Innlent

Fréttamynd

Lögmaður borgi sex milljónir

Hæstaréttarlögmaður í Reykjavík þarf að greiða verðbréfafyrirtæki 6 milljónir króna, auk dráttarvaxta og 400 þúsund króna í málskostnað, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í gær.

Innlent
Fréttamynd

Refaferðir á Vestfjörðum eftir ár

Skipulagðar refaferðir verða boðnar í fyrsta skipti á Íslandi næsta sumar. Áfangastaðurinn er Vestfirðir, þar sem þá flesta er að finna, um eitt hundrað talsins. Þessi spöku dýr sem kunna vel að meta þegar að þeim er réttur harðfiskur eða pylsur.

Innlent
Fréttamynd

Kona lá í skurði fram á morgun

Um klukkan átta í gærmorgun fannst kona um fimmtugt sem horfið hafi heiman frá sér á bæ í nágrenni Blönduóss eftir miðnætti kvöldið áður. Konan, sem átt hefur við vanheilsu að stríða, gerði sjálf vart við sig þar sem hún lá í skurði um 150 metra frá heimili sínu.

Innlent
Fréttamynd

Fimm hlutu dóm í Dettifossmáli

Fjórir voru fengu fangelsisdóma í seinni hluta svonefnds Dettifossmáls í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þyngstu dómarnir námu sex og hálfu og sex árum. Þá fékk maður hálfsársdóm, kona fjóra mánuði skilorðsbundna og einn fékk 40 þúsund króna sekt. Smyglararnir þurfa að borga fyrir efnarannsókn á eiturlyfjunum sem þeir voru gripnir með.

Innlent
Fréttamynd

Grænar baunir og torfæra

Um þessar mundir standa nokkur bæjar- og sveitarfélög fyrir uppákomum um helgina sem laðað geta að ferðamenn. Til dæmis eru hátíðarhöld á Bíldudal og á Flúðum.

Innlent
Fréttamynd

Flóttamenn kröfðust aðgerða

Flóttamenn sem dvalið hafa á gistiheimilinu Fit í Reykjanesbæ undanfarna mánuði fóru í dag í kröfugöngu um Keflavík. Þeir dreifðu bréfi þar sem kemur fram að þeir séu orðnir langþreyttir á seinagangi íslenska kerfisins og að þeim finnist undarlegt að hægt sé að fljúga Bobby Fischer til landsins með íslenskt vegabréf eins og ekkert sé, á meðan umsækjendur um pólitískt hæli húki mánuðum saman algerlega aðgerðalausir án þess að fá nokkra lausn sinna mála.

Innlent
Fréttamynd

Þungir dómar fyrir amfetamínsmygl

Tveir menn á þrítugs- og fertugsaldri voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex og sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla tæpum átta kílóum af amfetamíni til landsins frá Hollandi.

Innlent
Fréttamynd

Samið um vernd fjárfestinga

Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra undirritaði í dag gagnkvæman samning Íslands og Mexíkós um vernd fjárfestinga. Fjárfestingarsamningurinn tryggir jafnréttis- og bestu kjör fyrir íslenska fjárfesta í Mexíkó og öfugt. Ráðherrann hefur undanfarna daga farið fyrir sendinefnd íslenskra athafnakvenna í Mexíkó. Fyrir hönd Mexíkó undirritaði samninginn Fernando Canales efnahagsmálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir Hafsteini Eðvarðssyni. Síðast er vitað um ferðir Hafsteins við Djúpavog um klukkan fjögur í gær. Talið var að hann væri á leið til Egilsstaða. Hafsteinn, sem er fertugur, var á jeppabifreið af gerðinni Kia Sportage, ljósgrárri að lit. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Hafsteins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Fáskrúðsfirði.

Innlent
Fréttamynd

Borgin bætir stuld af fötluðum

Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að vísa til lögreglu meintum fjárdrætti starfsmanns borgarinnar úr heimilissjóði íbúa á heimili ætluðu fötluðum.

Innlent
Fréttamynd

Greiði bætur vegna graðhests

Steypustöðin Dalvík ehf. og Sjóvá-Almennar voru í dag dæmd til að greiða eiganda graðhestsins Ísaks frá Ketilsstöðum 550.000 krónur í bætur ásamt vöxtum. Hesturinn drapst þegar steypubíll frá Steypustöðinni ók á hann skammt frá Dalvík í október árið 2002. Ísak var undan kynbótahestinum Hrafni frá Holtsmúla og ágætlega ættaðri hryssu, Litlu-Löpp frá Möðruvöllum. Ísak frá Ketilsstöðum var því metinn á 1,1 milljón króna.

Innlent
Fréttamynd

Fékk refsilækkun fyrir aðstoðina

64 ára gömul hollensk kona sem gripin var í Leifsstöð með 759 grömm af kókíni falin í sérsaumaðri hárkollu fékk refsingu mildaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, vegna þess hve hún var samvinnuþýð við lögreglu. Konan var dæmd í eins og hálfs árs fangelsi.

Innlent
Fréttamynd

Söngur dans og leikur

Kirkjudagar þjóðkirkjunnar hófust í gær á Skólavörðuholti í Reykjavík og standa áfram með fjölbreyttri dagskrá í dag, frá hádegi fram til klukkan sex. Í boði er margvísleg skemmtan fyrir börn og unglinga, auk þess sem fjöldi hópa kynnir kirkjustarf sitt.

Innlent
Fréttamynd

Fjárdráttarmáli vísað til lögreglu

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna gruns um fjárdrátt starfsmanns Reykjavíkurborgar úr heimilissjóði íbúa á einu þeirra heimila sem ætlað er fötluðum. Þar segir að undanfarið hafi farið fram rannsókn af hálfu Reykjavíkurborgar, meðal annars til þess að athuga hvort tilefni væri til að vísa málinu til lögreglu. Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt að vísa málinu til lögreglu til frekari rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Gæðavodki framleiddur í Borgarnesi

Uppsetningu og frágangi á eimi til framleiðslu á sérstökum gæðavodka er nú að ljúka í blöndunarstöð Egils Skallagrímssonar í Borgarnesi. Til þessa hefur farið fram vínblöndun í stöðinni en nú á að framleiða vodka sem sérstaklega er miðaður við stóra, erlenda markaði. Á vef <em>Skessuhorns</em> er haft er eftir Kristmari Ólafssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, að vonast sé til að vodkinn verði tilbúinn á markað í september.

Innlent
Fréttamynd

Samið um þróunarsamvinnu

Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Srí Lanka var undirritaður í Kólombó, höfuðborg landsins, í morgun. Samningurinn er gerður til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna. Þetta er fyrsta þróunarverkefni Íslands utan Afríku.

Innlent
Fréttamynd

Reyndu að smygla amfetamíni og LSD

Tveir menn á þrítugs- og fertugsaldri voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex og sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla tæpum átta kílóum af amfetamíni og töluverðu magni af LSD til landsins frá Hollandi. Alls voru sakborningarnir í málinu fimm og fengu aðrir tveir sem að málinu komu annars vegar hálfs árs fangelsisdóm og hins vegar fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Innlent
Fréttamynd

Aðgerðir til hagræðingar í Háskólanum á Akureyri

Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur samþykkt að ráðast í aðgerðir til að draga úr rekstrarkostnaði þar sem fyrir liggur að fjárveitingar nægja ekki til að greiða þann kennslukostnað sem núverandi námsframboð leiðir af sér. A.m.k. 40 milljónir króna á ári að jafnaði skortir til að endar nái saman og hefur verið skipaður sérstakur starfshópur sem fara á yfir rekstrarkostnað og endurskipulagningu deilda.

Innlent
Fréttamynd

Fundu konu sem saknað hafði verið

Björgunarsveitarmenn úr Húnavatnssýslu fundu fyrir stundu konu sem leitað hefur verið í grennd við Blönduós frá því um miðja nótt. Hún hafði fallið ofan í djúpan skurð og meitt sig þannig að hún komst ekki upp úr honum aftur. Hún var köld og hrakin þegar hún fannst og er nú verið að flytja hana á sjúkrahúsið á Blönduósi til aðhlynningar.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgar í tjaldbúðum fyrir austan

Heldur hefur fjölgað í tjaldbúðum mótmælenda að Kárahnjúkum. Birgitta Jónsdóttir, skáld og einn mótmælendanna sem hyggjast halda upp eftir um mánaðamótin næstu, segir um tólf manns vera búna að koma sér fyrir í nokkrum tjöldum. Flytja þurfti búðirnar í gær að ósk Landsvirkjunar og eru þær nú vestan megin við Jöklu, á landi sem er í eigu Egilsstaða.

Innlent
Fréttamynd

86% Íslendinga nota Netið daglega

Hlutfall heimila með nettengingu er hvergi hærra í Evrópu en á Íslandi. 88 prósent Íslendinga nota tölvu og 86 prósent nota Netið nær daglega.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæltu seinagangi kerfisins

Átta flóttamenn frá fjölmörgum löndum mótmæltu á götum Reykjanesbæjar í dag. Þeir hafa dvalið á gistiheimili í bænum undanfarna mánuði og mótmæla seinagangi kerfisins; segja íslensk stjórnvöld ekki líta á sig sem mannverur.

Innlent
Fréttamynd

Birgðastaða lambakjöts eðlileg

"Útflutningur lambakjöts mun verða með svipuðu móti og verið hefur og mögulegur skortur hefur lítil áhrif á það," segir Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri hjá Bændasamtökunum.

Innlent
Fréttamynd

Gagnrýnir útboð Herjólfs

Grímur Gíslason, fyrrverandi formaður Herjólfs, gagnrýnir vinnubrögð Vegagerðarinnar vegna útboðs Herjólfs árið 2000. Vegagerðin neitaði honum sífellt um gögn um tilboð Samskipa og Herjólfs í reksturinn þar til úrskurðarnefnd um upplýsingamál skipaði henni að afhenda þau.

Innlent
Fréttamynd

Samningur við kínverskan háskóla

Háskólinn á Akureyri hefur undirritað samstarfssamning við China University of Political Science and Law í Peking. Í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri segir að samningurinn taki fyrst og fremst til félagsvísinda- og lagadeildar skólans og kveði á um nemenda- og kennaraskipti á komandi misserum.

Innlent
Fréttamynd

Fundað um ágreiningsmál

Forsvarsmenn Geymis ehf. og ASÍ funduðu í gær vegna máls pólska verkafólksins sem dvalið hefur hér á landi við störf að undanförnu og telur sig hlunnfarið.

Innlent
Fréttamynd

Grípa verður til aðgerða

Öldrun þjóða í Evrópu og Bandaríkjunum getur komið af stað alvarlegum þrengingum í efnahagskerfinu ef ekki veður gripið til viðeigandi aðgerða að mati Gylfa Magnússonar.

Innlent
Fréttamynd

Eitt tjald risið við Kárahnjúka

Aðeins eitt tjald virðist risið við Kárahnjúka þar sem mótælendur sögðust ætla að reisa tjaldbúðir. Kalt hefur verið á Kárahnjúkum undanfarna daga og hitinn þar var aðeins um tvær gráður í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í húsi við Grettisgötu

Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang eftir að mikill eldur gaus upp í tvílyftu bakhúsi við Grettisgötu laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið, sem er járnklætt timburhús, nær alelda.

Innlent