Erlent
Auglýsingar ríkismiðla á Spáni skornar niður Jose Luis Rodriguez Zapatero tilkynnti á þriðjudaginn að hann ætlaði að draga verulega úr auglýsingum í spænska ríkisútvarpinu RTVE. Erlent 16.4.2009 15:56
Shinawatra hvetur til stillingar Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, hvetur stuðningsmenn sína til að sýna stillingu og biður konung landsins um að leysa þær deilur sem blossað hafi upp í taílenskum stjórnmálu. Hann segist ekki geta fjármagnað endurkomu í taílensk stjórnmál að þessu sinni. Erlent 16.4.2009 13:15
Framleiðandi Carry On-myndanna látinn Peter Rogers, framleiðandi bresku Carry On-myndanna, er látinn, 95 ára að aldri. Rogers framleiddi allar myndirnar en þær urðu 31 þegar upp var staðið og voru gerðar á árunum 1958 - 1978 auk einnar árið 1992. Erlent 16.4.2009 08:21
Rússar á móti heræfingum í Georgíu Rússar hafa biðlað til Nató að bandalagið hætti við fyrirhugaðar heræfingar í Georgíu sem Rússar líta á sem ögrun við sig. Dmitry Rogozin sendifulltrúi Rússa hjá Nató segir fyrirætlanirnar fáránlegar og að hann hafi farið fram á það við framkvæmdastjóra Nato að hætt verði við æfingarnar eða þeim að minnsta kosti frestað. Erlent 16.4.2009 08:18
Sálfræðingur ráðleggur fólki um veðskuldir Bandarískur sálfræðingur hefur skrifað bók til hjálpar fólki sem er að missa heimili sín vegna veðskulda. Erlent 16.4.2009 08:11
Framtalsskil í Bandaríkjunum í gær Lokadagur til að gera skil á skattframtölum í Bandaríkjunum var í gær. Barack Obama Bandaríkjaforseti notaði tækifærið og lýsti því yfir í ávarpi í Hvíta húsinu að hann myndi gera allt sem mögulegt væri til að létta skattbyrði þeirra sem mest þyrftu á því að halda. Erlent 16.4.2009 08:07
Seðlum rigndi í Danmörku Skæðadrífa af peningaseðlum sveif um loftið á þjóðvegi nærri Ballerup í Danmörku í gær og neyddist lögregla til að loka veginum á meðan fénu var smalað saman. Þarna hafði maður rænt eitt útibúa Danske Bank í Ballerup og lagt svo á flótta. Erlent 16.4.2009 07:34
Stærstu lýðræðiskosningar heims Kosningar til indverska þingsins hófust í morgun og munu standa næsta mánuðinn. Kosningarnar fara fram í áföngum en rúmlega 700 milljónir manna eru á kjörskrá og er um stærstu lýðræðislegu kosningar heimsins að ræða. Erlent 16.4.2009 07:23
Sakfelldur fyrir að myrða fjóra Íraka Bandarískur hermaður hefur verið sakfelldur fyrir að myrða fjóra íraska fanga sem teknir voru höndum í Baghdad vorið 2007 í kjölfar skotbardaga. Erlent 16.4.2009 07:12
Scotland Yard vill endurskoðun óeirðalöggæslu Yfirmaður Scotland Yard í Bretlandi hefur fyrirskipað gagngera endurskoðun á starfsaðferðum lögreglu við óeirðir í kjölfar þess er mótmælandi lést af völdum hjartaáfalls meðan á mótmælum vegna G20-ráðstefnunnar stóð í London um mánaðamótin. Erlent 16.4.2009 07:09
Kanadískir Vítisenglar handteknir Um 150 manns voru handteknir í riasastórri aðgerð lögreglu á höfuðstöðvar Vítisengla í Kanada. Um tólf hundruð lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni en svipaðar aðgerðir voru framkvæmdar í Frakklandi og Dóminíska lýðveldinu á sama tíma. Hinir grunuðu voru handteknir eftir niðurstöðu úr svokallaðri „Hákarlsaðgerð“ sem staðið hefur yfir í um þrjú ár. Erlent 15.4.2009 23:31
Ellefu látnir í bílsprengingu í Írak Að minnsta kosti ellefu létu lífið og tuttugu og þrír særðust þegar sprengja sprakk í bíl í borginni Kirkuk í norðurhluta Íraks í dag. Þetta staðfestir lögregla í samtali við BBC nú í kvöld. Erlent 15.4.2009 22:07
Sjóránin við Sómalíu bitna á neyðaraðstoð Tíð sjórán út af ströndum Sómalíu kosta hjálparsamtök og þjóðir mikla fjármuni og bitna á neyðaraðstoð við fjölmörg ríki í Afríku. Frá lokum febrúar hefur verið ráðist á 78 skip á svæðinu. Erlent 15.4.2009 19:15
Rod Blagojevich í raunveruleikaþátt hjá NBC Rod Blagojevich, fyrrum ríkisstjóri Illinois, þurfti ekki að búa við atvinnuleysi lengi. Blagojevich vann sér það til frægðar í fyrra að ætla að falbjóða öldungadeildarþingsæti Baracks Obama í Illinois þegar hinn síðarnefndi hyrfi til annarra starfa. Erlent 15.4.2009 08:20
