Erlent
Stúlkan sem var skotin er enn í lífshættu Ástand hinnar fimm ára gömlu stúlku sem varð fyrir skotárás í London í gær er ennþá metið alvarlegt. Stúlkan er talin vera yngsta fórnarlamb byssuskots í London í langan tíma en hún fannst lífshættulega særð í verslun einni í hverfinu Lambeth, ásamt 35 ára gömlum manni sem hafði verið skotinn í höfuðið. Lögreglan leitar nú þriggja ungmenna sem eru taldir hafa skotið mörgum skotum inni í versluninni en þangað höfðu þeir elt tvo aðra unglinga. Þeir sluppu hinsvegar báðir að því er virðist og biðlar lögreglan nú til þeirra að koma fram og veita upplýsingar. Erlent 31.3.2011 10:54
Hart barist á Fílabeinsströndinni Hermenn hliðhollir forsetaframbjóðandanum Alassane Outtara á Fílabeinsströndinni hafa lagt undir sig eina stærstu borg landsins. Miklir bardagar hafa geisað í landinu eftir að sitjandi forseti Laurent Gbagbo neitaði að láta af völdum þrátt fyrir að hafa tapað í kosningum og hefur enn töglin og hagldirnar í stærstu borginni Abidjan. Erlent 31.3.2011 09:04
Rýmingarsvæðið verði stækkað um helming Kjarnorkueftirlitsmenn á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa lagt til við japönsk stjórnvöld að þau íhugi alvarlega að stækka öryggissvæðið í kringum kjarnorkuverið í Fukushima og flytja íbúa á brott. Erlent 31.3.2011 08:04
Musa Kusa snýr baki við Gaddafí Utanríkisráðherra Líbíu, Musa Kusa, hefur flúið land og er nú í Bretlandi. Hann segist ekki vilja starfa lengur fyrir einræðisherrann Muammar Gaddafí. Kusa flaug til Túnis þar sem hann var yfirheyrður af breskum hermönnum áður en hann fékk að fara áfram til Bretlands. Erlent 31.3.2011 07:03
Uppreisnarmenn á undanhaldi Liðsmenn Múammars Gaddafí náðu olíuborginni Ras Lanúf aftur á sitt vald í gær úr höndum uppreisnarmanna. Einnig var hart sótt að uppreisnarmönnum í olíuborginni Brega. Erlent 31.3.2011 01:00
Fjórir ofnar teknir úr notkun Hvert bakslagið á fætur öðru hefur komið í baráttuna við að halda niðri geislamengun frá kjarnorkuverinu í Fukushima. Ákveðið hefur verið að leggja endanlega niður starfsemi í þeim fjórum ofnum versins sem til vandræða hafa verið. Erlent 31.3.2011 00:00
Heimilar leynilegan hernaðarstuðning við líbíska uppreisnarmenn Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, undirritaði sérstakan samning fyrir tveimur eða þremur vikum, um leynilegan stuðning við uppreisnarmenn í Líbíu umfram samþykkt Öryggisráðsins sem gengur út á flugbann og að tryggja að saklausir borgarar verði ekki fyrir árásum af hálfu herliðs Muammar Gaddafis, leiðtoga Líbíu. Erlent 30.3.2011 22:44
Andsetningar í Róm - netið kemur ungmennum í samband við djöfulinn Veraldarvefurinn hefur gert fólki auðveldara um vik að komast í tengsl við djöfladýrkendur, en það er mikið áhyggjuefni ráðstefnugesta í háskóla í Róm, sem fjalla um særingar og andsetningar. Erlent 30.3.2011 21:23
Vítt og breitt með Vísi Í meðfylgjandi myndaalbúmi má skoða myndir víðsvegar að úr heiminum af atburðum undanfarinna daga. Ástandið í Japan, stríðið í Líbíu og óeirðir í London er á meðal viðfangsefna ljósmyndara AP. Smelltu hér til þess að skoða myndirnar. Erlent 30.3.2011 21:15
Russell Brand varð fyrir vonbrigðum með Björgólf Breski grínleikarinn Russell Brand heldur mikið upp á knattspyrnuliðið West Ham United og í viðtali í breska blaðinu The Sun segist hann vonsvikinn með að Björgólfi Guðmundssyni skyldi ekki takast að rífa liðið upp úr þeirri lægð sem það hefur verið í síðustu ár eftir að hann keypti það. „Þegar við fengum milljarðamæring hrundi allt íslenska bankakerfið stuttu síðar, við erum ekki mjög heppnir með milljarðamæringana okkar,“ segir hann í viðtalinu en í dag er liðið í eigu manna sem efnuðust á sölu kláms. Erlent 30.3.2011 09:03
