Bókmenntir

Fréttamynd

„Tárin streymdu niður vangana á mér“

„Tárin streymdu niður vangana á mér. Pabbi kveikti á útvarpinu og stillti á fréttirnar sem fjölluðu næstum því bara um Grindavík og jarðskjálftana. Út um gluggann horfði ég á hraunið okkar. Mér hafði alltaf þótt það fallegt en nú var það líka óhugnanlegt.“

Lífið
Fréttamynd

Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi

Írski metsöluhöfundurinn Sally Rooney hefur tekið bækurnar sínar úr sölu í Bretlandi. Hún styrkir samtök sem styðja Palestínu en eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Bretlandi.

Erlent
Fréttamynd

Menningarsprautur í hvísluleik

Óvenjulegt útgáfuhóf fór fram í Listasafni Einars Jónssonar á fimmtudag þegar ljóðabókin Hverfa eftir Melkorku Ólafsdóttur kom út. Hófið hófst á gjörningi myndlistarmannsins Haraldar Jónssonar sem hvíslaði óræðum orðum að gestum meðan ljóðskáldið lék á flautu úr fjarlægum sölum og las svo upp úr bókinni.

Menning
Fréttamynd

Boxar til að halda sjúk­dómnum í skefjum

Nóbelsverðlaunahafinn Anne Carson segist hafa slysast út í skrifin og geti ekki hætt úr þessu. Ekkert sem hún geri sé úthugsað og yfirleitt rambi hún á góðar hugmyndir. Hún og maður hennar keyptu sér íbúð á Ægisíðu og urðu íslenskir ríkisborgarar árið 2022 eftir að hafa heimsótt landið reglulega frá árinu 2008. Íslendingar hafi tekið þeim opnum örmum en því fylgir einmanaleiki að tala ekki tungumálið. Carson greindist með Parkinsons-sjúkdóm fyrir þremur árum og heldur honum í skefjum með boxi, sundi og spinning-tímum.

Menning
Fréttamynd

Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný

„Ég áttaði mig ekki á því fyrr en eftir að bókin kom út hvað það hefur verið íþyngjandi og lýjandi að bera harm sinn í hljóði svona lengi. Ég skil vel af hverju ég gerði það fyrst um sinn því ég hefði bara ekki getað höndlað það. Núna finnst mér ég í fyrsta skipti í mörg ár geta borið höfuðið hátt,“ segir rithöfundurinn, listamaðurinn og danshöfundurinn Margrét Bjarnadóttir.

Lífið
Fréttamynd

Verð­launin ráð­gáta og til­finningin klikkuð

Kanadísk-íslenski rithöfundurinn Anne Carson hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum í morgun. Hún hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022 og hefur síðan þá búið hluta ársins hérlendis á heimili sínu á Ægisíðu. Carson sagði að það væri henni ráðgáta hvers vegna verðlaunin hefðu fallið henni í skaut.

Lífið
Fréttamynd

Anne Carson hlýtur bók­mennta­verð­laun Nóbels

Kanadíski rithöfundurinn Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en hún býr að hluta til á Íslandi og hlaut íslenskan ríkisborgararétt árið 2022. Carson er rithöfundur, þýðandi og prófessor í klassískum fræðum og er þekkt fyrir að blanda saman ljóðum, prósa og goðafræði í verkum sínum.

Menning
Fréttamynd

Um­deildur metsölu­höfundur látinn

Breski metsöluhöfundurinn og uppgjafarstjórnmálamaðurinn Jeffrey Archer er látinn, 86 ára að aldri. Hann gaf út skáldsögur sem nutu mikilla vinsælda eftir að stjórnmálaferli hans lauk með skömm.

Erlent
Fréttamynd

Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur

Tökur standa nú yfir á Íslandi á þriðju þáttaröð af Netflix þáttunum Four Seasons, en mikill viðbúnaður er á Skólavörðustíg og Klapparstíg þar sem tökur fara fram í dag. Barnabókahöfundarnir Gunnar Theodór Eggertsson og Linn Janssen vissu ekki hvar á sig stóð veðrið þegar Hollywood stjarnan Tinna Fey kíkti í útgáfuhóf þeirra í gær.

Lífið
Fréttamynd

Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu

Gilhagi ehf., félag Arnalds Indriðasonar rithöfundar, hagnaðist um 113 milljónir árið 2025 og á tæplega 1,4 milljarða í hreina eign. Fyrirtæki Yrsu Sigurðardóttur rithöfundar, Yrsa Sigurðardóttir ehf., hagnaðist um rúmar tuttugu milljónir sama ár. 

