Erlent

Norskur lax að horast

Norðmenn eru uggandi yfir því að smálaxar sem hafa snúið aftur í árnar á vesturströnd landsins undanfarin ár hafa verið horaðir og ekki vel á sig komnir.

Erlent

Hundruð manna handtekin

Kanada,AP Þúsundir mótmælenda gengu um götur Toronto í Kanada í gær vegna fundar G20-ríkjanna þar í borg. Hópar börðust við óeirðalögreglu; kveikt var í bílum og rúður brotnar í verslunum og skrifstofubyggingum. Samkvæmt fréttaskeytum í gær höfðu tæplega 500 manns verið handteknir í gærkvöldi. Lögregla gerir ráð fyrir að átök við mótmælendur haldi áfram á meðan fundinum stendur. Engar fregnir hafa þó borist af því að mótmælendur eða lögreglumenn hafi slasast alvarlega til þessa.

Erlent

Hafa lært á lífsklukkuna

Vísindamenn telja að einfalt blóðpróf geti í framtíðinni spáð fyrir um hvenær breytingaskeið kvenna hefst. Telja þeir að konur geti fengið þessar upplýsingar við ungan aldur og því auðveldað þeim að skipuleggja líf sitt á nýjan hátt með tilliti til barneigna.

Erlent

Mexíkó: Myrtir í meðferð

Níu létust og og aðrir níu slösuðust í Mexíkó um helgina þegar grímuklæddir byssumenn skutu á allt sem fyrir varð á meðferðarheimili í norðurhluta landsins. Um fimmtíu sjúklingar voru í byggingunni en mörgum tókst að forða sér þegar fyrstu skotin heyrðust.

Erlent

Gunnfáni Custers á uppboð

Bandarískur gunnfáni sem fannst á vígvellinum við Little Big Horn þar sem bandaríski herforinginn George Custer og 270 menn hans voru stráfelldir af Indjánum árið 1876 hefur verið settur á uppboð. Búist er við að allt að 3,3 milljónir punda fáist fyrir fánann. Úrslit bardagans ollu Bandaríkjamönnum gríðarlegu áfalli á sínum tíma og telst til frægari bardaga í sögu landsins.

Erlent

Hörð átök á G20 fundinum í Toronto

Átök hafa brotist út á milli mótmælenda og lögreglumanna á G20 fundinum í Toronto en þar hittast öflugustu ríki heims og ráða ráðum sínum. Mótmælendur kveiktu í bifreiðum, köstuðu grjóti og butu rúður í nótt þegar þeir reyndu að komast inn fyrir girðingu sem sett hefur verið upp umhverfis fundarstaðinn. Lögreglan býst við að átökin haldi áfram í dag en frá því í gær hafa 480 manns verið handteknir af lögreglu. Engar fregnir hafa borist af meiðlsum, hvorki á meðal mótmælenda né lögreglumanna.

Erlent

Páfinn gagnrýnir belgísk yfirvöld

Benedikt Páfi hefur hellt sér út í deilu sem verið hefur að magnast á milli Vatíkansins og belgískra stjórnvalda í kjölfar þess að belgíska lögreglan gerði húsleitir í höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunnar þar í landi. Lögreglan rannsakar nú ásakanir sem bornar hafa verið á kaþólska presta um barnaníð og í einni húlsleitinni var belgískum biskupum sem voru á fundi haldið í níu klukkustundir á meðan á leitinni stóð.

Erlent

Kosið í Kirgistan þrátt fyrir ólgu

Ný stjórnarskrá Kirgistan verður lögð í þjóðaratkvæði í landinu í dag, en nýja stjórnarskráin færir aukin völd til þjóðþingsins og hafa kosningar verið boðaðar í september næstkomandi, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Það var bráðabirgðastjórn landsins, sem mynduð var í apríl, sem boðaði til þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Erlent

G8 fordæma Norður-Kóreumenn

Leiðtogar G8 ríkjanna svokölluðu hafa fordæmt Norður-Kóreu fyrir að sökkva herskipi frá nágrönnum þeirra í suðri fyrir nokkrum mánuðum. Fordæmingin var sett fram á leiðtogafundi G8 ríkjanna sem nú fer fram í Toronto í Kanada.

Erlent

Bareigendur í Bloemfontain undirbúa sig fyrir morgundaginn

Bareigendur í borginni Bloemfontein hafa fengið fyrirmæli um að vera vel birgir af bjór fyrir leikinn á morgun en þá mætast Englendingar og Þjóðverjar í 16 liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í Suður Afríku. Búist er við um 25 þúsund enskum stuðningsmönnum og allt að 10 þúsund Þjóðverjum á leikinn. Þar sem leikurinn fer fram á sunnudegi er ekki hægt að kaupa bjór í búðum í Bloemfontain en hinsvegar má kaupa alkóhól á börum og á veitingahúsum.

Erlent

Tólf létu lífið í lestarslysi

Að minnsta kosti tólf týndu lífi í alvarlegu lestarslysi í bænum Castelldefels suður af Barcelóna á Spáni í fyrrinótt. Nokkrir eru alvarlega slasaðir.

Erlent

Ágreiningur fyrir fundinn

Nú um helgina ætla leiðtogar tuttugu auðugustu ríkja heims að hittast á fundi í Kanada til að ræða efnahagsvandann í heiminum.

Erlent

Bæta samband milli ríkjanna

Bandaríkjamenn og Rússar ætla að styrkja efnahagsleg tengsl og auka samvinnu í baráttunni gegn hryðjuverkum. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti að loknum fundi með Dmitry Medvedev Rússlandsforseta í gær.

Erlent

Fangi át lunga klefafélaga síns

Franskur fangi var í dag dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að myrða klefafélaga sinn og borða lunga hans. Fanginn sem heitir Nicolas Cocaign er 39 ára gamall. Hann játaði að hafa að myrt Thierry Baudry í fangaklefa sem þeir voru vistaðir í fyrir þremur árum. Cocaign afplánaði þá dóm fyrir vopnað rán og beið auk þess eftir niðurstöðum úr tveimur öðrum dómsmálum, þar á meðal í nauðgunarmáli.

Erlent

Breskir hermenn létust af slysförum í Afganistan

Fjórir breskir hermenn létust af slysförum í Afganistan í dag. Þeir voru í bifreið sem lenti utanvegar og hafnaði í skurði í Helmand héraði Hermennirnir drukknuð að því er fram kemur á fréttavef bresku Sky fréttastöðvarinnar. Talsmaður breska hersins í Afganistan segir að ekkert benda til þess að Talíbanar hafi ráðist á bifreiðina.

Erlent

Fíkniefnakóngurinn Coke framseldur

Fíkniefnakóngurinn Christopher Dudus Coke hefur verið framseldur til Bandaríkjanna þar sem hann er eftirlýstur fyrir fíkniefna- og vopnasölu. Hann ákvað að áfrýja ekki framsalsbeiðni Bandaríkjamanna þegar hann kom fyrir dómara í höfuðborginni Kingston í dag. Coke á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi.

Erlent

Húsleit hjá kaþólsku kirkjunni í Belgíu

Belgíska lögreglan framkvæmdi í dag húsleit í höfuðstöðvum kaþólsku kirkjunnar þar í landi en lögreglan rannsakar nú ásakanir sem komið hafa fram um kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar. Saksóknari í Brussel staðfesti að höll erkibiskupsins í borginni hafi verið innsigluð en auk þess var leitað á heimili fyrrverandi erkibiskups landsins.

Erlent

Hart sótt að forsætisráðherra Ástralíu

Í fyrramálið fer fram leiðtogakjör í ástralska Verkamannaflokknum eftir að Julia Gillard, lýsti yfir mótframboði gegn, forsætisráðherranum Kevin Rudd sem er núverandi formaður flokksins. Talið er að Gillard mun bera sigur úr býtum en dregið hefur mjög úr vinsældum Rudd að undanförnu meðal almennings og innan Verkamannaflokksins Sigri Gillard verður hún fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Ástralíu.

Erlent

Petraeus tekur við í Afganistan

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur tilkynnt að hershöfðinginn David Petraeus verði eftirmaður Stanley McChrystal sem yfirmaður fjölþjóðahersins í Afganistan. Obama rak McChrystal í dag vegna gagnrýni hans á framgöngu ríkisstjórnar Obama í Afganistan. Í viðtali við Rolling Stone gagnrýndi hann Obama og ýmsa áhrifamenn.

Erlent

Fátækt eykst í Evrópu

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segjast einn af hverjum sex íbúum sambandsins eiga í erfiðleikum með að láta enda ná saman um hver mánaðarmót.

Erlent