Ole Anton Bieltvedt

Hvernig á alþjóðasamfélagið að verja samfélag, sem ekki sýnir minnsta vilja eða getu til að verja sig sjálft?
Fyrir nokkrum mánuðum ákvað Biden Bandaríkjaforseti, að draga til baka bandarískt herlið, sem þá hafði verið staðsett í Afganistan í 20 ár, þar sem hann taldi tilgangi hertökunnar og hersetunnar vera náð, og, að Bandaríkin og NATO hefðu lagt heimamönnum, þ.e. ríkisstjórn þeirra og herliði, til nægilegt liðsinni – fjármuni, leiðsögn og þjálfun – til að stand á eigin fótum.

Tillaga að skattleysi eldri borgara
Á undanförnum áratugum, í reynd síðustu eina til tvær aldirnar, hefur farið fram margvísleg réttindabarátta, þar sem hinir ýmsu hópar þjóðfélagsins, sem minna hafa mátt sín, hafa reynt að sækja aukinn rétt, til valda og fjármuna, jafna rétt sinn við þá, sem sátu að meiri rétti fyrir; höfðu forréttindi.

Oftast eru vinsældir af hinu góða, en ekki alltaf
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur síðustu mánuði verið vinsælasti stjórnmálamaður landsins. Fylgi manna við hana, hennar vinsældir, hafa náð til allt að 67% landsmanna.

Frístundargaman utanríkisráðherra og tengd mál
Í fyrra haust kom upp COVID-smit á hóteli á Suðurlandi, þar sem ráðherrar höfðu setið á fundi. Þurfti því að skima mannskapinn, en ekki náðist í utanríkisráðherra, en hann var sagður vera í fríi á Austurlandi.

Aðstoðarmaður og utanríkisráðherra á rápi; ringluð og villt í afdölum
Nýlega skrifaði frambjóðandi til prófkjörs hjá D, ung og fönguleg kona, að sjá, sem jafnframt er aðstoðarmaður utanríkisráðherra, grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni „Aðild að Evrópusambandinu fer gegn hagsmunum Íslands“.

Atlaga Styrmis að ESB algjört vindhögg
Styrmir Gunnarsson er mætur maður. Hann var glæsilegur ritstjóri Morgunblaðsins í áratugi, auk þess sem hann hefur lagt ýmislegt gott til íslenzkrar samfélagsumræðu.

Ný brýn tegund vegabréfsáritana
Vegabréfið er eitt tryggasta skjalið, sem gefið er út og notað til að sanna, hver handhafi er, bæði við löggjörninga, hvers konar aðgang og nýtingu sinna réttinda og þá sérstaklega á ferðalögum, heima og heiman.

Það eru ekki dýrin sem eru skepnur, heldur mennirnir!
Síðla sumars í fyrra kom upp COVID-smit á Hótel Rangá, þar sem ráðherrar höfðu fundað. Þurfti því að skima þá, en ekki náðist í utanríkisráðherra.

Er ekki kominn tími á, að Sjálfstæðisflokkurinn verði sjálfstæður!
Þann 5. febrúar sl. var ritstjórnargrein, leiðari, í Morgunblaðinu, sem allir hugsandi menn ættu að kynna sér. Höfundur mun hafa verið fyrrverandi borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og nú annar ritstjóra blaðins. Sennilega áhrifamesti maður landsins síðustu 3-4 áratugi.

Flokkurinn, sem gleymdi uppruna sínum og tilgangi og geltist
Í eina tíð var eitt helzta slagorð Sjálfstæðisflokksins „stétt-með-stétt“. Og, þetta var meira en slagorð. Þetta var stefnumörkun, sem var framkvæmd og stóðst. Þingmenn voru með margvíslegan bakgrunn; komu úr ólíkum starfsgreinum, höfðu ólíka menntun og feril að baki. Flokkurinn hafði oft um 40% fylgi. Þjóðarflokkur.

Sekt forráðamanna Hvals hf sönnuð í tveimur sakamálum; hvað gerir ráðherra nú?
Jarðarvinir, dýra- náttúru og umhverfisverndarsamtök, hafa rekið tvö sakamál gegn forráðamönnum Hvals hf, vegna meintra brota þeirra á reglugerðum vegna hvalveiða og verkunar hvals, svo og vegna meintra brota þeirra á ákvæðum veiðileyfa, þar sem sekt hefur sannast.

Bréf um mannúðlega meðferð minka
Sæll og blessaður, Kristján Þór. Sl. fimmtudag, 17. desember, sendum við þér áskorun um, að þú myndir beita þér fyrir því, að minkahald yrði stöðvað og bannað á Íslandi, eins og hjá flestum öðrum vestrænum þjóðum.

Sérfræðiþekking, almenn skynsemi og þjóðfélagsumræðan
Undirritaður hefur skrifað ýmsar greinar um COVID og sóttvarnir í landinu síðustu vikur, með nokkurri gagnrýni á hendur sóttvarna- og heilbrigðisyfirvöldum, og hefur fengið mismikið lof, - reyndar meira last en lof - fyrir.

Kominn tími á það viðbjóðslega dýrahald, sem loðdýraræktin er!
Síðustu daga hefur mátt sjá í sjónvarpsfréttum viðbjóðslegan aðbúnað og hald minka m.a. hjá íslenzkum minkabændum. Búin munu vera 9, og læðurnar 15.000, en hver þeirra mun eiga 6 hvolpa að meðaltali á ári.

Eru COVID-sjúklingar „heilagar kýr“!?
Með þessari fyrirsögn vil ég ekki vera leiðinlegur eða dónalegur gagnvart COVID-sjúklingum, né heldur vil ég gera lítið úr COVID-vírusnum eða þeim, sem sýkst hafa, heldur vil ég vekja athygli á lítt grunduðum og yfirkeyrðum stjórnunarháttum heilbrigðisyfirvalda, með heilbrigðisráherra og forsætisráðherra í fararbroddi.

Á nú endanlega að útrýma íslenzku rjúpunni? Svei þeim, sem að því standa!
Fyrir 18 árum, árið 2002, var svo komið fyrir íslenzku rjúpunni, að hún var - vegna óbilgirni veiðimanna og undanlátssemi stjórnvalda - komin á útrýmingarstig.

Vafasöm COVID-umræða í gangi; staðir smita ekki, heldur menn
Í gær eða fyrradag lagði sóttvarnalæknir að heilbrigðisráðherra með það, að líkamsræktarstövum yrði lokað. Ástæðan var sú, að fyrir nokkru hefðu komið upp tiltekinn fjöldi smita á líkamsræktarstöðvum, sem síðan hefði valdið öðrum smitum.

Kára, þríeykinu og ríkisstjórn hefur fatast flugið; illilega!
Þríeykið birti grein í Fréttablaðinu 15. október sl., um COVID-19 og tengd mál, sem undirrituðum líkaði illa.

Hrapalleg mistök að loka landamærunum 19. ágúst
Það var ljóst, að enginn ferðamaður vildi koma hingað upp á þessi býti; að hanga í óvissu, einangrun og iðjuleysi í allt að viku.

Hvað var hann Þórólfur okkar að fara á Sprengisandi?
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, mætti í spjall á Sprengisandi, hjá þeim ágæta útvarpsmanni Kristjáni Kristjánssyni, sl. sunnudag. Gott mál.