Keflavíkurflugvöllur
1 2 3 4 5 6 … 43 ›
Þjálfun í flugturni hafði áhrif á að lá við árekstri farþegaþotna Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að þjálfun í flugturni á Keflavíkurflugvelli hafi haft áhrif á árekstrarhætta skapaðist á milli farþegaþotna Icelandair og Play í febrúar. Uppákoman var skráð sem alvarlegt flugumferðaratvik. Innlent 13.12.2024 11:20
Vill aukinn viðbúnað á Íslandi til að bregðast við ófyrirséðum árásum Varnarmálasérfræðingur veltir upp hugmyndinni um að stofna til íslensks hers og bendir á að aðrar smáþjóðir hafi stofnað til herja. Auka ætti viðbúnað í varnarmálum á Íslandi til að hægt sé að bregðast við skyndilegum eða ófyrirséðum árásum. Innlent 10.12.2024 18:33
Airbus-þotu Icelandair lent á Akureyri og Egilsstöðum Hin nýja Airbus-þota Icelandair, Esja, heldur í fyrramálið, á sunnudagsmorgni, í flug frá Keflavík til æfingalendinga á varaflugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum. Aðaltilgangur flugsins er að þjálfa flugmenn þotunnar en flugáhugamönnum bæði norðanlands og austan gefst um leið tækifæri til að sjá hana lenda og taka á loft. Innlent 7.12.2024 20:40
Metsætanýting í nóvember hjá Icelandair Icelandair flutti yfir 300 þúsund farþega í nóvember. Það eru 6,4 prósentum fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 34 prósent farþega á leið til Íslands, 19 prósent frá Íslandi, 41 prósent ferðuðust um Ísland og sex prósent innan Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Viðskipti innlent 6.12.2024 10:04
Fagna þotunni sem markar tímamót í sögu Icelandair Icelandair-menn fögnuðu tímamótum með komu fyrstu Airbus-þotu félagsins til landsins í dag og um leið því að fá farkost sem eyðir þrjátíu prósentum minna eldsneyti á hvert sæti en þotan sem hún leysir af hólmi. Innlent 3.12.2024 22:10
Stjórnmálamenn segjast styðja PPP-verkefni en meina „flestir ekkert með því“ Löggjöf frá 2020 sem átti að opna á meira en hundrað milljarða fjárfestingu í vegasamgöngum með samningum við einkaaðila hefur ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með, að sögn utanríkisráðherra, en þótt stjórnmálamenn segist iðulega vera jákvæðir á slík samvinnuverkefni stjórnvalda og fjárfesta þá meini „flestir ekkert með því.“ Framkvæmdastjóri hjá danska ráðgjafafyrirtækisins COWI, sem keypti nýlega Mannvit, tekur í sama streng og segir skorta á pólitískan vilja að styðja við slík fjárfestingaverkefni til að bæta úr bágbornu ástandi vegakerfisins hér á landi. Innherji 3.12.2024 14:34
Hyggjast fljúga þotunni yfir Reykjavík í hádeginu Icelandair fékk í dag afhenta fyrstu Airbus-þotuna í sögu félagsins. Stefnt er að því að hún fljúgi yfir Reykjavík við komuna til Íslands í hádeginu á morgun, þriðjudag 3. desember. Innlent 2.12.2024 23:43
Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Isavia ohf. hefur tekið tilboði þýska fyrirtækisins Heinemann í rekstur fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli til næstu átta ára. Tilboðið er valið út frá fyrir fram ákveðnum valforsendum útboðs. Fjórir aðilar buðu í reksturinn. Heinemann rekur fjölda verslana um allan heim, meðal annars fríhafnarverslanirnar á Gardermoen-flugvelli í Osló og Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn. Viðskipti innlent 20.11.2024 15:41
Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Umfangsmikil flugslysaæfing var haldin á Keflavíkurflugvelli í dag og voru þátttakendur um 500 talsins. Slíkar æfingar eru með stærstu hópslysaæfingum sem haldnar eru á Íslandi. Innlent 16.11.2024 21:30
Allar landamærastöðvar efldar og þeim mögulega fækkað Íslensk stjórnvöld hafa markað nýja stefnu í landamæramálum sem ætlað er að efla landamæraeftirlit, auka viðbrögð við skipulagðri brotastarfsemi og tryggja mannúðlega móttöku og brottflutning hælisleitenda. Innlent 15.11.2024 11:28
Svona var fundur ráðherra og ríkislögreglustjóra um landamærin Guðrún Hafsteindóttir dómsmálaráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafa boðað til upplýsingafundar um stefnu stjórnvalda í málefnum landamæra og landsáætlun um samþætta landamærastjórnun. Innlent 15.11.2024 07:39
Sextán flugferðum aflýst Sextán flugferðum frá Keflavíkurflugvelli sem voru á áætlun í fyrramálið hefur nú verið aflýst sökum veðurs. Búið er að gefa út gula og appelsínugula veðurviðvörun fyrir stóran hluta landsins á morgun. Innlent 14.11.2024 20:42
Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Icelandair hefur bætt nýjum áfangastað við leiðakerfið sitt, hinni sögufrægu borg Istanbul í Tyrklandi. Flogið verður til borgarinnar fjórum sinnum í viku frá 5. september 2025 og er flugtími um fimm klukkustundir og 30 mínútur. Viðskipti innlent 14.11.2024 13:33
Sætanýtingin aldrei verið betri í október Flugfélagið Play flutti 138.155 farþega í október 2024, samanborið við 154.479 farþega í október í fyrra. Sætanýting félagsins í mánuðinum var 85,3 prósent, og hefur hún aldrei verið hærri í októbermánuði í sögu félagsins. Sætanýtingin í október á síðasta ári var 83 prósent. Viðskipti innlent 7.11.2024 10:39
Fjögur erlend fyrirtæki keppa um rekstur Fríhafnarinnar Fjögur erlend fyrirtæki keppast um að fá rekstur Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli í sínar hendur og er reiknað með niðurstöðu í útboði fyrir áramót. Núverandi innviðaráðherra styður útboðið en fyrrverandi innviðaráðherra var alfarið á móti þessum áætlunum. Viðskipti innlent 24.10.2024 19:31
Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Bilun var í brunaboða á Keflavíkurflugvelli í morgun og þurfi að rýma hluta flugvallarins í stutta stund. Samkvæmt upplýsingum frá Davíð Heimissyni varðstjóra hjá Brunavörnum Suðurnesja varði hún í aðeins stutta stund. Innlent 19.10.2024 10:24
Fá að leita í innrituðum farangri farþega að þeim fjarstöddum Nýtt frumvarp fjármálaráðherra kveður á um að tollgæslu verði heimilt að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að eigandanum fjarstöddum. Innlent 18.10.2024 06:46
Opið bréf til ríkis- og borgarstjórnar Hvað með sjúkraflugið? Skortur á röddum landsbyggðar í mikilvægum innviðamálum. Skoðun 14.10.2024 12:02
United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í gær að það hefði ákveðið að hefja beint áætlunarflug milli New York og Nuuk, höfuðstaðar Grænlands, næsta sumar. Flugið hefst 14. júní og stendur yfir sumartímann til 24. september 2025. Viðskipti erlent 12.10.2024 09:17
Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu „Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. Innlent 10.10.2024 10:50
Taka flugið til Tyrklands Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarflugi til Antalya í Tyrklandi. Fyrsta flugið verður farið 15. apríl á næsta ári og verður flogið einu sinni í viku fram til byrjun júnímánaðar áður en áætlunin verður tekin upp að nýju í september og fram yfir miðjan nóvember. Viðskipti innlent 9.10.2024 10:17
Aflýsa flugi til og frá Orlando Icelandair hefur aflýst fyrirhuguðu flugi til og frá Orlando í Flórída síðdegis í dag og á morgun. Viðskipti innlent 9.10.2024 07:11
Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Í næsta mánuði stendur til að taka í notkun nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Lögreglufulltrúi segir að með nýja kerfinu sé meðal annars vonandi hægt að ná betri tökum á skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Innlent 6.10.2024 21:28
Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Áhöfn Boeing 747-júmbóþotu Air Atlanta flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið í kvöld og var hún yfir borginni um klukkan 18:50. Flugvélin var að koma með 240 starfsmenn félagsins og maka frá Casablanca í Marokkó og lenti í Keflavík upp úr klukkan 19. Innlent 6.10.2024 17:50
Hér sést risaþotan taka á loft frá Keflavíkurflugvelli Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni var í dag og flaug vélin sérstakan kveðjuhring yfir Reykjavíkursvæðinu. Forstjóri Atlanta segir þessa flugvélartegund hafa byggt upp félagið. Innlent 3.10.2024 21:31
Risaþota flaug í lágflugi yfir Reykjavík Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747 verður um klukkan tvö í dag. Flogið verður í lágflugi yfir Reykjavík í tilefni dagsins og þaðan í sérstakt kveðjuflug með starfsmenn félagsins til Casablanca í Marokkó í Norður-Afríku. Innlent 3.10.2024 13:31
Ekki sniðugt að hafa öll eggin í sömu öskjunni Eldfjallafræðingur segir marga aðra staða á landinu betri valkost fyrir varaflugvöll en Hvassahraun. Sama vá steðji að því svæði og að flugvöllunum í Reykjavík og Keflavík. Betra sé að hafa ekki öll eggin í sömu öskjunni. Innlent 2.10.2024 12:35
Ráðamenn ríkis og borgar hallast að því að halda áfram með Hvasshraun Innviðaráðherra og borgarstjóri hallast að því að haldið verði áfram að undirbúa flugvöll í Hvassahrauni, eftir að starfshópur komst að þeirri niðurstöðu að svæðið hentaði veðurfarslega og að hætta vegna hraunflæðis væri afar lítil. Innlent 1.10.2024 20:20
Á meðan bílinn er ódýrari verði hann fyrsta val Á meðan það er ódýrara að aka og leggja bíl í stæði við Keflavíkurflugvöll en að nota aðra ferðamáta verður einkabíllinn í flestum tilfellum fyrsta val fólks. Þetta segir í skýrslu starfshóps sem innviðaráðherrra skipaði með tillögum úrbótum um almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar. Innlent 1.10.2024 11:16
Flugvöllur í Hvassahrauni alls ekki úr myndinni Niðurstöður starfshóps um byggingu flugvallar í Hvassahrauni eru þær helstar að ólíklegt sé að náttúruvá hafi áhrif á flugvöll á svæðinu, engin veðurskilyrði mæli gegn valinu og líklega verði ekki mikil langtímaáhrif á eftirspurn í innanlandsflugi ef af flutningi þess verður í Hvassahraun. Innlent 1.10.2024 11:15
Svara Bjarna fullum hálsi: „Hann myndi vita það best hvernig hann er að skilja við ríkissjóð“ Innlent