Innlent
Olís greiðir samráðssekt Olís greiddi núna áðan sekt sína til ríkissjóðs vegna ólöglegs verðsamráðs olíufélaganna. Esso fylgdi í gær fordæmi Skeljungs og greiddi sína sekt og öll olíufélögin hafa því greitt sektir sínar nú. Sameiginlegar sektir, sem lagðar voru á félögin með ákvörðun áfrýjunarnefndar í janúar, nema um einum og hálfum milljarði króna, þar af greiddi Olís mest. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Ekkert upplýst um starfið Utanríkisráðherra vonar að Mannréttindaskrifstofan hafi bætt mannréttindi á undanförnum árum. Stjórnarandstaðan sakar stjórnvöld um að hafa svipt skrifstofuna fjármunum sínum. Innlent 13.10.2005 19:09
Sprengjusérfræðingur kallaður út Maður kom í utanríkisráðuneytið í gær með böggul meðferðis og hafði í hótunum við Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Illugi Gunnarsson ráðuneytisstjóri sagði manninn hafa litið út eins og hann gengi ekki heill til skógar og því hefði starfsfólk ráðuneytisins brugðið á það ráð að kalla á lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:09
Hálfs árs fangelsi fyrir innbrot Maður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í hálfs árs fangelsi fyrir innbrot og tilraun til þjófnaðar. Maðurinn var á skilorði og braut reynslulausn með því að brjótast inn í hús í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt. Því þótti dómara ekki ástæða til að skilorðsbinda refsinguna. Innlent 13.10.2005 19:09
Kvöld í Hveró - KK og Ellen Systkynin KK og Ellen efna til tónleika í Hveragerðiskirkju föstudagskvöldið 6. maí en tónleikar þeirra eru liður í konsertröðinni Kvöld í Hveró. Jón Gunnar Þórarinsson hitar upp fyrir KK og Ellen. Lífið 13.10.2005 19:09
Enn stefnt að afgreiðslu Gunnar I. Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður menntamálanefndar Alþingis, segir enn stefnt að því að afgreiða frumvarp um Ríkisútvarpið á yfirstandandi þingi. "Við höldum áfram vinnu við frumvarpið í nefndinni fyrir og eftir helgi og gerum breytingar á því reynist það nauðsynlegt." Innlent 13.10.2005 19:10
Mikill jarðgangaáhugi á þingi Verktökum verður frjálst að nota risaborvélar, eins og nú eru í Kárahnjúkum, við borun vegganga. Þetta sagði samgönguráðherra í svari við einni af fjórum fyrirspurnum um jarðgöng sem hann svaraði á Alþingi í dag. Innlent 13.10.2005 19:09
Hefur lýst kröfu í þrotabú bræðra Síminn hefur þegar lýst yfir kröfum í þrotabú bræðranna Sveinbjörns Kristjánssonar og Kristjáns Ragnars Kristjánssonar vegna Landssímamálsins svokallaða. Innlent 13.10.2005 19:09
Öll tilboð reyndust yfir áætlun Öll þrjú tilboðin sem bárust í breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar reyndust töluvert yfir kostnaðaráætlun. Það verður þó ekki til að seinka verkinu. Innlent 13.10.2005 19:09
Kjörseðlar enn ósendir Nokkur hundruð félagar í Samfylkingunni eiga enn eftir að fá kjörseðilinn sinn til að kjósa í formannsslagnum, og verður hann sendur út á morgun, að sögn Flosa Eiríkssonar, formanns kjörstjórnar. Innlent 13.10.2005 19:10
Ekki sóttir til saka vegna klúðurs Klúður þýskra yfirvalda og ónógur rökstuðningur íslensku lögreglunnar veldur því að tveir Íslendingar sem handteknir voru vegna smygls á miklu magni af marijúana og kókaíni verða ekki sóttir til saka. Innlent 13.10.2005 19:09
Fornminjar og margmiðlun Elsta mannvirki Íslandssögunnar verður til sýnis næsta vor þegar búið verður að forverja mannvistarleifarnar við Aðalstræti. Rústin og fornleifarnar verða aðalatriðið en auk þess verður margmiðlunarsýning sem gerir grein fyrir því sem lesið hafi verið úr rústinni og aflað með rannsóknum. Innlent 13.10.2005 19:09
Lögregluumdæmi samræma forvarnir Til stendur að koma upp gagnabanka á vegum Ríkislögreglustjóra sem forvarnaraðilar geta sótt í og nýtt til að ná betri árangri í sínu starfi. Þetta kom fram á aðalfundi "Vertu til!" sem er samstarfsverkefni Sambands íslenskra sveitarfélaga og Lýðheilsustöðvar um forvarnir var haldinn öðru sinni í Salnum í Kópavogi í gær. Innlent 13.10.2005 19:09
Vitnisburðir lagðir til hliðar Hæstiréttur ómerkti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur gegn Jóni Árna Rúnarssyni, fyrrum skólastjóra Rafiðnaðarskólans. Héraðsdómur hafði úrskurðað manninn sekan um skjalafals og fjársvik og dæmt hann til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Innlent 13.10.2005 19:09
Sjóvá greiði 27 milljónir Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í gær úrskurð samkeppnisráðs um að Sjóvá-Almennar tryggingar hf. skuli greiða 27 milljóna króna stjórnvaldssekt vegna brots á 10. grein samkeppnislaga. Innlent 13.10.2005 19:09
