Látrabjarg

Fréttamynd

Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum?

Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir vestasta og þéttbýlasta svæði landsins, yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Hann nemur fyrst land á Íslandi við Straumnesvita á Hornströndum sautján mínútur í sex að kvöld til en þar stendur hann yfir í tæpa eina og hálfa mínútu. Myrkvinn stendur lengst yfir við Látrabjarg eða í tvær mínútur og þrettán sekúndur. 

Innlent
Fréttamynd

Mann­fjöldinn á Vest­fjörðum marg­faldast vegna almyrkvans

Fjöldi fólks á Vestfjörðum margfaldast í dag þegar ferðamenn streyma á svæðið til að fylgjast með almyrkvanum. Mest er álagið á sunnanverðum fjörðunum en Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir viðbúnað ganga samkvæmt áætlun.

Innlent
Fréttamynd

Umferðarstýring gangi vel og öku­menn hlýði einstefnu

Arna Margrét Arnardóttir, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar, er í Breiðuvík þar sem búið er að koma upp vettvangsstjórn fyrir björgunarsveitir á svæðinu. Hún segir morguninn byrja vel í umferðarstýringu. Einstefna er komin á. 

Innlent
Fréttamynd

Veg­far­endur gefi sér góðan tíma til ferða­laga í dag

Vegagerðin hefur tekið saman þær takmarkanir sem verða á vegum landsins vegna almyrkvans, síðdegis í dag miðvikudaginn 12. ágúst. Vegfarendur eru vegfarendur beðnir um að hafa í huga að búist er við mikilli umferð á vegum landsins, gefa sér góðan tíma til ferðalaga, skipuleggja sig vel og leggja tímanlega af stað.

Innlent
Fréttamynd

Fjór­falt fleiri lög­reglu­menn vakta Vest­firði

Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi.

Innlent
Fréttamynd

Huga þurfi líka að heim­ferðinni

Sviðsstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra ráðleggur fólki að huga að heimleið ætli það að ferðast til þess að bera almyrkvann augum. Mikilvægt sé að undirbúa sig vel.

Innlent
Fréttamynd

Páll biður ein­hvern að forða því að Ís­land verði að at­hlægi

Páll Einarsson jarðfræðingur biðlar til þeirra sem hafa með skiltið við Bjargtanga að gera að það verði lagfært áður en útlendingar furða sig á landafræðikunnáttu Íslendinga. Sá sem setti skiltið upp segir að þetta sé gamall barnaskólalærdómur sem hafi verið innprentaður í barnsminnið.

Innlent
Fréttamynd

„Deilum við Norð­menn um meira en síld og makríl“

Ef vel tekst til getur almyrkvi á sólu verið gríðarleg markaðssetning á landinu og mikilvægt að stjórnvöld nýti tækifærið og fjárfesti í ferðaþjónustunni og markaðssetningu á landinu. Þetta segir formaður fyrirtækja í hótelrekstri.

Innlent
Fréttamynd

Skipa stýri- og að­gerða­hóp vegna al­myrkvans en eiga ekki fyrir verk­efna­stjóra

Forsætisráðherra skipaði í vikunni stýrihóp innan Stjórnarráðsins til að samhæfa og samræma undirbúning fyrir almyrkva 12. ágúst 2026. Með stýrihópnum mun starfa aðgerðahópur undir forystu almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og mun dómsmálaráðherra skipa þann hóp. Fram kemur í svarinu að þörf sé á að tryggja að verkefnastjóri verði til starfa hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra en að ekki sé til fjármagn fyrir því innan dómsmálaráðuneytisins. 

Innlent
Fréttamynd

Látra­bjarg frið­lýst

Umhverfisráðherra skrifaði undir friðlýsingu Látrabjargs, eins stærsta fuglabjargs Evrópu í dag. Markmið friðlýsingarinnar er sagt að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla.

Innlent