Innlent
Ný vefsíða tekin í notkun Innlent 13.10.2005 19:21 Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert. Dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan sem gefa af óeigingirni blóð til sjúkra. Pylsur verða m.a. grillaðar í bakgarði Blóðbankans á morgun í tilefni dagsins. Lífið 17.10.2005 23:41 Rætt um staðsetningu álvers Fulltrúar frá Akureyrarbæ, Húsavíkurbæ og Sveitarfélaginu Skagafirði áttu í gær fund í Reykjavík með starfsmönnum Fjárfestingastofu og Alcoa varðandi staðsetningu nýs álvers á Norðurlandi. Innlent 13.10.2005 19:21 Ekki hægt að tryggja sig Ekki er hægt að tryggja sig gegn tjóni vegna veggjatítlna hjá tryggingafélögunum og stendur ekki til að bæta þar úr. Þeir eigendur timburhúsa sem fá þessa óboðnu gesti geta þannig staðið uppi með verðlausa húseign. Innlent 13.10.2005 19:21 Aukning á iðrasýkingum í sumar Kampýlóbakter- og nóróveirusýkingar eiga eftir að aukast hér á landi eftir því sem líður á sumarið, að mati Haraldar Briem smitsjúkdómalæknis. Nóróveirusýkingar verða meðal annars þegar rotþrær fyllast og mengun kemst í neysluvatn. Þá eru miklar sýkingar um borð í skemmtiferðaskipum tengdar veirunni. Innlent 13.10.2005 19:21 Þungir dómar í fíkniefnamáli Sex hlutu fangelsisdóma vegna fíkniefnasmygls frá Rotterdam í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Dómarnir voru frá hálfu og upp í tvö ár hver. Ung kona var hins vegar sýknuð af ákæru um að hafa móttekið ágóða af fíkniefnabroti. Innlent 13.10.2005 19:21 Skipuleggjendur kölluðu á lögreglu Mótmæli sem náttúruverndarsamtökin Náttúruvaktin stóðu fyrir fyrir utan Nordica hótel í gær vöktu litla hrifningu skipuleggjenda alþjóðlegrar álráðstefnu sem þar fer fram. Fór nærvera um tíu mótmælenda svo mjög fyrir brjóstið á þeim að þess var krafist að lögregla yrði kölluð til. Innlent 13.10.2005 19:21 Búist við úrskurði í dag Búist er við að ríkisendurskoðandi skili í dag úrskurði um hvort Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var vanhæfur þegar ríkisbankarnir voru seldir. Þetta er vegna tengsla fyrirtækis í eigu ráðherrans og fjölskyldu hans við S-hópinn svokallaða en þau tengsl voru ekki gefin upp í byrjun ferlisins. Innlent 13.10.2005 19:21 Ógnaði fólki með skrúfjárni Úlpuklæddur maður framdi rán á bensínafgreiðslustöð Olís í Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan fimm í gærdag. Ógnaði hann tveimur starfsmönnum stöðvarinnar með skrúfjárni áður en hann hvarf brott með sölu dagsins. Innlent 13.10.2005 19:21 « ‹ ›
Síminn hættur sekúndumælingum Póst- og fjarskiptastofnun vakti í gær athygli á breytingum sem Síminn hefur gert á tímamælingu símtala. Annan júní hætti fyrirtækið að innheimta gjöld samkvæmt sekúndumælingu í einstaklingsáskriftum farsíma. Innlent 13.10.2005 19:22
Gunnar Valur hættir í haust Guðmundur G. Gunnarsson, forseti bæjarstjónar Álftaness, verður ráðinn í stöðu bæjarstjóra bæjarfélagsins frá og með 1. september næstkomandi. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi bæjarstjórnar síðdegis í gær. Innlent 13.10.2005 19:22
Verst settir fá enga hjálp Skilyrði geta komið í veg fyrir að ávinningur af skuldaniðurfellingu margra af fátækustu ríkja heims komist til þeirra sem mest þurfa á að halda. "Skilyrði um stjórnhætti, baráttu gegn spillingu og þróun í lýðræðisátt útiloka mörg fátækustu landanna," sagði Jónas Þórir Þórisson, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar í Hádegisútvarpi Talstöðvarinnar í gær. Innlent 13.10.2005 19:21
Rignir líklega um helgina Þó að margir fagni regnleysinu þá eru þurrkar farnir að valda vandræðum í landbúnaði um allt land. Ólafur Dýrmundsson, ráðgjafi hjá Bændasamtökunum, segir að ef ekki fari fljótlega að rigna þá gæti það valdið skaða í úthaga og ekki síður á túnum. Innlent 13.10.2005 19:21
Gámurinn kominn á land Búið er að hífa ammóníaksgáminn úr Lagarfossi og á land í Grundartangahöfn. Tíu eiturefnakafarar frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins eru á staðnum til að tryggja öryggið. Breyting varð á vindáttinni sem gerði að verkum að slökkviliðið þurfti aðeins að breyta vinnulagi sínu við aðgerðina. Innlent 13.10.2005 19:21
Mesta aukning einkaneyslu í 5 ár Einkaneysla jókst um tæp 9,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og þarf að leita fimm ár aftur í tímann til að finna sambærilega aukningu. Mest jukust kaup á innfluttum vörum og þjónustu. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:21
Útgjöld vaxa hraðar en tekjur Þjóðarútgjöld Íslendinga, sem eru samanlögð einkaneysla hér á landi og fjárfestingar, hafa vaxið um 11,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra þótt landsframleiðsla hafi ekki vaxið nema um 2,9 prósent á sama tíma. Útgjöldin hafa því aukist meira en tekjurnar. Innlent 13.10.2005 19:21
Komið í veg fyrir leka Fjölmennt lið slökkviliðs og lögreglu var í viðbragðsstöðu þegar Lagarfoss, leiguskip Eimskipafélagsins, lagðist að bryggju við Grundartanga í gærmorgun. Ekkert frekara tjón var þó vegna ammóníaksleka í skipinu eins og óttast var. Innlent 13.10.2005 19:21
Ný samtök gegn álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirðinum voru stofnuð á fjölmennum fundi á Akureyri þann 28. maí síðastliðinn. <font face="Helv"></font> Innlent 13.10.2005 19:21
Þrettán akreinar á kafla Framkvæmdir við breikkun gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru nýhafnar og hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins væntanlega ekki farið varhluta af þeim í gær. Innlent 13.10.2005 19:21
Fluttu inn 130 g og 1000 töflur Héraðsdómur Reykjaness dæmdi sex ungmenni, fimm karla og eina konu, til fangavistar í dag fyrir aðild að innflutningi á eitt þúsund amfetamíntöflum og rúmlega 130 grömmum af kókaíni. Efnin voru keypt í Rotterdam og flutt til landsins með Íslandspósti, falin inni í vaxkertum. Innlent 13.10.2005 19:21
Halldór ekki vanhæfur Ríkisendurskoðun segir hugleiðingarnar um óhæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra í sölu ríkisbankanna í raun óþarfar því hann hafi verið í veikindaleyfi þegar gengið var frá sölunni. Hagsmunir hans við söluna hafi reyndar verið óverulegir miðað við umfang viðskiptanna og því hefði hann ekki talist vanhæfur, hefði hann séð um söluna. Innlent 13.10.2005 19:21
Kominn yfir Húnaflóa Hringróðurinn kringum Ísland sóttist vel yfir helgina. Kjartan lagði af stað frá Reykjafirði á föstudaginn og fór þá í einni lotu fram að Kaldbaksvík, alls 35 sjómílur. Innlent 13.10.2005 19:21
Flugleiðir gefa 530 flugmiða Flugleiðir hafa gefið fimm hundruð og þrjátíu farþegum sem urðu fyrir óskemmtilegum töfum á flugi til og frá San Fransisco farmiða að eigin vali á flugleiðum félagsins. Tvö hundruð og sextíu manns héldu áleiðis til San Fransisco um þrjú leytið í nótt en tvö hundruð og sjötíu manns biðu þess ytra að komast í flug til Íslands. Innlent 13.10.2005 19:21
Landsvirkjun býður tvö verk út Landsvirkjun óskaði í gær eftir tilboðum í tvær stórframkvæmdir vegna Kárahnúkavirkjunar. Annað verkefnið er gröftur og gangagerð vegna botnrásar við Jökulsá í Fljótsdal vegna væntanlegrar Ufsarstíflu. Þau göng eiga að vera 57 metra löng og sjö metra breið.<font face="Helv"></font> Innlent 13.10.2005 19:21
Föroya Sparikassi í Kauphöllina Föroya Sparikassi, stærsta fjármálafyrirtæki Færeyja, er orðið aðili að Kauphöll Íslands, þriðja erlenda fyrirtækið sem það verður. Heildareignir Föroya Sparikassa eru tæpar níu hundruð milljónir evra og með aðild að Kauphöll Íslands er verið að renna styrkari stoðum undir verðbréfahluta starfseminnar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:21
Skóflustunga að nýrri álmu við ME Fyrsta skóflustunga að nýrri álmu við Menntaskólann á Egilsstöðum var tekin í dag. Hún mun bylta starfi skólans og stórbæta aðstöðu þar. Innlent 13.10.2005 19:21
Halldór ekki vanhæfur Halldór Ásgrímsson áréttar það að hann hafi ekkert haft með rekstur Skinneyjar-Þinganess að gera þegar félagið gerðist óbeinn aðili að S-hópnum í aðdragandanum að Búnaðarbankasölunni. Ríkisendurskoðandi segir Halldór ekki hafa verið vanhæfan til að fjalla um málið.</font /> Innlent 13.10.2005 19:21
Skýlir sér á bak við embættismenn Stjórnarandstaðan segir forsætisráðherra skýla sér á bak við embættismenn og víkja sér undan pólitískri ábyrgð. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að málið sé að líkindum fallið um sjálft sig komist Ríkisendurskoðun að því að ráðherrann hafi verið hæfur til að koma að einkavæðingu bankanna. Innlent 13.10.2005 19:21
Vara við álveri í Eyjafirði Samtök um fjölbreytta atvinnuuppbyggingu í Eyjafirði vara eindregið við þeirri stefnu stjórnvalda að einhæfa atvinnulíf þjóðarinnar með enn einu álveri, hugsanlega við Eyjafjörð. Innlent 13.10.2005 19:21
Athugasemdir vegna sameiningar Skólastjórnendur leik- og grunnskóla Vestmanneyjarbæjar gera alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð bæjarstjórnarmanna vegna sameiningar leikskólanna og grunnskólanna undir eina yfirstjórn á næsta ári. Innlent 13.10.2005 19:21
Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er haldinn hátíðlegur 14. júní ár hvert. Dagurinn er haldinn til heiðurs blóðgjöfum um heim allan sem gefa af óeigingirni blóð til sjúkra. Pylsur verða m.a. grillaðar í bakgarði Blóðbankans á morgun í tilefni dagsins. Lífið 17.10.2005 23:41
Rætt um staðsetningu álvers Fulltrúar frá Akureyrarbæ, Húsavíkurbæ og Sveitarfélaginu Skagafirði áttu í gær fund í Reykjavík með starfsmönnum Fjárfestingastofu og Alcoa varðandi staðsetningu nýs álvers á Norðurlandi. Innlent 13.10.2005 19:21
Ekki hægt að tryggja sig Ekki er hægt að tryggja sig gegn tjóni vegna veggjatítlna hjá tryggingafélögunum og stendur ekki til að bæta þar úr. Þeir eigendur timburhúsa sem fá þessa óboðnu gesti geta þannig staðið uppi með verðlausa húseign. Innlent 13.10.2005 19:21
Aukning á iðrasýkingum í sumar Kampýlóbakter- og nóróveirusýkingar eiga eftir að aukast hér á landi eftir því sem líður á sumarið, að mati Haraldar Briem smitsjúkdómalæknis. Nóróveirusýkingar verða meðal annars þegar rotþrær fyllast og mengun kemst í neysluvatn. Þá eru miklar sýkingar um borð í skemmtiferðaskipum tengdar veirunni. Innlent 13.10.2005 19:21
Þungir dómar í fíkniefnamáli Sex hlutu fangelsisdóma vegna fíkniefnasmygls frá Rotterdam í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Dómarnir voru frá hálfu og upp í tvö ár hver. Ung kona var hins vegar sýknuð af ákæru um að hafa móttekið ágóða af fíkniefnabroti. Innlent 13.10.2005 19:21
Skipuleggjendur kölluðu á lögreglu Mótmæli sem náttúruverndarsamtökin Náttúruvaktin stóðu fyrir fyrir utan Nordica hótel í gær vöktu litla hrifningu skipuleggjenda alþjóðlegrar álráðstefnu sem þar fer fram. Fór nærvera um tíu mótmælenda svo mjög fyrir brjóstið á þeim að þess var krafist að lögregla yrði kölluð til. Innlent 13.10.2005 19:21
Búist við úrskurði í dag Búist er við að ríkisendurskoðandi skili í dag úrskurði um hvort Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra var vanhæfur þegar ríkisbankarnir voru seldir. Þetta er vegna tengsla fyrirtækis í eigu ráðherrans og fjölskyldu hans við S-hópinn svokallaða en þau tengsl voru ekki gefin upp í byrjun ferlisins. Innlent 13.10.2005 19:21
Ógnaði fólki með skrúfjárni Úlpuklæddur maður framdi rán á bensínafgreiðslustöð Olís í Hamraborg í Kópavogi laust eftir klukkan fimm í gærdag. Ógnaði hann tveimur starfsmönnum stöðvarinnar með skrúfjárni áður en hann hvarf brott með sölu dagsins. Innlent 13.10.2005 19:21