Innlent

Fréttamynd

Líður að lokun Hótel Bifrastar

Þeir eru sjálfsagt margir ferðamennirnir sem hafa einhvern tímann áð að Hótel Bifröst að sumarlagi. Vöxtur háskólasamfélagsins þar er hins vegar orðinn svo ör að þetta er síðasta sumarið sem það verður hægt.

Innlent
Fréttamynd

Veiði hafin í Norðurá

Laxveiðitímabilið hófst í dag. Klukkan sjö í morgun mættu veiðimenn á bakka Norðurár í Borgarfirði sem kölluð hefur verið drottning áa. Það er skemmst frá því að segja að núna klukkan tíu var enginn lax kominn á land og veiðimenn einskis orðið varir. Það er stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hóf veiðina í morgun samkvæmt hefð.

Innlent
Fréttamynd

Gríðarlegur verðmunur á gulrótum

Meira en 1450 prósenta munur er á hæsta og lægsta verði í matvöruverslun, samkvæmt nýrri könnun Alþýðusambands Íslands. Þessi gríðarlegi verðurmunur var á gulrótum sem reyndust langdýrastar í 10-11, 698 krónur kílóið, en ódýrastar í Bónus, 45 krónur. Könnunin var gerð fyrir viku um allt land og náði til 63 verslana.

Innlent
Fréttamynd

Misjafnt verð innan verslanakeðja

Hátt á annað þúsund prósenta verðmunur er á milli verslana samkvæmt nýrri verðkönnun. Þá er verð mismunandi á milli verslana í sömu keðju eftir staðsetningu á landinu.

Innlent
Fréttamynd

60-70 ára gömul tré brunnu

Hátt í hundrað tré skemmdust í sinubruna í hólma í Elliðaá í dag. Hluti af trjánum í hólmanum er mjög gamall, allt upp í 60-70 ára.

Innlent
Fréttamynd

Fjölmörg tré skemmdust í sinubruna

Hátt í hundrað tré skemmdust í sinubruna í hólma í Elliðaá á móts við gömlu rafstöðina fyrir stundu. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir frekar sjaldgæft að þeir þurfi að fást við sinabruna á þessum tíma sumars. Hann segir þurrt veður að undanförnu gera aðstæður ákjósanlegar fyrir brennuvarga en víst er talið að um íkveikju hafi verið að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Átök í vændum um Íslandsbanka

Átök eru í vændum um yfirráð í Íslandsbanka og talið víst að Straumur búi sig undir lokaslaginn. Þetta er mat viðmælenda fréttastofunnar í ljósi hlutafjárkaupa æðstu yfirstjórnenda bankans í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bæjarstjóraskipti í Kópavogi

Hansína og Gunnar hafa stólaskipti því hún tekur nú við starfi formanns bæjarráðs Kópavogs en Gunnar hefur verið formaður ráðsins frá 1990.

Innlent
Fréttamynd

F-listi andvígur sölunni

Ólafur F. Magnússon, fulltrúi Frjálslynda flokksins í borgarstjórn, hefur lýst sig andvígan því að Reykjavíkurborg selji Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Heilsuverndarstöðin hefur þjónað því hlutverki sem nafnið gefur til kynna í rúm 50 ár, allt frá árinu 1954.

Innlent
Fréttamynd

Fjórðungi bæjarbúa sagt upp

Annar hver vinnandi maður á Bíldudal fékk í gær uppsagnarbréf. Ákveðið hefur verið að loka fiskvinnslunni Bílddælingi, þar sem einn af hverjum fjórum íbúum í bænum starfar.

Innlent
Fréttamynd

6,5 prósentum muni á stýrivöxtum

Stýrivextir hér á landi eru nú 9 prósent, eða 6,5 prósentustigum hærri en í helstu viðskiptalöndunum þar sem þeir eru að meðaltali 2,5 prósent. Þetta veldur því að vaxtamunur við útlönd er 6,5 prósent á skammtímalánum að því er fram kemur í <em>Vegvísi</em> Landsbankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Velta Háskólans 6,6 milljarðar

Heildarvelta Háskóla Íslands nam 6,6 milljörðum króna árið 2004 samkvæmt endurskoðuðum ársreikningi Háskólans. Skráðir nemendur við skólann voru 8.725 í fyrra og fastráðnir starfsmenn 896 í 811 stöðugildum. Á árinu 2004 starfaði 1841 lausráðinn stundakennari við skólann. Skráðum nemendum hefur fjölgað úr 5.800 í tæplega 9.000 frá árinu 1997.

Innlent
Fréttamynd

Tímamótalyf gegn frunsum

Tímamótalyf gegn frunsum, fiskflakaskurður með vatnsskurði og orkustjórnunarkerfi sem leiðir til allt að fimmtán prósenta olíusparnaðar fiskiskipa eru meðal þeirra þrjátíu íslenskra verkefna sem hlutu styrki úr Tækniþróunarsjóði í dag.

Innlent
Fréttamynd

Styðja austurrísku leiðina

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hafa lýst yfir stuðningi við frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri - grænna, um austurrísku leiðina um viðbrögð lögreglu við heimilisofbeldi. Hún felur í sér breytingu á lögum um meðferð opinberra mála sem ætlað er að tryggja friðhelgi fórnarlambsins á eigin heimili með því að fjarlægja ofbeldismanninn af heimilinu í stað þess að fórnarlambið þurfi að flýja.

Innlent
Fréttamynd

Þrefalt fleiri karlar gefa blóð

Þrisvar sinnum fleiri karlar en konur gefa blóð reglulega hjá Blóðbankanum. Hins vegar er hlutfall milli karla og kvenna jafnt meðal nýrra blóðgjafa. Meginástæðan fyrir brottfalli kvenna í hópi blóðgjafa er sögð meðganga og brjóstagjöf en þá mega þær ekki gefa blóð svo þær gangi ekki á birgðir líkamans. Svo virðist sem að margar konur skili sér ekki aftur í blóðgjöf að þeim tíma liðnum.

