:34
Enn sverfur til stáls í Nørrebro-hverfinu Tæplega tvítugur innflytjandi varð fyrir skoti í Nørrebro-hverfinu í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. Lögregla hefur ekki haft hendur í hári skotmannsins eða -mannanna en vitni segja að minnsta kosti fjórum skotum hafa verið skotið út um glugga bíls sem ekið var fram hjá manninum. Bíllinn fannst síðar um kvöldið í úthverfi þar sem kveikt hafði verið í honum. Erlent 18.2.2009 07:28
Heyrði systur sína myrta gegnum símann Hugsanlegt er að systir konunnar í Buffalo, sem talið er að hafi verið hálshöggvin af múslimskum eiginmanni sínum, hafi verið að ræða við hana í síma þegar maðurinn réð hana af dögum. Erlent 18.2.2009 07:25
Enn biðja bílaframleiðendur Bílaframleiðendurnir General Motors og Chrysler hafa farið fram á enn frekari fjárhagsaðstoð frá bandarískum yfirvöldum og óska eftir samanlagt 22 milljörðum dollara til viðbótar við það sem þegar hefur verið látið í té. Erlent 18.2.2009 07:24
Dæmdur morðingi slapp af geðspítala Dæmdur morðingi gengur laus í London eftir að hafa sloppið af Springfield-geðsjúkrahúsinu en hann var dæmdur til að afplána refsivist sína þar vegna geðveilu. Lögregla lýsir manninum sem mjög hættulegum og er fólk varað við að reyna að nálgast hann en hvatt til að hafa strax samband við lögreglu sjái það til strokufangans. Erlent 18.2.2009 07:22
Grunaðir um að ætla með sprengjur í gosflöskulíki í flug Átta íslamskir öfgamenn eru fyrir rétti í London, grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk með því að lauma heimatilbúnum sprengjum í gervi gosdrykkja um borð í farþegaflugvélar sem flygju frá London til Bandaríkjanna og Kanada. Erlent 18.2.2009 07:19
Stofnandi múslimasjónvarps hjó höfuðið af konu sinni Stofnandi sjónvarpsstöðvar fyrir múslima í New York hefur verið handtekinn fyrir að hálshöggva eiginkonu sína. Erlent 17.2.2009 08:07
Japanskur kokkur sneiðmyndaði ál Japanskur kokkur sem hefur látið sneiðmynda ál til að kanna beinabyggingu hans boðar nú nýja strauma í matargerð. Erlent 17.2.2009 07:32
Telja lögreglu í Danmörku sýna kynþáttafordóma Um 16 prósent Dana telja lögregluna þar í landi almennt gera sig seka um að mismuna fólki eftir kynþætti og þriðjungur þeirra sem nýleg Gallup-könnun náði til telja nýleg ummæli lögreglumanns um mótmælanda, sem mótmælti stríðinu á Gaza-svæðinu, hafa verið niðrandi með tilliti til kynþáttar hans en lögreglumaðurinn notaði orðið „perle" sem er eins konar slanguryrði yfir fólk frá Austurlöndum. Málið hefur hlotið töluverða athygli í dönskum fjölmiðlum. Erlent 17.2.2009 07:29
Ráðherra segir af sér vegna ölvunar Japanski fjármálaráðherrann Shoichi Nakagawa hefur boðað afsögn sína í kjölfar ásakana um að hann hafi verið áberandi ölvaður á blaðamannafundi í kjölfar ráðstefnu sjö stærstu iðnríkja heims um helgina. Erlent 17.2.2009 07:19
Obama skipar fimmtu björgunarnefndina Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur skipað sérstaka nefnd undir forystu Timothys Geithner fjármálaráðherra til að hafa yfirumsjón með enduruppbyggingu ameríska bílaiðnaðarins. Erlent 17.2.2009 07:17
Afrísk flugáhöfn tekin með fíkniefni - aftur Fimmtán manna áhöfn suðurafríska flugfélagsins South African Airlines var handtekin á Heathrow-flugvellinum í London í gær við komu frá Jóhannesarborg eftir að fimm kílógrömm af meintu kókaíni fundust í fórum áhafnarinnar. Erlent 17.2.2009 07:15
Ótti við hryðjuverk gæti gert Bretland að lögregluríki Ótti bresku ríkisstjórnarinnar við hryðjuverk er orðinn svo mikill að hann er farinn að hafa áhrif á grundvallarmannréttindi þegnanna. Erlent 17.2.2009 07:12