Lífið
Fréttamynd

Yfir sjö­hundruð manns keypt af Guðna í forsölu

Ný viðhafnarútgáfa Njálu frá Guðna Ágústssyni og félögum í Njálufélaginu hefur selst upp eins og heitar lummur í forsölu. Guðni segir þetta til marks um hve djúpt Brennu-Njáls saga risti í rótum þjóðarsálarinnar en Njálufélagið hefur ekki gefið út bók áður.

Lífið
Fréttamynd

Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi

Ég keypti mér nýverið stóran dall af fæðubótarefninu kreatíni – ég hafði heyrt að það væri miðaldra konum allra meina bót. Þegar efnið fór að valda mér óþægindum í maga gerði ég það sem hvaða heilvita manneskja hefði gert: Ég fór aftur í búðina og keypti dall af ennþá dýrara kreatíni.

Lífið
Fréttamynd

Var­kár Magga Bjarna fyllti Tjarnar­bíó

Margrét Bjarnadóttir gaf út Varkára, sína fyrstu skáldsögu, á dögunum og hélt útgáfuhóf af því tilefni í Tjarnarbíói síðastliðinn föstudag. Fjöldi góðra gesta úr dans- og bókmenntaheiminum litu við, fögnuðu með Margréti og fylltu Tjarnarbíó.

Menning
Fréttamynd

Bókin er betri!

Þegar spjallað er um kvikmyndir eða leikrit sem gerð eru eftir bókum er viðkvæðið oft að bókin hafi verið betri. Þetta er ekki rifjað upp til að kasta rýrð á leikhús eða bíó heldur til að benda á hvað bækur geta best af öllu: segja flókna sögu með öllum sínum blæbrigðum og láta nýja og óþekkta heima lifna í huga þess sem les.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“

Ný skáldsaga Þorgríms Þráinssonar, Ég kom til að gráta, á rætur í banaslysi sem hann heyrði um sem ellefu ára drengur í Ólafsvík. Slysið sat í honum frá barnsaldri en 37 ár liðu frá því að hann fór fyrst að punkta hjá sér hugmyndir að sögunni þar til hún varð að bók.

Lífið
Fréttamynd

Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga

Saga sem hefur farið eins og eldur í sinu síðustu daga og vikur reyndist vera flökkusaga sem hefur tekið stakkaskiptum í meðferð almennings líkt og um stærðarinnar hvísluleik væri að ræða. Sagan minnir því nánast á þjóðsögu.

Lífið
Fréttamynd

Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna

Hvernig fangar maður veitingastað í bók? Þegar Þröstur Valgarðsson sá um að prenta matseðla fyrir veitingastaðinn Hosiló fékk hann einmitt þá hugmynd. Yfir nokkurra mánaða skeið fór hann reglulega á vettvang, fékk sér mat, tók ljósmyndir og kom fyrir diktafónum til að taka upp samtöl starfsmanna. Afraksturinn er 212 síðna sjónræn frásögn um Hosiló.

Lífið
Fréttamynd

Biður Loga af­sökunar „á dónaskapnum“

Gunnar Helgason rithöfundur biður Loga Einarsson menningarmálaráðherra afsökunar eftir að hafa farið ófögrum orðum um hann. Ástæðan var niðurskurður Bókasafnssjóðsins um tugi milljóna.

Innlent
Fréttamynd

„Við skulum bara spyrja að leiks­lokum“

Barnabókahöfundur segir nóg komið eftir að Bókasafnssjóður var skorinn niður um tugi milljóna króna. Menningarráðherra segir aukið fjármagn til bókmennta væntanlegt og því skuli spyrja að leikslokum.

Innlent
Fréttamynd

„Við erum að búa til sam­fé­lag hálf­vita“

Gunnar Helgason rithöfundur segir að það sé verið að búa til „samfélag hálfvita“ þegar framlög til Bókasafnssjóðs séu skorin niður. Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi verður Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Hann segir þetta koma niður á barnabókahöfundum sérstaklega en þeir standi aðeins jafnfætis öðrum höfundum þegar kemur að greiðslum úr sjóðnum.

Innlent
Fréttamynd

Ó­líkt hafast þeir að for­setarnir fyrr­verandi

Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti lýðveldisins og prófessor í sagnfræði, hefur tekist á hendur mikið verk sem er að skrásetja hvað gekk á í þorskastríðunum. Að efni til kallast bókin óbeint á við nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðna finnst þægilegt að fela sig í fortíðinni öfugt við annan fyrrverandi forseta sem heitir Ólafur Ragnar Grímsson. Honum finnst hann enn fulltrúi afla sem hann er ósammála og geti því ekki tjáð sig fyrirvaralaust.

Lífið