Stafræn þróun

Betri borg
Nú hefur verið framkvæmd úttekt á 20 stórum verkefnum í stafrænni umbreytingu þjónustu Reykjavíkurborgar, sem voru hluti af átakinu sem hófst árið 2020. Árangurinn af þeim er einstaklega góður.

Tæknilausnir nauðsynlegar til að bæta þjónustu í heilbrigðiskerfinu
Jóhann G. Jóhannsson, meðstofnandi og stjórnarformaður Alvotech og partner Aztiq og Björn Zoega, framkvæmdastjóri á King Faisal Specialist Hospital and Research Centre, segja íslensk heilbrigðiskerfi eftir á. Það sé nauðsynlegt að skoða og taka ákvarðanir um innleiðingu stafrænna lausna.

Tilnefningar til Íslensku vefverðalaunanna
Sjötíu vefir, eða stafrænar lausnir, eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna fyrir árið 2024. Umboðsmaður Iceguys, sjálf Sandra Barilli, mun kynna tilnefningarnar sem verða í beinu streymi á Vísi.

Sætta sig ekki við rafræna undirritun á stefnu
Dómendur á öllum dómstigum hafa hafnað því að stefna hafi verið réttilega birt manni, sem staðfesti rafræna afhendingu stefnunnar með rafrænni undirritun.

Stafræn bylting sýslumanna
Sýslumannsembættin hafa á síðustu árum náð markverðum árangri í stafrænni umbreytingu og eru nú meðal fremstu stofnana í rafrænni opinberri þjónustu. Flest þjónustuferli hafa verið færð í stafrænan farveg, sem gerir landsmönnum kleift að nálgast þjónustuna án þess að mæta á staðinn.

Mikilvægi stöðutöku á stafrænni hæfni fyrir íslensk ferðaþjónustufyrirtæki
Í hröðum tæknidrifnum heimi nútímans er stafræn hæfni orðin afgerandi þáttur til sóknar fyrir fyrirtæki í ýmsum greinum. Þetta á ekki síst við um ferðaþjónustu þar sem blikur eru á lofti um erfiðari stöðu en áður, samanber niðurstöður KPMG viðhorfskönnunar ferðþjónustuaðila 2025.

Símar framhaldskólanema læstir inni í skáp
Snjallsímar nýnema við Verslunarskólann Saxogade í Álaborg í Danmörku voru læstir inni í skáp fyrstu þrjár vikur skólaársins. Tilraunin þykir hafa gefið góða raun og athygli nemenda sögð miklu betri í kennslustundum. Fleiri menntaskólar á Norður-Jótlandi hafa góða reynslu af snjallsímalausu skólastarfi og til greina kemur að endurtaka leikinn við uppaf næsta skólaárs.

Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“
„AI er að breyta leiknum en erum við tilbúin?“ spyr Ásdís Eir Símonardóttir sem eftir helgi tekur við starfi forstöðumanns mannauðs og menningar hjá Lyfju.

Siðferði og ábyrgð – lykillinn að trausti
Íslenskt samfélag stendur á krossgötum. Tækniþróun, leidd áfram af gervigreind, er að umbreyta atvinnulífi, menntun og daglegu lífi okkar á hraða sem við höfum aldrei áður séð.

Aðgengi og lífsgæði eldri borgara í stafrænni framtíð: Hvað getum við gert betur?
Ísland færist hratt í átt að stafrænum heimi þar sem samskipti við hið opinbera fara fram á vettvangi eins og heilsuvera.is og island.is. Þó að þessi þróun bjóði upp aukin lífsgæði fyrir marga, þá eru hópar í samfélaginu sem eiga erfitt með að fóta sig í stafrænni veröld.

Nýsköpun í heilbrigðistækni skilar ávinningi
Heilbrigðistækni er ekki aðeins tæki til að leysa vandamál – hún er leið til að bæta líf fólks. Ljóst er að tæknin er einn lykilþátta í því að ná árangri í heilbrigðismálum, t.a.m. með betri nýtingu gagna, aukinni sjálfvirkni og svo með gervigreind í mjög náinni framtíð.

Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð
Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins leggur til að fleiri heilbrigðisstéttum verði heimilt að gefa út vottorð í einstaka tilfellum og að dregið verði úr óþörfum vottorðaskrifum vegna stuttra veikindafjarvista frá skóla eða vinnu.

Stafrænn heimur og gervigreind til framtíðar
Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur verið í fararbroddi við að tryggja að íslenskt samfélag njóti góðs af nýjustu tækni og framfarir í stafrænum heimi. Með áherslu á réttlæti, öryggi og menningarlega sjálfbærni hefur VG leitt mikilvægar aðgerðir sem stuðla að því að Ísland standi sterkt í alþjóðlegu umhverfi gervigreindar og stafrænnar þróunar.

Lögbrjótar ættu að fylgjast með á Ísland.is
Tímamót urðu hjá lögreglu í síðustu viku þegar fyrsta rafræna ákæran var gefin út vegna umferðarlagabrota og í framhaldi var fyrsta rafræna fyrirkallið birt á stafrænu Íslandi. Breytingar á lögum um meðferð sakamála í sumar gerði lögreglu kleift að fara af stað með þetta starfræna verkefni.

Stafræn þjónustubylting Reykjavíkurborgar vekur heimsathygli
Við í Reykjavíkurborg höfum staðið fyrir stafrænni byltingu síðustu ár til að bæta þjónustu og minnka sóun, vesen og mengun.

Kynnti „einhverjar mestu breytingar á námsgagnaútgáfu í áratugi“
Námsgögn verða gjaldfrjáls fyrir framhaldsskólanema að átján ára aldri og fjárframlag til námsgagnagerðar mun tvöfaldast nái frumvarp barnamálaráðherra fram að ganga. Útgefandi fagnar því að stjórnvöld séu farin að átta sig á umfangi vandans, úrelt námsgögn séu alvarlegt samfélagsmein.

