Íþróttir
Öruggur sigur Dougherty í Asíu Englendingurinn Nick Dougherty tryggði sér í dag sigur á Caltex Masters mótinu í golfi sem fram fór í Singapore. Mótið er sameiginlegur liður í asísku og evrópsku mótaröðunum. Yfirburðir þessa 22 ára gamla kylfings voru talsverðir, hann lék á 5 undir pari í dag eða á 67 höggum og lauk keppni með 5 högga forystu á Skotann, Colin Montgomerie. Sport 13.10.2005 15:29
Bylting í íslenskri sundsögu Landsbankamót Ægis - Reykjavík International var háð í nýju og glæsilegu húsnæði í Laugardal um helgina og heppnaðist mjög vel. Aðstandendur keppninar eru allir á einu máli um að mótið marki tímamót í íslenskri sundsögu, að aldrei áður hafi verið keppt hérlendis við eins góðar aðstæður og um helgina. Sport 13.10.2005 15:29
Langþráður draumur hjá Hewitt Tenniskappinn Lleyton Hewitt hefur möguleika á að fá langþráðan draum uppfylltan í dag þegar hann keppir til úrslita við Marat Safin á Opna ástralska mótinu í tennis. Sport 13.10.2005 15:29
Dougherty efstur á Caltex Masters Englendingurinn Nick Dougherty er efstur fyrir lokahringinn á Caltex Masters mótinu í golfi sem fram fer í Singapore en mótið er sameiginlegur liður í asísku og evrópsku mótaröðunum. Dougherty er samtals 13 höggum undir pari en hann lék á fjórum höggum undir pari í dag eða 68 höggum og er með tveggja högga forystu á næstu menn. Sport 13.10.2005 15:29
Ísland vann Noreg Ísland og Noregur áttust við í landskeppni í karate fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu í gær. Sport 13.10.2005 15:29
Montgomerie efstur í Singapúr Skotinn Colin Montgomerie lék best allra á fyrsta degi Opna Singapúrmótsins í golfi í morgun. Montgomerie lék á 7 undir pari og er þremur höggum á undan þremur öðrum kylfingum, Englendingunum Mark Foster og Nick Dougherty og Malasíumanninum Danny Chia. Sport 13.10.2005 15:28
Auðunn stefnir á 300 kíló í bekk Auðunn Jónsson, kraftlyftingakappi, hefur lýst því yfir að hann muni lyfta 300 kílóum á Íslandsmótinu í bekkpressu sem fram fer í Valsheimilinu á morgun. Sport 13.10.2005 15:28
Williams og Davenport í úrslit Bandarísku stúlkurnar Serena Williams og Lindsay Davenport leika til úrslita á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í Melbourne. Davenport vann í morgun Nathalie Dechy frá Frakklandi í undanúrslitum í þremur settum eftir að sú franska hafði unnið fyrsta settið. Serena Williams lenti einnig undir í undanúrslitum gegn Mariu Sharapovu frá Rússlandi en jafnaði metin og vann oddasettið. Sport 13.10.2005 15:28
A-landsliðið í snóker valið A-landslið Íslands í snóker hefur verið valið fyrir Evrópumeistaramótið sem fram fer á Möltu í mars. Sport 13.10.2005 15:28
Roddick í undanúrslit Bandaríkjamaðurinn Andy Roddick tryggði sér í morgun sæti í undanúrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis. Mótherji Roddicks, Rússinn Níkolaj Davydenko varð að hætta vegna meiðsla. Roddick hafði unnið tvö fyrstu settin og var yfir 4-1 í þriðja setti þegar þegar Rússinn gafst upp. Sport 13.10.2005 15:27
Miðasala á HM 2006 að hefjast Alls verða 812 þúsund miðar til sölu fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Þýskalandi 2006 frá og með 1. febrúar næstkomandi. Miðarnir verða seldir á Netinu út á nafn og geta allir skráð sig fyrir miðum. Sport 13.10.2005 15:27
Buso rekinn frá Fiorentina Sergio Buso hefur verið rekinn sem þjálfari ítalska knattspyrnuliðsins Fiorentina eftir aðeins þrjá mánuði við stjórnvölinn. Dino Zoff, fyrrverandi landsliðsmarkvörður og landsliðsþjálfari Ítalíu í knattspyrnu, var ráðinn í hans stað. Sport 13.10.2005 15:27
Serena í undanúrslit Serena Williams sigraði Amelie Mauresmo, sem er í 2. sæti á styrkleikalista tenniskvenna, og tryggði sér sæti í undanúrslitum á Opna ástralska meistaramótinu í tennis í morgun. Williams vann í tveimur settum og mætir Mariu Sharapovu í undanúrslitum. Sport 13.10.2005 15:27
Vonast til að vera með í SuperBowl Terrell Owens hjá Philadelphia Eagles í amerísku fótboltadeildinni NFL eygir veika von um að leika með liðinu í Ofurskálinni gegn New England Patriots, sem fram fer sunnudaginn 6. febrúar. Sport 13.10.2005 15:27
Sharapova í undanúrslit Hin rússneska Maria Sharapova sigraði löndu sína Svetlönu Kuznetsovu á opna ástralska meistaramótinu í tennis en gnístandi hiti var þegar á viðureigninni stóð, u.þ.b. 35 gráður. Sport 13.10.2005 15:27
