Íþróttir
KA í öðru sæti KA komst í annað sætið í 1. deild karla þegar liðið sigraði Víking Ólafsvík með þremur mörkum gegn engu í Ólafsvík í gærkvöldi. Hreinn Hringsson, Óli Þór Birgisson og Pálmi Rafn Pálmason skoruðu mörkin. Sport 13.10.2005 19:26
Réttarhöldin í formúlu eitt í dag Í dag verða réttarhöldin vegna uppákomunnar í formúlu eitt í Indianapolis um daginn, þar sem úr því fæst skorið hvort liðin sjö sem drógu sig úr keppni af öryggisástæðum fá harða refsingu eða áminningu. Sport 13.10.2005 19:26
F1 liðin dæmd sek Keppnisliðin sjö sem drógu sig úr keppni í Indianapolis í formúlu eitt forðum, voru dæmd sek fyrir rétti í dag, en verður ekki úthlutuð refsing fyrr en í september. Talið er að refsingar í málinu verði ekki eins þungar og búist var við í fyrstu. Sport 13.10.2005 19:26
Fjögurra stiga forskot Djurgarden Djurgarden er með fjögurra stiga forskot á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 útisigur á Landskrona í gær. Kári Árnason lék síðustu mínútur leiksins fyrir Djurgarden. Sport 13.10.2005 19:26
Alonso hefur engar áhyggjur Stigahæsti ökuþórinn í formúlu eitt, Spánverjinn Fernando Alonso, hefur litlar áhyggjur af samkeppni frá heimsmeistaranum Michael Schumacher, þrátt fyrir að meistarinn hafi verið að raka inn stigum undanfarið. Sport 13.10.2005 19:26
Ralf snýr aftur eftir áreksturinn Ralf Schumacher hjá Toyota-liðinu í formúlu eitt, ætlar að snúa aftur ótrauður eftir áreksturinn í Indianapolis, sem meðal annars varð til þess að keppnin snerist upp í skrípaleik. Sport 13.10.2005 19:26
Hannes með tvö og valinn bestur Hannes Þ. Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir lið sitt, Viking Stavanger, þegar liðið vann Trömsö 3-2 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hann var jafnframt valinn besti leikmaður vallarins af norska netmiðlinum Nettavisen. Sport 13.10.2005 19:26
Einn heimur, einn draumur Slagorð Ólympíuleikanna í Peking, sem haldnir verða árið 2008, voru opinberuð af kínverskum stjórnvöldum við hátíðlega athöfn í gær. Slagorðin eru: „Einn heimur, einn draumur.“ Samkeppni var haldin um bestu slagorðin og bárust í hana 210 þúsund hugmyndir á kínversku, frönsku, spænsku og fjölda annarra tungumála. Sport 13.10.2005 19:25
Kristín Rós setti heimsmet Kristín Rós Hákonardóttir úr Fjölni setti í gær heimsmet í 200 metra baksundi á þýska meistaramótinu í sundi fatlaðra þegar hún synti á 3 mínútum og 8,23 sekúndum. Kristín Rós bætti einnig Íslandsmetið í 200 metra skriðsundi. Sport 13.10.2005 19:25
Argentína - Brasilía í úrslitum Knattspyrnurisarnir Argentína og Brasilía mætast í úrslitaleik Álfukeppninnar í knattspyrnu á miðvikudag. Argentína vann Mexíkó eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni í gær. Sport 13.10.2005 19:25
Lokeren slapp fyrir horn Belgíska liðið Lokeren, en fjórir íslenskir knattspyrnumenn eru á mála félagsins, slapp fyrir horn í gær í Intertoto-keppninni. Lokeren tapaði 0-1 á heimavelli fyrir Trans frá Eistlandi. Lokeren vann fyrri leikinn 2-0 og komst því áfram, 2-1 samtals. Sport 13.10.2005 19:25
