Erlent
Talinn hafa ætlað að myrða ritstjóra Jótlandspóstsins Danska lögreglan fann kort með heimilisfangi Jótlandspóstsins á hótelherbergi mannsins sem talinn er bera ábyrgð á sprengjunni sem sprakk í Kaupmannahöfn á föstudag. Grunur leikur á að maðurinn hafi ætlað ráða ritstjóra blaðsins af dögum með sprengjutilræði en Jótlandspósturinn vakti mikla reiði á meðal múslima með birtingu sinn á skopmyndum af Múhammeð spámanni. Ritstjórarnir hafa um helgina verið í mikilli gæslu og hafa klæðst skotheldum vestum. Erlent 12.9.2010 09:49
Úrskurðaður í varðhald Karlmaðurinn sem grunaður er um sprengjutilræði í miðborg Kaupmannahafnar í fyrrdag var í gær úrskuraður í gæsluvarðhald. Fyrst um sinn verður hann hafður í einangrun. Hann naut aðstoðar túlks þegar hann kom fyrir dómara. Enn er margt á huldu um manninn og til að mynda liggur ekki fyrir hvaðan hann er. Erlent 12.9.2010 07:00
Leita að 85 föngum Umfangsmikil leit fer nú fram í Mexíkó að 85 föngum sem tókst að flýja úr fangelsi í norðurhluta landsins í gær. Yfirmaður fangelsismála á svæðinu segir að fangarnir hafi notað stiga til að komast yfir múra umhverfis fangelsið. Erlent 11.9.2010 16:15
Gillard tilefnir Rudd sem utanríkisráðherra Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, hefur tilnefnt Keven Rudd, fyrrverandi forsætisráðherra, sem utanríkisráðherra. Stutt er síðan hún felldi Rudd óvænt úr sæti formanns Verkamannaflokksins. Hún tók við sem forsætisráðherra í kjölfarið og boðaði strax til þingkosninga. Erlent 11.9.2010 15:59
Hryðjuverkaárásanna minnst í Bandaríkjunum Þess er minnst víða um Bandaríkin í dag að níu ár eru liðin frá því að ráðist var á Tvíburaturnana í New York og varnarmálaráðuneytið í Pentagon með þeim afleiðingum að á þriðja þúsund óbreyttra borgara fórust. Fjórða flugvélin hrapaði í Pennsylvaníu. Erlent 11.9.2010 14:18
Viðbúnaðarstig hækkað í Danmörku Lögreglan í Danmörku hefur hækkað hryðjuverkaviðbúnaðarstig vegna sprengingarinnar í miðborg Kaupmannahafnar í gær. Ýmislegt hefur komið fram í rannsókn lögreglu sem bendir til þess að um misheppnaða hryðjuverkaárás hafi verið að ræða. Erlent 11.9.2010 12:13
Þingmaður fékk einkaspæjara til að njósna um samflokksmenn Breski þingmaðurinn Jonathan Djanogly fékk einkaspæjara til að njósna um samstarfsmenn hans og flokksfélaga í Íhaldsflokknum í Bretlandi í þeim tilgangi að komast að því hvað þeim fyndist um pólitíska framtíð hans. Djanogly er undirráðherra í breska dómsmálaráðuneytinu, en þess er nú krafist að hann segi af sér. Erlent 11.9.2010 09:52
Neitar að svara spurningum Maðurinn sem lögreglan í Kaupmannahöfn handtók í gær vegna sprengjutilræðis á hóteli í miðborginni neitar svara spurningum í yfirheyrslum. Lögreglan hefur því ekki enn ekki fundið út hvort hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk eða ekki. Hann liggur á ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn en hann særðist þegar sprengjan sprakk á hótel Jörgensen, skammt frá Nörreport, í gær. Honum er lýst sem enskumælandi, með Miðjarðarhafshreim. Erlent 11.9.2010 09:48
Ekkert hæft í ásökunum Bandaríkjastjórn tekur undir með írönskum stjórnvöldum, sem segja ekkert hæft í fullyrðingum stjórnarandstæðinga í Írak um að leynileg úranauðgunarstöð sé í smíðum neðanjarðar skammt frá Qazvin, um 120 kílómetra vestur af höfuðborginni Teheran. Erlent 11.9.2010 06:30
Tókst ekki að róa sig niður Rúmlega fertugur íbúi í Solingen í Þýskalandi forðaði sér hið snarasta þegar kona kom auga á hann, þar sem hann var nakinn á kvöldgöngu. Erlent 11.9.2010 06:00
Árása minnst vestanhafs Að venju hafa Bandaríkjamenn skipulagt ýmsar minningarathafnir 11. september þetta árið, þegar níu ár eru liðin frá árás hryðjuverkamanna á landið. Meiri styr stendur þó um atburðina og ýmislegt þeim tengt þar vestra en áður. Erlent 11.9.2010 04:30
Sprengingin ekki hryðjuverk Nú er talið að ekki hafi verið um tilraun til hryðjuverks að ræða þegar að sprengja sprakk á hóteli í Kaupmannahöfn í dag. Erlent 10.9.2010 20:50