Montoya tjáir sig um Ferrari Ákvörðun Ferrari í Formúlu 1 kappakstrinum að vígja ekki nýja 2005 Ferrari bílinn fyrr en á fimmta móti gæti komið liðinu afar illa. Sport 13.10.2005 15:26
Woods vann Buick-mótið Tiger Woods bar sigur úr býtum á Buick-mótinu sem lauk í fyrradag. Woods lék síðasta hringinn á 68 höggum og seig fram úr Tom Lehman sem var þremur höggum á eftir í öðru sæti. Sport 13.10.2005 15:26
Tiger mættur aftur Eftir afleita spilamennsku á síðasta ári stimplaði Tiger Woods sig inn í golfárið 2005 með glæsibrag þegar hann bar sigur úr bítum á atvinnumannamóti kylfinga á PGA-mótaröðinni, Buick-mótinu, sem var í beinni útsendingu á Sýn 2 í gærkvöld. Sport 13.10.2005 15:26
Jafntefli hjá Víkingi og Þrótti Víkingur og Þróttur gerðu jafntefli, 2-2, á Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í gærkvöld. Daníel Hjaltason Elmar Dan Sigþórsson skoruðu mörk Víkings en Davíð Logi Gunnarsson og Daníel Hafliðason mörk Þróttara. Sport 13.10.2005 15:26
Eagles og Patriots í Superbowl Philadelpha Eagles og New England Patriots mætast í úrslitaleik ameríska fótboltans, Superbowl, eftir undanúrslitaleiki gærkvöldsins. Sport 13.10.2005 15:26
Jón Arnar til FH Á blaðamannafundi FH á morgun verður tilkynnt að Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi mun ganga til liðs við FH úr Breiðabliki. Auk þess að keppa með FH mun Jón Arnar aðstoða við þjálfun hjá félaginu. Sport 13.10.2005 15:26
Hewitt í fjórðungsúrslit Ástralinn Lleyton Hewitt komst í fjórðungsúrslit á Opna ástralska tennismótinu í morgun í fyrsta sinn þegar hann lagði spænska táninginn Rafael Nadal með þremur settum gegn tveimur: 7-5, 3-6, 1-6, 7-6 og 6-2. Sport 13.10.2005 15:26
O´Sullivan vann Hendry Ronnie O´Sullivan vann Stephen Hendry í úrslitaleik opna velska snókermótsins í fyrrakvöld. Sport 13.10.2005 15:26
Pårson best í Slóveníu Anja Pårson frá Svíþjóð sigraði nú áðan í svigi heimsbikarkeppninnar á skíðum í Maribor í Slóveníu. Janica Kostelic frá Króatíu varð önnur og finnska stúlkan Tania Poutianen þriðja. Sport 13.10.2005 15:26
Agassi kominn í 8 manna úrslit Bandaríkjamaðurinn Andre Agassi komst í morgun í 8 manna úrslit á Opna ástralska meistaramótinu í tennis þegar hann sigraði Svíann Joachim Johansson. Johansson vann fyrsta settið en Agassi þrjú þau næstu. Hann mætir Svisslendingnum Roger Federer í 8 manna úrslitum en Federer vann auðveldan sigur á Marcos Baghdatis frá Kýpur. Sport 13.10.2005 15:26
Undanúrslit NFL í kvöld Það ræðst í kvöld hvaða tvö lið leika til úrslita í Superbowl úrslitaleiknum í ameríska fótboltanum sem fram fer í Jacksonville í Flórída sunnudaginn 6. febrúar n.k. Stemningin er heldur betur að magnast í Bandaríkjunum fyrir undanúrslitin í kvöld enda er Superbowl leikurinn sjálfur sá íþróttaviðburður sem fær mesta sjónvarpsáhorfið þar hvert ár. Sport 13.10.2005 15:26
Silja nær lágmarki fyrir EM Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, varð í 4. sæti í 400 metra hlaupi á móti í Clemson í Bandaríkjunum í gær. Hún hljóp á 54,17 sekúndum og náði lágmarki fyrir Evrópumeistaramótið innanhúss. Silja var einnig í boðhlaupssveit Clemson-háskóla sem varð í 3. sæti í 400 metra hlaupi. Silja hljóp sprettinn á 54,22 sekúndum. Sport 13.10.2005 15:26
Woods og Lehman með forystu Bandaríkjamennirnir Tiger Woods og Tom Lehman hafa forystu á Buick-mótinu í golfi í San Diego í Kaliforníu. Vegna þoku var ekki hægt að ljúka keppni í gær. Woods náði aðeins að ljúka 5 holum í gær en Lehman 4. Jafnir í þriðja sæti eru Englendingurinn Luke Donald og Ástralinn Peter Lonard, þremur höggum á eftir þeim Woods og Lehman. Sport 13.10.2005 15:26
Kvennaleikar settir í Teheran Fyrstu íþróttaleikar íslamskra og asískra kvenna voru settir í Teheran, höfuðborg Írans í gær. Íranskar konur gengu kringum eftirlíkingu af Kaaba, heilögum stað Múslima í Sádi-Arabíu. Gangan var hluti af opnunarhátíð fyrstu íþróttaleika kvenna frá höfuðborgum íslamskra og asískra landa sem haldin er í Teheran í Íran. Sport 13.10.2005 15:26
Lehman enn efstur á Buick-mótinu Bandaríkjamaðurinn Tom Lehman hefur forystu þegar keppni á Buick-mótinu í golfi í San Diego í Kaliforníu er hálfnuð. Lehman lék í gær á 67 höggum eða 5 undir pari. Hann er þremur höggum á undan Peter Lonard og fjórum á undan Tiger Woods sem lék mjög vel í gær. Sport 13.10.2005 15:26