Erlent

Fréttamynd

Undirbúningur að greftrun hafin

Undirbúningur að útför og greftrun Arafats er þegar hafin. Heimildir innan heimastjórnar Palestínu sögðu í morgun að tilkynning um andlát Arafats kynni að verða send út í dag. Læknar staðfestu í gær að blætt hefði inn á heilann í honum og hann væri í djúpu dái.

Erlent
Fréttamynd

Varar við lækkun dollarans

Robert Rubin, fyrrverandi fjármálaráðherra Bandaríkjanna, varar við því að gengi Bandaríkjadals kunni að lækka verulega og vextir hækka til muna ef Bandaríkjastjórn bregðist ekki skjótt við og dragi úr skuldum ríkisins.

Erlent
Fréttamynd

Sókn hernámsliðsins heldur áfram

Harðir bardagar geisa nú í borginni Fallujah í Írak. Hátt í fimmtán þúsund hermenn Bandaríkjamanna og Íraka héldu í nótt áfram sókn sinni inn í borgina og mæta þar harðri andstöðu. Árásinni er beint gegn uppreisnarmönnum úr röðum súnníta en talið er að nokkur þúsund þeirra séu í Fallujah.

Erlent
Fréttamynd

Til sálfræðings vegna tapsins

Stuðningsmenn Johns Kerry í bandarísku forsetakosningunum hafa margir hverjir leitað til sálfræðinga eftir hjálp við að jafna sig á áfallinu eftir ósigur hans fyrir George W. Bush Bandaríkjaforseta.

Erlent
Fréttamynd

Misvísandi upplýsingar um Arafat

Fréttir berast bæði af því að Jasser Arafat, forseti Palestínu, sé látinn og að hann sé lifandi en að heilsu hans hafi hrakað verulega. Reuters-fréttastofan hefur eftir áreiðanlegum heimildum úr innsta hring Arafats og einnig frá háttsettum palestínskum embættismanni að hann sé látinn. Enn annar embættismaður sagði við fréttamann Reuters að von væri á formlegri yfirlýsingu um andlát hans bráðlega.

Erlent
Fréttamynd

Fengu að tala við ættingja sína

Tveir af þremur starfsmönnum Sameinuðu þjóðanna sem haldið er í gíslingu í Afganistan hafa fengið að hringja í fjölskyldur sínar. Fólkinu var rænt í Kabúl 28. október.

Erlent
Fréttamynd

Frönsk stjórnvöld gefa leyfi

Frönsk stjórnvöld hafa gefið grænt ljós á að helstu leiðtogar heimastjórnar Palestínu, sem komnir eru til Frakklands, fái að sjá Arafat. Ahmed Qureia, forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, fer fyrir leiðtogahópnum en eiginkona Arafats, Shua Arafat, er á móti því að þeir fái að hitta hann.

Erlent
Fréttamynd

Heilsu Arafats hrakar

Læknar Jassers Arafats segja að heilsu hans hafi enn hrakað í nótt og hann sé nú í djúpu dái. Frönsk stjórnvöld hafa gefið grænt ljós á að helstu leiðtogar heimastjórnar Palestínu, sem komnir eru til Frakklands, fái að sjá Arafat.

Erlent
Fréttamynd

Maóistum kennt um hryðjuverk

Öflug sprengja sprakk í gærmorgun í opinberri byggingu sem verið er að byggja í miðborg Katmandú í Nepal. Alls slösuðust 36 manns.

Erlent
Fréttamynd

Ýmist lífs eða liðinn

Jasser Arafat er ekki látinn að sögn utanríkisráðherra heimastjórnar Palestínu. Ónafngreindur heimildamaður innan heimastjórnarinnar sagði fyrr í dag að hann væri fallinn frá en því var vísað á bug síðdegis. Arafat er talinn eiga fáar klukkustundir eftir ólifaðar.

Erlent
Fréttamynd

Arafat við dauðans dyr

Heilsu Jasser Arafats hrakaði mjög í fyrrinótt þegar hann fékk heilablóðfall. Sögur gengu um það í gær að Arafat væri látinn en læknar hans báru það til baka og sögðu hann lifandi en heilsu hans mjög bágborna.

Erlent
Fréttamynd

Utanríkisstefnan breytist ekki

"Forsetinn mun hvorki draga saman seglin né gefa eftir," sagði Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í viðtali við The Financial Times. Þar lýsti hann utanríkisstefnu George W. Bush Bandaríkjaforseta á næsta kjörtímabili. "Stefnan er framhald á grundvallarforsendum hans, stefnu og sannfæringu," bætti Powell við.

Erlent
Fréttamynd

Hart barist í Falluja

Það verður mjög harður bardagi um Falluja næstu dagana, sagði yfirmaður landhers Bandaríkjamanna. Hann vildi ekki segja hversu margir bandarískir hermenn hafi fallið þessa tvo daga sem bardagarnir hafa geisað, en ýjaði að því að þeir væru ekki margir.

Erlent
Fréttamynd

Þeim fjölgar sem fá hæli

Flest lönd eru farin að veita álíka mörgum flóttamönnum hæli nú eins og þau gerðu fyrir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Í kjölfarið var dregið verulega úr hælisveitingum samhliða því að öryggisráðstafanir voru auknar en Volker Turk hjá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir að sú þróun hafi snúist við.

Erlent
Fréttamynd

Nýr Kennedy í stjórnmálin

Bobby Shriver, systursonur John F. Kennedy, fyrrum forseta Bandaríkjanna, ákvað að feta í fótspor þriggja frænda sinna og hefja þátttöku í stjórnmálum eftir að bæjaryfirvöld í Santa Monica fyrirskipuðu honum að hreinsa limgerði við heimili sitt.