Fjölnir sigraði Þór Þrír leikir voru í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Fjölnir sigraði Þór með þremur mörkum gegn einu, Haukar sigruðu KS, 4-1, og Völsungur og Víkingur í Ólafsvík gerðu 1-1 jafntefli. Sport 13.10.2005 19:25
Skagamenn eiga góða möguleika Skagamenn mæta í finnska liðinu Inter Turku í Intertoto-keppninni í knattspyrnu klukkan 16 í dag. Þetta er síðari leikur liðanna en í fyrri leiknum í Finnlandi um síðustu helgi varð jafntefli þannig að Skagamenn eiga góðan möguleika á því að komast áfram í keppninni. Sport 13.10.2005 19:25
Stefnir í spennandi lokasprett Það stefnir í spennandi lokasprett á Barcleys Classic mótinu í golfi í Harrington í New York síðar í dag. Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk og Írinn Pedraig Harrington eru jafnir í fyrsta sætinu á níu höggum undir pari. Sport 13.10.2005 19:25
Nýtt Íslandsmet í 400 m skriðsundi Sigrún Brá Sverrisdóttir Fjölni bætti í gær Íslandsmetið í 400 metra skriðsundi þegar hún synti á 4 mínútum 19,74 sekúndum. Árangur Sigrúnar er glæsilegur en hún er aðeins 15 ára. Hún bætti met Láru Hrundar Bjargardóttur um 98 hundraðshluta úr sekúndu. Sport 13.10.2005 19:25
Shellmótinu að ljúka Hinu árlega Shellmóti í knattspyrnu lýkur í Vestmannaeyjum í dag. Úrslitaleikirnir hefjast nú í hádeginu. Breiðablik og Stjarnan eiga þrjú lið í úrslitum. Sport 13.10.2005 19:25
Loeb sigraði í Akrapolis-rallinu Frakkinn Sebastian Loeb sigraði í Akrapolis-rallinu sem lauk í morgun. Annar varð Finninn Toni Gardemeister, einni mínútu og 36 sekúndum á eftir Loeb. Carlos Sainz og Markus Grönholm urðu í þriðja og fjórða sæti. Sport 13.10.2005 19:25
FH bikarmeistari í 12. sinn í röð FH varð í gær bikarmeistari í frjálsum íþróttum í 12. sinn í röð. FH sigraði örugglega, fékk 195 stig, en ÍR-ingar sem urðu í öðru sæti hlutu 153 stig. Skagfirðingar urðu þriðju, Breiðablik hafnaði fjórða sæti og sameiginlegt lið Fjölnis og Ármanns í fimmta sæti. Sport 13.10.2005 19:25
Serena úr leik Serena Williams féll úr leik í 3. umferð á Wimbledonmótinu í tennis í gær þegar hún tapaði fyrir Jill Craybas frá Bandaríkjunum. Williams er í 4. sæti á heimslistanum í tennis en hin þrítuga Craybas í 85. sæti. Sport 13.10.2005 19:25
Loeb með forystu í Grikklandi Frakkinn Sebastian Loeb hefur forystu í Akrópólisrallinu. Þegar 11 sérleiðir eru búnar er Citroën-bíll Loebs 25,7 sekúndum á undan Peuegeot-bíl Finnans Markusar Grönholms. Spánverjinn Carlos Sainz á Citroën er í þriðja sæti, einni mínútu og þremur sekúndum á eftir Loeb. Sport 13.10.2005 19:25
FH með örugga forystu í bikar FH hefur 23 stiga forystu eftir fyrri daginn í bikarkeppninni í frjálsum íþróttum. Þegar 19 greinar eru búnar hefur FH 100 stig en ÍR er í öðru sæti með 77 stig. Ungmennasamband Skagafjarðar og sameiginlegt lið Fjölnis og Ármanns er með 68 stig en Breiðablik er í fimmta sæti, stigi á eftir. Keppni hefst að nýju á Laugardalsvellinum klukkan 14. Sport 13.10.2005 19:25
Bikarkeppni í frjálsum í kvöld Bikarkeppnin í frjálsum íþróttum hefst á Laugardalsvelli í kvöld. Keppt verður í 19 greinum í kvöld. FH á titil að verja en FH-ingar hafa orðið bikarmeistarar 11 sinnum í röð. Í fyrra munaði aðeins hálfu stigi á FH og Ungmennasambandi Skagafjarðar sem varð í öðru sæti. Sport 13.10.2005 19:25
Bætti met í 800 m skriðsundi Sigrún Brá Sverrisdóttir, Fjölni, bætti sjö ára gamalt stúlknamet í 800 metra skriðsundi um 21 hundraðshluta úr sekúndu á aldursflokkameistaramótinu í sundi á Akureyri í gærkvöldi. 290 keppendur frá 20 félögum taka þátt í mótinu. Sport 13.10.2005 19:25
Kalmar í 2. sæti í Svíþjóð Kalmar er komið í annað sætið í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með eftir að hafa borið sigurorð af Sundsvall á útivelli, 0-2. Kalmar er með 19 stig, fjórum stigum á eftir Djurgarden sem er á toppnum. Sport 13.10.2005 19:24
Hardenne tapaði óvænt Óvænt úrslit urðu á Wimbledon-mótinu í tennis í gær þegar Justine Henin-Hardenne tapaði í 2. umferð fyrir grískri stúlku en Wimbledon-mótið er eina stórmótið sem Hardenne hefur ekki tekist að sigra á. Sigurvegari síðasta árs, Maria Sharapova frá Rússlandi, vann Nuriu Llagosteru frá Spáni í tveimur settum, 6-2 og 6-2. Sport 13.10.2005 19:24
15 fatlaðir á sundmót í Þýskalandi Íþróttasamband fatlaðra sendir 15 keppendur á opna þýska meistaramótið í sundi sem fram fer í Berlín 23.-27. júní næstkomandi. Einn nýliði er í hópnum Eyþór Þrastarson. Kristín Rós Hákonardóttir og Gunnar Örn Ólafsson eru einnig á meðal keppenda Sport 13.10.2005 19:23
Stoddart ræðst að Max Mosley Paul Stoddart, stjóri Minardi-liðsins í formúlu eitt, hefur látið hörð orð falla í garð Max Mosley, yfirmanns formúlunnar og segir að farsinn í Bandaríkjunum um helgina hafi verið algjörlega óþarfur. Sport 13.10.2005 19:23
Bætti heimsmetið í 100 m hlaupi Heimsmetið í 100 metra hlaupi var í gær bætt um tæpar 2 sekúndur. Asafa Powell, sem nýlega bætti metið, þarf ekki að sjá á eftir sínu meti því Japaninn Kozo Haraguchi bætti metið í flokki 95-99 ára. Haraguchi er 95 ára og hann hljóp vegalengdina á 22,04 sekúndum og bætti sex ára gamalt met sem Erwin nokkur Jaskulski frá Hawai átti, um tæpar 2 sekúndur. Sport 13.10.2005 19:23
Slæm staða í Eistlandi Íslenska karlalandsliðið í frjálsum íþróttum er í 7. og næstneðsta sæti í 2. deild Evrópubikarkeppninnar í frjálsum íþróttum í Tallin í Eistlandi eftir fyrri keppnisdaginn. Danir hafa forystu, eru með 59 stig, en Íslendingar hafa 30 stig og eru 16 stigum á eftir Lettum og Ísraelsmönnum sem eru jafnir í 5. sæti. Sport 13.10.2005 19:23
Arnar skoraði fyrir Lokeren Belgíska liðið Lokeren sigraði Trans frá Eistlandi með tveimur mörkum gegn engu í Intertotokeppninni í knattspyrnu í gær. Arnar Grétarsson skoraði annað mark Lokeren. Skagamenn mæta finnska liðinu Inter Turku í þessari sömu keppni í dag. Sport 13.10.2005 19:23