Samfylkingin

Fréttamynd

Rifjaði upp erfitt augna­blik frá 1994 til að skjóta á mót­herja

Regn­bogafánar og lausa­ganga flokks­gæðinga komu við sögu þegar odd­vitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum um­ræðum við kosninga­pall­borð frétta­stofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn upp fyrir Sjálf­stæðis­flokk og Fram­sókn bætir við sig

Samfylkingin mælist með mest fylgi í Hafnarfirði í nýrri könnun Maskínu, líkt og í síðustu könnun. Það sem vekur hins vegar athygli er að Viðreisn fer upp fyrir Sjálfstæðisflokk og mælist næst stærst flokka. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er kolfallinn þrátt fyrir fylgisaukningu Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Um­ferðar­mál í Urriðaholti – Flótti frá vandanum

Með fjölgun íbúa í Urriðaholti og uppbyggingu þjónustu í Kauptúni hefur álag á inn- og útkeyrsluleiðina í hverfið aukist gríðarlega og annar enganveginn umferðinni. Unnið er að opnun út á Flóttamannaveg sem mun vonandi eitthvað létta á álaginu á núverandi innkeyrslu inní hverfið. Ég óttast því miður að það verði óverulegt og þessi tenging verði fyrst og fremst flóttaleið og gagnsemin felist í að hafa fleiri en eina leið í hverfinu ef meginleiðin lokast.

Skoðun
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Glæ­ný skoðana­könnun kynnt fyrir Hafnar­fjörð

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna.

Innlent
Fréttamynd

Álftnesingar mæta af­gangi

Það er eitthvað undarlegt við framkvæmdir á Álftanesi. Stundum virkar eins og verið sé að leika í stað þess að framkvæma. Verktakar mæta með tæki, grafa djúpa holu og skilja svo svæðið eftir mannlaust mánuðum saman á meðan þeir halda áfram í verkefni annars staðar í bænum með tilheyrandi raski fyrir íbúa og neikvæðum áhrifum á skólastarf.

Skoðun
Fréttamynd

Það kemur ekki til greina að rífa upp samgöngusáttmálann

Umræðan fyrir komandi kosningar hefur færst frá bílastæðum yfir í að endurskoða samgöngusáttmálann frá grunni. Þegar samgöngusáttmálinn var undirritaður árið 2019 markaði það tímamót í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sameinuðust öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, leidd af ýmsum flokkum, um forgangsröðun framkvæmda enda höfuðborgarsvæðið eitt atvinnu- og búsetusvæði.

Skoðun
Fréttamynd

Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra fram­boða í Reykja­vík

Margt er líkt í stefnu flokkanna í leikskólamálum. Margir vilja tryggja systkinaforgang og heimgreiðslur og nær allir tala í sinni stefnu um að styrkja dagforeldrakerfið. Margir vilja auka svigrúm fyrirtækja og stofnana til að opna leikskóla. Nokkrir flokkar tala um hvernig á að auka mönnun og einhverjir tilgreina nákvæmlega hversu mörgum plássum á að fjölga á kjörtímabilinu.

Innlent
Fréttamynd

Pólitísk for­gangs­röðun í þágu allra Kópa­vogs­búa

Núna eru um þrjár vikur til sveitarstjórnarkosninga. Núverandi meirihluti undir forystu Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum upp á síðkastið þar sem fulltrúar hans tala um hversu frábær þjónustan í bænum sé og hvernig samráð við íbúa hafi ráðið ríkjum á yfirstandandi kjörtímabili. 

Skoðun
Fréttamynd

Meiri­hluti odd­vita í glæ­nýju hlut­verki

Mikil endurnýjun er á oddvitum framboða á Akureyri og í Fjallabyggð fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar en af ellefu oddvitum í sveitarfélaganna eru sjö nýir. Þrír oddvitar eru enn fremur glænýir í sveitarstjórnarmálum í sveitarfélögunum, oddvitar Viðreisnar og L-listans á Akureyri og oddviti Jafnaðarfólks og óháðra í Fjallabyggð. Aðeins Framsókn, Vinstri græn og Miðflokkurinn eru með sömu oddvita og í síðustu sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. H-listinn í Fjallabyggð heldur sig einnig við sama mann í forystusæti og síðast.

Innlent
Fréttamynd

Gömul við­horf til leik­skóla lifa enn

Þegar ég hóf leikskólakennaranám haustið 1991 sagði hneykslaður karlkyns fjölskyldumeðlimur við mig: „Ætlarðu að fara í þriggja ára nám til að læra það sem konur hafa kunnað alla tíð“. Auðvitað hunsaði ég þessi viðbrögð enda ein besta ákvörðun lífs míns að verða leikskólakennari.

Skoðun
Fréttamynd

Beitir sér ekki sér­stak­lega fyrir því að spurningunni verði breytt

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ætlar ekki að beita sér sérstaklega fyrir því að spurningu í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verði breytt. Það sé verkefni Alþingis og hún treysti því. Kristrún var gestur utanríkismálanefndar og ræddi þar Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslendinga. 

Innlent
Fréttamynd

Jónas upp­lifði pot Ás­dísar ekki sem á­rás

„Ég upp­lifði þetta pot ekki sem mikla árás,“ segir Jónas Már Torfa­son, odd­viti Sam­fylkingarinnar í Kópa­vogi, sem tók ekki eftir því þegar Ás­dís Kristjáns­dóttir, bæjar­stjóri og odd­viti Sjálf­stæðis­flokks, ýtti tvisvar við honum þegar þau tókust á um orðið í heitum um­ræðum á Sprengi­sandi í gær.

Lífið
Fréttamynd

Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu

Hart var á tekist þegar oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Kópavogi mættu í Sprengisand í morgun. Raunar svo hart að átökin urðu líkamleg, ef svo má segja. Ásdís Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs varð svo um þegar Jónas Már gerði atlögu að orðinu að hún potaði í hann.

Lífið
Fréttamynd

Muni vitan­lega gera kröfu um sæti í meiri­hluta

Oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri segist þakklátur fyrir meðbyr sem hann hafi fundið fyrir að undanförnu og segir að verði flokkurinn stærstur að loknum kosningum muni hann eðli málsins samkvæmt gera kröfu um sæti í meirihluta.

Innlent
Fréttamynd

Að verða Akur­eyringur

„Er ekki gott að búa á Íslandi?“ spyr samstarfsmaður minn mig. Ég svara samstundis; „Jú, annars væri ég ekki hér!“

Skoðun
Fréttamynd

Bilið á milli turnanna breikkar

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavíkurborg og eykur forskot sitt á Samfylkinguna. Flokkurinn mælist með ríflega tuttugu og fimm prósenta fylgi í borginni í nýrri könnun Maskínu og hefur farið upp um fjögur prósentustig síðan í mars.

Innlent
Fréttamynd

Reiði yfir pítsupartíi: Aug­lýst á fundi án sam­ráðs

Grindvíkingar og aðrir virðast verulega reiðir yfir því að valkyrjurnar svokölluðu hafi hist heima hjá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í kvöld og borðað saman pítsu. Mörgum finnst það miður þar sem Kristrún hafi verið beðin um að mæta á íbúafund í Grindavík í dag. Kristrún tilkynnti á mánudaginn að hún kæmist ekki á fundinn og spilar kvöldverðurinn ekki þar inn í.

Innlent
Fréttamynd

Mitt upp­á­halds stefnu­mál? Systkinaforgangur

Samfylkingin í Reykjavík vill bjóða upp á systkinaforgang þannig að yngra systkin komist alltaf inn á sama leikskóla og eldra systkin. Þetta er eitt af mínum uppáhalds stefnumálum fyrir kosningarnar vegna þess að yfir þriggja ára tímabil keyrði ég börnin mín á sitthvorn leikskólann á hverjum degi og þar af í heilt ár á milli hverfa í Reykjavík.

Skoðun
Fréttamynd

Jöfnuður, á­byrgð og upp­bygging

Við, Samfylkingin og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð, bjóðum fram í komandi sveitarstjórnarkosningum vegna þess að okkur er annt um samfélagið okkar og viljum halda áfram að leggja okkar af mörkum til að gera það enn betra. Við stöndum fyrir skýrum gildum og höfum ávallt gert: jöfnuð, ábyrgð og uppbyggingu sem skilar sér í betra samfélagi.

Skoðun
Fréttamynd

Sterkari saman

Á laugardaginn, þegar sléttar fjórar vikur voru til kosninga, kynntum við í Samfylkingunni á Akureyri stefnuskrána okkar og kosningaáherslur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Áherslurnar eru afrakstur vinnu listans, sem samanstendur af 22 öflugum og ólíkum einstaklingum, samtali við íbúa, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök um hvernig við byggjum bæinn okkar til framtíðar.

Skoðun
Fréttamynd

Alma Möller fagnar nýjum sótt­varna­lögum

Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ölmu Möller heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 og hefur síðan verði lagt fjórum sinnum fyrir þingið. 

Innlent
Fréttamynd

Bjart­sýni í boði

Ég er bjartsýnismaður og finnst mikilvægt að benda á það sem jákvætt er og forðast svartsýni. Það þýðir ekki að maður láti framhjá sér fara það sem miður fer, heldur legg ég áherslu á að leita jákvæðra leiða til að leysa vandann hverju sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Út­lit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni

Það verður flókið að mynda meirihluta í borgarstjórn í vor miðað við nýuppfærða kosningaspá Vísis að mati stjórnmálafræðings. Stóru tíðindin nú séu þau að það mikla sóknarfæri sem opnast hafi á vinstri væng íslenskra stjórnmála sé byrjað að fyllast, sérstaða Vinstrisins sé miklu skýrari en ella.

Innlent
Fréttamynd

Kópavogsdalur er okkar Central Park

Skipulagsmál eru einhver mikilvægustu verkefni sem sveitarfélög hafa með höndum. Það er á forræði skipulagsyfirvalda að ráðstafa takmörkuðum gæðum þannig að lífsgæði verði betri. Þar skiptir öllu að fagleg og vönduð vinnubrögð séu höfð að leiðarljósi.

Skoðun