Erlent
Bush tilnefnir nýjan ráðherra George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Alberto Gonzales, lögfræðiráðunaut í Hvíta húsinu, sem dómsmálaráðherraefni sitt í kjölfar þess að John Ashcroft tilkynnti um afsögn sína í gær. Gonzales er sonur fátækra innflytjenda og yrði fyrsti spænskumælandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Erlent 13.10.2005 14:57
Margir ráðamenn við útför Arafats Listinn yfir þá þjóðarleiðtoga og ráðamenn sem áætlað er að verði við útför Jassers Arafats á morgun er langur. Sextíu nöfn eru á honum eins og hann lítur út núna en enginn Íslendingur er þar á meðal. Danir, Svíar, Norðmenn og Finnar eiga hins vegar allir sinn fulltrúa, utanríkisráðherrar þjóðanna í öllum tilvikum nema að fyrir Svía mætir Göran Persson forsætisráðherra. Erlent 13.10.2005 14:57
Litháar fyrstir til að staðfesta Litháar urðu fyrstir aðildarþjóða Evrópusambandsins til að staðfesta stjórnarskrá sambandsins sem forystumenn aðildarríkjanna 25 undirrituðu í Róm undir lok síðasta mánaðar. Erlent 13.10.2005 14:57
Þrír létust í rútuslysi Þrír létust og 20 slösuðust þegar rúta með 36 ólöglega innflytjendur innanborðs fór út af brú og steyptist niður í á í norðvesturhluta Tyrklands. Sjö farþegar sem sluppu ómeiddir úr slysinu flýðu af vettvangi áður en lögregla kom en þeir slösuðu og sex til viðbótar sem ekki slösuðust voru handteknir þegar lögregla kom á vettvang. Erlent 13.10.2005 14:57
Vanunu handtekinn á ný Lögreglan í Ísrael hefur enn og aftur handtekið kjarnorkusérfræðinginn Mordechai Vanunu sem nýlega var látinn laus eftir átján ára fangelsisdóm fyrir landráð. Hann lak á sínum tíma upplýsingum um kjarnorkuvopnaeign Ísraela sem varð til þess að umheimurinn varð þess áskynja að Ísrael væri orðið kjarnorkuríki. Erlent 13.10.2005 14:57
Tækifæri fyrir frið Hver þjóðarleiðtoginn á fætur öðrum hefur í dag vottað palestínsku þjóðinni samúð sína vegna andláts Jassirs Arafats, sem lést í nótt. Íslensk stjórnvöld segja að fráfall Arafats geti boðað ný tækifæri fyrir frið. Erlent 13.10.2005 14:57
Arafat allur Jasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, er allur, sjötíu og fimm ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í París skömmu eftir miðnætti að íslenskum tíma en frá þessu var greint snemma í morgun. Flogið verður með lík Arafats til Kaíró síðar í dag þar sem opinber útför hans fer fram, og síðar verður hann jarðsettur í Ramallah. Erlent 13.10.2005 14:57
Harður jarðskjálfti í Japan Harður jarðskjálfti varð í norðurhluta Japans í morgun og herma fregnir að einn maður hafi slasast. Jarðskjálftinn varð á svæði þar sem þúsundir manna hafa hafst við eftir öflugan jarðskjálfta sem varð um fjörutíu manns að bana í síðasta mánuði. Skjálftinn í morgun mældist 5,3 á Richter en nokkrir minni eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Erlent 13.10.2005 14:57
Óvissa í Palestínu Undirbúningur fyrir útför Jassers Arafats er þegar hafinn, þótt hann sé ekki enn fallinn frá. Ringulreið og óvissa ríkir í Palestínu. Erlent 13.10.2005 14:57
Ástríðumorð í Kanada Hjón og maður fundust látin í húsi í bænum Maniwaki í Kanada í gær. Fólkið lést af skotsárum og telur lögreglan að eiginmaðurinn hafi skotið konuna og hinn manninn og síðan framið sjálfsvíg. Erlent 13.10.2005 14:57
Uppstokkun í stjórn Bush John Ashcroft dómsmálaráðherra og Don Evans viðskiptaráðherra urðu fyrstu ráðherrarnir til að segja af sér eftir endurkjör George W. Bush Bandaríkjaforseta. Fyrir lá að einhverjar breytingar yrðu gerðar á ráðherraskipan fyrir seinna kjörtímabil Bush og var Ashcroft meðal þeirra sem búist var við að myndu láta af störfum. Erlent 13.10.2005 14:57
Öldungur á sakabekk 107 ára Indverji bíður nú eftir að dómari kveði upp dóm um hvort hann þurfi að snúa aftur í fangelsi eða fái að ganga frjáls. Maðurinn var fundinn sekur um manndráp fyrir sautján árum þegar hann varð nágranna sínum að bana í landadeilum. Síðan þá hefur málið gengið milli dómsstiga án þess að endanleg niðurstaða hafi fengist, að sögn BBC. Erlent 13.10.2005 14:57
Vara gangandi fólk við hálku Finnska veðurstofan hefur ákveðið að grípa til eigin ráðstafana til að fækka slysum af völdum hálku. Nú verða gefnar út tvær spár á dag á tuttugu spásvæðum sem beint er sérstaklega að gangandi vegfarendum, árlega þurfa um 50 þúsund úr þeirra röðum á læknishjálp að halda eftir að hafa runnið í hálku. Erlent 13.10.2005 14:57
Skuldar lögfræðingum 260 milljónir Martha Stewart, sjónvarpskona og fyrrverandi uppáhaldshúsmóðir allra Bandaríkjamanna, hefur óskað eftir því að fyrirtæki hennar, Martha Stewart Living Omnimedia, borgi ríflega 260 milljóna króna lögfræðireikning. Erlent 13.10.2005 14:57
Ebadi meinað að mótmæla Írönsk stjórnvöld hafa bannað Shirin Ebadi, friðarverðlaunahafa Nóbels í fyrra, að efna til mótmæla gegn aftökum á ungmennum undir átján ára aldri. Ebadi ætlaði að efna til mótmælanna í dag en var neitað um leyfi til að halda þau. Erlent 13.10.2005 14:57
Allt á suðupunkti vegna nauðgana Óeirðalögregla indverska hersins notaði táragas til að dreifa hundruðum mótmælenda sem kröfðust þess fjórða daginn í röð að hermönnum yrði refsað fyrir að nauðga tólf ára stúlku og móður hennar. Mótmælendur brugðust við með því að grýta táragassprengjunum aftur í lögregluna, sem og steinum og múrsteinum. Erlent 13.10.2005 14:57
Seld í vændi af ættingjum Nokkuð er um að ættingjar og nánir vinir barna taki þátt í að innleiða þau í starfsemi barnavændishringja, samkvæmt nýrri rannsókn á barnavændi á Filippseyjum. Fólkið þiggur þóknun af næturklúbbaeigendum og vændishringjum sem lofa börnunum oft vinnu við heimilisstörf en neyða þau síðan til að stunda vændi. Erlent 13.10.2005 14:57
Tíu bandarískir hermenn fallnir Sprengjum hefur rignt yfir Fallujah í Írak í nótt en áhlaup Bandaríkjahers og írakskra hersveita á borgina stendur þar nú sem hæst. Ekki færri en tíu bandarískir hermenn hafa fallið í bardögunum. Erlent 13.10.2005 14:57
Útför Arafats undirbúin Undirbúningur að útför Jassers Arafats, forseta heimastjórnar Palestínu, var í fullum gangi í gær. Arafat er sagður lifa síðustu stundir sínar og er ekki gert ráð fyrir að heilsa hans batni. Erlent 13.10.2005 14:57
Uppstokkun í Hvíta húsinu Tveir ráðherrar úr ríkisstjórn Bush Bandaríkjaforseta hafa sagt af sér. Það eru John Ashcroft dómsmálaráðherra og Donald Evans viðskiptaráðherra. Búist var við afsögn beggja en afsagnarbréf þeirra voru dagsett sama dag og Bush sigraði í forsetakosningunum vestra. Erlent 13.10.2005 14:57
