Sport

Anna Sólveig byrjar best hjá konunum

Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili er með eitt högg í forskot eftir fyrstu átta holurnar á lokadegi Íslandsmótsins í höggleik en Anna Sólveig hefur leikið átta fyrstu holur dagsins á einu höggi undir pari. Útsending Stöð 2 Sport og Vísis frá lokadeginum hefst klukkan 15.00.

Golf

Wilshere spilar ekkert fyrr en í október

Endurkomu Jack Wilshere seinkar enn og nýjustu fréttir af stráknum eru þær að hann verði ekkert með Arsenal-liðinu fyrr en í fyrsta lagi í október. Wilshere missti af öllu síðasta tímabili og hefur hvað eftir annað orðið fyrir bakslagi í endurkomu sinni inn á fótboltavöllinn.

Enski boltinn

Hamilton vann ungverska kappaksturinn

Lewis Hamilton leiddi ungverska kappaksturinn frá ræsingu og kom fyrstur yfir marklínuna nú rétt í þessu. Kimi Raikkönen ók frábærlega og endaði annar eftir að hafa sett þónokkra pressu á Lewis undir lok kappakstursins.

Formúla 1

Aron: Er enn góður í hnénu

Aron Pálmarsson spilaði mikið með Íslandi í dag þrátt fyrir hnémeiðsli sín og er greinilega allur að koma til. Ísland vann í dag góðan sigur á Argentínu.

Handbolti

Umfjöllun: Ísland - Argentína 31-25 | Fyrstu stigin í húsi

Íslenska handboltalandsliðið fór yfir fyrstu hindrun í handboltakeppni Ólympíuleikanna eftir sex marka sigur á Argentínumönnum, 31-25, í Koparkassanum í London í morgun. Íslenska liðið var með frumkvæðið í leiknum fyrir utan fyrstu tíu mínútur leiksins og þrátt fyrir að sigurinn hafi aldrei verið í hættu þá var hann aldrei í höfn fyrr en í lokin.

Handbolti

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - Stjarnan 3-3

Ingimundur Níels Óskarsson tryggði Fylkismönnum stig á móti Stjörnunni í 13. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld þegar hann jafnaði metin í 3-3 átta mínútum fyrir leikslok. Stjörnumenn hefðu náð toppliði KR að stigum með sigri en eins og áður í sumar þá gengur þeim illa að komast í tæri við toppsætið. Fylkismenn sýndu mikinn karakter með því að jafna metin þrisvar sinnum.

Íslenski boltinn

Shevchenko skiptir fótboltanum út fyrir pólitíkina

Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hefur ákveðið að leggja fótboltaskóna á hilluna og snúa sér að stjórnmálum í heimalandinu. Hann tilkynnti þetta formlega í fréttatilkynningu seint í gærkvöldi sem var send í gegnum félag hans Dynamo Kyiv.

Fótbolti

Mancini: Það eru nýir leikmenn á leiðinni á næstu tveimur vikum

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, hefur verið rólegur á leikmannamarkaðnum það sem af er sumars en hann boðar leikmannakaup á næstu tveimur vikum í viðtali við Sky Sports. City-menn hafa verið óhræddir við að eyða pening í leikmenn undanfarin sumur og því hefur komið á óvart hversu rólegir þeir hafa verið í sumar.

Enski boltinn

Fimm þjóðir komnar áfram í kvennafótboltanum á ÓL

Fimm þjóðir eru búnar að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum í kvennafótboltakeppni Ólympíuleikanna og það þótt að enn sé ein umferð eftir. Bandaríkin, Brasilía, Bretland, Svíþjóð og Japan eru öll komin í átta liða úrslitin eftir leiki dagsins.

Fótbolti

Keilis-systkinin með tólf fugla saman í dag

Rúnar Arnórsson og Signý Arnórsdóttir systir hans voru í miklu fuglastuði á þriðja degi Íslandsmótsins í höggleik í dag. Rúnar fékk sjö fugla og Signý var með fimm fugla. Rúnar er í efsta sæti hjá körlunum en Signý er sjötta hjá konunum.

Golf

Haraldur Franklín: Fór í fisk til ömmu í gær

Haraldur Franklín Magnús úr GR átti frábæran dag á Íslandsmótinu í höggleik á Hellu en hann fékk tvo erni og fimm fugla og lék hringinn á sex höggum undir pari. Haraldur Magnús er jafn Rúnari Arnórssyni í efsta sæti fyrir lokadaginn. Haraldur var í viðtali hjá Sigurði Elvari Þórólfssyni í útsendingu Stöðvar 2 Sport frá mótinu.

Golf

Oscar til í að spila hvar sem er á vellinum hjá Chelsea

Brasilíumaðurinn Oscar, nýjasti meðlimur Evrópumeistaraliðs Chelsea, segist vera að til í að spila hvar sem er á vellinum hjá Chelsea eða bara sem að Roberto Di Matteo vill láta hann spila. Chelsea keypti kappann frá Internacional í vikunni en hann er þessa stundina á fullu með Ólympíuliði Brasilíumanna.

Enski boltinn

Tinna: Pútterinn var heitur

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili lék best allra í kvennaflokki á þriðja degi Íslandsmótsins í höggleik og hún var í viðtali hjá Sigurði Elvari Þórólfssyni í útsendingu Stöð 2 Sport frá mótinu. Tinna er einu höggi á eftir Valdísi Þóru fyrir lokadaginn.

Golf

Valdís Þóra á eitt högg á Tinnu fyrir lokadaginn

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er með eitt högg í forskot á Tinnu Jóhannsdóttur úr Keili fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Strandarvelli á Hellu. Þær voru fyrst skráðar jafnar en þegar betur var að gáð kom í ljós að mótshaldarar voru ekki með rétt skor skráð á Tinnu.

Golf

Pistill: Óskiljanlegar ákvarðanir

Ólíklegt er að hornamaðurinn Þórir Ólafsson hafi jafnað sig á því að hafa ekki verið valinn í landsliðshóp Íslands í handbolta fyrir Ólympíuleikana í handbolta. Skyldi engan undra.

Handbolti