Innlent

Fréttamynd

Bíður niðurstöðu ráðuneytis

Framkvæmdaáætlun Fangelsismálastofnunar er enn til athugunar í dómsmálaráðuneytinu, að sögn Valtýs Sigurðssonar forstjóra stofnunarinnar. Hann segist telja biðina eftir niðurstöðum í dögum en ekki vikum.

Innlent
Fréttamynd

Samstaða sé um lagabreytingu

Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir að unnið sé að breytingum á eftirlaunalögunum í forsætisráðuneytinu. Þverpólitísk samstaða sé um að breyta ákvæði sem hafi einnig verið fyrir hendi í eldri lögum sem gefi fyrrverandi ráðherrum færi á að taka full eftirlaun ráðherra þótt þeir séu enn í fullu starfi hjá hinu opinbera. Hann varar við því að ummæli formanns Sjálfstæðisflokksins í fréttum Stöðvar 2 á föstudag séu oftúlkuð.

Innlent
Fréttamynd

Tvær þjóðir í einu landi

Íslendingar verða tvær þjóðir í einu landi ef ekki verður gerður skurkur í að byggja upp fjarskiptamöguleika á landsbyggðinni, sagði Runólfur Ágústsson, rektor við Viðskiptaháskólann á Bifröst, við útskrift kvenna í atvinnurekstri á landsbyggðinni.

Innlent
Fréttamynd

Sagður hafa vanrækt störf sín

Séra Hans Markús Hafsteinsson sóknarprestur í Garðaprestakalli misnotaði stöðu sína til að fá stuðning og samúð sóknarbarna með því að koma trúnaðargögnum til þeirra. Þetta kemur fram í úrskurði úrskurðunarnefndar þjóðkirkjunnar.

Innlent
Fréttamynd

Sóknarprestur lagður í einelti

Séra Hans Markús Hafsteinsson sóknarprestur í Garðaprestakalli segir að hann hafi þurft að þola ögrandi smáskilaboð skilaboð og hótanir í kjölfar samstarfsörðugleika í Garðasókn. Við athugun kom í ljós að skilaboðin komu frá síma í eigu eiginmanns Nönnu Guðrúnar Zoëga djákna sem séra Hans Markús hefur átt í útistöðum við.

Innlent
Fréttamynd

Lithái dæmdur í farbann

Hæstiréttur dæmdi í dag Litháa í farbann til 18. maí. Maðurinn kom hingað til lands með Norrænu í byrjun mars en hann er eftirlýstur af þýsku lögreglunni og talinn tengjast skipulagðri glæpastarfsemi í Þýskalandi og Litháen. Í lok mars barst framsalsbeiðni frá þýskum dómsmálayfirvöldum en maðurinn er sakaður um að hafa flutt fíkniefni og falsaða peninga til Þýskalands auk innbrota og þjófnaða.

Innlent
Fréttamynd

Vantar fjármagn

Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem skýrslu Ríkisendurskoðunar um úttekt á Háskóla Íslands er fagnað. Í skýrslunni kemur fram að skólinn hafi staðið sig vel miðað við það fjármagn sem hann hafi haft úr að spila.

Innlent
Fréttamynd

Þeyttist út af Suðurlandsvegi

Til allrar hamingju rásaði bíll út af Suðurlandsveginum en ekki inn á öfugan vegarhelming á móti bílum þegar ökumaðurinn, sem var í mikilli fíkniefnavímu, missti stjórn á honum í Lögbergsbrekku í gær. Bíllinn þeyttist 70 metra út af veginum. Lögreglumenn frá Selfossi komu fyrstir á vettvang og handtóku ökumann og farþega þegar ljóst var að þeir voru báðir út úr skakkir af vímuefnum og afhentu þá Kópavogslögreglunni sem hefur lögsögu á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Gagnrýndi Vatnsmýrarhugmyndir

Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, gagnrýndi harðlega þær hugmyndir að safna helstu háskólum og rannsóknarstofnunum landsins á einn stað í miðborg Reykjavíkur, í Vatnsmýrinni, í ræðu sem hann hélt við útskrift við skólann í gær. Sagði Runólfur að slíkar hugmyndir, að safna stofnununum á einn stað, væru í besta falli úreltar og í versta falli til þess ætlaðar að skipta þjóðinni í tvær þjóðir.

Innlent
Fréttamynd

Hirtu hangikjötshníf af manni

Lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af manni á skemmtistað í bænum að kvöldi síðasta vetrardags þar sem hann var með hníf inn á staðnum. Í ljós kom að maðurinn var með hangikjötslæri með sér og hugðist hann gefa gestum sneiðar af lærinu og nota hnífinn til þess. Hnífurinn var tekinn af manninum en hann fékk að halda lærinu.

Innlent
Fréttamynd

Eftirlaunamálið enn óútkljáð

Framsóknarmenn standa fastir við fyrirætlan sína að afnema rétt fyrrverandi stjórnmálamanna á tvöföldum launum og ræddu það á þingflokksfundi í gær. Sjálfstæðismenn tóku málið ekki til umræðu og segja óþarfi að ræða það. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Upplýsingar birtar fljótlega

Þingmenn Framsóknarflokksins munu fljótlega birta upplýsingar um eignir sínar í hlutabréfum og tengsl sín við atvinnulífið.

Innlent
Fréttamynd

Borgarísjakar fyrir norðan land

Skip tilkynnti um borgarísjaka og nokkra smærri jaka 10 til 20 mílur austur af Hornbjargi um miðnætti þar sem þeir gætu verið varasamir skipum. Þá lónar gríðarstór borgarísjaki inni á Húnaflóa en ekki hefur sést til ísbjarna á honum þrátt fyrir eftirgrennslan.