Þrír myrtir í mafíustríði Þrjú illa farin lík fundust í bíl í Napólí í gærdag. Lögreglan skrifar morðin á mafíuna og segir þá látnu nýjustu fórnarlömbin í blóðugasta mafíustríði borgarinnar í tuttugu ár. Erlent 13.10.2005 14:57
Rasskellt fyrir vondan ís Eigandi ísbúðar í Red Bank í Tennesse hefur verið ákærður fyrir kynferðislegt áreiti gagnvart starfsmönnum. Erlent 13.10.2005 14:57
Palestínumenn byrjaðir að syrgja Mikil ringlureið er meðal Palestínumanna sem vita vart hvort Jasser Arafat, leiðtogi Palestínu, er lífs eða liðinn. Egyptar ætla að halda jarðarför Arafats og almenningur í Palestínu syrgir hann þegar, og þó er fullyrt að hann sé enn á lífi og í dái í París. Erlent 13.10.2005 14:57
Olíuverð niður í 47,37 dali Olíuverð náði sjö vikna lágmarki í gær, var 47,37 dalir þegar lokað var á olíumarkaði í New York í gærkvöldi. Ástæða lækkunarinnar er að vísbendingar hafa borist um að olíubirgðir í Bandaríkjunum hafi náð jafnvægi. Erlent 13.10.2005 14:57
Sláturhús gíslanna fundið Íraskir hermenn hafa fundið "sláturhús gísla", hús þar sem hryðjuverkamenn héldu gíslum föngnum og myrtu þá, sagði Abdul Qader Mohan, hershöfðingi og yfirmaður írösku hersveitanna í Falluja. Hann sagði að húsin væru í norðurhluta borgarinnar þar sem búist hefði verið við mestri mótspyrnu. Erlent 13.10.2005 14:57
Hörmungarástand í Falluja Sjö menn féllu fyrir stundu í sprengingu í Bagdad í Írak. Hernaðurinn í Falluja, skammt frá höfuðborginni, hefur leitt til öngþveitis og hörmungarástands að sögn hjálparstarfsmanna í Írak. Óttast er að mikið mannfall hafi orðið í stórsókn þúsunda bandarískra hermanna og írakskra þjóðvarðsliða gegn uppreisnarmönnum súnníta í borginni. Erlent 13.10.2005 14:57
Lofthelginni í kringum Haag lokað Lofthelgin í kringum borgina Haag í Hollandi hefur verið lokað. Þetta er gert í tengslum við aðgerð lögreglu sem stendur enn, en lögreglan er á hælum hóps hryðjuverkamanna. Þrír lögreglumenn slösuðust í sprengingu í Haag fyrr í morgun. Erlent 13.10.2005 14:57
Þrengt að smáflokkum Erfiðara verður að skrá stjórnmálaflokka í Rússlandi samþykki þingið ný lög um skráningu þeirra. Samkvæmt þeim verða skilyrði um lágmarksfjölda félagsmanna til að flokkar fái skráningu hækkuð úr tíu þúsund í 50 þúsund félaga. Að auki þurfa flokkar að hafa minnst 500 félaga í lágmarki 50 ríkja til að fá að starfa en nú er gerð krafa um 100 félaga. Erlent 13.10.2005 14:57
Ættingjum Allawis rænt Hópur íslamskra öfgamanna, sem kallar sig Ansar al-Jihad, greindi frá því í yfirlýsingu sem þeir birtu á Netinu fyrir stundu að þeir héldu þremur ættingjum Iyads Allawis, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar í Írak, í gíslingu. Hópurinn hótar að drepa fólkið innan tveggja sólarhringa, verði árásum bandarískra og írakskra hersveita á Fallujah ekki hætt. Erlent 13.10.2005 14:57
Eignaðist tvíbura tæplega sextug Tæplega sextug kona eignaðist tvíbura í New York í fyrradag. Konan sem er 57 ára er talin meðal þeirra elstu sem eignast hafa tvíbura. Tvíburarnir voru teknir með keisaraskurði. Erlent 13.10.2005 14:57