Sextán danskir Vítisenglar fyrir dómi 29. mars 2011 00:00
Sextán danskir meðlimir í vélhjólaklíkum, eða „rokkarar“ eins og þeir eru kallaðir, voru leiddir fyrir dóm í Glostrup á Sjálandi í gær, ákærðir fyrir sex tilraunir til manndráps, alvarlega líkamsárás með kylfum og fleiri glæpi. Þetta eru viðamestu réttarhöld af sinni tegund sem fram hafa farið í Danmörku. Hinir ákærðu hafa allir neitað sök en þeir eru meðlimir í Vítisenglum eða stuðningsklíkunni AK81. Brian Sandberg, einn af forvígismönnum Vítisengla í landinu, er þeirra á meðal. Málareksturinn byggir á vitnisburði ungs manns sem var félagi í AK81. Sá hefur þegar fengið tólf ára fangelsisdóm fyrir aðild sína að einni morðtilrauninni, en snerist gegn samtökunum eftir að hafa lent í ónáð innan þeirra. Hinir ákærðu voru handteknir í fyrrasumar, en að sögn lögmanns þeirra munu þeir ekki tjá sig um sakargiftirnar fyrr en lykilvitni ákæruvaldsins hefur borið vitni. Ekki er búist við niðurstöðu í málinu fyrr en í september. Lögregla var með mikinn viðbúnað fyrir utan dómshúsið, enda voru um 100 mótorhjólamenn fyrir utan til að sýna félögum sínum samstöðu. - þj
Fréttir Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira