Erlent
Kim Jong Il kominn til Rússlands Leiðtogi Norður Kóreu, Kim Jong-il, kom til Rússlands í dag og mun þar funda með forseta landsins, Dimitry Medvedev. Þetta er fyrsta rússlandsheimsókn kóreska leiðtogans í níu ár, og er talið að heimsóknin sýni viðleitni Norður-Kóreu til að sækja sér aukna velvild í alheimssamfélaginu, auk efnahagslegs stuðnings. Erlent 20.8.2011 11:58
Sefaði áhyggjur Kínverja af BNA Kínverjar segjast bera fullt traust til bandarísks efnahagslífs og óttast ekki um fjárfestingu sína í ríkisskuldabréfum þótt stífir vindar hafi geisað. Erlent 20.8.2011 00:30
Milljarðarnir að verða sjö Mannkyninu hefur fjölgað hratt síðustu áratugina. Síðar á þessu ári er reiknað með því að við verðum sjö milljarðar alls, samkvæmt nýrri spá franskra fræðimanna sem nota tölur frá Sameinuðu þjóðunum. Erlent 20.8.2011 00:00
Flóttakýr búin að setja Þýskaland á annan endann Þýska flóttakýrin Yvonne hefur sett Þýskaland á annan endann. Dýraverndunarsinnar leita hennar ákaft, þýska blaðið Bildt hefur lofað hverjum þeim sem bjargar henni tíu þúsund evrur á meðan lögreglan hefur gefið veiðimönnum grænt ljós á að skjóta hana af færi. Og það sem meira er; hindúar eru brjálaðir. Erlent 19.8.2011 23:00
Ráðist á breskar skrifstofur Breskar skrifstofur í Kabúl, Afghanistan, urðu fyrir árás nú í morgun. Minnst 9 manns létu lífið, þar af einn útlendingur. Í dag er helgidagur í Afghanistan, haldið er upp á sjálfstæði landsins undan breskri stjórn. Erlent 19.8.2011 17:01
Ísrael svarar fyrir sig Ísraelsmenn sendu í nótt loftárásir yfir Gazasvæðið. Sex Palestínumenn létu lífið, þeirra á meðal ungur drengur. Sautján aðrir eru illa særðir. Loftárásirnar eru svar við árásum sem urðu í suður Ísrael í gær. Erlent 19.8.2011 16:33
Aung San Suu Kyi hittir forseta Búrma Þjóðarhetja Búrma, Aung San Suu Kyi, var í dag boðin á fund með forseta landsins. Fundurinn er einstakur og gæti verið „fyrsta skrefið í átt að þjóðarsátt" þar í landi. Upplýsingar um hvað fram fór á fundinum liggja ekki fyrir. Erlent 19.8.2011 15:17
Rússland styður ekki kröfu um afsögn Rússar taka ekki undir kröfu vestrænna ríkja um að Sýrlandsforseti, Bashar al-Assad, leggi niður völd. Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytisins segir nauðsynlegt að gefa Assad lengri tíma til að vinna að umbótum í landinu. Erlent 19.8.2011 14:34
Fimm látnir á Pukkelpop Á belgísku tónlistarhátíðinni Pukkelpop gerði gríðarlegan storm í gærkvöldi. Fimm manns létu lífið og yfir 75 slösuðust þegar tjöld féllu saman. Aðstandendur hátíðarinnar hafa ákveðið að aflýsa þeim tónleikum sem eftir eru af virðingu við fórnarlömbin. Enn bíða einhverjir 40.000 gestir eftir að vera fluttir á brott af svæðinu. Erlent 19.8.2011 14:18
Breivik áfram í einangrun Héraðsdómstóll í Osló komst í dag að þeirri niðurstöðu að Anders Behring Breivik skuli áfram dúsa í einangrun. Rétturinn tók undir með löggreglunni að raunveruleg hætta væri á að sönnunargögn töpuðust væri einangrunin rofin. Erlent 19.8.2011 13:53
Sprenging í Pakistan Minnst 30 manns létust þegar sprengja sprakk í mosku í Pakistan þar sem hundruðir manna lágu á bæn. Unglingsstrákur sprengdi sjálfan sig í loft upp í aðalsal moskunnar nú fyrr í dag. Embættismaður á svæðinu býst við að allt að 40 manns hafi látist. Erlent 19.8.2011 11:41
E-töflur nýtt krabbameinslyf Fíkniefnið alsæla, eða e-töflur, virðist vænlegt vopn í baráttunni við blóðkrabbamein. Það kemur fram í rannsókn sem birt var í Investigational New Drugs journal. Þó engin meðferð sé væntanleg næstu tugi ára eru uppgötvanirnar „merkilegt skref í rétta átt". Erlent 19.8.2011 11:21
Stoltenberg-áhrif í Noregi NoregurKosningaþátttaka verður meiri í Noregi nú en síðustu ár. Þetta segir kosningasérfræðingurinn Frank Aarebrot hjá Háskólanum í Bergen. Erlent 19.8.2011 11:00
Breivik mættur í réttinn Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik kom í dómshúsið í Osló rétt fyrir klukkan níu í morgun. Réttarhöld yfir honum eiga að hefjast klukkan ellefu. Hann mun nú staddur í biðherbergi dómstólsins. Erlent 19.8.2011 10:23
Öflugur jarðskjálfti undan strönd Japans Jarðskjálfti sem mældist 6,8 stig reið yfir úti fyrir ströndum Japans í morgun, á sama svæði og stóri skjálftinn í mars. Erlent 19.8.2011 08:06