Mótorhjólagengin fylla dönsk fangelsi Meðlimir mótorhjólagengja í Danmörku fylla nú fangelsin svo horfir til vandræða. Danska lögreglan hefur síðustu misserin hert aðgerðir sínar gegn mótorhjólagengjum á borð við Vítisengla, Bandidos og Outlaws og nú er svo komið að 320 meðlimir gengjanna sitja á bak við lás og slá. Erlent 30.3.2011 08:45
Fimm ára stúlka særð eftir skotárás í London Fimm ára gömul stúlka slasaðist í gærkvöldi þegar skotið var á hana í Suðurhluta Lundúna. Lögreglan var kölluð að verslun í hverfinu Lambeth og þar fundu þeir stúlkuna ásamt 35 ára gömlum manni sem einnig var særður. Erlent 30.3.2011 08:40
Sendi gervisprengju frá Bretlandi til Tyrklands Bresk stjórnvöld hafa hafið rannsókn á því hvernig stóð á því að mönnum tókst að senda gervisprengju með flugfrakt frá Bretlandi til Tyrklands án þess að tollverðir tækju eftir því. 26 ára gamall maður hefur verið handtekinn grunaður um verknaðinn en hann er talinn hafa gert það í gríni og enginn grunur leikur á tengslum við hryðjuverk. Erlent 30.3.2011 08:29
Obama útilokar ekki að uppreisnarmenn fái vopn Barack Obama segist ekki útiloka það að Bandaríkjamenn muni leggja uppreisnarmönnum í Líbíu til vopn en slær því þó ekki föstu. Hann segir að sífellt styttist í endalok Gaddafís. Erlent 30.3.2011 08:28
Kjarnakljúfarnir í Fukushima ekki teknir í notkun að nýju Japönsk stjórnvöld hafa tekið þá ákvörðun að fjórir kjarnakljúfar af sex í Fukushima kjarnorkuverinu í Japan, sem varð illa úti í jarðskjálftanum á dögunum, verði teknir úr umferð. Erlent 30.3.2011 08:24
Samstaða um að koma Gaddafí frá „Það er engin framtíð lengur fyrir Líbíu með Gaddafí við stjórnvölinn,“ sagði William Hague, utanríkisráðherra Bretlands, að lokinni alþjóðlegri ráðstefnu í Lundúnum um hernaðaraðgerðirnar í Líbíu. Erlent 30.3.2011 01:00
Lið Gbagbos á undanhaldi Uppreisnarmenn, sem berjast fyrir réttkjörinn forseta Fílabeinsstrandarinnar, hafa náð fleiri borgum á sitt vald í átökum, sem kostað hafa hundruð manna lífið. Erlent 30.3.2011 00:30
Gætu skýrt upphaf kristninnar Merkur handritafundur, sem gæti varpað nýju ljósi á sögu frumkristninnar, er nú deiluefni Ísraela og Jórdana. Erlent 30.3.2011 00:00
Lést úr vannæringu 11 mánaða - foreldranir öfga-grænmetisætur Frönsku hjónin Sergine og Joel Le Moaligou gætu átt yfir höfði sér þrjátíu ára fangelsisvist eftir að ellefu mánaða gamalt barn þeirra lést úr vannæringu. Málið hefur vakið heimsathygli en hjónin voru það sem mætti hugsanlega kalla, öfga-grænmetisætur. Erlent 29.3.2011 22:54
Íslendingurinn Tilikum snýr aftur eftir að hafa drepið þjálfara sinn Drápsháhyrningurinn Tilikum, sem varð þjálfara sínum að bana snemma á síðasta ári, mun snúa aftur í Sea World í Orlando. Til stendur að háhyrningurinn muni leika listir sínar fyrir gesti strax á morgun. Erlent 29.3.2011 22:05
Clooney og Ronaldo hugsanlega vitni í kynlífsmáli Berlusconis Talið er mögulegt að kvikmyndastjarnan Georg Clooney og fótboltamaðurinn Christiano Ronaldo verði kallaðir til vitnis í dómsmáli gegn Silvio Berlusconi á Ítalíu. Erlent 29.3.2011 21:00
Obama ver ákvörðun sína um loftárásir á Líbíu Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, keppist nú við að verja þá ákvörðun sína að heimila hernaðaríhlutun Bandaríkjamanna í Líbíu en loftárásirnar eru fyrsta dæmið um slíkt í stjórnartíð forsetans. Obama sagði í ræðu í nótt að aðgerðirnar í Líbíu hefðu bjargað óteljandi mannslífum en bætti við að afskipti Bandaríkjamanna af málinu yrðu takmörkuð. Bandaríkjamenn hafa hingað til farið með stjórnina á aðgerðunum en þær verða hér eftir á hendi Atlantshafsbandalagsins. Hægt hefur á sókn uppreisnarmanna í vesturátt