Sýn

Fréttamynd

Líka slæmar fréttir fyrir Rúv

Fréttastjóri Ríkisútvarpsins segir það einnig slæm tíðindi fyrir Rúv að missa þá samkeppni og samanburð sem hverfur þegar Sýn hættir með sínar sjónvarpsfréttir. Frá og með morgundeginum verður ríkisrekni fjölmiðillinn sá eini sem sendir út fréttatíma í sjónvarpi.

Innlent
Fréttamynd

Reiðar­slag fyrir frétta­flutning á Ís­landi

Viðbrögðin við ákvörðun stjórnar Sýnar að hætta útsendingum kvöldfrétta Sýnar og áður Stöðvar 2 hafa verið blendin. Flestir sem tjá sig lýsa yfir dapurleika vegna þessarar niðurstöðu og óttast að ríkið sé nú eitt um að flytja fólki sjónvarpsfréttir – teljist ekki góðar tvíbökur.

Innlent
Fréttamynd

Sýn leggur niður sjón­varps­fréttir

Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á Sýn. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stjörnurnar syngja inn haustið

Haustdagskrá Sýnar fer á fullt þessa dagana og innlend framleiðsla vegur þar þyngst. Sex nýir innlendir þættir eru á dagskrá á Sýn og Sýn+ í haust og dagskrárgerð í kringum Sýn Sport hefur aldrei verið sterkari.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Afmælispartý Bylgjunnar í beinni

Útvarpsstöðin Bylgjan fagnar 40 ára afmæli í dag og verður tímamótunum fagnað í allan dag með sérstakri afmælisdagskrá. Gamalkunnir þáttastjórnendur snúa aftur í hljóðverið og fjölmargir gestir úr sögu stöðvarinnar líta við.

Lífið
Fréttamynd

Auknar tekjur og minni kostnaður

Tekjur Sýnar jukust um 2,8 prósent á milli ára á sama tíma og rekstrarkostnaður lækkaði um 2,3 prósent á milli ára. Forstjóri fyrirtækisins segir tap á ársfjórðungnum skýrast af afskriftum á sýningarréttum. Starfsfólki hefur fækkað um 47 á milli ára.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar

Kaup Ása hf. á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar hf. verða ekki að veruleika. Frestur til að ganga frá endanlegum kaupsamningi er liðinn án þess að samningur hafi verið undirritaður en ákveðið var að falla frá viðskiptum eftir viðræður í kjölfar áreiðanleikakönnunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum

Forstjóri Fjarskiptastofu segir að nokkrar kvartanir og ábendingar um verra símasamband eftir lokun 2G og 3G kerfanna hafi borist. Hann segir ákvörðunina um að loka gömlu kerfunum alfarið á ábyrgð fjarskiptakerfanna sem eigi og reki kerfin og nú sé boltinn hjá þeim að bregðast við kvörtunum viðskiptavina. 

Innlent
Fréttamynd

Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn

Mikill áhugi var á umfjöllun fréttastofu Sýnar um nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar samkvæmt rafrænum ljósvakamælingum Gallup. Kappræðurnar á miðvikudagskvöldi fyrir kosningar náði til tæplega 73 þúsund manna hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Helga til Ríkis­út­varpsins

Margrét Helga Erlingsdóttir hefur verið ráðin í starf dagskrárgerðarmanns í Kastljósi. Starfið var auglýst í lok mars. Margrét Helga mun hefja störf hjá Ríkisútvarpinu á haustmánuðum og heldur áfram störfum hjá fréttastofu Sýnar þangað til.

Innlent
Fréttamynd

Sól­veig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil

Kosningavakan á laugardagskvöld var með öflugra móti á Sýn. Áður en kjörstaðir lokuðu var haldið Gott kosningakvöld með Hraðfréttabræðrum, Sveppa og fjölda góðra gesta. Rýnt var í tölur í setti, fréttamenn fóru víða um höfuðborgarsvæðið og á Vísi voru færð nýjustu tíðindi af stöðu mála.

Lífið
Fréttamynd

Besta deildin á­fram á Sýn Sport

Sýn og Íslenskur Toppfótbolti (ÍTF) hafa undirritað samning um eins árs framlengingu á sýningarrétti frá leikjum í Bestu deild karla og Bestu deild kvenna til loka ársins 2027. Framlengingin tryggir órofið samstarf aðila á meðan viðræður um nýjan langtímasamning halda áfram á milli aðila.

Sport
Fréttamynd

Af­koma um­fram á­ætlanir

Afkoma Sýnar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var umfram áætlanir og þykir stjórnendum félagsins það til marks um áframhaldandi viðsnúning í rekstri. Herdís Dröfn Fjelsted, forstjóri, segir þetta staðfestingu á að aðgerðir og umbreyting síðasta árs séu að skila árangri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Oddaleikirnir á sitt hvorri rásinni

Eitt stærsta íþróttakvöld ársins er fram undan. Oddaleikirnir í undanúrslitum karla í körfubolta verða sýndir hvor á sinni rás Sýnar Sport í kvöld en fjölmenn teymi eru komin saman bæði á Sauðárkróki og í Grindavík. 

Körfubolti
Fréttamynd

Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv

Erla Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin menningarritstjóri Rúv. Erla lét af störfum sem ritstjóri fréttastofu Sýnar fyrr á árinu. Alls sóttu 48 um starfið og má sjá lista umsækjenda að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Atli og Sunna nýir frétta­stjórar og Árni vara­frétta­stjóri

Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir hafa tekið við stöðum fréttastjóra á fréttastofu Sýnar. Þá er Árni Sæberg orðinn varafréttastjóri á fréttastofunni. Kolbeinn Tumi Daðason er ritstjóri fréttastofunnar sem segir landsmönnum fréttir á Bylgjunni, Sýn og Vísi.

Innlent