Enginn smókur í Óðinsvéum? Bæjaryfirvöld í Óðinsvéum íhuga nú að banna starfsfólki sínu að reykja á vinnutíma. Erlent 19.8.2011 08:00
Michele Bachmann lofar því að lækka bensínverð Michele Bachmann eitt af forsetaefnum Repúblikanaflokksins er byrjuð að gefa ýmis kosningaloforð sem vakið hafa athygli vestan hafs. Erlent 19.8.2011 07:47
Japanir eru mjög heiðarleg þjóð Eftirköst jarðskjálftans mikla í Japan fyrir fimm mánuðum síðan sýna að Japanir eru upp til hópa mjög heiðarleg þjóð. Erlent 19.8.2011 07:43
Telja að Butch Cassidy hafi komist lifandi frá Bólivíu Fornbókasali og rithöfundur í Bandaríkjunum segjast geta sannað að hinn þekkti útlagi Butch Cassidy hafi lifað af fyrirsátina í Bólívíu og komist aftur heim til Bandaríkjanna. Erlent 19.8.2011 07:20
Vilja tryggingu frá Grikkjum Snurða hljóp á þráð fyrirhugaðra björgunaraðgerða í þágu Grikklands í gær. Nú vilja ráðamenn í Austurríki, Slóveníu og Slóvakíu að Grikkir útvegi þeim tryggingaveð fyrir framlagi þessara ríkja til 109 milljarða neyðarláns, sem Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ætla að veita Grikkjum. Erlent 19.8.2011 05:00
Frekari refsiaðgerðir boðaðar Bæði Barack Obama Bandaríkjaforseti og Catherine Ashton, utanríkisfulltrúi Evrópusambandsins, skora á Bashar Assad Sýrlandsforseta að segja af sér. Erlent 19.8.2011 04:00
Byssuskot hljóp af á flugvelli Tveir starfsmenn flugvallarins í Kaupmannahöfn meiddust lítillega í vikunni þegar skot hljóp úr haglabyssu sem var í farangri vélar. Erlent 19.8.2011 01:00
Sagðist vera 500 ára gömul vampíra Lyle Bensley, nítján ára Bandaríkjamaður, braust inn á heimili nágranna síns á dögunum og reyndi að sjúga blóð úr hálsi hennar. Ástæðan: Hann telur sig vera 500 ára gamla vampíru. Erlent 18.8.2011 22:37
Fyrsta bankaránið í sögunni Íbúar á eyjunni Aitutaki á Kyrrahafi er brugðið eftir að fyrsta bankaránið í sögu eyjunnar var framið á dögunum. Erlent 18.8.2011 22:07
Svið á tónleikahátíð hrundi í miklu óveðri Að minnsta kosti tveir ertu látnir og um fjörutíu eru slasaðir eftir að svið á Pukkelpop-tónlistarhátíðinni í Belgíu hrundi í miklu óveðri sem gekk yfir svæðið í dag. Fjölmiðlar í Belgíu segja þó að tala látinni kunni að hækka. Erlent 18.8.2011 21:18
Ísraelar skutu flugskeyti á hryðjuverkamenn Ísraelski herinn gerði loftárás á Gaza-svæðinu í morgun en hermt er að á meðal þeirra föllnu séu menn sem beri ábyrgð á hryðjuverkum í suðurhluta Ísrael í morgun og í dag. Erlent 18.8.2011 20:54
Banna vændi unglinga Svisslendingar ætla sér að loka fyrir smugu í kerfinu sem heimilar allt að 16 ára ungu fólki að stunda vændi án refsingar. Aðeins örfá lönd Evrópu leyfa slíkt athæfi. Með hinum fyrirhuguðu lögum er lögð þung refsing við því að heimsækja of ungar vændiskonur og enn þyngri refsing við því að hvetja börn til vændis. Erlent 18.8.2011 17:02
Breivik hringdi til að gefa sig fram - samtölin í heild sinni Norska lögreglan birti í dag símtal Anders Behring Breivik við neyðarlínuna í Noregi þann 22. júlí síðastliðinn. Breivik hringdi með það í huga að gefa sig fram, en rúmum hálftíma áður hafði lögreglan í Noregi fengið tilkynningu um skotárás í Útey. Breivik reyndi tíu sinnum að hringja en náði aðeins sambandi tvisvar. Erlent 18.8.2011 16:22
Sjö látnir í Ísrael Árásirnar í Ísrael í morgun eru þær blóðugustu í yfir tvö ár þar í landi. Sjö Ísraelar létust og um tuttugu særðust. Árásirnar voru þríþættar. Fyrst var skotið á rútubifreið sem innihélt venjulegt fólk og hermenn. Þá var sprengju skotið á fólksbíl og loks sprakk sprengja í vegarkanti þegar hermenn á leið á árásarstaðina fóru hjá. Erlent 18.8.2011 15:07
Skotland krefur Shell upplýsinga Skoska ríkisstjórnin hefur krafist frekari upplýsinga um versta olíuleka síðasta áratugar í norðurhöfum. Eins og fréttastofa hefur áður greint fóru pípur í sundur á einum olíuborpalla Shell útaf ströndum Skotlands í síðustu viku. Fyrirtækið hefur enn ekki komist fyrir lekann, en hann er nú töluvert minni en hann var í upphafi. Þegar hafa 13.0000 tunnur af olíu, sem nemur um 200 þúsund lítrum, farið í sjóinn. Talið er að um 4000 tunnur séu enn eftir í pípunum, eða 62 þúsund lítrar. Erlent 18.8.2011 14:36