Starfsendurhæfing í forgang "Já, ég tel þetta mjög áríðandi mál og til mikils að vinna," sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra , spurður um hvort uppbygging starfsendurhæfingar væri eitt af forgangsmálum hjá stjórnvöldum nú. Innlent 13.10.2005 19:09
Norðurljós selja 10 prósent Norðurljós seldu í gær um tíu prósenta hlut í Og fjarskiptum, síma- og fjölmiðlasamsteypunni, fyrir 1,9 milljarða króna. Viðskiptin fóru fram á genginu 4,23 og voru liður í greiðslu til hluthafa í Norðurljósum vegna lækkunar á hlutafé félagsins. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Eldsneytisverð og tíminn skýri tap Tap lággjaldaflugfélagsins Sterling á fyrsta ársfjórðungi nam um 460 milljónum íslenskra króna. Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Sterling og Iceland Express, segir skýringu á taprekstri aðallega hækkun á eldsneytisverði og að hefðbundið sé í rekstri flugfélaga að skila tapi á þessu tímabili. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Vilja bætta stjórn úthafsveiða Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra tók þátt í fundi sjávarútvegsráðherra 17 ríkja sem fór fram í Kanada í byrjun maí. Á fundinum samþykktu ráðherrarnir yfirlýsingu um mikilvægi þess að bæta stjórn úthafsveiða. Innlent 13.10.2005 19:09
Hertar reglur um umferð utan vega Í umhverfisráðuneytinu er verið að leggja lokahönd á endurskoðaða reglugerð um umferð utan vega. Reglurnar verða skýrari og ákveðnari heldur en áður. Þær ná til umferðar bíla, vélknúinna hjóla og hrossa. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:09
Vilja flytja inn bíla strax Ótti manna við að krónan haldi áfram að lækka og dollarinn að hækka hefur skapað gríðarlega ásókn í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum - og það strax. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Fyrir dóm vegna skattsvika Fjórmenningarnir úr Landssímamálinu, sem dæmdir voru í Hæstarétti á dögunum, þurfa enn að mæta í dómsal. Þeir eru ásamt fimmta manni ákærðir fyrir skattsvik upp á tugi milljóna króna og verður málið tekið fyrir í dag. Innlent 13.10.2005 19:09
Ávísanir á geðlyf vafasamar? Heilbrigðisráðherra vill að Landlæknisembættið og Lyfjastofnun kanni hvort eitthvað sé bogið við markaðssetningu geðlyfja við ofvirkni og ávísanir lækna á þau en íslensk börn eiga heimsmet í notkun slíkra lyfja.. Þá vill ráðherrann að brugðist verði við mikilli fjölgun barna með ofvirkni og athyglisbrest. Innlent 13.10.2005 19:09
Einungis Skeljungur borgaði Bæði Essó og Olís ætla að bíða með að greiða sektir sínar vegna ólöglegs samráðs þar til niðurstöður dómstóla liggur fyrir. Bæði félögin vilja leggja fram bankatryggingar þangað til. Skeljungur var því eina olíufélagið sem borgaði sekt sína að fullu áður en frestur til þess rann út á mánudag. Innlent 13.10.2005 19:09
Samstaða um umsókn í Öryggisráðinu Forsætisráðherra segir fulla samstöðu hafa verið milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að sækjast eftir sæti í Öryggisráðinu. Það hafi ekki verið mistök. Verið er að skoða kostnað við framboðið en endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir. Hann segir utanríkisþjónustuna skrifa meira á reikning framboðsins en efni séu til. Innlent 13.10.2005 19:09
Vegaáætlun gagnrýnd Bæjarstjórn Hafnarfjarðar gerði í gær alvarlegar athugasemdir við vegaáætlun fyrir tímabilið 2005-2008. Í ályktun bæjarstjórnar er bent á að ekki renni til nýframkvæmda á höfuðborgarsvæðinu nema rétt um fimmtungur af framlögum ríkisins til vegaframkvæmda. Innlent 13.10.2005 19:09
Milljarðartap hjá deCode Tap af rekstri deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, á fyrsta ársfjórðungi var talsvert meira en tekjur eða um einn milljarður króna. Tekjurnar námu um sex hundruð milljónum króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:09
Nýtt evrópskt sjúkratryggingakort Tryggingastofnun hóf í gær útgáfu á nýju evrópsku sjúkratryggingakorti. Gert er ráð fyrir að stofnunin gefi út 30 þúsund kort á þessu ári. Innlent 13.10.2005 19:09
Starfsendurhæfing í ólestri Ráðherraskipaður starfshópur segir starfsendurhæfingarmál hér á landi skorta fjármagn, framboð, fjölbreytini og eftirfylgni. Þá hafi vantað á samræmingu úrræða og heildaryfirsýn í málaflokkinn. Hópurinn hefur skilað ráðherra skýrslunni. Innlent 13.10.2005 19:09
Óvænt sigling til Íslands Það sem átti að vera hugguleg heimferð tólf Norðmanna til Björgvinjar í Noregi frá Danmörku snerist upp í óvænta margra daga siglingu, m.a. til Íslands. Hópurinn skrapp í helgarferð frá Björgvin til Hanstholm í Danmörku með ferjunni Norrænu en breyting varð á ferðaáætluninni. Innlent 13.10.2005 19:09