Körfubolti

Fréttamynd

Pistons vann Magic, Hill hylltur

Grant Hill og félagar hans í Orlando Magic, háðu harða baráttu við Detroit Pistons á útivelli í NBA-körfuboltanum í nótt. Hill, sem lék með Pistons áður en hann hélt til Orlando, náði ekki að koma í veg fyrir sigur Pistons, 101-94.

Sport
Fréttamynd

Sigur eftir tvær framlengingar

Leikur Los Angeles Clippers og Miami Heat í NBA-körfuboltanum í nótt, sem fram fór á heimavelli Clippers, var æsispennandi og þurfti tvær framlengingar til að knýja fram úrslit.

Sport
Fréttamynd

Stjörnuleikur KKÍ í dag

Stjörnuleikur Körfuknattleikssambands Íslands verður í dag í Valsheimilinu að Hlíðarenda. Kvennaleikurinn hefst klukkan 14 og karlaleikurinn tveimur tímum síðar. Þetta er átjándi stjörnuleikur KKÍ en innlendir og erlendir leikmenn etja kappi saman. Auk þess fer fram troðslukeppni og þriggja stiga skotkeppni.

Sport
Fréttamynd

Damon Stoudamire með 54 stig

Damon Stoudamire setti nýtt persónulegt met, og nýtt met hjá Portland Trail Blazers, þegar hann skoraði 54 stig í leik gegn New Orleans Hornets.

Sport
Fréttamynd

Bryant sneri ökkla

Körfuboltasnillingurinn Kobe Bryant seri sig á ökkla í leik með Los Angeles Lakers í bandaríska NBA körfuboltanum síðustu nótt og lítur út fyrir að hann verði lengi frá. Atvikið átti sér stað í leik gegn Cleveland Cavaliers í gær fimmtudagskvöld og í dag tilkynnti félagið að meiðslin væru alvarleg.

Sport
Fréttamynd

Njarðvíkingar lágu heima

Njarðvíkingar lágu á heimavelli gegn ÍR-ingum 91-87 í Intersport-deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Sigurinn kom mjög á óvart en hann var verðskuldaður. Breiðhyltingar voru yfir nánast allann leikinn. Theo Dixon skoraði 29 stig og Eiríkur Önundarson 24 fyrir ÍR. Brenton Birmingham skoraði 25 stig fyrir Njarðvík.

Sport
Fréttamynd

Bryant meiddist gegn Cavaliers

LeBron James og félagar í Cavaliers sóttu Lakers heim í fyrrinótt og bauð James upp á enn einn stórleikinn, skoraði 28 stig, tók 13 fráköst og gaf 9 stoðsendingar.

Sport
Fréttamynd

Detroit hylli Grant Hill

Í kvöld mun Detroit Pistons taka á móti Orlando Magic í The Palace í Auburn Hills í NBA-körfuboltanum. Viðureignin verður merkileg fyrir það leyti að Grant Hill hjá Orlando Magic, sem lék 6 tímabil með Pistons, olli töluverðu fjaðraþoki þegar hann fór þess á leit við forráðamenn Pistons að verða skipt frá liðinu. Þá hafði hann leikið með fjórum mismunandi þjálfurum, ótal leikmönnum og var orðinn langþreyttur á ástandinu.

Sport
Fréttamynd

Rockets vann Nets í framlengingu

Bob Sura, leikmaður Houston Rockets, setti persónulegt met í leik gegn New Jersey Nets þegar hann skoraði 35 stig í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt.

Sport
Fréttamynd

Intersportdeildin í kvöld

Í kvöld fóru fimm leikir fram í Intersport deildinni í körfuknattleik karla. Skallagrímur lág fyrir KR 107-93 í Borgarnesi, Fjölnir vann KFÍ auðveldlega 122-83, Hamar/Selfoss sigraði Grindavík 106-97, Tindastóll lagði Hauka 79-74 fyrir norðan og ÍR gerði sér lítið fyrir og lagði Njarðvíkinga 91-87 í Njarðvík.

Sport
Fréttamynd

Keflvíkingar töpuðu í Sviss

Keflavík beið lægri hlut gegn svissneska liðinu Olympic Fribourg, 103-95, í fyrri viðureign liðana í fyrstu umferð úrslitakeppni Evrópubikarsins í körfuknattleik, en staðan í hálfleik var 54-47, heimamönnum í vil. Möguleikar Keflvíkinga verða að teljast góðir fyrir seinni leikinn sem fram fer eftir viku.

Sport
Fréttamynd

Jazz vann Suns og Spurs

Þó svo að Utah Jazz hafi ekki fláð feitan gölt í NBA-körfuboltanum í vetur, þá tókst liðinu að leggja San Antonio Spurs og Phoenix Suns að velli í vikunni en liðin tvö eru í tveimur efstu sætum deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Fyrrum leikmaður New Jersey í CBA

Jayson Williams, sem lék með New Jersey Nets í NBA-boltanum en þurfti frá að hverfa vegna hnémeiðsla, skrifaði undir samning við CBA-liðið Idaho Stampede og mun leika sinn fyrsta leik á miðvikudaginn kemur.

