Innlent

Fréttamynd

Fimm ákærðir vegna vinnuslyss

Í dag verður tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands mál sem ríkissaksóknari höfðar gegn fimm starfsmönnum við Kárahnjúkavirkjun sem sakaðir eru um vanræsklu í starfi þegar starfsbróðir þeirra lést eftir að hafa orðið fyrir stóru grjóti við vinnu í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Undrast ekki vantrú á markmiðum

Forstöðumaður Íslandsbanka er ekki hissa á að almenningur hafi litla trú á að markmið Seðlabanka Íslands um að halda verðbólgunni í 2,5 prósentum haldist en fólk býst við að verðbólgan verði um 4 prósent næstu tólf mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Leyft að veiða meiri ýsu og ufsa

Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að veiðar úr þorskstofninum verði minnkaðar um sjö þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Framkvæmdastjóri LÍÚ er sama sinnis og fagnar auknum veiðiheimildum á ýsu og ufsa.

Innlent
Fréttamynd

Góðar og slæmar fréttir í skýrslu

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, sagði í samtali við fréttastofu Bylgjunnar að í skýrslu Hafnrannsóknastofnunar um nytjastofna sjávar væru bæði góðar og slæmar fréttir. Góðu fréttirnar væru gríðarlega mikill vöxtur ýsustofnsins og í ufsans og að ýmsir aðrir stofnar væru í þokkalega góðu ástandi, eins og síldin.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins önnur tillagan kynnt

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin um skipulagsmál á Seltjarnarnesi en áhugahópur um betri byggð á Seltjarnesi stóð fyrir því að leitað væri leiða til að bjóða upp á annan valkost en þann sem bæjarstjórnin hafði samþykkt.

Innlent
Fréttamynd

Höfuðborgarsvæðið verði ein heild

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins, telur að sameina eigi sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu. Það sé að mati flokksins brýnasta verkefnið í skipulagsmálum svæðisins. Hann lýsir þessu í tengslum við hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um byggð í eyjunum við Reykjavík. Hann segir þær virka djarfar og spennandi í fyrstu en standist ekki við nánari skoðun.

Innlent
Fréttamynd

Kynna ástand þorskstofns í dag

Ástand þorsksins og aflahorfur fyrir næsta fiskveiðiár verða kynnt á blaðamannafundi Hafrannsóknarstofnunar klukkan tvö í dag. Þar verður gerð grein fyrir skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um nytjastofna sjávar árið 2004 og 2005. Nú liggja fyrir endanlegar niðurstöður úr togararalli í lok apríl en bráðabirgðaniðurstöður sýndu mjög lélega árganga þorskstofnsins og stórlækkaða stofnvísitölu.

Innlent
Fréttamynd

Athuga ráðstafanir vegna mótmæla

Forstjóri Útlendingastofnunar segir ríka ástæðu til að skoða hvort grípa þurfi til varúðarráðstafana vegna komu atvinnumótmælenda hingað til lands sem ætla að mótmæla framkvæmdunum við Kárahnjúka.

Innlent
Fréttamynd

Aðstandendur í klípu

Framleiðendur þáttanna Allir litir hafsins eru kaldir segja það valda sér verulegum vandræðum að Sjónvarpið ætli ekki að sýna þáttinn fyrr en eftir áramót.

Innlent
Fréttamynd

Láglaunastörf fara annað

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra kveðst ekki sjá hvernig útfæra eigi hugmyndir þær sem Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður sjávarútvegsnefndar, setti fram í ræðu á Patreksfirði á sjómannadaginn. Kristinn mælti með því að 20 þúsund tonna aflaheimildir yrðu fluttar til staða sem ekki nytu stóriðju.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar sækja Ísland heim

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í apríl alls staðar á landinu miðað við sama mánuð í fyrra, eða um níu prósent. Fjölgunin er einvörðungu vegna Íslendinga því erlendum gestum hefur ekki fjölgað. Langmeseta aukningin var á Suðurlandi þar sem þær voru liðlega sjö þúsund og hafði fjölgað um 35 prósent miðað við apríl 2004.

Innlent
Fréttamynd

Þorskkvóti verði minnkaður

Hafrannsóknarstofnunin leggur til að þorskkvótinn verði minnkaður um sjö þúsund tonn á næsta fiskveiðiári og að aflamark verði 198 þúsund tonn miðað við 205 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Þetta kom fram á blaðamannafundi Hafrannsóknarstofnunar í dag þegar ný skýrsla um nytjastofna sjávar var kynnt.

Innlent
Fréttamynd

Trúnaðarbrestur í Landakotsskóla

Foreldrar barna í Landakotsskóla héldu skyndifund í gærkvöld í kjölfar afsagnar skólastjórans sem kveðst óánægður með nýja stjórn skólans. Áskorun um stuðning við skólastjórann var samþykkt einróma.

Innlent
Fréttamynd

Ræða stofnun fríkirkju í Garðabæ

Fjöldamörg sóknarbörn í Garðasókn eru verulega óánægð með að aðalsafnaðarfundur hafi ekki verið haldinn í maí, en í lögum um starfshætti Þjóðkirkjunnar segir að þá skuli "að jafnaði halda fyrir maílok ár hvert". Hátt í fjögur hundruð sóknarbörn hafa skrifað undir áskorun um að fundurinn verið haldinn sem fyrst og hafa sóknarbörn jafnvel rætt um að stofna fríkirkjusöfnuð í Garðabæ.