Flykkjast í ófrjósemisaðgerðir í kreppunni Bandaríkjamenn gangast nú undir ófrjósemisaðgerðir sem aldrei fyrr. Frá þessu er greint í New York Times og segjast sérfræðingar sem þar er rætt við sjá glöggan svip með ástandinu sem ríkti í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar en þá hafi fæðingartíðni snarlækkað í Bandaríkjunum. Erlent 15.4.2009 07:19
Stakk starfsmann vinnumiðlunar Starfsmaður atvinnumiðlunar í Árósum í Danmörku var stunginn í miðju viðtali við viðskiptavin í gær. Starfsmaðurinn, tæplega fimmtug kona, var að taka niður upplýsingar um rúmlega fertugan viðskiptavin þegar sá síðarnefndi dró upp hníf og stakk hana rétt neðan við vinstri handlegg. Erlent 15.4.2009 07:15
Lík fannst á fimm stöðum í Bretlandi Hnífstunga í bakið var dánarorsök manns sem hafði verið svo grátt leikinn að lík hans fannst í bútum á fimm stöðum, með allt að 150 kílómetra millibili, í Hertfordskíri í Bretlandi í lok mars. Erlent 15.4.2009 07:12
Heitasti dagur ársins í London Lundúnarbúar mega búast við hlýrra veðri en íbúar Tenerife og Barcelona á Spáni í dag en gert er ráð fyrir að hitastigið verði allt að 21 gráða í suður- og austurhluta Bretlands og að heitasti dagur ársins fram að þessu sé runninn upp. Erlent 15.4.2009 07:10
Friður og forvarnir framar handtökum Lögreglan ætti fremur að einbeita sér að því að koma á og halda friði í samfélaginu, frekar en að framkvæma sem flestar handtökur. Þetta segir lögreglustjóri og fyrrum aðstoðardómari í Glósturskíri í Bretlandi. Erlent 15.4.2009 07:07
Kastró jákvæður í garð Bandaríkjamanna Fyrrum forseti Kúbu, Fídel Kastró, segir að hugmyndir Bandaríkjamanna um að aflétta ferðatakmörkunum og takmörkunum á fjármagnsflutningum til Kúbu séu jákvæðar, en lítilvægar. Erlent 14.4.2009 21:11
Pakistanar afsala sér yfirráðum yfir héraði til Talibana Ríkisstjórn Pakistans hefur afsalað sér yfirráðum yfir fjölmennu héraði í landinu í hendur Talibana. Óttast er að það sé aðeins byrjunin á yfirráðum þeirra. Erlent 14.4.2009 20:00
Lenti þotu eftir að flugmaður varð bráðkvaddur Flugumsjónarmenn í Flórída kalla það kraftaverk að farþegi um borð í skrúfuþotu af gerðinni Super King Air skyldi ná stjórn á vélinni og ná að lenda henni slysalaust eftir að flugmaðurinn varð bráðkvaddur á leið til Jackson í Mississippi á páskadag. Erlent 14.4.2009 08:46
Elsta klámstjarna Japans aldrei sprækari Shigeo Tokuda er 75 ára gamall. Hann kallar þó ekki allt ömmu sína og lét þennan virðulega aldur og nokkur grá hár ekki aftra sér frá því að hefja tökur á nýrri klámmynd um páskana. Erlent 14.4.2009 08:18
Kyrrð kemst á í Taílandi Stjórnarandstæðingar í Taílandi hafa nú haft sig á brott af lóð stjórnarráðs landsins þar sem þeir hafa setið um skrifstofu forsætisráðherra landsins vikum saman. Erlent 14.4.2009 08:09
Sá íbúðina sína í rúst á Facebook Carolyn Lorimer leigði ungu pari íbúðina sína í Folkstone í Kent og hafði ekki frekari áhyggjur af málinu. Leigjendunum kynntist hún gegnum leigumiðlun þar í bænum sem sagði þau hið grandvarasta fólk, ráðvant og ráðdeildarsamt. Erlent 14.4.2009 07:23
Norður-Kóreumenn hætta öllum kjarnorkuviðræðum Norður-Kóreumenn segjast munu draga sig út úr viðræðum um að hætta við kjarnorkuáætlun sína eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi eldflaugarskot þeirra í síðustu viku sem haldið var fram að væri gervitungl. Erlent 14.4.2009 07:20
Demantaþjófur beitir dáleiðslu Indverskum svikahrappi tókst að stela demantshálsmenum og -armböndum að verðmæti rúmlega 20 milljónir króna með því að dáleiða starfsmann skartgripaverslunar. Erlent 14.4.2009 07:16
Kynmök á kolólöglegum hraða Norskt par var stöðvað og á yfir höfði sér himinháar sektir, ekki eingöngu fyrir að aka á rúmlega 130 kílómetra hraða á þjóðvegi rétt utan við Ósló heldur einnig fyrir að stunda kynmök meðan á akstrinum stóð. Erlent 14.4.2009 07:13
Hugðust skemma raforkuver Rúmlega eitt hundrað manns eru í haldi lögreglu í Nottinghamskíri í Bretlandi, grunaðir um að hafa lagt á ráðin um að fremja skemmdarverk á einu stærsta raforkuveri landsins um helgina. Erlent 14.4.2009 07:09
Phil Spector sakfelldur fyrir morð Tónlistarmaðurinn Phil Spector var í dag sakfelldur fyrir að hafa myrt leikkonuna Lönu Clarkson á heimili sínu árið 2003. Spector neitaði allan tímann að hafa myrt leikkonuna sem var skotin í munninn. Erlent 13.4.2009 21:58