Fótbolti
Umfjöllun: Valsarar tóku Keflvíkinga í kennslustund Valsarar tóku Keflvíkinga í kennslustund suður með sjó í kvöld. Frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu voru Keflvíkingar í eltingaleik við spræka Valsara sem unnu að lokum 2-0 sigur. Lokatölurnar gefa þó ekki rétta mynd af yfirburðum Valsmanna sem voru algjörir. Íslenski boltinn 30.6.2011 15:25
Umfjöllun: Naum forysta ÍBV fyrir Írlandsferðina Eyjamenn mega vera nokkuð sáttir við að hafa unnið 1-0 sigur á írska liðinu St. Patrick's Athletic í forkeppni Evrópudeildar UEFA í dag. Andri Ólafsson skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Fótbolti 30.6.2011 15:16
Clichy líklega á leiðinni til Man City Gaël Clichy er að öllum líkindum á förum frá Arsenal. Vinstri bakvörðurinn frá Frakklandi er samkvæmt enskum fjölmiðlum á góðri leið með að semja við Manchester City og kaupverðið um 7 milljónir punda eða 1,3 milljarðar kr. Clichy á eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal en hann er 25 ára gamall. Franska liðið Paris Saint-Germain og Liverpool á Englandi höfðu einnig sýnt honum áhuga. Enski boltinn 30.6.2011 15:15
Bendtner sleppti EM og skemmti sér í Vegas á meðan Nicklas Bendtner, framherji enska liðsins Arsenal, fær mikla gagnrýni í dönskum fjölmiðlum þessa dagana. Dagblaðið BT greindi frá því að Bendtner hafi valið það að skemmta sér í Las Vegas í Bandaríkjunum með vinum sínum í stað þess að leika með danska U21 árs landsliðinu í úrslitum Evrópumótsins. Enski boltinn 30.6.2011 14:30
Robinho er markahæsti leikmaðurinn í liði Brasilíu Hinn 27 ára gamli Brasilíumaður Robinho er á meðal þeirra reynslumestu í landsliði Brasilíu sem hefur leik á Copa America á sunnudaginn gegn Venesúela. Robinho hefur komið víða við á ferlinum en hann er samningsbundinn Inter á Ítalíu en hann var um tíma hjá Manchester City á Englandi og Real Madrid á Spáni. Fótbolti 30.6.2011 12:00
Jósef vill losna undan samningi við búlgarska liðið Jósef Kristinn Jósefsson, fyrrum leikmaður Grindavíkur, hefur æft með sínu gamla liði að undanförnu en hann vill losna undan samningi sínum við búlgarska liðið PSFC Chernomorets Burgas. Bakvörðurinn segir í samtali við fotbolti.net að félagið hafi ekki staðið við samninginn sem gerður var í febrúar s.l. og vonast Jósef eftir því að samningnum verði rift. Íslenski boltinn 30.6.2011 11:15
Sigurmarkið hjá Birni Bergmann, myndband Björn Bergmann Sigurðarson tryggði Lilleström 2-1 sigur í gær gegn Start á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta og segir Skagamaðurinn að markið sé það besta á ferlinum. Fótbolti 30.6.2011 10:30
Pedroza samdi við Tottenham Antonio Pedroza frá Mexíkó hefur staðfest við fjölmiðla í heimalandinu að hann hafi samið við enska úrvalsdeildarliði Tottenham. Pedroza er tvítugur framherji og lék hann áður með Jaguares í Mexíkó. Enski boltinn 30.6.2011 09:45
Utan vallar: Flotið sofandi að feigðarósi Miðvikudagurinn 29. júní 2011 er svartur dagur í íslenskri knattspyrnusögu. Þá hrundi íslenska karlalandsliðið niður í 122. sætið á styrkleikalista alþjóða knattspyrnusambandsins. Versti árangur Íslands á listanum fram að þessum degi var 117. sæti. Ekki er hægt að segja að listinn sé marklaus. Hann tekur mið af árangri landsliðanna og árangur Íslands síðustu ár er nákvæmlega enginn. Íslenski boltinn 30.6.2011 08:30