Sport
Fréttamynd

Keflavík tapaði gegn Fribourg

Keflavík lék sinn fyrsta leik í úrslitum bikarkeppni Evrópu í kvöld þegar liðið sótti Benetton Fribourg Olympic frá Svisslandi heim. Heimamenn byrjuðu betur og leiddu eftir fyrsta leikhluta, 35-21.

Sport
Fréttamynd

Jefferson meiddur út tímabilið

Lið New Jersey Nets í NBA-körfuboltanum varð fyrir áfalli í leik gegn núverandi meistara, Detroit Pistons, þegar Richard Jefferson, stigahæsti maður liðsins, meiddist á úlnlið.

Sport
Fréttamynd

Phoenix á siglingu

Phoenix vann einn eina ferðina,  en í gærkvöldi var Miami fórnarlambið og úrslitin 122-107. Amare Stoudamire skoraði 34 stig fyrir sigurliðið og Shawn Marion 26. Shaquille O´Neal og Dwane Wade skoruðu samtals 57 stig fyrir Miami, Shaq 34 og Wade 23.

Sport
Fréttamynd

Lakers skellti Minnesota

Fimm leikir voru í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöldi. Los Angeles Lakers skellti Minnesota Timberwolves á útivelli 105-96. Þetta var sjötta tap Minnesota í síðustu sjö leikjum. Kobe Bryant skoraði 31 stig fyrir Lakers.

Sport
Fréttamynd

Karfan: Dregið í undanúrslitin

Dregið var til undanúrslita í bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í dag. Fyrstu deildarlið Breiðabliks fær Njarðvíkinga í heimsókn í Smárann og Hamar/Selfoss mætir Fjölni fyrir austan. Í kvennaflokki leika bikarmeistarar Keflavíkur gegn Haukum á Ásvöllum og 2. deildarlið Laugdæla fær Grindavík í heimsókn.

Sport
Fréttamynd

Keflavík taplausar á toppnum

Keflavík er enn taplaust og á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfubolta eftir sigur á Haukum í kvöld, 100-76. Á sama tíma tapaði KR fyrir ÍS 49-57 og eru Vesturbæjarstúlkur enn án stiga eftir 12 umferðir.

Sport
Fréttamynd

Guðlaugur hættur hjá Grindavík

Guðlaugur Eyjólfsson, körfuknattleiksmaður úr Grindavík, er hættur að leika með liðinu. Þetta er töluvert áfall fyrir liðið sem ekki hefur gengið vel í deildinni og var slegið út úr bikarnum um helgina.

Sport
Fréttamynd

Haukastúlkur til Keflavíkur

Tveir leikir eru í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík og Haukar mætast í Keflavík og KR og ÍS takast á í Vesturbænum. Leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík lagði Keflavík

Njarðvík lagði bikarmeistara Keflavíkur 88-85 í átta liða úrslitum bikarkeppni KKÍ í gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi og fór fram á heimavelli bikarmeistarana. Anthony Lackey skoraði 30 stig og Brenton Birmingham 20 fyrir Njarðvíkinga.

Sport
Fréttamynd

Fyrrum þjálfari reiðist McGrady

Johnny Davis, sem þjálfaði Orlando Magic í NBA-körfuboltanum um nokkurra ára skeið, er ekki sáttur við ummæli Tracy McGrady sem féllu á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Reshea Bristol á heimleið

Reshea Bristol, leikmaður Keflvíkinga í meistaraflokki kvenna í körfuknattleik, heldur af landi brott á morgun og leikur ekki meira með Keflavík í vetur.

Sport
Fréttamynd

Kobe-málið fer fram í Denver

Konan sem kærði Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum fyrir nauðgun mun ekki höfða einkamál á hendur Bryant í Kaliforníu.

Sport
Fréttamynd

Phoenix burstaði Indiana

Phoenix Suns burstaði Indiana Pacers 124-89 í NBA-deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Þetta var 30. sigur Phoenix í vetur en liðið hefur aðeins tapað fjórum leikjum.

Sport
Fréttamynd

Guðlaugur hættur hjá Grindavík

Körfuboltalið Grindavíkur varð fyrir enn einu áfallinu þegar stórskyttan Guðlaugur Eyjólfsson tilkynnti í gær að hann væri hættur að leika með liðinu. Brotthvaf hans kemur í kjölfar þess að Grindavík ákvað að bæta við þriðja Bandaríkjamanninum eftir að Darrel Lewis fékk íslenskan ríkisborgararétt.

Sport
Fréttamynd

Keflavík mætir Njarðvík í kvöld

Erkifjendurnir í Keflavík og Njarðvík mætast í Keflavík í kvöld í átta liða úrslitum Bikarkeppni KKÍ. Þetta er stórleikur umferðarinnar en liðin hafa lengi eldað grátt silfur saman.

Sport
Fréttamynd

Kobe sýnir nýjar hliðar

Körfuboltastjarnan Kobe Bryant, sem leikur með Los Angeles Lakers, í NBA-deildinni, hefur átt undir högg að sækja að undanförnu vegna framkomu sinnar utan vallar. Hann hefur lent upp á kant við marga leikmenn í deildinni en hann sýndi á föstudaginn að honum er ekki alls varnað.

Sport