EES-samningurinn

Fréttamynd

ESA geti ekki beðið enda­laust

ESA getur ekki beðið endalaust eftir því að íslensk stjórnvöld lagfæri innleiðingu bókunar 35 segir stjórnarmaður Eftirlitsstofnunar EFTA. Hann segir fólk og fyrirtæki hér á landi verða fyrir tjóni á meðan málið sé óleyst.

Innlent
Fréttamynd

Í mál gegn Ís­landi fyrir van­efndir á bókun 35

Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn.

Innlent
Fréttamynd

Lög­menn fagna niður­stöðu EFTA-dómstólsins

Lögmannafélag Íslands tekur undir niðurstöður EFTA-dómstólsins um að ákvæði EES-samningsins girði fyrir skyldu lögmanna til að veita skattyfirvöldum upplýsingar um skjólstæðing sinn ef beiðnin gengur lengra en brýn nauðsyn krefur. Þetta segir í yfirlýsingu frá félaginu.

Innlent
Fréttamynd

Dapur­legt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálf­sögðum rétti

Móðir lagði íslenska ríkið í skaðabótamáli á þeim grundvelli að EES-reglur hafi ekki verið innleiddar með réttum hætti. Sérfræðingur í Evrópurétti segir að fleiri gætu leitað réttar síns enda skýrt fordæmi nú fyrirliggjandi. Utanríkisráðherra segir dapurlegt að konan hafi neyðst til að berjast í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti sínum. Ekki hefði verið um vandamál að ræða ef bókun 35 hefði verið innleidd með réttum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Þokast æ fjær lofts­lags­skuld­bindingum Ís­lands

Þrátt fyrir að losun á gróðurhúsalofttegundum hafi dregist saman í fyrra er útlit fyrir að árangurinn á þessum áratug verði aðeins rétt rúmur helmingur þess sem Ísland er skuldbundið til þess að ná. Markið heldur áfram að fjarlægjast í nýrri spá Umhverfis- og orkustofnunar um hvernig losun mun þróast næstu árin.

Innlent
Fréttamynd

Á­hersla ESB á mið­stýringu er „við­varandi á­skorun“ fyrir EES-samninginn

Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt.

Innherji
Fréttamynd

Penelópa í Val­höll

Penelópa, kona Ódysseifs, óf á daginn og rakti upp á nóttunni til að halda biðlunum frá sér. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í sautján ár haft sama háttinn á, með þeirri nýbreytni að röðinni er snúið við. Ályktanir um fullveldi rekja vefinn upp í dagsbirtu, en þegar skyggir er sest við vefstólinn á ný og voðin lengist jafnt og þétt í átt til Brussel.

Skoðun
Fréttamynd

„Við höfum iðu­lega verið tossinn í bekknum“

„Þetta eru ekki einhverjar grundvallarbreytingar, þetta er bara hlutur sem er verið að reyna að vinna í og gera betur. Ef Norðmenn finna betri leiðir þá ættum við endilega að fylgjast með því en við erum ekki með sæti við borðið og ég sé enga töfralausn á því.“ 

Innlent
Fréttamynd

Norð­menn kynna „stærstu breytingarnar frá upp­hafi“ á EES sam­starfinu

Norðmenn vilja nútímavæða og efla eftirlit með EES-samningnum og segir Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs að breytingarnar verði þær stærstu síðan samningurinn var innleiddur árið 1994. Ástæðan er breyttur heimur. Ráðherrann kynnti áherslubreytingarnar í dag á blaðamannafundi ásamt Cecilie Myrseth atvinnuvegaráðherra Noregs.

Erlent
Fréttamynd

EES-samningurinn og reglu­verk at­vinnu­lífsins

Í fyrri grein fjallaði ég um nauðsyn þess að treysta EES-samninginn í sessi og tryggja með réttri innleiðingu bókunar 35 við samninginn að fólk og fyrirtæki geti byggt rétt sinn á honum. En fleira þarf til að EES-samstarfið virki sem skyldi fyrir íslenzkt atvinnulíf. Þrjú verkefni standa þar upp úr.