Erlent
Fréttamynd

40 særðust í sprengingu í Nepal

Tæplega fjörutíu manns særðust þegar öflug sprengja sprakk í byggingu í hjarta Katmandu-borgar í Nepal í morgun. Talið er að uppreisnarmen úr röðum maóista beri ábyrgð á verknaðinum. Sprengjan sprakk í byggingu stjórnvalda sem verið var að reisa en flestir þeirra sem særðust voru að vinna þar við framkvæmdir.

Erlent
Fréttamynd

Arafat sagður látinn

Jasser Arafat er látinn að sögn Reuters-fréttastofunnar sem hefur þetta eftir heimildamönnum innan palestínsku stjórnarinnar. Ennfremur er tekið fram í fréttaskeytinu að fréttin hafi ekki fengist staðfest. Fyrr í dag var talað um að Arafat ætti aðeins nokkrar klukkustundir eftir ólifaðar.

Erlent
Fréttamynd

Komnir inn í miðborgina

Fjörutíu og fimm írakskir löggæslumenn féllu í árásum skæruliða skammt frá Bagdad í morgun. Harðir bardagar geisa í Fallujah og hafa bandarískar hersveitir komið sér fyrir í hjarta borgarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Barist hús úr húsi

Harðir bardagar geisuðu í Falluja annan daginn í röð. Herferðin gegn vígamönnum þar hefur valdið úrsögnum úr írösku bráðabirgðastjórninni. Tugþúsundir óbreyttra borgara eru enn í borginni og halda sig innandyra. </font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Farsímar fleiri en heimasímarnir

Indverjar eiga nú orðið fleiri farsíma en heimasíma. Þrátt fyrir það kvarta símafyrirtækin undan bágri afkomu og segja að farsímagjöldin séu lág og álögur stjórnvalda miklar.

Erlent
Fréttamynd

Ró að færast yfir

Varnarmálaráðherra Frakklands segir að ró virðist vera að færast yfir Fílabeinsströndina eftir hörð átök um helgina. Ástandið í landinu er þó enn mjög eldfimt. Ráðherrann segir engin áform, að svo stöddu, að flytja burt franska ríkisborgara frá svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Harðir bardagar í Fallujah

Bandarískir skriðdrekar og fótgönguliðar hafa ráðist á járnbrautarstöð rétt innan borgarmarka Fallujah og láta skothríðina dynja á uppreisnarmönnum sem þar halda til. Árásarþyrlur og orrustuþotur sveima yfir borginni, reiðubúnar að leggja til atlögu þar sem mótstaðan verður mest.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjutilræði í hollenskum skóla

Sprengja var sprengd í anddyri múslimsks skóla í Eindhoven í Hollandi í nótt en engan sakaði. Talið er líklegt að verknaðurinn tengist morðinu á kvikmyndaframleiðandanum Theo Van Gogh í síðustu viku en hann var gagnrýnn á múhameðstrúarmenn í myndum sínum.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að jarða Arafat lifandi

"Þeir eru að reyna að grafa Abu Ammar lifandi," sagði Suha Arafat, eiginkona Jasser Arafats, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, þegar hún réðist harkalega gegn næstráðendum hans í viðtali við Al-Jazeera sjónvarpsstöðina. Abu Ammar er gælunafn Jasser Arafats.

Erlent
Fréttamynd

Æfir út í eiginkonu Arafats

Leiðtogar Palestínumanna eru æfir út í eiginkonu Jassers Arafats fyrir að saka þá um að ætla að grafa hann lifandi, eins og hún orðaði það. Palestínumönnum hefur frá upphafi verið í nöp við Suhu og saka hana um fjármálamisferli.

Erlent
Fréttamynd

Ísöld innan 100 ára

Sænskur jarðeðlisfræðingur segir að lítils háttar ísöld kunni að skella á hér á landi á þessari öld samkvæmt reglubundnum veðurfarsbreytingum sem rekja megi til sólarinnar. Hann vísar á bug kenningum um mikla hækkun sjávar vegna bráðnunar jökla og segir menn hafa óþarfaáhyggjur.

Erlent
Fréttamynd

Kærð vegna límmiða

Skólayfirvöldum í Cobb sýslu í Georgíu hefur verið stefnt fyrir dómstóla vegna límmiða sem límdur er í námsbækur þar sem fjallað er um þróunarkenninguna. Á límmiðanum segir að einungis sé um kenningu að ræða en ekki staðreynd og segja gagnrýnendur þetta grafa undan aðskilnaði ríkis og kirkju.

Erlent
Fréttamynd

Vilja snúa flóttamönnum heim

Danska stjórnin samdi við Þjóðarflokkinn um stuðning við stjórnina gegn því að rúmlega 2.000 hælisleitendur yrðu hvattir til að snúa aftur heim. Í þessum hópi eru 500 til 600 Írakar sem en stutt er síðan Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hvatti þjóðir heims til að þrýsta ekki á flóttamenn þaðan að snúa aftur því ástandið væri of ótryggt.

Erlent
Fréttamynd

Leyniskyttur skutu verktaka

Leyniskyttur skutu til bana fjóra írakska verktaka sem voru á leið frá bandarískri herstöð í morgun. Átök í Írak hafa farið harðnandi undanfarið en bandarískir hermenn hafa ráðist til atlögu á borgina Fallujah. Uppreisnarmenn hafa haft aðsetur í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Frestuðu för sinni til Parísar

Þrír helstu leiðtogar heimastjórnar Palestínumanna frestuðu í morgun för sinni til Parísar til ráðagerða við lækna Jassers Arafats, sem liggur þar dauðvona, vegna háværra mótmæla Shua Arafat, eiginkonu leiðtogans.

Erlent