Kjarnorkukafbátar í árekstri djúpt í Atlantshafi Tveir kjarnorkukafbátar frá Bretlandi og Frakklandi skemmdust mikið þegar þeir lentu í hörðum árekstri djúpt í Atlantshafinu fyrr í þessum mánuði. Flotastjórnir landanna reyndu að leyna atburðinum Erlent 16.2.2009 19:52
Kjarnorkukafbátar rákust saman Tveir kjarnorkukafbátar rákust saman á miðju Atlantshafinu fyrr í mánuðinum. Þetta var staðfest í dag af breska varnarmálaráðuneytinu en annar báturinn var breskur en hinn var franskur. Erlent 16.2.2009 14:09
Kynlífsvandamálum íslenskra víkinga gerð ítarleg skil í Danmörku Ný dönsk þýðing af Íslendingasögunum verður óritskoðuð og allt látið flakka, samkvæmt frásögn danska blaðsins Politiken. Blaðið gerir þessi fornfrægu íslensku rit að umfjöllunarefni á vef sínum í dag. Erlent 16.2.2009 09:59
Grunur um stórkostlegt misferli bandarískra herforingja Bandarísk yfirvöld hafa sett í gang opinbera rannsókn á því sem gæti orðið umfangsmesta fjársvikamál í sögu landsins þegar upp er staðið en rannsóknin beinist að umsvifum nokkurra háttsettra herforingja Bandaríkjahers í Írak og meðferð þeirra á heljarmiklum fjárupphæðum sem renna áttu til uppbyggingarinnar þar í landi eftir að valdatíð Saddams Husseins lauk. Erlent 16.2.2009 08:08
Fjórða hver lifrarígræðsla vegna ofdrykkju Ein af hverjum fjórum lifrum, sem græddar eru í fólk í Bretlandi, er til bjargar þeim sem eyðilagt hafa í sér lifrina með drykkju. Erlent 16.2.2009 07:35
Sigur fyrir fólkið og byltinguna segir Chavez Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu um forsetakjör í Venesúela gera Hugo Chavez, forseta landsins, kleift að bjóða sig fram þriðja kjörtímabilið í röð árið 2012 en kjörtímabil forseta þar í landi er sex ár. Erlent 16.2.2009 07:33
Gripnir í miðju ráni Þrír piltar á aldrinum 15 - 17 ára hafa verið úrskurðaðir í 26 daga gæsluvarðhald á stofnun fyrir unga afbrotamenn í Danmörku eftir að lögregla handtók þá við rán í verslun í Kaupmannahöfn um helgina. Erlent 16.2.2009 07:32
Þrettán fórust í þyrluslysi í Chile Þrettán fórust þegar þyrla hrapaði í Maule-héraðinu í Chile í gær en hún var að flytja slökkviliðsmenn að skógareldum sem loga á þessum slóðum. Flestir slökkviliðsmannanna sem fórust voru háskólanemar sem höfðu slökkvistarfið að aukavinnu. Erlent 16.2.2009 07:25
Sprengdu upp hurð á fangelsisgarði Tveir fangar í Moulins-fangelsinu í Mið-Frakklandi sprengdu upp hurð á fangelsisgarðinum með sprengiefni síðdegis í gær, tóku tvo fangaverði í gíslingu og komust undan á bifreið. Erlent 16.2.2009 07:22
Niðurlægði og misþyrmdi Bandaríski hermaðurinn Brandon Neely segist hafa verið hræddur í janúar árið 2002, þegar hann tók á móti fyrstu föngunum sem komu til fangabúða Bandaríkjahers við Guantanamoflóa á Kúbu. Erlent 16.2.2009 04:15
Livni útilokar samstarf með Likudflokknum Tzipi Livni, utanríkisráðherra í fráfarandi ríkisstjórn Ísraels og leiðtogi Kadima-flokksins, sagðist í gær engan áhuga hafa á því að setjast í nýja ríkisstjórn með Benjamin Netanyahu, leiðtoga Likudflokksins. Frekar muni hún taka sér stöðu sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Erlent 16.2.2009 03:15
Vill stjórna lengur Íbúar Venesúela greiddu í gær atkvæði um stjórnarskrárbreytingu, sem myndi gera Hugo Chavez forseta og öðrum kosnum embættismönnum kleift að bjóða sig fram oftar en tvisvar sinnum. Erlent 16.2.2009 03:00
Tuttuga ára fangelsi fyrir að þýða kórarinn Áfrýjunarréttur í Afganistan staðfesti í dag 20 ára fangelsisdóm yfir tveimur mönnum fyrir að hafa þýtt kóraninn yfir á afgönsku og dreift ókeypis. Erlent 15.2.2009 21:45
Breskir námsenn óttast atvinnuleysi að námi loknu Breskir námsmenn óttast nú að þeirra bíði einungis atvinnuleysi að námi loknu. Verulega hefur dregið úr atvinnumöguleikum stúdenta að undanförnu. Erlent 15.2.2009 20:15