Íslendingar erlendis

Fréttamynd

Drauma­byrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio

Albert Guðmundsson var hetja Lazio í sínum fyrsta leik með félaginu í 2-1 sigri gegn Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld. Það tók Albert aðeins átta mínútur að skora sitt fyrsta mark fyrir Lazio.

Fótbolti
Fréttamynd

Lið Elíasar bjargaði stigi

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson stóð á milli stanganna er lið hans Midtjylland gerði 2-2 jafntefli við FC Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Skrifaði sig í sögu­bækur Cambridge

„Maður finnur drifkraftinn og brennandi áhugann í loftinu frá öllu fólkinu í kringum mann og það er mjög smitandi,“ segir hin 25 ára gamla og kraftmikla Guðrún Diljá Agnarsdóttir sem er búsett í Cambridge í Bretlandi þar sem hún er á lokaárinu sínu í doktorsnámi og rannsakar líffræðilegar afleiðingar stökkbreytinga í geni sem valda Parkinson-sjúkdómi. Samhliða krefjandi námi stundar hún róður af fullum krafti en hún féll fyrir sportinu á fyrstu vikunum sínum úti og vann nýverið til virtra verðlauna á því sviði. 

Lífið
Fréttamynd

Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina

Inter Milan vann dramatískan sigur í vítaspyrnukeppni á Wolfsburg og náði að tryggja sig í Meistaradeild Evrópu. Cecilia Rán Rúnarsdóttir var hetja Inter en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var einnig í byrjunarliðinu.

Fótbolti
Fréttamynd

Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með

Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Albert Guðmundsson, er orðinn leikmaður Lazio og kemur á láni til félagsins frá Fiorentina út tímabilið. Lazio getur keypt Albert að láninu loknu.

Fótbolti
Fréttamynd

Íslendingalið Brann hlaut þungan skell

Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Diljá Ýr Zomers, og liðsfélagar hennar hjá Brann eru úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa hlotið þungan skell gegn Austria Wien í dag. 

Fótbolti
Fréttamynd

Campbell skoraði í góðum sigri ný­liðanna

Elversberg, nýliðarnir í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta, byrjuðu tímabilið vel eftir að hafa unnið Bayer Leverkusen 3-2 í fyrsta leik deildarinnar. Íslendingurinn William Cole Campbell var á skotskónum hjá Elversberg.

Fótbolti
Fréttamynd

Marg­menni fyrir utan höllina og blóm­vendir upp­seldir

Mikill fjöldi fólks safnaðist saman fyrir utan Konungshöllina í Ósló í dag og beið fregna af Haraldi Noregskonungi en heilsufarsástand hans hrakar enn og er sagt „mjög alvarlegt.“ Íslendingur sem staddur er í Ósló segir að blómvendir þar í borg hafi klárast í búðum og lýsir ástandinu fyrir framan höllina eins og á þjóðhátíðardegi.

Innlent