Fuglafirðingar á lágflugi í Færeyjum KR hefur í kvöld keppni í undankeppni Evrópudeildar UEFA þegar liðið mætir ÍF Fuglafjørður í Þórshöfn í Færeyjum. Liðin mætast svo aftur í næstu viku en þá á KR-vellinum. Íslenski boltinn 30.6.2011 08:00
Niðurlægjandi að þurfa að spila leikinn í bænum "Þetta er stór stund fyrir okkur hjá ÍBV en það er ekki hægt að neita því að það er niðurlægjandi að þurfa að koma í bæinn til þess að spila Evrópuleik,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, en hans lið tekur á móti írska liðinu Saint Patrick's í Evrópudeildinni í kvöld. Leikurinn fer fram á heimavelli Vals, Vodafone-vellinum. Íslenski boltinn 30.6.2011 07:30
Kristinn Steindórsson: Rölti bara um völlinn og þefa af honum Kristinn Steindórsson, besti leikmaður 8.umferðar Pepsi-deilar karla að mati Fréttablaðsins, hefur farið á kostum með Breiðabliki í deildinni í sumar og skorað átta mörk eða mark að meðaltali í leik. Öll mörkin hafa komið á heimavelli en Kristinn kann vel við sig á vellinum enda starfar hann þar. Hann segist vera í nánum tengslum við völlinn. Íslenski boltinn 30.6.2011 07:00
Frank Rijkaard að taka við landsliði Sádi-Arabíu Hollendingurinn Frank Rijkaard er í þann mund að taka við starfi landsliðsþjálfara Sádi-Arabíu í knattspyrnu. Rijkaard hefur verið atvinnulaus síðan hann hætti sem þjálfari Galatasaray í Tyrklandi um mitt síðasta tímabil. Fótbolti 30.6.2011 06:00
Færeyingar monta sig af því að vera betri en Íslendingar í fótbolta Frændur okkar Færeyingar eru í skýjunum með nýjan styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Á íþróttasíðunni sportal.fo slá Færeyingar því upp að samkvæmt listanum séu Færeyingar betri en Íslendingar í knattspyrnu. Fótbolti 29.6.2011 23:30
Barcelona býður 35 milljónir punda í Fabregas Evrópumeistarar Barcelona eru ekki búnir að gefast upp á Cesc Fabregas miðjumanni Arsenal. Börsungar hafa hækkað boð sitt í spænska landsliðsmanninn og vona að 35 milljónir punda dugi til þess að ná leikmanninum aftur heim til Barcelona. Enski boltinn 29.6.2011 22:45
Víkingur sigraði KA - HK náði í stig gegn Haukum Tveir leikir fóru fram í 9. umferð 1. deildar í knattspyrnu í kvöld. Í Ólafsvík sigruðu heimamenn KA 2-1 eftir að hafa lent marki undir og á gervigrasinu í Hafnarfirði skildu Haukar og HK jöfn 1-1. Íslenski boltinn 29.6.2011 22:22
Björn Bergmann með sigurmark - Stefán Logi sá rautt Íslendingarnir Björn Bergmann Sigurðarson og Stefán Logi Magnússon komu heldur betur við sögu í 2-1 sigri Lilleström á Start í norska boltanum í kvöld. Stefán Logi fékk rautt spjald á 77. mínútu og Björn Bergmann skoraði sigurmarkið á lokamínútu leiksins. Fótbolti 29.6.2011 21:33
James tekur eitt ár í viðbót með Bristol City Hinn fertugi David James hefur skrifað undir eins árs samning við enska B-deildarfélagið Bristol City sem hann lék með á síðustu leiktíð. Enski boltinn 29.6.2011 21:15
Rooney orðaður við Birmingham Forráðamenn Birmingham eru sagðir hafa áhuga á að fá Írann Adam Rooney til liðs við sig. Sá er framherji og lék síðast með Inverness CT í skosku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 29.6.2011 20:30
