Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifa 25. október 2026 10:02 Í samráðsgátt stjórnvalda liggja drög að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030. Markmiðin þar eru skýr er varðar læsi, að 65% fimmtán ára nemenda nái grunnhæfni í lesskilningi sem var 56% í PISA 2025. Gera á langtímaáætlun um læsi, sem ráðuneytið kallar „eitt brýnasta verkefni samfélagsins“. Þar segir að barn sem ekki les sér til gagns getur hvorki tileinkað sér vísindi, notið lista né tekið þátt í lýðræðislegri umræðu. Við tökum undir hvert orð en bendum á að á sama tíma er Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum króna í 142,3 milljónir sem er nærri 37% lækkun. Lestur er lýðheilsa Úr Bókasafnssjóði fá höfundar, þýðendur og myndhöfundar greitt fyrir hvert útlán á bókasöfnum, óháð lengd bókarinnar. Barnabækur eru frekar ódýrar, upplagið lítið og hljóðbókaveitur greiða eftir lengd bóka, sem skilar litlu til höfunda. Á bókasafninu stendur myndabók fyrir fjögurra ára barn hins vegar jafnfætis þykkasta doðranti hvað varðar greiðslu vegna útláns. Þetta er einn fárra liða íslensks bókmenntakerfis þar sem barnabókin er metin til jafns við aðrar bækur. Nú á að skera þann lið niður. Til samanburðar fær langtímaáætlun um læsi 30 milljónir króna á ári í viðbótarfé en niðurskurðurinn á Bókasafnssjóði er nærri þrefalt meiri. Ríkið gefur með annarri hendinni en tekur meira með hinni. Samkvæmt aðgerðaráætluninni á að efla skólasöfn og auka lestur heima. Kostnaðarmat vegna skólasafnanna liggur þó ekki fyrir og hvergi er því svarað hver eigi að skrifa bækurnar sem eiga að fara í hillurnar eða lesa á heima. Tómar hillur Skýrsla Félags íslenskra bókaútgefenda, Lestur er lýðheilsa, sýnir hvernig staðan er í raun: Fjármagn er óljóst og naumt. Erfitt er að sjá hve miklu fé er í raun varið til bókakaupa, því það er fært milli bókhaldsliða. Starfsfólk kaupir af útsjónarsemi á bókamörkuðum og treystir á gjafir. Leikskólar: Lesið er fyrir börn daglega, en bókakostur er misjafn og oft lúinn. Upphæðir eru allt niður í 30.000 kr. á ári fyrir 71 barn. Engin lestrarstefna er til fyrir leikskólastigið. Grunnskólasöfn: Söfn hafa víða eyðilagst vegna myglu og uppbygging gengur hægt. Í takmörkuðu framboði íslenskra bóka grípa börn enskar bækur sem vekja áhuga þeirra. Fræðafólk segir að hérlendis þyrfti fólk í fullu starfi við að skrifa fyrir börn, en að launasjóðurinn standi ekki undir því. Minni lestur veikir lesskilning og veikur lesskilningur dregur úr lestri. Þennan vítahring er ekki hægt að rjúfa með skimunum og mælikvörðum heldur rofnar hann þegar barn finnur bók sem það getur ekki lagt frá sér. Læsið byrjar í kjöltunni Við sem vinnum með ungum börnum vitum að læsi byrjar ekki á PISA-prófi. Það byrjar í samverustund, þegar barn heyrir sömu söguna í tíunda sinn og fer sjálft að botna setningarnar. Orðaforði, hugtakaskilningur og samkennd vaxa úr góðum barnabókum á íslensku. Fyrir fjöltyngd börn eru íslenskar barnabækur ein besta leiðin til að tileinka sér tungumálið. Án þeirra saman stendur framboðið af enskum bókum og vélrænum þýðingum. Íslenska er mál fárra og mikilvægt að gefnar séu út fjölbreytt úrval af gæða barnabókum. Þegar stoðunum er kippt undan höfundum hætta æ fleiri að skrifa og nýir komast ekki að með tilheyrandi kreppu í útgáfu barnabóka. Stjórnvöld geta ekki krafist betri lesskilnings á sama tíma og þau veikja grundvöll íslenskra barnabóka. Það er eins og að ætla að efla sundkunnáttu þjóðarinnar með því að loka sundlaugunum. Við skorum á Alþingi að draga niðurskurðinn á Bókasafnssjóði til baka umsvifalaust. Langtímaáætlun um læsi verður að ná til þeirra sem skrifa og þýða fyrir börn og efling skólasafna og bókakost leikskólanna þarf að fjármagna með öðru en orðum á blaði. Eins og sakir standa hvílir lestrarmenning Íslendinga á útsjónarsemi bókasafnsvarða, góðvild foreldrafélaga og elju hugsjónafólks. Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennari Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir menntunarfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun