Innlent
Leita enn að lögfræðingum Stjórnarandstaðan hefur ekki enn fengið lögfræðinga til að skoða hæfi forsætisráðherra til að fjalla um sölu Búnaðarbankans. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði í samtali við fréttastofu Bylgjunnar fyrir hádegið að verið væri að leita að lögfræðingum til að skoða málið og að búist væri við að þeir hæfu vinnu sína fljótlega. Innlent 13.10.2005 19:23
Samkeppnisstaðan breytist ekki Fiskútflytjendur telja að samkeppnisstaðan breytist ekki mikið þó að FL Group, Bláfugl og Flugflutningar renni saman. Níels Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tros í Sandgerði, telur að samruni fyrirtækjanna þriggja valdi ekki jafn miklum áhyggjum og þróun gengisins. Innlent 13.10.2005 19:23
Ungmenni frædd um alnæmi Þetta er fræðsla sem sífellt þarf að veita," segir Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Alnæmissamtakanna á Íslandi. Fulltrúar samtakanna hittu nú eftir áramótin flesta 9. og 10. bekkinga á landinu og fræddu um alnæmi. Innlent 13.10.2005 19:23
Grunuð um að hafa kveikt í bíl Lögreglan í Hafnarfirði er með þrjú ungmenni í haldi í tengslum við bílbruna í Heiðmörk í morgun. Lögreglan sá til fólks í fjarska þegar hún kom að brennandi bílnum og hafði hendur í hári þriggja. Þau hafa lítið viljað tjá sig við lögreglu enn sem komið er. Grunur leikur á að málið kunni að tengjast frekari skemmdarverkum á bílum. Innlent 13.10.2005 19:23
Valt við að sturta mold Ökumaður vörubíls meiddist lítillega þegar bíll hans valt á hliðina þar sem hann var að sturta mold í pytt í grennd við Nátthaga í Ölfusi klukkan að ganga 10 í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:23
Verðbólga hér næstminnst innan EES Verðbólga á Íslandi er sú næstminnsta innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að verðbólgan á Íslandi miðað við samræmda neyluverðsvísitölu EES-landanna var 0,5 prósent en lægst var hún í Svíþjóð, eða 0,2 prósent. Yfir tólf mánaða tímabil var verðbólgan mest í Lettlandi, 6,5 prósent og 3,7 prósent í Lúxemborg. Innlent 13.10.2005 19:23
Skjár einn semur við Playboy Íslenska sjónvarpsfélagið, sem er að hluta í eigu ríkisfyrirtækisins Símans og rekur sjónvarpsstöðina Skjá einn, hefur gengið frá samningi um efniskaup frá bandaríska klámframleiðandanum Playboy. Innlent 13.10.2005 19:23
Harður árekstur í Kópavogi Harður árekstur varð á gatnamótum Reykjanesbrautar og Arnarnesvegar rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Beita þurfti klippum til að ná fólki úr annari eða báðum bifreiðunum. Ekki liggur fyrir hvort að slys urðu á fólki að svo stöddu en lögreglan er enn á vettvangi. Innlent 13.10.2005 19:23
Vill ekkert staðfesta um Europris "Það getur vel verið að það verði eigendaskipti í Europris en ég ætla ekki að staðfesta neitt að svo stöddu," segir Matthías Sigurðsson, meirihlutaeigandi Europris-verslananna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
Hlemmur aftur til virðingarvegs Um tvö hundruð manns mættu á fund borgaryfirvalda að Hlemmi í gær en þar voru kynntar fyrir íbúum miðbæjarins framtíðarskipulagshugmyndir á nokkrum reitum við Hlemm og í nágrenni. Sá staður hefur tekið stakkaskiptum undanfarna mánuði en aðeins er um fyrstu skref að ræða til að koma svæðinu í heild aftur til vegs og virðingar. Innlent 13.10.2005 19:23
Kveikt í bátaskýli í Hafnarfirði Kveikt var í bátaskýli í Hafnarfirði í gærkvöldi og brann það til kaldra kola. Skýlið stóð við Hvaleyrarhæð og var tilkynnt um eldinn á áttunda tímanum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skýlið stóð í röð slíkra skýla og var gengið úr skugga um að eldur hefði ekki borist í þau. Innlent 13.10.2005 19:23
Slasaðist lítillega í bílveltu Farþegi slasaðist lítillega þegar bíll valt á Suðurlandsvegi austan við Selfoss í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum og var sá sem meiddist farþegi. Báðir voru í bílbelti. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaðurinn hafi verið kominn of langt út í hægri vegkantinn og því sveigt snögglega til vinstri með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af þeim megin og hafnaði á hliðinni í skurði. Innlent 13.10.2005 19:23
Kominn úr öndunarvél eftir bílslys Ungi maðurinn sem fluttur var á gjörgæsludeild eftir bílslys í Öxnadal í síðustu viku, er kominn úr öndunarvél. Hann liggur þó enn á gjörgæsludeild. Fjórir ungir karlmenn voru í bílnum sem fór út af veginum, tveir létust en hinir tveir slösuðust alvarlega. Innlent 13.10.2005 19:23
Vörubíll valt á hliðina í Ölfusi Bílstjóri meiddist þegar vörubíll valt á hliðina við Nátthaga í Ölfusi í morgun. Verið var að sturta mold af bílnum þegar pallurinn seig á hliðina og bíllinni með. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum í hálsi og baki og eftir skoðun á heilsugæslustöðinni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til nánari rannsóknar. Innlent 13.10.2005 19:23
Minna bil milli hvalveiðifylkinga Formanni íslensku sendinefndarinnar á fundi Alþjóðahvalveiðráðsins telur að draga sé saman með fylkingum í afstöðunni til hvalveiða. Lögð verður fram tillaga á fundinum í Suður-Kóreu í dag um að hefja hvalveiðar í vísindaskyni. Innlent 13.10.2005 19:23
Ferðamennska fremur en hvalveiðar Grænfriðungar halda áfram að hvetja Íslendinga að hefja ekki hvalveiðar að nýju og benda á að mun meiri tekjur fáist af ferðamennsku og hvalaskoðun en hvalveiðum. Þá vilja þeir að áhrif loftslagsbreytinga á jökla og fiskistofna verði könnuð. Innlent 13.10.2005 19:23
Máttu ekki flytja til skólahald Ákvörðun Skeiða- og Gnúpverjahrepps um að flytja allt skólahald Þjórsárskóla í Árnes hefur verið felld úr gildi vegna vanhæfis sveitarstjórnarmanna. Innlent 13.10.2005 19:23
Aldrei fleiri nýskráningar Aldrei áður hafa fleiri nýnemar úr einum og sama árgangi skráð sig til náms í framhaldsskólum landsins en nú en nýlega fór fram í fyrsta sinn rafræn innritun sem gekk vel í alla staði. Innlent 13.10.2005 19:23
Bjóði fram undir eigin nafni Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hefur skorað á samfylkingarfélaga um allt land að beita sér fyrir því að Samfylkingin bjóði fram í sem flestum sveitarfélögum undir eigin nafni. Fundur kjrödæmisráðsins lýsir þungum áhyggum af þeim sívaxandi vanda sem stafar að atvinnulífinu vegna ruðningsáhrifa stóriðjustefnunnar. Innlent 13.10.2005 19:23
Gill sleppt á laugardag Hæstiréttur fjallar ekki um kæru Pauls Gills vegna gæsluvarðhalds sem hann var úrskurðaður í því að honum var sleppt á laugardag. Innlent 13.10.2005 19:23
Svik að afnema ekki holræsagjald Sjálfstæðismenn í borgarstjórn saka Reykjavíkurlistann um kosningasvik með því að afnema ekki holræsagjaldið, sem á sínum tíma var kynnt sem tímabundinn skattur. Þeir segja að R-listinn eigi ekki að hreykja sér af hreinsun strandlengjunnar heldur skammast sín. Innlent 13.10.2005 19:23
LHÍ og Bifröst vinna saman Félagsvísinda- og hagfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst og leiklistardeild Listaháskóla Íslands gerðu á dögunum með sér samkomulag um að þróa með sér samstarf á sviði nemenda- og kennaraskipta, rannsókna og sameiginlegra verkefna. Markmiðið með samningnum er að nemendur beggja háskóla vinni saman að uppsetningu leiksýningar, allt frá listrænni útfærslu til fjárhagsáætlunar. Innlent 13.10.2005 19:23
Úr öndunarvél eftir hermannaveiki Sjúklingur með hermannaveiki á Landspítalanum er kominn af gjörgæsludeild og úr öndunarvél. Maðurinn greindist með veikina seinni hluta maímánaðar og hefur verið á gjörgæsludeild síðan, mjög veikur. Hann er á hægum batavegi. Tveir Íslendingar hafa látist úr hermannaveiki hér á landi á þessu ári og fimm greinst með veikina. Síðustu ár hafa að jafnaði tveir til þrír greinst með hermannaveiki sem er í raun svæsin lungnabólga. Innlent 13.10.2005 19:23
Avion Group kaupir RGH Avion Group hefur fest kaup á The Really Great Holliday Company (RGH) sem á og rekur ferðaskrifstofurnar Travel City Direct, Transatlantic Vacations og Carshop. Travel City Direct er þekkt ferðafyrirtæki og býður einkum ferðalög frá Bretlandi til Florída. Eftir kaupin verða Really Great Holliday og systurfélag þess, Excel Airways, til samans áttunda stærsta félagið á Bretlandseyjum í afþreyingarferðum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:23
Talin hafa skemmt fleiri bíla Þrennt er í haldi lögreglunnar í Hafnarfirði grunað um skemmdarverk á nokkrum bílum. Tilkynnt var um reyk í Heiðmörk í morgun. Þegar að var komið kom í ljós að þar var kviknað í bíl og sást til fólks í fjarska sem talið var tengjast málinu. Þrennt var handtekið í kjölfarið og er það nú í haldi lögreglunnar, en eftir því sem fréttastofa Bylgjunnar kemst næst hefur fólkið ekki verið mjög ræðið. Innlent 13.10.2005 19:23
Fimm bíla árekstur Fimm bíla árekstur varð um hálffjögurleytið í gær skammt sunnan við Smáralind, norðan við gatnamót Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar Innlent 13.10.2005 19:23
Engar sættir í Garðasókn "Ég sagði sem var, að sættir hefðu verið reyndar og ekki tekist," segir Matthías G. Pétursson, formaður Garðasóknar, en áfrýjunarnefnd þjóðkirkjunnar hefur sent málsaðilum í deilumálinu í Garðasókn sáttatillögu. Innlent 13.10.2005 19:23
Starfandi fólki fjölgar Starfandi fólki á Íslandi fjölgaði um 1.2 prósent milli áranna 2003 og 2004 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Skiptist fjöldinn nokkuð jafnt milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Innlent 13.10.2005 19:23
Rafmagnsbilun í Ólafsfirði Rafmagnstruflanir stóðu í um klukkustund í Ólafsfirði frá klukkan fimmtán mínútur gengin í tólf á sunnudagskvöldið. Helgi Jónsson, verkstjóri hjá RARIK á Norðurlandi, segir háspennustreng fyrir hitaveitudælur hafa bilað og því hafi slegið út. Innlent 13.10.2005 19:23
Frekari framúrkeyrsla væntanleg Af þeim fjórum ráðuneytum sem fóru fram úr fjárlögum á síðasta fjárlagaári stefna að minnsta kosti þrjú þeirra aftur fram úr í keyrslu. Ekki hefur enn náðst í stjórnendur utanríkisráðuneytisins. Innlent 13.10.2005 19:23