Lögreglan

Fréttamynd

Ó­virk um­ferðar­ljós valda töfum

Umferðarljós á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar, á og við brúnna yfir Reykjanesbraut, eru óvirk og óvíst hversu lengi viðgerð mun standa yfir. Sama gildir um umferðarljósin á gatnamótum Nýbýlavegar, Dalvegar og Skemmuvegar.

Innlent
Fréttamynd

Höfum setið eftir í bar­áttu við glæpa­hópa

Lögregla fengi meira svigrúm til að rannsaka skipulagða brotahópa samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum dómsmálaráðherra. Meðal annars yrði auðveldara að leita í símum, leggja hald á eignir og hefja símhlustun þegar hætta er á að mikilvæg gögn glatist. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn segir núverandi lög ekki passa við það hvernig brotahópar starfa í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fái að ráðast í hús­leit og spyrja svo

Dómsmálaráðherra boðar hertari löggjöf gegn skipulagðri brotastarfsemi. Breytingarnar felast meðal annars í þyngri refsingu, lengra gæsluvarðhaldi og að lögreglu verði heimilt að ráðast í rannsóknaraðgerðir áður en dómari hefur veitt leyfi. Þá megi lögregla bíða í allt að sex vikur áður en hún afhendir verjendum gögn.

Innlent
Fréttamynd

Sam­fé­lagið syrgir ung­mennin sem létust

Minningarstundir verða haldnar í dag í Lágafells- og Háteigskirkju vegna ungmenna sem létust í bílslysinu við Krýsuvíkurveg. Prófastur segir mikilvægt að halda vel utan um hvort annað á svo erfiðum tímum. Fjölmargir eigi um sárt að binda.

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýnir við­bragð lög­reglu eftir á­hlaup ung­menna

Forsvarsmenn veitinga- og skemmtistaðarins Priksins við Bankastræti í Reykjavík gagnrýna vinnubrögð lögreglu þegar staðnum var lokað í gær vegna áhlaups ungmenna. Viðbragð lögreglu hafi verið brot gegn meðalhófsreglu. Veitingastaðnum Gömlu Reykjavík við Austurvöll var einnig lokað.

Innlent
Fréttamynd

Eiga eftir að taka um­sækj­endur í við­töl

Enn hafa engin viðtöl verið tekin vegna skipunar nýs lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en vegna sumarleyfa lá ráðningarferlið niðri. Óljóst er hvenær nýr lögreglustjóri verður skipaður. 

Innlent
Fréttamynd

Sorg­legt að ekki hafi tekist að vernda konuna

Karlmaður er í gæsluvarðhaldi vegna stórfelldrar líkamsárásar gagnvart sambýliskonu sinni. Árásina framdi hann daginn eftir að hafa verið dæmdur í fangelsi fyrir ofbeldi gagnvart sömu konu. Talskona Stígamóta segir heimild til nálgunarbanns stórlega vannýtta og sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna.

Innlent
Fréttamynd

Hryðjuverkamálið frá upp­hafi til enda

„Í kjölfar aðgerða lögreglu er það okkar mat að það sé óhætt að segja að samfélagið okkar sé öruggara en það var,“ sagði Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, á blaðamannafundi lögreglu sem fram fór 22. september 2022.

Innlent
Fréttamynd

Af hverju fer sérsveitin í fleiri út­köll?

Er það vegna getuleysis í almennri löggæslu? Það líður varla sá morgunn að fréttamiðlar flytji okkur ekki fregnir af því að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi verið kölluð út til að handtaka vopnaða einstaklinga eða bregðast við hættuástandi.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi

Óskiljanlegt er að netsala áfengis þenjist út eftir að fallinn er dómur um að hún sé ólögleg. Þetta segir fyrrverandi fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins sem kallar jafnframt eftir því að starfsemin verði stöðvuð strax og að ríkisstjórnin tali skýrt í málinu, sem sé henni til vansa.

Innlent
Fréttamynd

Erfitt að stöðva um­fangs­mikla sölu

Um tuttugu fyrirtæki bjóða áfengi til sölu á Íslandi þrátt fyrir dóm um að vefsala á áfengi sé ólögleg. Lögregla segir erfitt að bregðast við umfangsmikilli sölu.

Innlent
Fréttamynd

Al­myrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagn­legar upp­lýsingar

Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu sýnilegur á vesturhluta landsins. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og því má áætla að um og yfir 70% landsmanna séð þetta stórbrotna náttúrundur að heiman frá sér. Á sama tíma verður deildarmyrkvi á öllu landinu austan slóðarinnar en á Norðfirði og Seyðisfirði hylur tunglið 95% af yfirborði sólar.

Skoðun
Fréttamynd

Vegum lokað og bílar taldir

Töluvert af öryggisráðstöfunum verða gerðar á Vestfjörðum vegna almyrkvans þann 12. ágúst næstkomandi. Til að mynda verður veginum um Bolafjall lokað og fari of margir í átt að Látrabjargi verður veginum lokað.

Innlent
Fréttamynd

Traust til ís­lenskra yfir­valda sagt fara vaxandi

Umtalsvert fleiri segjast nú bera mikið traust til ríkisstjórnarinnar en fyrir þremur árum í alþjóðlegri könnun Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Traust til Alþingis hefur einnig aukist á sama tíma og tiltrú á fjölmiðlum hefur dvínað.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum

Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum af Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur. Greint var frá því í morgun að Margrét Kristín hefði verið á lista umsækjenda um starf lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Flækt í kaf­kaískt stjórnsýslu­legt hel­víti

Dagný Bjarnadóttir fær misvísandi svör frá mismunandi stjórnsýslueiningum en hún hefur tekið að sér að vinna í málum tengdasonar síns sem upphaflega var sektaður fyrir að vera ekki með íslenskt ökuskírteini. Sú sekt var felld niður en gekk aftur þegar tengdasonurinn, sem er frá Venesúela, var sektaður öðru sinni. Hún stendur frammi fyrir miklum kostnaði. Lögmaðurinn segir um gat að ræða í kerfinu.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglu­stjóri braut meðalhófsreglu

Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu þegar hann færði Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjón, til í starfi í kjölfar kvartana undirmanns. Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur en það var ríkislögmaður sem áfrýjaði dómnum. Ríkið þarf að greiða Margeiri tvær milljónir í miskabætur og eina og hálfa milljón í málskostnað. 

Innlent
Fréttamynd

Sér­sveitar­maður lagði hné á háls manns

Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur sent erindi til héraðssaksóknara vegna framgöngu sérsveitarmanns sem er sakaður um að hafa lagt hné á háls manns við handtöku fyrir utan skemmtistað á Akureyri.

Innlent