Erlent

Lieberman sýknaður

Avigdor Lieberman getur tekið aftur við embætti utanríkisráðherra í Ísrael, verði úrskurði undirréttar ekki áfrýjað.

Erlent

Dularfulla stúlkan sennilega frá Ástralíu

Lögreglan í Dyflinni segist vera búin að komast að uppruna stúlkunnar dularfullu, sem fannst ráfandi um götur borgarinnar fyrir um mánuði síðan. Hún er talin vera frá Ástralíu og 19 eða 20 ára gömul.

Erlent

Bill de Blasio verður næsti borgarstjóri í New York

Demókratinn Bill de Blasio virðist hafa farið með öruggan sigur af hólmi í borgarstjórakosningunum í New York í gær. Hann tekur því við af forvera sínum, Michael Bloomber og verður fyrsti demókratinn til þess að stjórna þessari miklu stórborg í tvo áratugi.

Erlent

Ætla að bólusetja milljónir sýrlenskra barna

Tíu staðfest tilfelli af mænusótt meðal sýrlenskra barna vekja ugg. Sjúkdómsins hafði ekki orðið vart í landinu í fjórtán ár. Talsmaður UNICEF segir að bólusetningar barna á hrjáðum svæðum séu lykilatriðið í baráttunni.

Erlent

Dularfulla stúlkan hefur ekkert tjáð sig í mánuð

„Þekkir þú þessa stúlku?“ segir í tilkynningu frá lögreglunni í Dyflinni sem birti í gær myndir af stúlku einni sem fannst ráfandi og ringluð í borginni fyrir tæpum mánuði. Frá þessu segir á fréttavef Sky. Hún hefur ekkert tjáð sig við lögreglu síðan hún fannst, en líklegt þykir að hún sé erlend, mögulega frá Austur-Evrópu.

Erlent

Lokkuðu ólögráða stúlkur í hópkynlíf með áfengi

Hópur nýsjálenskra unglingspilta sem kallar sig "The Roast Busters“ hefur fengið stúlkur undir lögaldri til lags við sig með því að gefa þeim áfengi. Þeir lýsa aðförunum á opinni Facebook síðu sem þeir hafa haldið úti í um tvö ár.

Erlent

150 hermenn dæmdir til dauða í Bangladesh

Dómstóll í Bangladesh dæmdi í morgun að minnsta kosti hundrað og fimmtíu hermenn til dauða vegna uppreisnar sem gerð var á landamærastöð árið 2009. Rúmlega hundrað og fimmtíu hermenn til viðbótar fengu lífstíðardóma auk þess sem tugir óbreyttra borgara voru dæmdir fyrir að aðild sína að uppreisninni. Hermennirnir gerðu uppreisn til að mótmæla lélegum launum í hernum og áður en yfir lauk lágu sjötíu og fjórir í valnum, flest allir þeirra voru yfirmenn.

Erlent

Myrti þrjá í Noregi

Maður um þrítugt myrti þrjár manneskjur um borð í rútu sem var á leið á milli norsku bæjanna Ardal og Tyin í Sognsfirði í vesturhluta landsins um kvöldmatarleitið í gær. Þau sem létust voru nítján ára gömul stúlka og tveir menn á sextugsaldri og var annar þeirra rútubílstjórinn og hinn sænskur ríkisborgari.

Erlent

Fjörutíu prósent Sýrlendinga eru hjálparþurfi

Rúmlega níu milljónir Sýrlendinga, eða um fjörutíu prósent landsmanna, þurfa nú nauðsynlega á utanaðkomandi hjálparaðstoð að halda. Þetta fullyrðir yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, Valerie Amos.

Erlent

Breyting gagnast ekki erfiðum nemendum

Jan Björklund, menntamálaráðherra Svíþjóðar, hyggst leggja til breytingar á lögum þannig að sameiginlegt inntökukerfi verði fyrir sjálfstæða grunnskóla og grunnskóla sveitarfélaganna.

Erlent

1.500 listaverk sem nasistar rændu fundin

Listaverkin 1.500 sem talið er að hafi verið gerð upptæk af Nasistum hafa fundist í München í Þýskalandi. Talið er að meðal verkana séu málverk eftir Matisse, Picasso, og Chagall.

Erlent