Innlent

Fréttamynd

Mál F.f. þingfest í dag

Mál ríkislögreglustjóra gegn tíu stjórnendum Frjálsrar fjölmiðlunar og dótturfyrirtækja var í dag þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Frjáls fjölmiðlun fór á hausinn fyrir þremur árum og var gjaldþrotið eitt hið stærsta í íslenskri viðskiptasögu. Kröfur í þrotabúið námu um 2,2 milljörðum króna en aðeins fengust um 300 milljónir upp í kröfurnar.

Innlent
Fréttamynd

Meira en 10% af landsframleiðslu

Ísland er eitt sex ríkja innan OECD þar sem útgjöld til heilbrigðismála nema meira en tíu prósentum af landsframleiðslu. Meðalútgjöld til heilbrigðismála á hvern einstakling hér á landi eru um 200 þúsund krónur á ári og alls nema útgjöld til málaflokksins 10,5 prósentum af landsframleiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Ný skattlagning á bíleigendur

Nýupptekin bílastæðisgjöld við Leifsstöð eru að mati Félags íslenskra bifreiðareigenda ekkert annað en nýr skattur á bíleigendur.

Innlent
Fréttamynd

Faldi kókaín í brókinni

23 ára gamall maður var dæmdur í 300.000 króna sekt í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en hann var tekinn í nóvember í fyrra á skemmtistað með 0,6 grömm af amfetamíni; í janúarbyrjun ók hann bíl án réttinda og svo aftur fullur mánuði síðar.

Innlent
Fréttamynd

Vill stöðva greiðslur

Ríkisendurskoðun leggur til í nýrri skýrslu um framkvæmd fjárlaga að fjármálaráðuneytið stöðvi greiðslur til stofnana sem fara yfir fjögurra prósenta mörkin í fjárheimildum eða þar til gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana.

Innlent
Fréttamynd

Pólverjarnir með atvinnuleyfi

"Ég er komin með alla pappíra og leyfi og þessir menn eru nú starfandi fyrir mig á löglegan hátt," segir Sverrir Pétur Pétursson, málarameistari og eigandi SPP Málunar ehf.

Innlent
Fréttamynd

Seltirningar ánægðir

Seltirningar eru mjög ánægðir með þá þjónustu sem bærinn veitir samkvæmt nýrri viðhorfskönnunn Gallups. Þar kemur fram að 85 prósent aðspurðra telja þjónustu bæjarins í heild vera góða og níu af hverjum tíu eru ánægðir með viðmót og framkomu bæjarstarfsmanna.

Innlent
Fréttamynd

Þrýst á um Vaðlaheiðargöng

Ákveðið hefur verið að breyta undirbúningsfélagi vegna Vaðlaheiðarganga í framkvæmdafélag og stórauka hlutafé. Aðstandendur verkefnisins segja fjármálastofnanir áhugasamar um fjármögnun en eftir á að semja við samgönguyfirvöld.

Innlent
Fréttamynd

Jónsmessuhlaupið í kvöld

Miðnætur- og Ólympíufjölskylduhlaupið fer fram í Laugardalnum í kvölkd og verður ræst klukkan 22:00. Hlaupið er frá Laugardalslauginni um Laugardalinn og endar hlaupið á Laugardalsvellinum. Allir geta tekið þátt því boðið er upp á þrjár vegalengdir 3, 5 og 10 kílómetra. Tímataka er í 5 og 10 kílómetra hlaupunum.

Lífið
Fréttamynd

Tvö vopnuð rán í röð

Vopnað rán og tilraun til annars slíks voru gerð á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt og í gærdag handtók lögreglan í Reykjavík konu um tvítugt sem grunuð er um ránið en lögreglan vill ekki gefa upp að svo stöddu hvort hún sé einnig grunuð um ránstilraunina.

Innlent
Fréttamynd

Situr inni í eitt og hálft ár

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á þriðjudag var 33 ára gamall maður dæmdur í 18 mánaða fangelsi, áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting yfir honum og einnig gert upptækt bitvopn og tæplega eitt og hálft gramm af amfetamíni sem á honum fannst.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja ára dráttur á kæru

27 ára gömul kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir að misnota debetreikning sumarið 2002 þannig að innistæðulaus skuldfærsla nam rúmri hálfri milljón.

Innlent
Fréttamynd

Skylt að gefa upplýsingar

Staðfest var með tilkynningu til Kauphallar Íslands í gær að Serafin Shipping eignaðist tæp sex prósent í Icelandic Group við sameiningu SH og Sjóvíkur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skammar norræna ráðherra

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna hittust í Brussel á þriðjudag vegna ráðstefnu Evrópusambandsins um ástandið í Írak. Í kjölfar fundarins skrifuðu utanríkisráðherrarnir grein í Svenska Dagbladet þar sem þeir lýstu sameiginlegri skoðun sinnu um að standa skuli mynduglega að uppbyggingu lýðræðis í Írak

Innlent
Fréttamynd

700 neitað í Verzlunarskólanum

Fjórir framhaldsskólar hafa þegar lokið nýskráningum. Metaðsókn var að Verzlunarskólanum og Kvennaskólinn þurfti að vísa frá yfir helmingi umsækjenda. Nýtt rafrænt skráningarkerfi virðist gefa góða raun.

Innlent
Fréttamynd

Björgunarbátur kallaður út í Eyjum

Björgunarbáturinn Þór frá Vestmannaeyjum var kallaður út klukkan 12.37 til að aðstoða bát sem fengið hafði mikinn sjó um borð við Stóraörn. Þór var kominn að bátnum rúmum stundarfjórðungi síðar og dró hann til hafnar.

Innlent
Fréttamynd

Hús við Grettisgötu brann

Hús við Grettisgötu 54b var alelda þegar slökkviliðsmenn komu að því klukkan rúmlega eitt í fyrrinótt. Að sögn slökkviliðsmanna er það nú líklegast ónýtt. Verið var að endurgera húsið og því bjó enginn í því að sögn lögreglunar í Reykjavík og var það mannlaust þegar atburðirnir áttu sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Engin ástæða til að óttast skort

Lambakjötsbirgðir í landinu eru nægar til að anna eftirspurn þangað til ferskt kjöt kemur aftur á markaðinn í september að mati sérfræðinga hjá Bændasamtökunum og engin ástæða til að óttast skort í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Deilurnar lagðar til hliðar

"Við erum ágætlega sáttir við þessa niðurstöðu. Menn töluðu í þá átt að vinna saman og halda áfram á uppbyggingarbraut," segir Valgeir Bjarnason, sem í gær var kosinn í stjórn Sparisjóðs Skagfirðinga á aðalfundi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Forseti hafi beitt úreltu ákvæði

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, með sín sérstöku tengsl við Stöð 2, beitti úreltu lagaákvæði í þágu fyrirtækja tengdum Baugi og vann eitthvert mesta skaðaverk sem unnið hefur verið íslenskum almenningi, segir Davíð Oddsson. Pólitíkin hér á landi hafi þannig ekki reynst Jóni Ásgeiri Jóhannessyni illa líkt og skilja megi af viðtali við <em>BBC</em>.

Innlent
Fréttamynd

Þróunarsamvinna við Srí Lanka

Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Srí Lanka var undirritaður í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka, í dag. Samningurinn er til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Sárnar að fá ekki viðbrögð

Stuðningsmenn Arons Pálma Ágústssonar, hinn svokallaði RJF-hópur, ætlar að halda út til Bandaríkjanna um miðjan júlí ef engin viðbrögð hafa þá borist frá Náðunar- og reynslulausnanefnd Texas-ríkis vegna erinda hópsins.

Innlent
Fréttamynd

Vilja stöðva Ólínu

Félag framhaldsskólakennara hefur lagt fram stjórnsýslukvörtun við menntamálaráðuneytið fyrir hönd Ingibjargar Ingadóttur, enskukennara við Menntaskólann á Ísafirði.

Innlent
Fréttamynd

Gæslumenn framtíðarinnar

Heppnir og áhugasamir tíundubekkingar um land allt eru nú sem fyrr varðskipsnemar hjá Landhelgisgæslunni. Á dögunum kom varðskipið Týr í höfn í Reykjavík með sex krakka sem dvalið höfðu um borð í fimmtán daga.

Innlent
Fréttamynd

59% samþykktu kjarasamninginn

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur samþykkt kjarasamning félagsins við Hafnarfjarðarbæ með tæplega 60% greiddra atkvæða. Um 20 % félagsmanna, eða 113 manns, tóku þátt í atkvæðagreiðslu um samninginn. Atkvæði fóru þannig: Já sögðu 67 eða 59%, nei sögðu 45 eða 40%, einn seðill var auður eða 1%.

Innlent
Fréttamynd

Refsingar fyrir framúrkeyrslu

Ríkisendurskoðun leggur til að greiðslur til ríkisstofnana sem fara verulega fram úr fjárheimildum verði frystar þar til gripið hafi verið til viðeigandi ráðstafana. Fjármálaráðherra er þessu ósammála.

Innlent
Fréttamynd

Eitt tjald við Kárahnjúka

Tveir einstaklingar í einu tjaldi mynda nú mótmælendabúðirnar sem andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar eru að koma þar upp. Fimm til viðbótar bætast við fyrir nóttina.

Innlent
Fréttamynd

Tímamótakosningar á Seltjarnarnesi

Niðurstöður kosninganna á Seltjarnarnesi sem fara fram á morgun um skipulagsmál við Suðurströnd og Hrólfsskálamel eru bindandi fyrir bæjarstjórnina. Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri segir þetta vera tímamót hér á landi þar sem ekki hafi þekkst að stjórnvöld hafi gengið svo langt að leggja skýra valkosti í hendur bæjarbúa og bjóða þeim að taka bindandi ákvörðun um niðurstöðu máls.

Innlent
Fréttamynd

Farþegum fjölgaði um 16,1%

Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 16,1% í maí miðað við sama mánuð í fyrra. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur farþegum Icelandair fjölgað um 11,5% á milli ára, eru nú 484 þúsund en voru 434 þúsund á sama tíma í fyrra.

Innlent