og virðist nú víglínan vera dregin fyrir utan bæinn Sirte, sem er fæðingarstaður Gaddafís. NATO hefur verið gagnrýnt fyrir túlkun sína á ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem mælir fyrir um leyfi til að koma í veg fyrir mannfall á meðal óbreyttra borgara. Rússar vilja meina að með aðgerðum síðustu daga hafi NATO tekið sér stöðu með öðru liðinu í borgarastríði sem nú geisi í Líbíu og slíkt sé óheimilt samkvæmt ályktun ráðsins. Löndin sem hafa komið að aðgerðunum funda í London í dag um framtíð þeirra. Þar á meðal annars að ræða um tillögu frá Ítölum, sem gengur út á að bjóða Gaddafí að fara í útlegð. Erlent 29.3.2011 15:25
Til í að sleppa dönsku gíslunum gegn því að fá að eiga dótturina Sjóræningjaforinginn sem hefur haldið danskri fjölskyldu í gíslingu í rúman mánuð í Sómalíu hefur boðist til að sleppa allri fjölskyldunni og falla frá fimm milljón dollara lausnargjaldskröfu sinni gegn því að hann fái að giftast stúlkunni í fjölskyldunni, sem er aðeins þrettán ára gömul.Blaðamaður Ekstra blaðsins í Danmörku fór á slóðir sjóræningjanna og hafði upp á foringja þeirra. Hann fékk ekki að hitta dönsku hjónin eða börn þeirra þrjú en hann fékk þessa óhugnanlegu kröfu upp úr foringjanum. Erlent 29.3.2011 10:50
Gríðarleg óvissa í Japan - plútóníum í jarðvegi Forsætisráðherra Japans Naoto Kan segir að ríkisstjórnin sé á hæsta viðbúnaðarstigi vegna ástandsins í Fukushima kjarnorkuverinu. Plútóníum hefur fundist í jarðvegi við verið og mjög geislavirkt vatn lekur einnig frá verinu. Yfirvöld segja að enn sé aðaláherslan lögð á að kæla kjarnakljúfa versins sem skemmdust í jarðskjálftanum á dögunum. Þá er ítrekað að þótt plútóníum, sem er lífshættulegt fólki í smáum skömmtum, hafi fundist í jarðvegi sé það í örlitlum mæli. Erlent 29.3.2011 08:03
Plúton hefur fundist í jarðvegi utan ofna Ástandið í kjarnorkuverinu í Fukushima verður æ hættulegra. Í gær fundust í fyrsta sinn merki um plúton í jarðvegi utan kjarnaofnanna, sem bendir til þess að alvarleg bráðnun hafi orðið í kjarna eins eða fleiri þeirra. Erlent 29.3.2011 01:00
NATO segist aðeins vernda fólk „Markmið okkar er að vernda og aðstoða almenna borgara og byggðakjarna sem eiga árásir á hættu,“ sagði kanadíski herforinginn Charles Bouchard, sem þessa dagana er að taka við yfirstjórn hernaðaraðgerða NATO í Líbíu af Bandaríkjamönnum. Erlent 29.3.2011 00:30
Sextán danskir Vítisenglar fyrir dómi Sextán danskir meðlimir í vélhjólaklíkum, eða „rokkarar“ eins og þeir eru kallaðir, voru leiddir fyrir dóm í Glostrup á Sjálandi í gær, ákærðir fyrir sex tilraunir til manndráps, alvarlega líkamsárás með kylfum og fleiri glæpi. Þetta eru viðamestu réttarhöld af sinni tegund sem fram hafa farið í Danmörku. Erlent 29.3.2011 00:00
Kyrkislangan kíkti upp úr klósettinu Sjö ára gamalli stúlku í Þýskalandi brá heldur en ekki í brún á dögunum þegar hún skrapp á klósettið heima hjá sér í Hannover. Þegar hún lyfti upp klósettsetunni kom stærðarinnar kyrkislanga í ljós. Stelpan hljóp rakleiðis til mömmu sinnar sem hringdi á lögregluna í ofboði. Erlent 28.3.2011 22:00
Geislamengun mælist fyrir utan kjarnorkuverið Mjög geislamengað vatn hefur nú fundist í fyrsta sinn utan Fukushima kjarnorkuversins í Japan þar sem menn hafa reynt að kæla kjarnakljúfana sem urðu illa úti í jarðskjálftanum ellefta mars og flóðbylgunni sem kom á eftir. Erlent 28.3.2011 13:53
Maður á íslenskum hesti fann týndan dreng Mikil leit var gerð í alla nótt að þriggja ára gömlum dreng í Danmörku en hann hljópst á brott frá foreldrum sínum á sunnudagsmorgun á Norður-Jótlandi og kom ekki í leitirnar fyrr en í morgun. Erlent 28.3.2011 11:35
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent