Innlent
Engar kærur bárust Engar kærur bárust skrifstofu Framsóknarflokksins vegna framkvæmdar við prófkjörið í Reykjavík um helgina en kærufrestur rann út klukkan sex í gærkvöldi. Óskar Bergsson, sem hafnaði í þriðja sæti, og stuðningsmenn hans, virðast því ætla að una niðurstöðunni án frekari athugasemda. Innlent 31.1.2006 07:49
Þiggur ekki annað sætið Valgerður H. Bjarnadóttir, eini bæjarstjórnarfulltrúi Vinstri grænna á Akureyri á kjörtímabilinu, hefur ákveðið að þiggja ekki annað sætið á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Hún sóttist eftir fyrsta sætinu, en Baldvin H. Sigurðsson varð hlutskarpari í forvali flokksins og náði fyrsta sætinu. Valgerður, sem jafnframt á sæti í bæjarráði, er þó ekki að yfirgefa flokkinn og segist áfram ætla að taka þátt í flokksstarfinu. Innlent 31.1.2006 07:44
Samið um kjör á Herjólfi Sjómannasamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa gengið frá kjarasamningi fyrir háseta og þjónustufólk á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi. Samningurinn gildir til ársloka 2010 en aðrir samningar við starfsmenn á kaupskipum gilda almennt til loka næsta árs. Innlent 31.1.2006 06:21
Kjósa um sameiningu verkalýðsfélaga Félagar í Félagi járniðnaðarmanna hafa samþykkti að gengið verði til atkvæða um sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniðnaðarmanna. Alls eru tæplega fjögur þúsund félagsmenn í félögunum tveimur. Innlent 31.1.2006 06:32
Vegir víðast greiðfærir Flestir vegir landsins eru greiðfærir en hálka og hálkublettir á stöku fjallvegum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hins vegar er þoka á Hellisheiði og í Þrengslum. Innlent 31.1.2006 07:35
Ekki sá seki Lögreglan í Reykjavík sleppti í gærkvöldi manni um tvítugt, sem handtekinn var í gærdag, grunaður um að hafa framið vopnað rán í afgreiðslu Happdrættis Háskólans við Tjarnargötu laust fyrir hádegi í gær. Maðurinn neitaði sök og í ljós kom að hann mun ekki vera sá seki. Engin annar hefur verið handtekinn vegna málsins og er fréttastofu ekki kunnugt um hvort einhver sérstakur liggur undir grun. Þjófurinn náði 95 þúsund krónum úr peningaskúffu í afgreiðslunni áður en hann hvarf af vettvangi. Innlent 31.1.2006 07:29
Valgerður gefur ekki kost á sér Valgerður H. Bjarnadóttir bæjarstjórnarfulltrúi Vinstri-grænna á Akureyri hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í annað sætið á lista flokksins fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor. Valgerður sóttist eftir því að leiða listann. Innlent 30.1.2006 22:09
Dansinn dunar hjá eldri borgurum Eldri borgarar koma saman á hverjum mánudegi til að dansa línudans og samkvæmisdansa. Við litum á dansæfingu þar sem óhætt er að segja að dansinn duni tímunum saman. Innlent 30.1.2006 21:55
Græðandi á skipaskráningarkerfi Íslenska ríkið fengi tvö hundruð milljónir í kassann, með því að taka upp skipaskráningarkerfi að færeyskri fyrirmynd. Þetta segir Kristján Möller alingismaður, sem vill ekki bara bjarga íslenskri farmannastétt, heldur nota féð til að styrkja strandsiglingar hér við land. Innlent 30.1.2006 21:28
Samþykktu sjálfir „skipulagsslys“ Sjálfstæðismenn í borgarráði samþykktu fyrir rúmu ári, að flytja bensínstöðina við Geirsgötu í Vatnsmýrina, en segja nú að flutningurinn sé skipulagsslys. Innlent 30.1.2006 21:15
ÍAV fá verk án útboðs Bróðurpartur lóðaframkvæmda vegna Tónlistar- og ráðstefnuhússins við Reykjavíkurhöfn verður boðinn út, segir borgarstjóri. Sérstakar aðstæður réttlæti hins vegar að samið verði án útboðs við Íslenska aðalverktaka um fyrsta hlutann, upp á fjögur hundruð milljónir króna. Innlent 30.1.2006 21:13
Einn handtekinn fyrir vopnað rán Einn hefur verið handtekinn grunaður um að hafa rænt Happdrætti Háskóla Íslands við Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf í dag. Sá sem er í hald var dæmdur fyrir vopnað rán árið 2004. Innlent 30.1.2006 21:07
ASÍ vill sambærilegar hækkanir Varaforseti Alþýðusambandsins segir að sambandið verði strax að sækja launahækkanir fyrir sitt fólk. Þessi staða sé komin upp eftir að launanefnd heimilaði hækkun á lægstu launum starfsmanna sveitarfélaga. Innlent 30.1.2006 21:01
Sendiferðabíll ók í veg fyrir steypubíl Litlu munaði að alvarlegt slys hefði orðið á Reykjanesbraut í dag þegar sendiferðbíll ók í veg fyrir fulllestaðann steypubíll. Steypubíllinn lenti aftan á sendiferðabílnum með þeim afleiðingum að vörulyfta og afturhleri fóru af honum. Ökumaður steypubifreiðarinnar slasaðist lítillega. Nokkrar skemmdir urðu á ökutækjum. Innlent 30.1.2006 20:49
Fjórir segja upp á Hlaðhömrum í Mosfellsbæ Fjórir starfsmenn á leikskólanum Hlaðhömrum í Mosfellsbæ hafa sagt upp störfum vegna óánægju með kjör sín. Leikskólastjórinn segist jafnvel eiga von á fleiri uppsögnum muni sveitafélagið ekki nýtta sér heimild launanefndar sveitafélaganna til launahækkunnar, sem samið var um síðastliðinn laugardag. Innlent 30.1.2006 20:05
Hótel Saga og Hótel Ísland ekki seld Búnaðarþing Íslands felldi rétt í þessu tillögu um að Hótel Ísland og Hótel Saga yrðu seld. Samningurinn var felldur með miklum mun og Hótel Saga og Hótel Ísland verða því ekki seld að svo komnu máli. Innlent 30.1.2006 17:33
Stjórnvöld standi við skuldbindingar Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur sent frá sér ályktun þar sem þung áhersla er lögð á að stjórnvöld standi við skuldbindingar sínar samkvæmt Kyoto-bókuninni. Bókunin veitir Íslendingum svigrúm til að auka framleiðslu á áli um 280 þúsund tonn til ársins 2012. Í ályktuninni segir að það svigrúm verði að nýta af varfærni og vara við áformum um að skilja eftir framtíðarvandamál sem tengjast of mikilli losun gróðurhúsalofttegunda. Innlent 30.1.2006 16:47
Einn handtekinn vegna ráns Lögreglan í Reykjavík hefur handtekið einn mann sem er grunaður um vopnað rán hjá Happdrætti Háskólans í hádeginu. Lögreglan verst allra nánari frétta af málinu þar sem það er í rannsókn. Ekki er enn vitað hversu miklu af peningum þjófurinn náði. Skrifstofa Happadrættisins er enn lokuð vegna vettvangsrannsókna. Innlent 30.1.2006 16:24
OgVodafone-númer í símaskrá Nýjustu upplýsingar um símanúmer og heimilisföng viðskiptavina Og Vodafone, verða hér eftir aðgengilegar á simaskra.is og í Símaskránni. Þetta er vegna samkomulags Og Vodafone og Já, sem rekur simaskra.is, 118 og gefur út Símaskrána. Áður var aðeins hægt að fá nýjustu upplýsingar um viðskiptavini Og Vodafone í 118 hjá Já. Innlent 30.1.2006 15:36
Stærsti árganur Íslandssögunnar Í vor útskrifast stærsti árgangur Íslandssögunnar úr grunnskólum landsins. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, hefur áhyggjur af því hvort framhaldsskólarnir rúmi alla þá sem óska eftir inngöngu. Innlent 30.1.2006 15:28
Segir morðið óviljaverk Sigurður Freyr Kristmundsson sagði að það hefði verið óviljaverknaður þegar hann varð Braga Halldórssyni að bana með því að stinga hann í íbúð við Hverfisgötu 20. ágúst síðastliðinn. Innlent 30.1.2006 15:25
Skipa nefnd til að fara yfir lög um kjaradóm Ríkisstjórnin hefur skipað nefnd til að fara yfir lög um Kjaradóm og kjaranefnd. Er henni ætlað að gera tillögur um breytingar á þeim lögum í ljósi reynslunnar og ábendinga sem fram hafa komið um annmarka á þeim. Nefndinni er sérstaklega ætlað að skoða hvort ástæða sé til að breyta fyrirkomulagi launaákvarðana Kjaradóms og kjaranefndar. Innlent 30.1.2006 15:04
Fær stærsti árgangur sögunnar inn í framhaldsskólana? Í vor útskrifast stærsti árgangur Íslandssögunnar úr grunnskólum landsins. Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, hefur áhyggjur af því hvort framhaldsskólarnir rúmi alla þá sem óska eftir inngöngu. Innlent 30.1.2006 14:48
Ræningjans enn leitað Lögreglan leitar enn mannsins sem rændi Happdrætti Háskólans í hádeginu. Maðurinn var klæddur í dökkbláan Kraft-galla. Þeir sem gefið geta upplýsingar eru beðnir um að hafa samband við Lögregluna í Reykjavík í síma 444-1100. Innlent 30.1.2006 14:42
Undirrita umsókn fyrir Surtsey Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra undirrita í dag umsókn íslenskra stjórnvalda um að Surtsey verði samþykkt á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Innlent 30.1.2006 14:01
Jaxlinn kynntur í tannverndarviku Árleg tannverndarvika Lýðheilsustöðvar hófst í dag. Þetta árið verður lögð sérstök áhersla á mikilvægi góðrar tannhirðu en meginmarkmiðið með tannverndarvikunni er að vekja athygli á mikilvægi þess fyrir líf og heilsu fólks að vera með heilbrigðar tennur. Innlent 30.1.2006 13:49
Forsetinn í Grundaskóla Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja Grundaskóla á Akranesi á morgun í tilefni af því að Grundaskóli fékk Íslensku menntaverðlaunin í flokki skóla sem sinnt hafa nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi. Innlent 30.1.2006 13:43
Vopnaður maður rændi HHÍ í Tjarnargötu Vopnaður ræningi rændi Happdrætti Háskóla Íslands í Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf. Maðurinn kom inn með byssu og sagðist vera að ræna útibúið: Hann vatt sér síðan að næsta peningakassa, tók laust fé úr honum og hvarf á braut. Honum var veitt eftirför en hefur enn ekki fundist. Innlent 30.1.2006 12:44
Myndi raska öllum skuldbindingum Forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, sem er móðurfélag Fríhafnarinnar, segir að það muni raska öllum skuldbindingum félagsins og uppbyggingaráformum, ef sala í komuverslun Fríhafnarinnar verður einskorðuð við áfengi og tóbak, eins og Samtök Verslunar og þjónustu knýja á um. Innlent 30.1.2006 11:57
Vopnað rán hjá Happdrætti Háskólans Hettuklæddur maður vopnaður byssu rændi Happdrætti Háskóla Íslands við Tjarnargötu laust fyrir klukkan tólf í dag. Mannsins er leitað. Enginn starfsmaður slasaðist í ráninu. Innlent 30.1.2006 12:14