Innlent
Fréttamynd

Öryggismál í ólestri

Barbara Björnsdóttir, skrifstofustjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur, segir öryggisgæslu óviðunandi í húsi héraðsdóms sem stendur. Sérstaklega verði að gera breytingar þar sem umgangur almennings í húsið, þar sem það stendur í alfaraleið í miðbænum, sé töluverður.

Innlent
Fréttamynd

Jón Helgi selur

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var það Jón Helgi Guðmundsson í BYKO sem seldi 240 milljónir hluta í Íslandsbanka til æðstu stjórnenda bankans í gær.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lýsa furðu á framkvæmd

"Reykjavíkurlistinn ætlar aldrei að læra. Fjárfestingar Orkuveitunnar í fjarskiptarekstri og risarækjueldi er búið að kosta borgarbúa milljarða og áfram er haldið," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, fulltrúi sjálfstæðismanna í stjórn Orkuveitunnar.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurðar að vænta innan 2 vikna

Dómari í Héraðsdómi Reykjavíkur ákveður innan tveggja vikna hvort höfundarréttarmáli gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni verði vísað frá dómi eða ekki. Málið höfðaði Auður Sveinsdóttir, ekkja Halldórs Laxness og handhafi höfundarréttar bóka hans. Hún hefur stefnt Hannesi Hólmsteini fyrir ritstuld og krefst sjö og hálfrar milljónar króna í bætur. Hannes krefst þess að málinu verði vísað frá dómi.

Innlent
Fréttamynd

Frístundabyggð samþykkt

Orkuveitan hyggst ekki byggja sumarhús við Úlfljótsvatn heldur aðeins annast skipulag jarðarinnar. Heimild er í hluthafasamkomulagi milli Orkuveitunnar og dótturfélags Íslandsbanka til að byggja og selja hús á jörðinni. Félögin stefna að frekari jarðakaupum.

Innlent
Fréttamynd

Spáir 3,8% verðbólgu á árinu

Greiningardeild KB banka telur að verðbólga á þessu ári verði 3,8 prósent og nái lágmarki í næsta mánuði, en þá verði 12 mánaða verðbólga 2,4 prósent. Eftir það mun aukin spenna á vinnumarkaði og lækkandi gengi krónunnar skapa aukinn verðbólguþrýsting.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Alfreð vill fyrsta sæti Framsóknar

Búist er við því að framsóknarmenn velji fulltrúa sína á R-listann með flokksvali á kjördæmisþingi flokksins eða í prófkjöri en fleiri munu hallast að fyrrnefnda kostinum.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla greip inn málið of seint

Lögmenn sakborninga í Dettifossmálinu gagnrýndu vinnubrögð lögreglunnar harðlega þegar málið var tekið til aðalmeðferðar í gær, og sögðu hana hafa sýnt dómgreindarleysi með því að grípa ekki inn í atburðarásina fyrr.

Innlent
Fréttamynd

Alfreð hafður undir

Sjálfstæðismenn í stjórn Orkuveitunnar lögðu fram bókun á stjórnarfundi fyrirtækisins í gær þar sem þeir lýstu furðu sinni á því að viljayfirlýsing um álver í Helguvík væri ekki á dagskrá fundarins.

Innlent
Fréttamynd

Enginn lax kominn á land í Norðurá

Enginn lax er enn kominn á land í Norðurá, drottningu íslenskra áa. Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur hóf veiðitímabilið venju samkvæmt klukkan sjö í morgun. Hópurinn hefur enn ekki haft erindi sem erfiði.

Innlent
Fréttamynd

Ný flugvél í notkun

Flugfélagið Ernir hefur tekið nýja flugvél í notkun. Fyrsta ferð vélarinnar var eins og hálfs klukkustundar útsýnisflug um Suðurland sem kallast Jöklar og eldfjöll þar sem flogið var að Gullfossi og Geysi og yfir Tindfjalla- og Eyjafjallajökul.

Innlent
Fréttamynd

Hátt gengi bitnar á landsbyggðinni

Öllum starfsmönnum fjögurra fyrirtækja í útflutningsgreinum á landsbyggðinni fengu uppsagnarbréf um mánaðamótin. Alls eru þetta um 140 manns í fjórum byggðarlögum.

Innlent
Fréttamynd

Kópavogur 50 þúsund manna borg

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, tekur launalaust leyfi frá Alþingi á meðan hann gegnir bæjarstjórastarfinu. Framtíðarsýn nýja bæjarstjórans er að innan ekki langs tíma verði Kópavogur orðinn fimmtíu þúsund manna borg.

Innlent
Fréttamynd

Á batavegi eftir hermannaveiki

Maðurinn sem liggur á Landspítalanum með hermannaveiki er á hægum batavegi. Honum er þó enn haldið sofandi í öndunarvél og hann er ekki úr lífshættu. Blóðprufur sýna þó að ástand hans fer batnandi.

Innlent
Fréttamynd

Menntaverðlaun veitt í kvöld

Forseti Íslands veitir Íslensku menntaverðlaunin í kvöld í fyrsta sinn. Athöfnin fer fram í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Verðlaunin verða veitt í fjórum flokkum: skólum sem sinnt hafa vel nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi, kennurum sem skilað hafa merku ævistarfi eða skarað fram úr, ungu fólki sem í upphafi síns kennsluferils sýnir hæfileika og leggur alúð við starfið og höfundum námsefnis sem stuðlað hafa að nýjungum í skólastarfi.

Innlent