Kína

Unnur var burðardýr fyrir smyglhring í Hong Kong
Unnur Guðjónsdóttir er mikil ævintýrakona en hún er landsþekkt fyrir ferðir sínar með hópa Íslendinga til Kína í yfir fjörutíu ár sem hafa slegið í gegn.

Ætla sér að reisa geimstöð á tunglinu
Rússar og Kínverjar hafa gert samkomulag um að reisa rannsóknarstöð á tunglinu. Stöðina vilja þeir nota bæði til könnunar og nýtingar tunglsins í framtíðinni.

Kínverjar ætla að herða tökin á kosningum í Hong Kong
Kosningakerfi Hong Kong verður umturnað samkvæmt tillögu sem kínverska alþýðuþingið samþykkti í dag. Andstæðingar tillögunnar segja að hún muni í reynd kæfa allt andóf gegn kínverskum stjórnvöldum verði hún að veruleika.

Heimsveldin og auðlindir Grænlands
Lantan, gadólín og dysprósín eru málmar sem líklegast fæstir kannast við en koma sífellt meira að okkar daglegu lífum. Líkur eru á því að akkúrat núna megi finna þessa málma, og aðra, einungis sentímetra frá andliti þínu.

47 aðgerðasinnar ákærðir fyrir brot á öryggislögum í Hong Kong
Lögreglan í Hong Kong hefur kært 47 aðgerðasinna fyrir að grafa undan kínverskum yfirvöldum. Um er að ræða brot á umdeildum öryggislögum sem innleidd voru í lok maí í fyrra. Lögin eru sögð takmarka frelsi íbúa umtalsvert, sem kínversk stjórnvöld og stjórnvöld í Hong Kong hafa neitað.

Búast við mikilli aukningu fjárútláta til varnarmála
Sérfræðingar búast við því að ráðamenn í Kína muni tilkynna töluverða hækkun á fjárútlátum til varnarmála í upphafi nýs þings í næsta mánuði. Hækkunin í fyrra var 6,6 prósent, sem var sú lægsta í áratugi.

Kannast ekki við að erindrekar hafi verið þvingaðir til að gefa sýni úr endaþörmum þeirra
Talsmaður utanríkisráðuneytis Kína segir rangt að bandarískir erindrekar þar í landi hafi verið skikkaðir í skimun fyrir Covid-19, þar sem sýni voru tekin úr endaþörmum þeirra.

Hersveitir hörfa frá umdeildu stöðuvatni
Indverskar og kínverskar hersveitir hafa hörfað frá landsvæði við stöðuvatnið Pangong í Himalaja-fjallgarðinum á landamærum ríkjanna. Mikil spenna hefur verið á svæðinu síðustu mánuði, en ríkin hafa lengi deilt um hvar landamærin skuli liggja.

Segir Bandaríkin „snúin aftur“
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, ávarpaði gesti árlegrar öryggisráðstefnu í München í dag og sagðist ætla að senda skýr skilaboð. Þau væru á þá leið að Bandaríkin væru „snúin aftur“ og að Bandaríkin myndu bæta samskipti bandamanna þeirra hinum megin við Atlantshafið.

Kínverjar viðurkenna mannfall í Himalæjafjölum í sumar
Ráðamenn í Kína hafa viðurkennt að fjórir hermenn ríkisins hafi dáið í átökum við indverska hermenn í Himalæjafjöllum í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn sem Kínverjar viðurkenna mannfall í mannskæðustu átökum ríkjanna í 45 ár.

Vilja múlbinda bloggara og áhrifavalda í Kína
Kínverskir bloggarar og áhrifavaldar munu í næstu viku þurfa leyfi frá yfirvöldum landsins til að tjá sig um ýmis málefni. Markmið þessarar herferðar er að stýra almenningsáliti í Kína.

Neita að afhenda frumgögn um fyrstu kórónuveirutilfellin
Kínversk yfirvöld hafa neitað að afhenda Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO, mikilvæg gögn um kórónuveirufaraldurinn.

Vilja veita yfirmanni útlendingamála heimild til að banna fólki að fara
Samtök málflutningsmanna í Hong Kong hafa gagnrýnt tillögu stjórnvalda um að veita yfirmanni útlendingamála vald til að koma í veg fyrir að einstaklingar yfirgefi borgina. Ákvörðunarvald hans myndi bæði eiga við um íbúa og ferðalanga.

BBC bannað í Kína
Kínversk yfirvöld hafa bannað útsendingar frá breska ríkisútvarpinu, BBC World News. Breska ríkisútvarpið vill meina að það megi rekja til fréttaflutnings BBC um kórónuveiruna og ofsóknir kínverskra yfirvalda á Úígúrum, þjóðarbroti í norðvestanverðu Kína.