Innlent
Fréttamynd

Fylgjast með mótmælendum

Útlendingastofnun mun í samráði við lögregluyfirvöld fylgjast með erlendum mótmælendum sem hyggjast mótmæla Kárahnjúkavirkjun í sumar. Forstjóri stofnunarinnar segir ástæðu til að skoða hvort grípa þurfi til varúðarráðstafana.

Innlent
Fréttamynd

Veðrið var vont til landbúnaðar

Kuldi og þurrkar voru miklir í maí, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur. Meðalhiti á landinu undir meðallagi. Hefur áhrif á grassprettu og kornrækt.

Innlent
Fréttamynd

Beðið eftir ákvörðun Steinunnar

Enn er þess beðið með eftirvæntingu hvort Steinunn Jónsdóttir, dóttir Jóns Helga Guðmundssonar sem kenndur er við Byko, selji fjögurra prósenta hlut sinn í bankanum og þá hverjum. Hlutur Steinunnar getur orðið til þess að nýr meirihluti myndist í bankanum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skólaslit víða í grunnskólum

Grunnskólabörn ganga út í sumarið þessa dagana við skólaslit í grunnskólum landsins. Álftamýrarskóli sleit skólastarfinu í morgun og hélt um leið upp á fjörutíu ára afmæli sitt.

Innlent
Fréttamynd

Félagsmönnum mismunað

Framkvæmdastjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands vill láta endurskoða reglugerðir um sjúkrasjóði stéttarfélaganna, þannig að aðstoð þeirra nái til félagsmanna sem horfnir eru af vinnumarkaði sakir aldurs.

Innlent
Fréttamynd

Eyjabyggð sprengir gatnakerfið

Í sex ára gamalli skýrslu borgarverkfræðings og Borgarskipulags Reykjavíkur er talið óraunhæft að stofna til 20 þúsund manna byggðar á uppfyllingum úti af Örfirisey og á öðrum uppfyllingum í grennd við miðborgina. Í umferðarspá sem Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen vann fyrir borgaryfirvöld koma fram efasemdir um umferðarálag.

Innlent
Fréttamynd

Gistinóttum fjölgar

Íslenskum hótelgestum fjölgaði stórlega í öllum landshlutum í aprílmánuði síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Fjöldi gistinótta útlendinga stendur hins vegar í stað. Þetta kemur fram í úttekt Hagstofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Sunny Jane landaði ekki

Sjóræningjaskipið Sunny Jane fékk ekki að landa illa fengnum afla í Hollandi í gær. Landhelgisgæslan hafði fyrir helgi spurnir af skipinu og því að ólöglegum afla hefði verið umskipað yfir í það en Sunny Jane er flutningaskip sem siglir undir belískum fána.

Innlent
Fréttamynd

Loks úrkoma á Suðvesturlandi

Fyrsta alvöru úrkoman hér á landi í meira en þrjár vikur féll á vestan- og suðvestanvert landið í morgun og er spáð töluverðri rigningu víða á þessu svæði næsta sólarhringinn. Bændur fagna rigningunni eftir þurrkinn að undanförnu en bændur í suðausturhluta landsins þurfa að bíða lengur eftir almennilegri vætu.

Innlent
Fréttamynd

Orkuveitan í baðrekstur

Orkuveita Reykjavíkur í samstarfi við Saga heilsa og spa kannar nú hvort byggja eigi upp heilsutengda ferðaþjónustu á Nesjavallasvæðinu. Framkvæmdastjóri Bláa lónsins telur óeðlilegt að opinbert fyrirtæki hyggist standa í slíkum rekstri.

Innlent
Fréttamynd

Vill hafa ketti í bandi

Fjölmargar kvartanir hafa borist vegna lausra katta í þéttbýlisstöðum í sveitarfélaginu Árborg og hafa yfirvöld þar því ákveðið að dýraeftirlitsmaður veiði og lógi ómerktum köttum.

Innlent
Fréttamynd

Versta sumarbyrjun í 25 ár

Langþráð rigning féll til jarðar á Suður- og Vesturlandi í dag, bændum til mikillar ánægju enda gróður víða illa farinn vegna þurrka. Ólafur Dýrmundsson hjá Bændasamtökunum telur þessa sumarbyrjun þá verstu í um aldarfjórðung.

Innlent
Fréttamynd

Spartakus og Ljósálfur í skrár

Mannanafnanefnd hefur hafnað beiðni um endurupptöku á málum þar sem nöfnunum Annarósa og Eleonora var synjað um staðfestingu. Hins vegar hefur nefndin samþykkt karlmannsnöfnin Spartakus og Ljósálfur ásamt kvenmannsnöfnunum Elínheiður og Janetta. Þá fékk millinafnið Diljan náð fyrir augum nefndarinnar en nafninu Hnikarr og Mar sem kvenmannsnafn var hins vegar hafnað.

Innlent
Fréttamynd

Segir sameiningu raunhæfa

Sameina á sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu, það er bæði raunhæft og skynsamlegt að mati Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa. Hann ætlar að flytja tillögu þess efnis í borgarstjórn í haust.

Innlent