Frumkvöðlar framtíðarinnar: Að breyta brestum og nýta neikvætt til nýsköpunar
Í íslenskri stjórnarskrá er ákvæði semsérstaklega fjallar um börn. Þannig segir í ákvæði 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar að börnum skuli í lögum tryggð sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst. Þetta ákvæði er merkilegt fyrir þær sakir að það er eina ákvæðið í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar sem verndar einnsamfélagshóp umfram annan og er eina ákvæðið sem veitir efnislegan grundvöll til að takmarka mannréttindi annarra í þágu barna.

Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf
„Menntamálastofnun réð ekki við framkvæmdina þrátt fyrir að við værum búin að aðstoða þá, koma með leiðbeiningar og tillögur að framkvæmd um hvernig væri hægt að gera þetta – þær bara gengu ekki upp.“

Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is
Samgöngustofa hefur tengst stafrænu pósthólfi á Ísland.is og nýtir nú pósthólfið til að minna eigendur ökutækja á skoðunartíma ökutækisins. Í tilkynningu frá Samgöngustofu segir að með því að tengjast pósthólfinu voni þau að þeim gefist kostur á aukinni skilvirkni og betri þjónustu við viðskiptavini.

Hundrað manna hjúkrunarheimili gæti sparað tugi milljóna með smáforriti
Á hundrað manna hjúkrunarheimili væri hægt að spara um 24 milljónir árlega ef smáforritið Iðunn yrði innleitt í starfsemina. Þetta er meðal niðurstaða í lokaverkefni Önnu Bjarkar Baldvinsdóttur í hagfræði. Hún gerði í verkefninu kostnaðarábatagreiningu við innleiðingu Iðunnar á landsvísu.

Hvernig standa sveitarfélögin sig í stafrænni þróun?
Er stafræn umbreyting þjónustu sveitarfélaga tekin alvarlega á Íslandi? Sitja íbúar allra sveitarfélaga við sama borð þegar kemur að stafrænni þjónustu? Er fjármagni veitt í stafræn verkefni í hlutfalli við mikilvægi þeirra? Hvernig upplifa íbúar landsins stafræna þjónustu sveitarfélaga?

Stafrænn ójöfnuður á upplýsingaöld
Í heimi sem reiðir sig sífellt meira á tækni og stafrænar lausnir á öllum sviðum lífsins, hefur ójafnt aðgengi fólks að tækni og nettengingu orðið æ mikilvægara mannréttindamál. Á síðustu árum hafa fyrirtæki og opinberar stofnanir í auknum mæli flutt þjónustu sína í stafrænar miðlægar þjónustugáttir á borð við Ísland.is og netbanka.

Nýsköpun innviða
Verkefni sveitarfélaga eru fjölbreytt og verkefnum fjölgar frekar en fækkar. Hvert og eitt sveitarfélag leggur metnað sinn í góða grunnþjónustu. Aukin krafa er á sveitarfélög um samkeppnishæfni við nágrannasveitarfélög um val á búsetu sem kallar á framúrskarandi þjónustu talsvert út fyrir hin lögbundnu verkefni.

„Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði
„Íslenska með hreim er tákn um hugrekki“, segir meðal annars í nýju appi, „Bara tala“, sem kennir íslensku á einfaldan og skemmtilegan hátt. Tvö hundruð manna fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hefur nýtt sér úrræðið með mjög góðum árangri.

Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum
Frá og með morgundeginum verða bókleg almenn ökupróf rafræn um allt land. Allir ökunemar munu því framvegis taka próf til B-réttinda í tölvu hjá prófamiðstöð Frumherja.

Stafrænt samstarf sveitarfélaga þarf aukið vægi
Síðustu fjögur ár eða svo hafa sveitarfélög átt með sér meira samstarf í stafrænum málum en nokkru sinni áður. Margt gott hefur áunnist. Miðlægt teymi innan Sambands íslenskra sveitarfélaga (Sambandið) hefur spilað mikilvægt hlutverk í því að koma á auknu samtali milli sveitarfélaga og stuðla að aukinni samvinnu.

Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði
Hjúkrunarfræðingum hefur tekist að minnka skriffinnsku um margar klukkustundir með notkun smáforritsins Iðunnar. Í forritinu eru forskráð verkefni sem starfsfólk hakar við að loknu verki. Forritið minnkar skriffinnsku og eykur yfirsýn að mati rannsakanda.

Fyrirgefðu mér mín kæra Harpa
Mér þykir það leitt en um daginn leyfði ég mér að fara á bílnum á tónleika hjá þér mín kæra Harpa. Ég er nú ekki neitt voðalega mikið í svona, hvað kallar unga fólkið það, snjallsímar sko, já. En ég hélt að ég gæti nú alveg klórað mig frammúr því að greiða fyrir stæðið.

Fólk hafi skráð sig í forsetaframboð fyrir slysni
Borið hefur á því að fólk hafi skráð sig fyrir slysni á lista Þjóðskrár yfir þá sem óska eftir meðmælum fyrir framboði í forsetakosningunum í ár. Fréttastofu er kunnugt um tvö tilvik en Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og fyrirsæta, segist telja þau vera fleiri. 34 voru á listanum í gær en eru 42 í dag.

Lítil stemning fyrir rafrænni undirritun
Þó undirritun kjarasamninga sé tímafrek og krefjist mikillar pappírsvinnu stendur ekki til að gera aðilum kleift að skrifa undir samningana með rafrænum skilríkjum, enda segja sáttasemjarar að um rótgróna hefð sé að ræða.