Öngþveiti á sporbraut um Mars
Ákveðið öngþveiti verður á sporbraut um Mars í næstu viku þegar þrjú ný geimför hafa náð sporbraut um plánetuna. Kínverskt geimfar náði á braut um Mars í gær en þar var fyrir geimfar frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Segja Kínaferðina ekki hafa skilað miklum árangri
Vísindamenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segja Kínaheimsókn þeirra ekki hafa skilað miklum árangri varðandi skilning vísindamanna á nýju kórónuveirunni. Hins vegar hafi teymi stofnunarinnar tekist að auka þekkingu varðandi upphaf faraldursins.

Lýsir áhyggjum af viðbúnaði Kínverja
Tsai Ing-wen, forseti Taívans, lýsti í dag áhyggjum af sífelldu flugi kínverska hersins nærri eyjunni og sagði það ógna öryggi á svæðinu.

Áströlsk fréttakona sögð hafa ljóstrað upp kínverskum ríkisleyndarmálum
Ástralski fréttamaðurinn Cheng Lei hefur formlega verið ákærð í Kína eftir marga mánuði í haldi lögregluyfirvalda. Henni er gert það að sök að hafa sagt erlendum aðilum frá kínverskum ríkisleyndarmálum.

Úígúrar í Tyrklandi óttast að verða framseldir fyrir bóluefni
Yfirvöld í Tyrklandi hafa handtekið tuga Úígúra sem hafa flúið frá Kína til Tyrklands. Um það bil fimmtíu eru í haldi yfirvalda og í hættu á að verða framseldi. Úígúrar óttast að verða sendir aftur til Kína í skiptum fyrir bóluefni sem Tyrkir hafa keypt af Kínverjum en ekki fengið afhent.

Bretar og Kínverjar deila um ríkismiðla
Ráðamenn í Kína saka breska ríkisútvarpið BBC um að flytja falskar fréttir frá Kína og þá sérstaklega varðandi umfjöllun um faraldur nýju kórónuveirunnar.

Kínverjar með sína eigin Parísarborg
Inni á YouTube-síðunni Daily Dose Of Internet koma daglega inn myndbönd þar sem fróðlegir og skemmtilegir molar fá að njóta sín.

Kínverjar beittu neitunarvaldi sínu í öryggisráðinu
Kínverjar hafa beitt neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn tillögu um að fordæma herforingjastjórnina í Mjanmar.

Kalla Pompeo rottu og saka hann um að skemma samskipti Kína og Bandaríkjanna
Ráðamenn í Kína segja Mike Pompeo, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafa lagt stein í götu Kommúnistaflokks Kína og nýrrar ríkisstjórnar Joe Bidens. Það hafi hann gert með því að saka yfirvöld Kína um þjóðarmorð gegn Úígúrum í Xinjianghéraði.

Eins og nýjasti þátturinn í gamalli sjónvarpsseríu
Stjórnvöld í Kína vara við stríði ef yfirvöld í Taívan sækja í átt að sjálfstæði. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir Kínverja vera að þreifa fyrir sér.

Sérfræðingar WHO þurfa samstarf yfirvalda í Wuhan
Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem sendir voru til Kína til að rannsaka uppruna faraldurs nýju kórónuveirunnar og það hvernig hún barst fyrst í menn, hafa lokið tveggja vikna sóttkví þeirra.

„Sjálfstæði Taívans þýðir stríð“
Yfirvöld Kína hafa hert orðræðu sína gagnvart Taívan töluvert. Í dag varaði talsmaður varnarmálaráðuneytis Kína við því að ef ráðamenn í Taívan lýstu yfir sjálfstæði, þýddi það stríð milli ríkjanna.

Sérfræðingar WHO geta hafið rannsókn sína í Wuhan
Teymi sérfræðinga frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) hefur nú lokið einangrun eftir komuna til Kína.

Halda heræfingar og vara við köldu stríði
Yfirvöld í Kína opinberuðu í morgun að til stæði að halda heræfingar í Suður-Kínahafi í vikunni. Það er í kjölfar þess að Bandaríkjamenn sigldu flugmóðurskipi og öðrum herskipum í gegnum hafsvæðið umdeilda sem Kínverjar gera tilkall til. Þá varar Xi Jinping, forseti Kína, við nýju köldu stríði.

Ný átök á landamærum Kína og Indlands
Aftur hefur komið til átaka milli indverskra og kínverskra hersveita við landamæri ríkjanna. Bæði indverskir og kínverskir hermenn eru sagðir hafa særst í átökunum að því er fram kemur í indverskum fjölmiðlum.

Níu námuverkamannanna látnir
Níu þeirra námuverkamanna sem fastir voru í gullnámu í Shandong-héraði eftir að hún féll saman fyrr í mánuðinum, eru látnir.