Brasilía og Noregur unnu leiki sína með minnsta mun Brasilía og Noregur lentu í óvæntu basli með mótherja sína á heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu en leikið var í D-riðli í dag. Fyrstu umferð riðlakeppninnar lauk með leikjum dagsins. Fótbolti 29.6.2011 20:08
Kolbeinn í hópi bestu leikmanna EM U-21 Knattspyrnusamband Evrópu hefur tilkynnt hvaða 24 leikmenn eru í liði Evrópumeistaramóts U-21 liða að mati starfsmanna sambandsins. Íslenska liðið á einn fulltrúa í liðinu - sóknarmanninn Kolbein Sigþórsson. Fótbolti 29.6.2011 19:30
Jóhannes Karl og Vanda láta af störfum hjá Breiðabliki Knattspyrnudeild Breiðabliks sendi frá sér fréttatilkynningu fyrir stundu þess efnis að Jóhannesi Karli Sigursteinssyni aðalþjálfara og Vöndu Sigurgeirsdóttur aðstoðarþjálfara hefði verið sagt upp störfum hjá meistaraflokki félagsins. Íslenski boltinn 29.6.2011 19:07
Móður Ríkharðs dreymdi að hann myndi skora fimm mörk Í dag eru liðin 60 ár frá því að íslenska landsliðið í knattspyrnu bar sigurorð af Svíum 4-3 á Melavellinum. Skagamaðurinn Ríkharður Jónsson skoraði öll mörk Íslendinga en sigursins er minnst sem eins þess merkilegasta í íslenskri knattspyrnusögu. Íslenski boltinn 29.6.2011 19:00
Geir: Færeyingar ekki betri en við í fótbolta Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir það dapurt hversu neðarlega íslenska landsliðsins er fallið á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA. Ísland hefur aldrei verið neðar á listanum en liðið situr nú í 122. sæti hans. Íslenski boltinn 29.6.2011 18:45
Syndaselirnir í mexíkóska landsliðinu fengu sex mánaða bann Þeir átta leikmenn sem voru reknir úr mexíkóska landsliðshópnum nú fyrir skömmu hafa verið dæmdir í sex mánaða bann af knattspyrnusambandi landsins. Refsinguna fá þeir fyrir að hafa fengið vændiskonur til að mæta á hótel þeirra í Ekvador um helgina, þar sem liðið er nú að undirbúa sig fyrir Copa America. Fótbolti 29.6.2011 18:00
Eigandi Birmingham City handtekinn Carson Yeung eigandi enska knattspyrnufélagsins Birmingham City hefur verið handtekinn af lögregluyfirvöldum Hong Kong. Hann er sakaður um aðild að peningaþvotti. Enski boltinn 29.6.2011 17:45
Thiago samningsbundinn Barcelona til 2015 Spænska stórliðið Barcelona var ekki lengi að tryggja það að ungstirnið Thiago Alcantara sé ekki á leið neitt annað á næstu árum. Hann skrifaði í dag undir nýjan samning sem gildir til ársins 2015. Fótbolti 29.6.2011 17:15
Sunderland klófesti Wickham Einn eftirsóttasti táningur Bretlandseyja, Connor Wickham, gekk í dag til liðs við Sunderland sem keypti hann fyrir 8,1 milljón punda frá Ipswich. Kaupverðið getur hækkað upp í tólf milljónir punda ef honum gengur vel hjá Sunderland. Enski boltinn 29.6.2011 16:30
PSG vill fá Clichy Það er enn rætt um framtíð Gael Clichy hjá Arsenal en jafnvel er búist við því að hann yfirgefi Lundúnafélagið í sumar eftir átta ára vist undir væng Wenger. Enski boltinn 29.6.2011 15:00
Maicon mun ekki yfirgefa Inter Umboðsmaður brasilíska bakvarðarins Maicon hjá Inter segir það ekki vera í spilunum að skjólstæðingur sinn fari til Spánar eins og fjölmiðlar hafa verið að gefa í skyn síðustu daga. Fótbolti 29.6.2011 14:15