Skoðun
Fréttamynd

Bókun 35: Munurinn á stjórnar­skrá Noregs og Ís­lands

Norska stjórnarskráin heimilar framsal ríkisvalds á afmörkuðu sviði, en reisir því háan þröskuld. Íslenska stjórnarskráin hefur enga sambærilega heimild. Samt hefur Alþingi ítrekað samþykkt valdframsal með einföldum meirihluta og stuðst við lögfræðiálit frá 1992. Munurinn birtist skýrt í meðferð ríkjanna á þriðja orkupakkanum, fjármálaeftirliti ESB og nú Bókun 35.

Skoðun
Fréttamynd

Stefnan tengist ekki þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Samskiptastjóri ESA segir mögulegt að Íslandi verði stefnt fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að bókun 35 við EES-samninginn hefur ekki verið innleidd hér á landi. ESA meti næstu skref í málinu en hafi ekki tekið ákvörðun. Nýliðin þjóðaratkvæðaatkvæðagreiðsla hafi ekki áhrif á ákvarðanir ESA. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er smjörklípa“

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) undirbýr samningsbrotamál gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35. Málið hafi verið í biðstöðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakar ríkisstjórnina um að afvegaleiða umræðuna með því að leggja áherslu á bókun 35 á meðan ekki sé búið að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka.

Innlent
Fréttamynd

Skoða að stefna Ís­landi vegna bókunar 35

Eftirlitsstofnun EFTA skoðar nú að höfða samningabrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna bókunar 35. Málið er sagt hafa verið sett á bið vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Innlent
Fréttamynd

Sögu­sagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum

„Ég heyri utan að mér, að þar sem ég hafi verið staðinn að verki við að hlýða á erindi Dr Carls Baudanbacher á fundi í gamla Sjallanum, hljóti ég að vera genginn í björg andstæðinga Evrópusambandsaðildar. Þá er illa fyrir okkur komið, ef menn mega ekki hlusta á meinta andstæðinga, án þess að kalla yfir sig fordæmingu af einhverju tagi.“

Innlent
Fréttamynd

Stærsti hluti land­búnaðar­lands ekki í virkri notkun

Tvö af hverjum þremur lögbýlum á Íslandi eru ekki í skráðum rekstri sem tengist landbúnaði og vísbendingar eru um að lögum sem eiga að takmarka óhóflega jarðasöfnun sé ekki beitt. Lagt er til að lög um eignarhald á jörðum verði hert í skýrslu á vegum Landbúnaðarháskólans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Aðildar­við­ræður gætu kostað tæpa tvo milljarða

Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs.

Innlent
Fréttamynd

Flug­völlur er ekki bara upp á punt

Innviðaráðherra hyggst láta greina hvort gullhúðun Evróputilskipana hafi átt sér stað þegar íslenskum flugvöllum var gert að fá bæði starfsleyfi og rekstrarleyfi. Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur er sökuð um að fara langt út fyrir valdheimildir sínar með því að reyna að þrengja að Reykjavíkurflugvelli.

Innlent
Fréttamynd

Gullhúðun að flug­vellir þurfi starfs­leyfi heil­brigðis­eftir­lits

Karl Alvarsson, formaður fagráðs um flugmál og fyrrverandi yfirlögfræðingur Isavia, segir séríslenska gullhúðun Evróputilskipana hafa átt sér stað þegar flugvöllum á Íslandi var gert að fá starfsleyfi frá heilbrigðiseftirlitum, - slíkt gildi um enga aðra evrópska flugvelli. Þá segir hann Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fara langt út fyrir sínar valdheimildir með því að reyna að þrengja að starfsemi Reykjavíkurflugvallar.

Innlent
Fréttamynd

Að­lögun að ESB sé þegar hluti af dag­legu lífi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Dagur segir Þor­stein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að þegar Davíð Oddsson gekk beint úr stóli borgarstjóra í forsætisráðuneytið 1991 hafi samningar um EES-samningana verið tilbúnir á laun í samningum milli þeirra Þorsteins Pálssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar.

Innlent
Fréttamynd

Tor­tryggni er ekki utan­ríkis­stefna

Heimsmyndin sem blasti við íslensku þjóðinni sem samþykkti EES-samninginn á tíunda áratugnum er ekki lengur til. Stórveldi heimsins brýna nú fyrir heimsbyggðinni að valdbeitingar á borð við viðskiptaþvinganir og tollmúrar verða óhikað nýttar sem tæki til að byggja veggi milli bandamanna - ekki síst í þeim tilgangi að stilla smáum og meðalstórum þjóðum upp við þá.

Skoðun