Önnur sprenging í Kaupmannahöfn Danskir fjölmiðlar segja að fyrir stundu hafi heyrst sprenging í Örstedsparket í Kaupmannahöfn þar sem lögreglan situr um mann sem talinn er hafa ætlað að gera sjálfsmorðssprengjuárás í borginni. Erlent 10.9.2010 16:55
Veiðimaðurinn varð bráðin -myndband Veiðimennirnir voru á sléttum Afríku að leita að hlébörðum. Og þeir fundu einn. Hlébarðinn snerist hinsvegar til varnar og réðist á einn veiðimanninn. Erlent 10.9.2010 15:57
Sjálfsmorðssprengjuárás í Kaupmannahöfn Karlmaður reyndi fyrir stundu að gera sjálfsmorðssprengjuárás á hóteli við Ísraelstorg í Kaupmannahöfn. Erlent 10.9.2010 14:31
Norðmenn reka fólk úr landi í flugvélaförmum Það sem af er þessu ári hafa Norðmenn sent 4042 hælisleitendur úr landi. Þrír fjórðu þeirra voru fluttir nauðugir í flugvélum sem lögreglan tók á leigu. Erlent 10.9.2010 12:12
Svindlað með ellismellum Japanar verða allra manna elstir. Sumir þeirra verða þó ekki jafn gamlir og þjóðskrá segir til um. Erlent 10.9.2010 11:31
Brennan á Kóraninum sett í bið, en ekki hætt við hana Flórídapresturinn Terry Jones segir að hann hafi sett fyrrihugaða brennu sína á Kóraninum í biðstöðu. Hann sé hingvegar ekki hættur við brennuna eins og margir fjölmiðlar hafa greint frá. Erlent 10.9.2010 07:52
Landgönguliðar bjarga skipi úr höndum sjóræningja Hópi bandarískra landgönguliða tókst að bjarga þýsku flutningaskipi úr höndum sómalískra sjóræningja í gærdag. Sjóræningjarnir höfðu náð skipinu á sitt vald undan ströndum Sómalíu. Erlent 10.9.2010 07:41
Fjöldi húsa er brunninn í miklum eldsvoða í San Francisco Fjöldi húsa er brunninn eftir mikinn eldsvoða í einu af úthverfum San Francisco í Bandaríkjunum í nótt, skammt frá flugvelli borgarinnar. Erlent 10.9.2010 07:35
Hættur við að brenna Kóraninn Terry Jones, presturinn sem hugðist brenna Kóraninn, höfuðrit islams, er hættur við áform sín. Þetta kemur fram á fréttavef USA Today. Erlent 9.9.2010 21:43
Castro gefst upp á kommúnisma Fidel Castro, fyrrverandi forseti Kúbu, segir að marxíska hagfræðilíkanið virki ekki. Ekki einu sinni fyrir Kúbu. Þetta kemur fram á fréttavef Gurdian. Erlent 9.9.2010 19:44
Málshöfun vegna auglýsinga í bíó Kínversk kona hefur höfðað mál á hendur kvikmyndahúsi fyrir að eyða tuttugu mínútum af tíma sínum með auglýsingum áður en myndin sem hún ætlaði að sjá kom á tjaldið. Erlent 9.9.2010 15:22
Agnarsöfnuður gerir allt vitlaust Undanfarna daga hefur maður gengið undir manns hönd við að fá bandarískan kirkjusöfnuð til að hætta við að brenna kóraninn næstkomandi laugardag. Erlent 9.9.2010 14:38
Vilja banna reykingar í heimahúsum Alþjóða heilbrigðisstofnunin vill að reykingar á einkaheimilum verði bannaðar, til þess að hlífa börnum við óbeinum reykingum. Erlent 9.9.2010 11:38
Konur verða sterkara kynið eftir fimmtugt Danskir vísindamenn hafa komist að því að eftir fimmtugt eru konur orðnar að sterkara kyninu en ekki karlar. Erlent 9.9.2010 08:03
Mullah Omar segir Talibana að vinna stríðið í Afganistan Mullah Omar leiðtogi Talibana í Afganistan segir að Talibanar séu um það bil að vinna stríðið sem geysað hefur í landinu árum saman. Herferð NATO í Afganistan hafi gersamlega mistekst. Erlent 9.9.2010 07:55
Um 200 kínverskir flugmenn fölsuðu upplýsingar um flugreynslu Flugmálayfirvöld í Kína hafa komist að því að um 200 flugmenn hjá almennum flugfélögum landsins hafa falsað upplýsingar um flugreynslu sína. Erlent 9.9.2010 07:47
Clinton líkir ástandinu í Mexíkó við borgarastríð Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna líkir ástandinu í Mexíkó við borgarstríð eða uppreisn. Erlent 9.9.2010 07:42
Stórir skammtar af B-vítamínum vinna gegn Alzheimer Ný rannsókn sýnir að stórir skammtar af B-vítavími geta unnið á móti heilahrörnun hjá eldra fólki og gætu þar með komið í veg fyrir sjúkdóma á borð við Alzheimer. Erlent 9.9.2010 07:37