Innlent
Fréttamynd

Fischer ofar í huga en varnarmál

Bobby Fischer virðist varaaðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna mun ofar í huga en varnarmálaviðræður. Hún segir eðlilegt að bandarískum diplómötum misbjóði yfirlýsingar Fischers. Framtíð varnarsamstarfsins skýrist svo vonandi sem fyrst.

Innlent
Fréttamynd

Hunangsflugur snemma á ferð

Hunangsflugurnar voru óvenjusnemma á ferð þetta árið. Samkvæmt frétt á vefsíðu Náttúrufræðistofnunar var sú fyrsta færð til bókar þann 23. mars í Reykjavík, rúmum mánuði fyrr en venjulega en það hefur gjarnan mátt ganga að því sem vísu að hunangsflugurnar hringi inn vorið í kringum 20. apríl ár hvert.

Innlent
Fréttamynd

Hefði átt að fylgja ráðum Hafró

Ef ráðum Hafrannsóknarstofnunarinn hefði verið fylgt á síðustu áratugum væri þorskstofninn helmingi stærri en hann er í dag. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi sjávarútvegsnefndar Alþingis í dag.

Innlent
Fréttamynd

Tveir eldsvoðar á mánuði

Eldur kom upp í stóru húsi við Mýrargötu í Reykjavík rétt fyrir miðnætti á laugardagskvöld. Tilkynnt var um eldinn laust fyrir klukkan hálftólf og þegar slökkvilið kom á vettvang logaði glatt í innréttingum á annarri og þriðju hæð, en húsið er þriggja hæða.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta í Námaskarði

Bílstjóri var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir að flutningabíll sem hann ók valt í Námaskarði í Mývatnssveit um miðjan gærdag.

Innlent
Fréttamynd

Þynging dóma ekki lausn

"Með þyngingu dóma er líklegt að starf lögreglunnar verði mun erfiðara og hættulegra en nú er," segir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Ölvaður og ók niður skilti

Tveir voru teknir ölvaðir við akstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í nótt. Annar hafði ekið niður umferðarskilti við hringtorgið á gatnamótum Fossheiði og Tryggvagötu og reyndist hann ölvaður þegar lögreglan kom á staðinn. Hinn var tekinn við reglubundið eftirlit á Eyrarbakkavegi.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt sveitarfélag í uppsiglingu

Eitt af fimm sveitarfélögum norðan Skarðsheiðar felldi sameiningartillögu í kosningum á laugardag. Líkur eru á að sveitarfélögin sem samþykktu verði sameinuð í eitt. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Skiptar skoðanir um ágæti varnanna

Gerð viðamikilla snjóflóðavarna fyrir ofan Holtahverfi í Skutulsfirði er í undirbúningi. Framkvæmdin mun kosta um hálfan milljarð króna en skiptar skoðanir eru meðal Ísfirðinga um ágæti framkvæmdanna.

Innlent
Fréttamynd

Kosið aftur innan sex vikna

Einn fámennasti hreppur landsins, Skorradalshreppur, var sá eini sem felldi sameiningu fimm sveitarfélaga á Vesturlandi í sameiningarkosningu í gær. Sameiningin var hins vegar samþykkt í Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppi og Kolbeinsstaðahreppi. Úrslitin þýða að Skorradalshreppur verður að kjósa aftur innan sex vikna.

Innlent
Fréttamynd

Ölvaður bílþjófur á Reykjanesbraut

Drukkinn bílþjófur, sem stal bifreið í Keflavík í nótt, náðist skömmu síðar á Reykjanesbrautinni eftir að hafa rásað þar á milli vegarhelminga. Lögreglu barst tilkynning um bílstuldinn um fjögurleytið í nótt en eigandinn hafði brugðið sér frá og skilið bílinn eftir í gangi.

Innlent
Fréttamynd

Líklega íkveikja við Mýrargötu

Talið er líklegt að kveikt hafi verið í húsinu sem logaði við Mýrargötu á hafnarsvæði Reykjavíkur seint í gærkvöldi. Töluverður tími fór í að leita að fólki í húsinu sem reyndist svo vera mannlaust.

Innlent
Fréttamynd

Fimm mínútum frá sigri

Tómas Helgason, Íslandsmeistari í pípulögnum, var nálægt sigri á Norðurlandamótinu. Hinn danski Henrik Hansen bar sigur úr býtum. Forseti Íslands er kominn af pípara. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Straumur kaupir meira

Straumur fjárfestingarbanki keypti á föstudag bréf í Íslandsbanka fyrir þrjá milljarða króna. Þessi kaup benda eindregið til þess að Straumur muni leggja upp í lokaorrustu um bankann. Kaupin verða tilkynnt á mánudag. Eigendur Landsbankans og viðskiptafélagar þeirra hafa veruleg ítök í hluthafahópi Straums.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald fyrir líkamsárás

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur fyrir að ráðast á annan mann á föstudag og misþyrma honum. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns er maðurinn sem varð fyrir ofbeldinu læknir og hefur meðal annars sinnt úrskurðarmálum af ýmsu tagi fyrir lögregluna.

Innlent
Fréttamynd

Björgólfur formaður Landverndar

Aðalfundur Landverndar, sem haldinn var á í gær, valdi Björgólf Thorsteinsson sem formann samtakanna til næstu tveggja ára. Björgólfur tekur við af Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur arkitekt sem undanfarin fjögur ár hefur gegnt starfinu með farsælum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Breytingar ekki útilokaðar

"Þetta hefur ekki verið kynnt með neinum hætti í þingflokknum og ég fæ ekki séð að þetta skipti miklu máli," segir Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vegna ágreinings þeirra Davíðs Oddsonar, utanríkisráðherra og Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, um breytingar á eftirlaunafrumvarpi ráðherra og þingmanna.

Innlent