Erlent

Reyna að afnema „lög um afnám ofbeldis gegn konum"

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi formaður nefndar Sameinuðu þjóðanna - UN Women í Afganistan, fundaði í gær með forseta afganska þingsins þegar útlit var að ,,lögum um afnám ofbeldis gegn konum" yrði hafnað.

Erlent

Vilja fá forseta Ítalíu sem vitni í mafíumáli

Ákæruvaldið á Ítalíu vill kalla hinn tæplega 88 ára gamla forseta landsins, Giorgio Napolitano, fyrir sem vitni í komandi dómsmáli um leynisamninga sem hið opinbera gerði við mafíuna á síðasta áratug síðustu aldar.

Erlent

Verðmætum skartgripum stolið í Cannes

Skartgripum fyrir tæplega 125 milljónir króna var stolið af hótelherbergi í Cannes aðfaranótt föstudags. Þjófarnir þekktu líklega vel til og voru skipulagðir, að sögn lögreglu. Þeir höfðu ekki fundist í gærkvöldi.

Erlent

Beyoncé ófrísk

Söngstjarnan Beyoncé Knowles á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum rapparanum Jay-Z. Þetta hefur bandaríska slúðurfréttasíðan E! eftir nokkrum heimildarmönnum.

Erlent

Tyrkland hættir við Eurovision vegna finnska kossins

Tyrklenska sjónvarpið hefur ákveðið að hætta við að sýna frá aðalkeppni Eurovison á morgun. Ástæðan ku vera ótti við að finnska söngkonan Krista Siegrids muni kyssa kvenkyns dansara í beinni útsendingu, en lag hennar er ádeila á stöðu hjónabanda samkynhneigðra.

Erlent

GSM-bylgjur hafa veruleg áhrif á lífverur

Rannsókn stúlkna í níunda bekk í Danmörku sýnir að rafbylgjur hafa veruleg áhrif á lífverur. Börnin ákváðu að ráðast í tilraunina eftir að þau áttuðu sig á því að þau áttu erfitt með að festa svefn þegar þau lögðust til hvílu með farsímann sinn við hliðina á höfðinu. Ef þau náðu að sofna með símann við hliðina á sér áttu þau erfitt með að einbeita sér í skólanum daginn eftir.

Erlent

Draugur á krá í Devon

Svo virðist sem draugur sé fastagestur á rugbybar í Devon. Myndir hafa náðst af bjöllu sem hringir og finnast engar skýringar á því aðrar en draugagangur.

Erlent

Páfi fordæmir efnishyggjuna

Frans 1 páfi hefur lýst því yfir að efnishyggja og hið alþjóðlega fjármálakerfi sé við að breyta manneskjum í markaðsvarning.

Erlent

Danskir nasistar

Yfir þúsund ómetanleg skjöl hurfu á þriggja ára tímabili af Þjóðskjalasafni í Sjálandi. Skjölin fjalla öll um danska nasista á tímum seinni heimstyrjaldarinnar.

Erlent